Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Page 3
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
3
Fréttir
Úrelding fiskiskipa:
Verða að sökkva 20
milljóna króna báti
„Við þessu er svo sem ekkert að
segja. Menn eru sammála um að
fiskiskipastólinn megi ekki stækka
og við 'erum með 30 ára gamlan 47
lesta bát og höfum áhuga á að fá
okkur nýjan 67 lesta bát og þar með
verðum við að sökkva okkar báti.
Hann var smíðaður 1956 og var allur
gerður upp fyrir 2 árum. Eg veit um
jafirstóran bát sem er 10 árum eldri
sem er til sölu og það eru settar á
hann 26 milljónir króna. Ég er viss
um að við gætum fengið 20 til 25
milljónir fyrir okkar ef við mættum
selja hann,“ sagði Magnús Guð-
laugsson í Ólafsvík í samtali við DV.
Magnús og félagar hans í Enni hf.
í Ólafsvík eiga bátinn Auðbjörgu SH
og eftir að hafa tekið úr honum vél-
ina, spilið og siglingar- og fiskileitar-
tæki munu þeir sökkva honum þegar
nýr bátur, sem þeir hafa pantað í
Póllandi, kemur til landsins í haust.
Sá bátur verður að mestu fullbúinn
nema hvað þeir setja sjálfir vél, spil
og siglingartæki í hann. Pólski bát-
urinn mun kosta 8,2 milljónir króna
eins og þeir taka við honum en þeg-
ar allt, sem til þarf, hefur verið sett
í hann verður kostnaðurinn um 20
milljónir króna.
Verkalýðsfélagið Eining:
Lýsir sig andvígt
stofnun samtaka
fiskvinnslufólks
- en telur koma til greina að deildarskipta verkalýðsfélögunum
Á aðalfundi Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar á Akureyri var samþykkt
ályktun þar sem félagið lýsir sig and-
vígt þeirri hugmynd sem komið hefur
frarn um að stofha sérstakt landssam-
band fiskvinnslufólks.
Segir í ályktuninni að ef farið yrði
inn á þá braut að kljúfa einstakar
starfsstéttir út úr Verkamannasam-
bandinu yrði erfitt að sjá fyrir hvem
enda það tæki. Er því spáð að þá
myndi Verkamannasambandið leysast
upp og eftir stæðu sundruð sérsam-
bönd.
1 ályktuninni er hvatt til þess að
halda ijórðungssamböndunum saman
í stað þess að fara út í stofnun fleiri
sérsambanda með höfuðstöðvar í
Reykjavík.
Síðan segir í ályktuninni að trúnað-
arráð Einingar telji koma til greina
að stofna sérstakar deildir fiskvinnslu-
fólks og ef til vill fleiri starfsstétta
innan stærstu verkalýðsfélaganna en
telur þó að fara beri að því með gát
og ekki sé rétt að^deildarskipta fá-
mennum félögum. Það gæti orðið
þeirra banabiti.
1 Einingu em alls 3.665 félagar, 3.117
aðalfélagar og 578 aukafélagar. Konur
eru 2.356 en karlar 1.339. Eining er
ekki eitt þeirra verkalýðsfélaga þar
sem meirihlutinn vinnur við fisk-
vinnslu.
-S.dór
Margir fleiri fiskibátar í nokkuð
góðu ástandi munu á næstu misser-
um fara sömu leið og Auðbjörg SH.
Eigendurnir munu sökkva þeim til
þess að geta keypt sér ný skip. Það
má því segja að mikil verðmæti fari
í hafið af mannavöldum með þessum
bátum.
-S.dór
n Jeep
í JEEP WAGONEER OG CHEROKEE fara saman
gæöi, glæsilegt útlit, þægindi og kraftur á þann
hátt að hann á engan sinn líka.
JEEP
WAGONEER
OG
CHEROKEE
Stödutakn
nútímans.
Opið í dag kl. 1-5.
n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON HF.
UMBOÐIÐ Smiójuvegi 4, Kopavogi, simar 77200 - 77202.
rjr*m
BIACK&DECKER Garðáhöldunum
Kantskerar
í úrvali
Verð frá kr.
3.943,-
Við eigum einnig fyrir-
liggjandi stærri sláttuvél-
ar og ýmis gæðaáhöld.
Útsölustaðir um land allt.
. — Jorsteinsson
&1ohnson
ARMÚLA1 - SIMI 68-55-33