Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Page 18
18
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
IÐNSKÓLINN
í REYKJAVÍK
Innritun fyrir skólaárið 1987-1988.
Innritun fer fram dagana 1 .-4. júní að báðum dögum
meðtöldum. Innritað verður í eftirtalið nám:
1. Samningsbundið iðnnám (námssamn-
ingur fylgi umsókn nýnema.).
2. Grunndeild bókiðna.
3. Grunndeild fataiðna.
4. Grunndeild háriðna.
5. Grunndeild málmiðna.
6. Grunndeild rafiðna.
7. Grunndeild tréiðna.
8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði.
9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun.
10. Framhaldsdeild í bókagerð.
11. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
12. Framhaldsdeild í hárskurði.
13. Framhaldsdeild í húsasmíði.
14. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
15. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvéla-
virkjun.
16. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði.
17. Almennt nám.
18. Fornám.
19. Meistaranám (sveinsbréf fylgi umsókn).
20. Rafsuðu.
21. Tæknibraut.
22. Tækniteiknun.
23. Tölvubraut.
24. Öldungadeild í bókagerðargreinum.
25. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og
rafeindavirkjun.
Innritun fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík frá kl.
10.00 til 18.00 alla innritunardagana og í Miðbæjar-
skólanum 1. og 2. júní.
Öllum umsóknum nýnema fylgi staðfest afrit prófskír-
teina. Iðnskólinn í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Smiðjuvegi 44-D, þingl. eigandi Bílaleigan
hf„ fer fram á eigninni sjálfri mánud. 25. maí kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur
eru Iðnlánasjóður, bæjarfógetinn í Kópavogi og Jóhannes L.L. Helgason hrl.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Engihjalla 3, 5. hæð D, þingl. eigandi Hall-
dóra Guðmundsdóttir, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í
Kópavogi, mánud. 25. maí kl. 13.30. Uppboðsbeiðendureru Veðdeild Lands-
banka íslands, Bæjarsjóður Kópavogs, Brunabótafélag Islands, bæjarfógetinn
i Kópavogi, Reynir Karlsson hdl., Asgeir Thoroddsen hdl., Jón Eiríksson
hdl., Verslunarbanki íslands, Ingólfur Friðjónsson hdl., Sigurmar Albertsson
hdl. og Róbert Árni Hreiðarsson hdl.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Hlaðbrekku 11, neðri hæð, þingl. eigandi
Hilmar Adólfsson, fer fram á eigninni sjálfri mióvikud. 27. mai kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru bæjarfógetinn I Kópavogi, Bæjarsjóður Kópavogs,
Friðjón Örn Friðjónsson hdl., Iðnaðarbanki Islands hf. og Ingvar Björnsson hdl.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Löngubrekku 1, talinn eigandi Eyvindur Ó. Benediktsson, fer
fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikudaginn 27.
maí kl. 13.45. Uppboósbeiðandi er Bæjarsjóður Kópavogs.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Kastalagerði 3, þingl. eigandi Angantýr Vil-
hjálmsson, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi,
miðvikud. 27. maí kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru bæjarfógetinn í Kópa-
vogi, Bæjarsjóður Kópavogs, Sveinn H. Valdimarsson hrl., Gjaldheimtan I
Reykjavík, Búnaðarbanki íslands, Magnús Norðdahl hdl. og Gjaldskil sf.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Engihjalla 9, 6. hæð F, þingl eigandi Þorgeir Pétursson, fer fram
í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 I Kópavogi, miðvikudaginn 27. maí
kl. 14.00. Uppboðsbeiöendur eru bæjarfógetinn í Kópavogi og Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Sæbólsbraut 20, þingl. eigandi Jóhann G.
Ásgeirsson, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, mið-
vikud. 27. maí kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir Thoroddsen hdl.,
Sigurður G. Guðjónsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Engihjalla 11,1. hæð B, talin eigandi Anna M. Jónsdóttir, fer
fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikud. 27. maí
kl. 15.50. Uppboðsbeiðandi er Brunabótafélag íslands.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Kvikmyndir
Barker leikstýrir Higgins i einu atriðanna.
Hrollvekjuhöfundurinn Clive Barker:
Svar Breta við
Stephen King
Undarlegir hlutir gerðust við
virðulegt hús í Dollis Hills í norður-
hluta London síðasta haust. Ekki
aðeins það að menn væru tældir í
kærulaust kynlíf og fengju meira en
þeir áttu von á heldur var þar einnig
hálfrotnað lík á flækingi og hópur
ruglaðra pönkara ráfaði út úr veggj-
um hússins. Þetta er hluti af hugar-
heimi breska hrollvekjuhöfundarins
Clive Barker og það er Barker sjálfur
sem hefur fest þennan heim á filmu
í fyrstu mynd sinni, Hellraiser.
Myndin verður tekin til sýningar í
Bandaríkjunum og Bretlandi en
Bretar telja kapp^nn sitt svar við
hinum geysivinsæla bandaríska
hrollvekjuhöfundi, Stephen King,
sem nú gerir einnig sínar mynd sjálf-
ur.
