Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Page 2
2
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
Fréttir
lá við árekstri
tveggja flugvéla
Á miðvikudag munaði litlu að
árekstur yrði á milli Fokkervélar
frá Flugleiðum og kennsluflugvél-
ar. Málsatvik voru þau að báðar
vélamar voru í blindflugi ofar
skýjum á leið frá Akureyri til
Reykjavíkur.
Fokkervélin, sem er hraðfleyg-
ari, flaug í meiri hæð. Flugstjórinn
fékk heimild til að lækka flugið í
hæð sem var 1.000 fetum ofar en
kennsluvélin flaug í. En það er
réttur hæðaraðskilnaður milli
flugvéla í blindflugi.
Flug Fokkervélarinnar var hins
vegar lækkað niður fyrir gefna
heimild sem orsakaði það að
árekstrarhætta skapaðist. Málið
er í rannsókn hjá Flugmálastjórn.
-sme
Stóðhestssmyglið:
Sýndi læknis-
vottorð ytra
Hestaútflytjandinn, sem smy-
glaði stóðhesti til Þýskalands á
dögunum, hafði farið með hann í
skoðun hjá dýralækni sem var að
skoða fleiri hross sem flytja átti
út. Þetta vottorð sýndi hann aldrei
hér en hefúr getað sýnt það í
Þýskalandi því að sýna verður
vottorð frá dýralækni fyrir alla
hesta sem þangað eru fluttir inn.
Þá mun þessi útflytjandi hafa
fengið að fylla útflutningsskýrslur
sínar út sjálfur en það eiga aðrir
að gera. Hér hafa því greinilega
verið margar gloppur í kerfinu.
Þess má svo geta að eiganda
stóðhestsins var greitt með glæsi-
legustu gerð af Audi bifreið sem
flutt var inn frá Þýskalandí þannig
að vel hefur verið greitt fyrir stóð-
hestinn.
-S.dór
Furðusaga
af fótbolta
Jón G. Hauksson, DV, Akureyrú
Sjö ára pilti á Húsavík, Stein-
grími Gunnarssyni, varð það á
fyrir ári að sparka fótboltanum
sínum út í Búðarána sem rennur
í gegnum Húsavík. Honum tókst
ekki að ná í boltann sem rak hratt
til sjávar. Leitað var og leitað en
dví miður enginn bolti.
En nýlega var hringt í hann frá
bænum Krossavík í Þistilfírði. Þar
hafði boltann rekið á fjöru.
„Það datt alveg af mér andlitið
regar konan hringdi og sagðist
vera með boltann,“ sagði Gunnar
Jóhannesson, faðir piltsins, við
DV. „Ég trúði þessu ekki en hélt
að það væri verið að gera grín.“
Boltinn er úr plasti. Nafh Stein-
gríms er ritað á hann ásamt síma
og heimilisfangi. Þetta var uppá-
haldsbolti drengsins.
„Jú, sonurinn er auðvitað hæstá-
nægður. Hann bíður bara eflir
boltanum," sagði Gunnar.
Hermann
hættir
Jón G. Haukæan, DV, Akuieyri;
Hermann Sveinbjömsson, rit-
stjóri Dags á Akureyri, hefur sagt
upp störfúm. Hann hyggst flytja
suður til Reykjavíkur. Samkvæmt
heimildum DV mun hann þá taka
til starfa hjá Sambandinu.
Áskell Þórisson, blaðafíilltrúi
KEA, hefur verið ráðinn fréttarit-
stjóri Dags og Bragi Bergmann
stjómmálaritBfjóri, en hann var
áður ritstjómarfúlltrúi blaðsins.
Hermann hóf störf hjá Degi 1.
janúar 1980.
DV
Efnislegar viðræður
ekki enn hafnar
- áfram fundað um helgina
í uppsiglingu eru mikil fundahöld nú eru að reyna að mynda ríkis- kosningar, hófúst fyrst formlegar
hjá fulltrúum flokkanna þriggja sem stjórn. í gær, tæpum mánuði eftir stjórnarmyndunarviðræður.
Formlegar stjórnarmyndunartilraunir hófust í gær undir forystu Þorsteins Pálssonar. Á fundinum í gær voru; (frá
vinstri) Kjartan Jóhannsson (A), Jón Sigurðsson (A), Jón Baldvin Hannibalsson (A), Jóhanna Sigurðardóttir (A),
Ólafur G. Einarsson (D), Þorsteinn Pálsson (D), Friðrik Sophusson (D), Guðrún Agnarsdóttir (V), Þórhildur Þorleifs-
dóttir (V) og fremst Danfríður K. Skarphéðinsdóttir (V). DV-mynd Brynjar Gauti
Ekki var samt rætt um efnisleg
atriði á fundinum sem stóð frá há-
degi og fram eftir degi í gær. Aðeins
var ákveðið hvaða vinnubrögðum
verður beitt i komandi viðræðum og
byrjað var á að setja niður hvaða
markmið ríkisstjóm þessara flokka
myndi setja sér. Því er ekki ljóst enn
hvort þessir flokkar eiga raunhæfan
möguleika á að mynda stjóm saman.
