Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
17
Dagskrá Ríkisútvarpsins
EÍNN CADÍLLAC/mÍckI
SELJÍ-Ð ÞÍDTRABAMT
Mtí> AFBO»?6UMUn ?•
tBAR.fc'A-
H£ÍMÍLI U
PTn
Þegar ég kom heim úr vinnunni
kvöld eitt í síðastliðinni viku var
konan mín að reyna að drepa flug-
ur í svefnherberginu og lætin í
henni voru svo mikil að ég þakkaði
guði fyrir að hafa verið fjarverandi
meðan leikurinn stóð sem hæst en
þegar ég kom til sögunnar var kon-
an mín orðin talsvert móð enda
búin að lemja alla veggi svefn-
herbergisins með Alþýðublaðinu
án þess að hafa annað upp úr krafs-
inu en að eyðileggja blaðið.
- Þessar helvítis flugur sækja svo
Háaloft
Benedikt Axelsson
í ljósið, sagði konan mín og lamdi
Alþýðublaðinu enn einu sinni í
vegginn.
Nú gætu einhverjir haldið að
þessi bardagagleði konunnar
minnar væri ónauðsynleg en það
er öðru nær, konan mín hefur það
nefnilega fyrir sið að lesa heims-
bókmenntirnar um svipað leyti og
aðrir þegnar landsins fara að
dreyma um hæsta vinninginn í
lottóinu eða hæsta vinninginn í
happaþrennu Háskóla íslands.
Um tólfleytið á kvöldin læðist
hún inn í rúm eftir að hafa þvegið
upp, ryksugað, skúrað og þurrkað
af og fer að lesa Nóru Ephron eða
Fay Weldon eða Garþía Markes.
- Veistu hvað helvítið gerði? sagði
konan mín þegar ég bað hana í guð-
anna bænum að fara ekki svona illa
með Alþýðublaðið, - hún hlammaða
sér niður á blaðsíðu tvö hundruð
sjötíu og fjögur með slíkum gaura-
gangi og það munaði minnstu að
ég fengi hjartaáfall, ég skal sko al-
deilis kaupa flugnaeitur á morgun,
bætti konan mín við þegar hún
hafði gjöreyðilagt Alþýðublaðið
mitt og hent því frá sér eins og það
væri Þjóðviljinn eða Mogginn.
Þegar við áttum heima við þjóð-
veg sjö hundruð og ellefu lærðum
við að umgangast flugur. Við kom-
umst til dæmis fljótlega að raun
um það að flugur sækja í ljós og
þess vegna kveiktum við alltaf
frammi á gangi ljósið á vorin áður
en við fórum að sofa og þökkuðum
fiskiflugunum fyrir komuna sem
við mættum á leiðinni inn í svefn-
herbergi.
Einstöku sinnum brást þessi
hernaðarlist og þá sagði konan mín
gjarnan: - Vesalings flugan er
ábyggilega annaðhvort blind eða
sofandi, ekki drepa hana fyrr en
hún vaknar.
- Það er mikið að hún skuli ekki
fara fram á að ég skreppi með hana
til augnlæknis áður en ég stúta
henni, hugsaði ég þá og náði í
Moggann því að það er eiginlega
eina blaðið sem vinnur nokkuð
örugglega á flugum.
En þótt einkennilegt megi virðast
er ekki sama með hvaða blaðsíðu
maður drepur þessi grey, ég komst
að raun um það þarna við þjóðveg-
inn að það er algjörlega vonlaust
að reyna að drepa fiskiflugu með
leiðarasíðunni og um leið og maður
fletti upp á dánarfregnum og jarð-
arförum vaknaði kvikindið og
flaug umsvifalaust út um
gluggann.
Hins vegar drap ég ófáar blindar
og sofandi flugur með dagskrá Rík-
isútvarpsins.
Dagskráin
Konan mín var sem sagt orðin
æst þarna um daginn og af því til-
efni bauðst ég til að aðstoð hana
við morðin á flugunum, sem voru
jafnvel hrifnari af Garþía Markes
en hún, og fór fram í eldhús að ná
í Moggann en á okkar heimili er
allt á sínum stað nema táningur-
inn.
Þegar ég kom til baka var konan
mín lögst upp í rúm með Garþía
Markes og um leið og ég tók mér
stöðu á svefnherbergisgólfinu með
dagskrá Ríkisútvarpsins í höndun-
um bað ég konuna mína að loka
nú munninum á sér í svo sem tíu
sekúndur ef hún gæti á meðan ég
væri að myrða flugurnar. - Annars
gæti svo farið að þær dyttu upp í
þig, sagði ég við konuna mína.
Að svo búnu horfði ég fast og
lengi á fluguna á veggnum og eftir
að hafa miðað á hana vel og vand-
lega lét ég höggið ríða af.
- Hittir ekki, sagði konan mín
án þess að líta upp úr Markes þeg-
ar flugan flaug suðandi um svefn-
herbergið.
- Undarlegt, hugsaði ég, - getur
verið að dagskrá Ríkisútvarpsins
sé að hraka og það í þessari bull-
andi samkeppni?
Kveðja
Ben.Ax.
____________________________________44
Finnurðu
átta breytingar?
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri
myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst,
alls á átta stöðum. Það er misjafnlega eríítt að finna þessar
breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum
við því að allt komi það að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru og
sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að
þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum
þrenn verðlaun, öll frá Sjónvarpsbúðinni, Höfðatúni 2: vasaút-
varpstæki með segulbandi (verðmæti 3.000,- kr.), vasadiskó
(verðmæti 2.300,- kr.) og plötustatíf (verðmæti 900,- kr.).
í öðru Helgarblaði héðan í frá birtast nöfh hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta Helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
Átta breytingar - 44, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík.
Verðlaunahafar reyndust vera Sigrún Guðmundsdóttir,
Syðra-Langholti, 801 Selfoss (vasaútvarpstæki með segul-
bandi, kr. 3.000,-), Nanna Eiríksdatter, Melgerði 11, 200
Kópavogi (vasadiskó, kr. 2.300,-) og Hilmar Guðjónsson, Vest-
urási 51, 110 Reykjavík (plötustatíf, kr. 900,-).
Vinningamir verða sendh’ heim.
NAFN .......
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER .
ÞVl FLEIRI
V?t STERKARI
Búsett I
Baratta
Ivrtr «
búsetuj