Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
19
Popp
Uppspretta
í eyðimörk
Píanistinn Joe Jackson er ráða-
mönnum A&M útgáfunnar ráðgáta.
Allt frá því hann komst á mála hjá
þeim hefvir hann annað veifið komið
fram með plötur sem út frá markaðs-
sjónarmiðum eru út í hött. Nægir þar
að nefna plötuna Jumpin’ Jive þar
sem j asssveiflan var í hávegum höfð.
Þannig var það um daginn að Joe
Jackson gekk inn í höfuðstöðvar fyr-
irtækisins og tilkynnti að hann
ætlaði að gera nýja plötu. Gott og
vel. Gamanið fór hins vegar heldur
að kárna þegar hann útskýrði að
platan ætti eingöngu að vera leikin
og á henni yrði fátt sem ætti minnstu
möguleika á vinsældalistum.
Jackson minnist fyrstu viðbragða
stjórnanda A&M með hryllingi. „Við
settumst niður á skrifstofu í Los
Angeles, ég og fimmtíu manns frá
fyrirtækinu. Þannig sat hópurinn í
rúmlega klukkustund og hlustaði,
gjörsamlega steinrunninn. Síðan
klöppuðu allir kurteislega og gengu
út.“
Viljastyrkur
„Vitanlega stóð mér ekki á sama,“
segir Jackson ennfremur. „Síðan
þetta gerðist hef ég verið á stöðugum
fundum með stjórn fyrirtækisins og
reynt að benda á leiðir til að kynna
plötuna á hinum almenna markaði."
Joe Jackson sækir á brattann.
Platan er allavega komin út, hvað
svo sem A&M rrienn hafa tautað
upphátt eða í hljóði. Hún heitir því
táknræna nafni, Will Power. „Ég
held að platan sá ágætur prófsteinn
á stöðu hljómplötuiðnaðarins í dag,“
segir Jackson sposkur. „Hljómsveit-
in, sem aðstoðaði mig, er eins konar
sambland af big bandi og rokkhljóm-
sveit. Tónlistin er líka eftir því.“
„Eðlilegur hlutur“
Þótt Jackson komi útgáfufyrirtæki
sínu enn á óvart kippa fylgismenn
hans sér ekki upp við neitt. A undan
hafa komið alls konar plötur, allt frá
venjulegur dægurpoppi til sveiflunn-
ar á Jumping’ Jive, eins og áður var
vikið að. Jackson hefur auk þess
unnið að kvikmyndatónlist og Will
Power dregur nokkur dám af því.
Platan er samstætt tónverk, tónlistin
er fremur hæg og mjög myndræn.
Platan stendur þó vissulega fvrir
sínu ein sér.
Sjálfum finnst Jackson ferill sinn
í tónlistinni ekki svo harla óvenju-
legur. „Fyrir mér er þetta allt saman
eðlilegur hlutur og í raun sönnun
þess hve poppið spannar vítt svið.
Reyndar hlusta ég ekki á neinar af
eldri plötunum minum, nema Jump-
in’ Jive. Hún fær mig ennþá til að
brosa,” segir Joe Jackson.
Hin hliðin
Helgarpopp
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Bandaríska rokksveitin REM
sendi í vikunni frá sér plötu. Ekki
er sú plata ný. Hún er ekki beint
gömul heldur. Á henni er að finna
lög sem geymd hafa verið á b-hliðum
smáskífanna REM í gegnum árin.
Platan heitir Dead Letter Office og
inniheldur auk þess útgáfu fjór-
menninganna af Velvet Under-
ground lögunum Femme Fatale og
Pale Blue Eyes.
Það síðasta sem heyrðist frá REM
er það fyrsta sem þeir láta frá sér
eftir að vinsældir Caravan Of Love
gengu yfir.
í þessu lagi Houstmartins kveður
við breyttan tón hvað trommuleikinn
varðar. Við settið er nýjasti liðsmað-
ur sveitarinnar, Dave Hemingway,
sem áður lék með The Velvetones í
Hull. Forveri hans. Hugh Whitaker.
sem hætti í Houstmartins í mars.
sýnir nú á sér nýjar hliðar. Hann
hefur hafið nám við jassdeild tónlist-
arskólans í Hull. Hvar annars
staðar?
var smáskífulagið Superman sem
reyndar var líka að finna á seinustu
breiðskífu þeirra, Lifes Rich Page-
ant. IRS-útgáfan hefur ekkert látið
uppi hvort ný plata sé væntanleg frá
hljómsveitinni á árinu.
