Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Síða 40
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórrs - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1987.
Menningar-
málsverður DV
á morgun
I hádeginu á
morgun verður til-
kynnt hverjir hlotið
hafa Menningar-
verðlaun DV í ár.
Eins og endranær
verða verðlaunin,
sem í þetta sinn eru
skúlptúrar eftir
Stefán B. Stefáns-
son gullsmið, af-
hentir við veglegan
málsverð í Þing-
holti, Hótel Holti.
Sjálfur málsverður-
inn er einnig
nokkurt tilhlökk-
unarefni, því á
undanfórnum árum
hafa matreiðslu-
meistarar hótelsins
lagt sig ffam við
gerð óvenjulegra og
gómsætra fiskrétta
f\TÍr þessa menn-
ingarhátíð DV.
Þetta verður í níunda sinn sem
Menningarverðlaun DV eru afhent og
hefur fulltrúum listamannasamtaka
verið boðið til afhendingarinnar.
Nöfn hinna verðlaunuðu listamanna
verða birt í DV á morgun en á fóstu-
■Éag verður sagt nánai' fi'á því sem
gerðist við málsverðinn. -ai
Stefán B. Stef-
ánsson - Leik-
listarverðlaun
DV
Fræðslustjórastarfið:
Fresturinn
framlengdur
Jón G. Haukssan, DV, Akureyit
Sturla Kristjánsson. fvrrverandi
fræðslustjóri. var sá eini sem sótti um
stöðu fræðslustjóra í Norðurlandsum-
dæmi evstra. en umsóknarfrestur rann
út þann 15. febrúar sl. Menntamála-
^jáðherra hefur nú framlengt umsókn-
arfrestinn til 1. apríl næstkomandi.
Þess má minnást að Kennarasam-
band Islands og skólamenn i Norður-
landsumdæmi beindu þeim tilmælum
til félaga sinna að sækja ekki um þetta
starf.
Blóm
við öll tækifæri
Opið frá kl. 10-19
alla daga vikunnar.
GARÐSHORNÍð
5S
Suðurhlíð 35
sími 40500
við Fossvogskirkjugarðinn.
LOKI
Eru menn í þessum
minnihlutahópi
ekki orðnir flugleiðir?
Reynt að fella Millu
úr stióm Flugleiða?
w
- stjórnarformaður segir hana hafa beítt sér gegn hagsmunum hluthafa
Væringar eru meðal stærstu hlut-
hafa Flugleiða fvrir stjórnarfund
félagsins | næsta mánuði.
„Mér hefur verið sagt, oftar en
einu sinni, að það standi til að setja
mig út úr stjóminni," sagði Kristj-
ana Milla Thorsteinsson í morgun.
„Þess vegna tók ég mig til og sendi
hluthöfum Flugleiða, ekki öllum þó,
bréf og bað þá um umboð fyrir
stjómarkosninguna.
Einnig fór ég fram á að þeir stvddu
mig í að biðja um margfeldiskosn-
ingu. Þá geta minnihlutahópar
komið inn sínum mönnum. Ef það
er venjuieg listfikosning geta þeir
sem hafa 30-40% ráðið öllum mönn-
unum,“ sagði Kristjana Milla.
Sigurður Helgason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, sendi hluthöfum
bréf þar sem segir meðal annars:
„1 tilefni þess að einn stjómar-
manna hefur nú farið fram á það við
hluthafa að þefr veiti umboð vegna
aðalfundar 20. mars nk. án þess að
tekið sé fram hvaða afetaða verði
tekin varðandi útgáfu jöfnunar-
hlutábrefa viljum við hér með ítreka
að þu endursendir undirritað umboð
það sem þér var sent nýlega þar sem
afstaða þín til þessa máls kemur
fram.
eitthvað pirraöur þegar hann sá
þetta bréf frá mér því að hann send-
ir sjálfur bréf og blandar inn í
jöfnunarhlutabréfum," sagði Kristj-
ana Milla.