Jóhanna Sigurðardóttir, Alþýðu-
flokki, sagði eftir fundinn í gær að
ekkert hefði komið fram enn sem
benti til að þessir flokkar gætu ekki
náð saman. Guðrún Agnarsdóttir,
Kvennalista, sagði að ýmsar upplýs-
ingar þyrfti að fá varðandi efnahags-
ástandið og fleira áður en
viðræðumar gætu hafist af alvöru.
Ekki bjóst hún við að þær upplýsing-
ar fengjust að öllu leyti fyrr en eftir
helgi.
Áfram verður haldið fúndahöldum
um helgina og var næsti fúndur boð-
aður kl. 13 í dag. Búist er við
stöðugum fúndahöldum næstu daga.
Hvort ný ríkisstjóm er í burðarliðn-
um, eða ekki, skal ósagt látið. Hitt
virðist ljóst að allir flokkamir þrír
sem að viðræðunum standa taka
þátt í þeim af fúllri alvöm.
-ES
Meðhjálparinn sem kærði sóknarnefndina:
Sættir hafa tekist
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii’
Dómssátt hefur tekist í máli Árna
Loga Sigurbjömssonar, fyrrverandi
kirkjuvarðar og meðhjálpara á Húsa-
vík. Hann stefndi sóknamefnd staðar-
ins í fyrra vegna launa. Slíkt gerist
ekki á hverjum degi.
Árni krafðist þess að fá laun sem
hann taldi sig eiga inni hjá sóknar-
nefhdinni, 357.000 krónur, auk drátt-
arvaxta. Sóknamefnd Húsavíkur taldi
sig ekki geta sæst á kröfu Áma með-
hjálpara. Ámi fór því í hart og var
málið þingfest fyrir bæjarþingi Húsa-
víkur fyrir rúmu ári, vorið 1985.
Lögfræðingur sóknamefndar var ráð-
inn Bjöm Jósef Amviðarson á
Akureyr, en lögfræðingur Áma var
Hróbj artur Jónatansson úr Rey kj avík.
Tilboð og gagntilboð hafa gengið á
milli deiluaðila.
Nýlega tókust svo sættir. Sóknar-
nefnd hefur sæst á að greiða Áma
330.000 krónur og em vextir og verð-
bætur þar innifaldar.
Þegar málið kom upp var Áma sagt
upp starfi af sóknarnefndinni í lok
ágúst 1984 en hann hafði unnið um
árabil sem kirkjuvörður og meðhjálp-
ari.
Ráðstefha
um Rómar-
sáttmála
Samband hljómplötuútgefenda hélt
í gær ráðstefnu á Hótel Sögu um Róm-
arsáttmálann en sá sáttmáli kveður á
um alþjóðleg réttindi flytjenda, hljóm-
plötuframleiðenda og útvarpsstöðva.
Islendingar standa nú einir Norður-
landa utan sáttmálans og reyndar
erum við í hópi örfárra V-Evrópuríkja
sem enn hafa ekki gerst aðilar að hon-
um.
Af þessum sökum greiða íslendingar
ekki erlendum aðilum fyrir opinberan
flutning á erlendum hljómplötum og
eins fá íslenskir aðilar ekki greitt fyr-
ir opinberan flutning á íslenskum
hljómplötum sínum erlendis.
Aðild íslendinga að sáttmálanum
myndi því hafa í för með sér kostnað-
arauka fynr íslenskar útvarpsstöðvar
á sama tíma og hún myndi vafalaust
afla íslenskum útgefendum og flytj-
endum aukinna tekna.
Aðalræðumenn ráðstefnunnar voru
þeir Trevor Pearcy, skrifstofústjóri
alþjóðasamtaka hljómplötuframleið-
enda, og Sigurður Reynir Pétursson
Pétur Pétursson kaupmaður með fallegan fimmtán punda lax úr Hvítá í Borgarfirði. Netaveiði í Hvítá hefur
gengið vel. DV-mynd G. Bender
Maður handtekinn:
Grunaður um ósiðsamlegt athæfi
í gær sást til manns í Öskjuhlíð, þegar í stað. Stundu síðar var maður á að um sama mann sé að ræða og
hafandi í frammi dónaskap við fólk. handtekinn. Síðast þegar fréttist var haft hefur í frammi dónaskap við
Hringt var til lögreglu og hóf h'ún leit veriðaðyfirheyrahann. Grunúl leikur Breiðagerðisskóla. -sme