Önnur fjögurra manna rokksveit,
sem reyndar rekur ættir sínar til
Hull á Bretlandi, lætur nú á ný í sér
heyra. Nýjasta lag The Housemart-
ins heitir Five Get Over Excited og
REM-b lögin á plötu.
Einn á uppleið
Ýmsir veðja á Terence 'l’rent
D’Arby sem næstu soulstjörnu í dæg-
urlagaheiminum. Nýlega fikraði
hann sig upp breska vinsældalistann
með laginu If You Let Me Stay. Utan
þess hefur D’Arby ekki verið sérlega
áberandi, nema hvað hann hitaði upp
fyrir Mick Hucknall og félaga í
Simply Red á tónleikaferðalagi
hljómsveitarinnar.
Pilturinn rekur ættir sínar til New
York. Faðir hans var predikari og
móðir hans gospelsöngkona. Reynd-
ar leit lengstum út fyrir að tónlistar-
hæfileikar hans fengju einungis
útrás í slagsmálum. Pilturinn lærði
ungur box og vann til verðlauna í
léttvigt. „Ég átti ekki um neitt að
velja“ segir D’Arby. „Þegar ég var
lítill var ég svo aumur að jafnvel
stelpurnar í hverfinu börðu mig. Það
var annaðhvort að hrökkva eða
Terence Trent D’Arby lemur frá sér.
stökkva. Ég valdi boxið til að verja
mig.“
Næsta tækifæri
Eftir velgengninni í löglegum
handalögmálum skráði pilturinn sig
í herinn. „Ég var í sömu herdeild og
Elvis Presley." segir D'Arbv með
stolti þó heldur hafi honum leiðst
vistin hjá Sam frænda. Eftir það
þvældist hann um Evrópu vítt og
breitt og settist loks að á Englandi.
„Það er frekar stutt siðan ég bvrj-
aði að hlusta á soultónlist. Hér áður
fyrr hafði ég mest gaman af Journev
og Van Halen. Nú hef ég vandaðri
smekk. Patsv Cline, A1 Green og Sam
Cooke eru í mestu uppáhaldi hjá mér
núna, sérstaklega Sam Cooke. Ég
leyfi mér reyndar að kópera Wond-
erful World á tónleikum. Það er
hrífandi lag.“
Terence Trent D’Arby tekur salla-
rólegur þeim frama honum hefur
hlotnast fram að þessu. „Mig langar
að gera betur en ég geri mér grein
fyrir að það getur tekið tíma. Ég bíð
rólegur eftir næsta tækifæri.”
1 HAFNARFJÖRÐUR -
GANGSTÉTTIR
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í lagningu steyptra
gangstétta sumarið 1987. Útboðsgögn verða afhent
á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, Hafnar-
firði, gegn 3.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 2. júní kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingur
Garðhúsgögn til
sýnis og sölu um
helgina að Ásbúð
96, Garðabæ, simi
43702.
Lukas D. Karlsson, heildverslun
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
FÓSTRA ÓSKAST
Á BARNAHEIMILI
Fóstru vantar á skóladagheimilið Brekkukot sem stað-
sett er við Holtsgötu í Reykjavík. Um 100% starf er
að ræða og þyrfti umsækjandi að geta hafið vinnu
strax.
Upplýsingar gefur yfirfóstra í síma 19600-260 alla
virka daga frá kl. 9.00-15.00.
STARFSMAÐUR ÓSKAST Á BARNAHEIMILI.
Starfsmaður óskast á barnaheimilið Brekkukot (börn
á aldrinum 3-6 ára). 100% vinna. Þetta er ekki sumar-
afleysingastarf.
Umsækjandi þyrfti að vera 20 ára eða eldri.
Upplýsingar gefur forstöðukona í síma 19600-250
alla virka daga frá kl. 9.00-15.00.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR - VÖKNUN
Hjúkrunarfræðing vantar á vöknun, dagvinna. Upplýs-
ingar gefnar á skrifst. hjúkrunarforstjóra, síma
19600-300, alla virka daga frá kl. 9.00-15.00.
B0ÐA
RAFGIRÐINGAR
til afgreiðslu strax.