Rétt er að minna á það að á síð-
asta aðalfundi beitti ákveðinn
stjómarmaður ásamt hópi hluthafa
sér fyrir því að tillaga um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa yrði felld. Sú
varð og raunin á. Má segja að þess-
ir aðilar hafi því beitt sér gegn
hagsmunum almennra hluthafa."
„Stjómarformaðurinn hefur orðið
„Frá minni hálfu snýst þetta um
stjórnarkjörið. Ég er algjörlega sam-
þykk því að gefin verði út jöfnunar-
hlutabréf þegar maður er búinn að
sjá reikninga félagsins. Þetta eru
bara dylgjur sem hann fmnur upp,
órökstuddar," sagði hún.
-KMU
Akraborgin er á leiðinni í land og ennfremur flotbrúin í Reykjavíkurhöfn sem skipið hreinlega sökkti á dögun-
um. Ferjan er sem sagt að fara i slipp á meðan brúin er gerð nothæf á ný. Skagamenn verða því að þenja
sig landleiðina i bili ætli þeir að skreppa til höfuðborgarinnar. DV-myndir S
Stóra fíkniefnamálið:
Alls um 6 kíló af
hassi í dreifingu
Síðasta manninum af fimm, sem úr-
skurðaðir voru í gæsluvarðhald í
tengslum við rannsókn fíkniefnalög-
reglunnar á umfangsmiklu fíkniefna-
máli undanfamar vikur, hefur verið
sleppt úr haldi. Einnig mun Islending-
ur sá, sem hefur verið í gæsluvarðhaldi
í Danmörku, sleppa út í dag.
Að sögn Amars Jenssonar, lögreglu-
fulltnía hjá fíkniefnalögreglunni, mun
vera ljóst að frá því í apríl í fyrra
höfðu þeir sem handteknir voru dreift
um 6 kílóum af hassi en af þessu magni
náði lögreglan 1,4 kílóum í desember
og janúar sl.
Amar sagði að einn af þessum fimm
hefði farið alls 7 ferðir til Kaup-
mannahafnar til að ná í hassið, í
þremur ferðum við annan mann. Arn-
ar sagði ljóst að svikinn hefði verið
út gjaldeyrir til kaupa á efninu og að
sá sem náði í hassið hefði notað fölsk
nöfn til að blekkja lögregluyfirvöld.
Hvað varðaði fjármögnun á kaupun-
imi á hassinu sagði Arnar að næsta
sending hefði að stærstum hluta verið
ftármögnuð með sölunni af hinni síð-
ustu.
Miðað við að gangverð á hverju
grammi af hassi sé 800-1000 krónur
hefur veltan af því magni, sem fór í
umferð, verið um 4 milljónir króna.
-FRI
Veðrið á morgun:
Rigning
sunnan
lands
Á fimmtudaginn verður hæð yfir
norðaustanverðu Grænlandi en víð-
áttumikil lægð langt suðvestur í
hafi nálgast smám saman. Víða verð-
ur allhvöss austanátt á landinu,
rigning eða slydda, einkum sunnan-
lands. Hiti verður á bilinu -6 til 6
stig.
Trésmiðir boða
verkfall U. mars
Trésmiðafélag Reykjavíkur hefúr
boðað yfirvinnubann frá 4. mars og
allsherjar verkfall frá 11. mars hafi
samningar ekki tekist fyrir þann tíma.
Trésmiðafélagið liefur staðið í samn-
ingaviðræðum við viðsemjendur sína,
Meistarafélag húsasmiða í Reykjavík,
síðan í júlí í fyrra með nokkrum hlé-
um. Fyrir skömmu náðu svo þessir
aðilar samkomulagi, en þá greip
Meistarasamband byggingamanna
inn í og felldi samninginn.
Meistarafélag húsasmiða í Reykja-
vík er aðili að Meistarasambandinu
ásamt múrarameisturum, pípulagn-
ingameisturum og öðrum aðilum
byggingaiðnaðarins og eru lög þess
þannig að samningar sem einstök félög
gera teljast ekki gildir nema Meistara-
sambandið samþykki þá. -S.dór
i
\
4
\
\