Eftir Barker liggja tvö handrit að
kvikmyndum en hann er lítt hrifinn
af því hvernig kvikmyndirnar eftir
þeim urðu. Og er Barker hitti fram-
leiðandann Christopher Figg (að-
stoðarleikstjóri A Passage to India)
steig hann sín fyrstu skref í að verða
leikstjóri. Þetta var snemma árs 1985
og lengi vel áttu þeir félagarnir í
erfiðleikum með að fjármagna kvik-
mynd þá sem þeir ætluðu sér að gera,
byggða á einni af sögum Barkers.
Það var ekki fyrr en á síðasta ári,
er bandaríska fyrirtækið New World
setti fram tryggingu fyrir dreifingu
myndarinnar, að hjólin fóru að snú-
ast.
Bandaríkjamaður
í aðalhlut-
verk
New World setti ekki fram trygg-
ingu sína án skilyrða. Meðal annars
krafðist íyrirtækið þess að Banda-
ríkjamaður færi með aðalhlutverkið
í myndinni, eiginmann sem flytur í
nýtt hús með seinni konu sinni og
kemst að raun um að fasteignasalinn
hefur látið ýmislegs ógetið um húsið.
Hlutverk þetta hlaut Andrew Robin-
son sem áður hefur m.a. leikið
geðsjúklinginn í Dirty Harry og að-
stoðarmann Walter Matthau í
Charley Varrick. Konu hans leikur
Clare Higgins í hlutverki sínu.
Clare Higgins sem leikið hefur í sjón-
varpsmyndum og hinni þekktu mynd
Bertolucci 1919. Þriðja aðalhíut-
verkið í myndinni, dóttir mannsins
af fyrra hjónabandi, er í höndum
Ashley Lawrence og er þetta hennar
fyrsta kvikmynd.
Húsið, sem myndin er tekin upp í,
segir Figg vera eins og best verður
á kosið, líkist að nokkru húsinu sem
notað var í The Amityville Horror
og hafði þann kost að vera í aðeins
nokkurra mínútna fjarlægð frá aðal-
stöðvum þeirra félaga, Figg og
Barker. Eigandi hússins sagði þeim
að þeir mættu breyta því eins og
þeir vildu við gerð myndarinnar.
Heimsókn
Breska kvikmyndatímaritið Films
and filming heimsótti upptökustað-
inn meðan á gerð myndarinnar stóð.
Er fulltrúi tímaritsins, Tim PuPeine,
kom á staðinn var verið að taka upp
atriði með fjórðu persónunni í kvik-
myndinni, bróður eiginmannsins sem
álitinn er horfinn. Hryllileg endur-
koma hans er eitt af lykilatriðum
myndarinnar. Bróðirinn er leikinn
af Oliver Smith en Tim segir í frá-
sögn sinni að hann sé óþekkjanlegur
vegna viðbjóðslegs gervis sem tók
þrjá tíma að setja á hann, og læt.ur
hann líta út fyrir að vera flóttamann
úr helvíti sem sloppið hefur næstum
óskaddaður þaðan. Smith segir gerv-
ið hins vegar þægilegt í meðförum,
það er fyrir utan þau atriði er hann
er þakinn slími.
Förðunin er í höndum Bob Peck.
Hann er yfirmaður 17 manna hóps
sem ætlað er að koma martraðar-
kenndum hugmyndum Barkers í
gagnið fyrir kvikmyndavélarnar.
Erfiðasta verkefni þeirra að mati
Peck var að skapa Cenobitana, hina
pönkuðu djöfla sem „hafa ekki gert
upp hug sinn um hvort þeim líkar
betur að meiða hvor annan eða
aðra“.
„Gaman að vinna hér“
Tim ræddi stuttlega við nýliðann í
myndinni Ashley Lawrence en hún
hefur komst næst því að leika hryll-
ingshlutverk er hún kom fram sem
ein af nornunum í Macbeth. Hún var
mjög ánægð með veru sína í Eng-
landi og fannst gaman að vinna með
þessum hóp.
„Allir eru raunverulegir hér, þeir
viðurkenna að kvikmyndagerð er
vinna,“ sagði Ashley og spurð um
Barker sagði hún: „Hann tekur ekk-
ert sem gefið og hann veit nákvæm-
lega hvað hann vill enda skrifaði
hann verkið upphaflega.“
Barker hefur sínar eigin hugmynd-
ir um hvernig vinna beri að kvik-
mynd: „Ég trúi því að stíll hafi mikið
með hagkvæmni að gera og þá ekki
eingöngu í sambandi við peninga,“
sagði hann og bætir því við að sagan
sé aðalatriðið. „En hversu heillandi
sem sagan er kemur hrollurinn úr
ástríðum mannanna. „Ég hef engan
áhuga á því að gera hryllingsmynd
þar sem hreinar meyjar eru eltar af
mönnum með skíðagrímur. Það eru
engar hreinar meyjar í minni mynd...
og ekki heldur skíðagrímur ef út í
það er farið.“
-FRI
Clive Barker mundar upptökuvélina.