Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987.
29
DV kynnir 1. deildar liðin í knattspymu: KR
„Við KR-ingar erum orðnir
alveg banhungraðir í titil“
- segir miðvörðurinn í liði KR, Loftur Ólafsson
„Við komum líkamlega betur undir-
búnir í íslandsmótið í ár en í fyrra en
hvort liðið er síðan í betri æfingu
knattspjmulega séð get ég ekkert sagt
um. Þetta hefur ekki alveg gengið upp
hjá okkur í vor og það er stutt síðan
við fengum stóran skell gegn Vals-
mönnum. Við emm ekki komnir í gang
en þetta verður vonandi fljótt að
breytast. Við eigum eftir að fínpússa
nokkra hluti og það ætlum við okkur
að gera sem fyrst. Annars má ekki
gleyma því að það eru ekki æfingaleik-
imir í vor eða Reykjavíkurmótið sem
gefa stig til Islandsmeistaratitils. Það
em leikirnir átján í íslandsmótinu
sjálfu," sagði Loftur Ólafsson, mið-
vörðurinn sterki í KR, í samtali við
DV.
„Við höfum fengið góðan
liðstyrk“
- Hvemig leggst komandi íslandsmót
í þig nú þegar það er nýhafið?
„Þrátt fyrir það sem ég sagði áðan
leggst mótið mjög vel í mig og við
KR-ingar erum bjartsýnir á góðan ár-
angur í sumar. Við höfum fengið
gífurlegan liðstyrk þar sem þeir Pétur
Pétursson og Andri Marteinsson em.
Þó má ekki gleyma því að við höfum
líka misst Gunnar Gíslason til Nor-
egs. Ég held ég geti fullyrt að við
eigum eftir að leika vel í sumar. Við
höfum mjög gaman af því sem við erum
að gera og menn vinna vel saman. Og
ég held að það sé mikill hugur í liðs-
mönnum að leika sóknarknattspymu
í sumar.“
„Valur, ÍA, KR og Fram verða
áberandi í toppbaráttunni"
- Hvaða lið koma til með að berjast
um íslandsmeistaratitilinn að þínu
mati?
„Ég held að Valur, Akranes, KR og
Fram verði mjög áberandi best og í
toppbaráttunni í sumar. Þá á ég von
á því að baráttan verði erfiðust hjá
Víði, FH, KA og Völsungi. Það er allt
of snemmt að afskrifa lið Völsungs.
Þeir eru með mjög gott lið á Húsavík."
- Nú hefur KR ekki orðið íslands-
meistari í 1. deild síðan árið 1968 eða
í 19 ár. Er ekki mikið hungrið í titil
í vesturbænum?
„Jú, við erum alveg orðnir ban-
hungraðir. Við viljum að sjálfsögðu
leggja okkur alla fram í sumar og
vonandi tekst okkur að krækja í titil-
inn. Við höfum sett stefnuna á topp-
inn.“
- Að lokum er það spá um lokaröð:
1.-3. Valur, Fram og KR
4. Akranes
5. Þór
6. Keflavík
7. Völsungur
8. -10. Víðir, KA og FH
r"-----------------------------------------------------n
! Þrír sterkirtil KR!
J Þrír mjög sterkir leikmenn hafa ugglega eftir að styrkja KR-liðið J
I gengið til liðs við KR frá því síð- mikiö. Andri ereinn snjallasti mið- |
_ asta íslandsmóti lauk. vallarleikmaður sem leikur hér á ■
| Fyrstan ber auðvitað að nefha landi. |
IPétur Pétursson sem lék með • Að lokum má nefna mark- ■
Skagamönnum í fyira og bíða vörðinn Stefán Amarsson en hann I
Imargir spenntir eftir þvi að sjá varði mai-k Valsmanna lengstum í I
þennan mikla markaskorara leika fyrra. Stefán lék með KR áður en ■
I með vesturbæjarliðinu. hann skipti yfir í Val á sínum tíma I
■ • Andri Marteinsson, sem var en nú er hann sem sagt kominn "
| einn af máttarstólpum 2. deildar- heim á ný og reikna má með að |
Iliðs Vikings í fyrra, leikur með hann standi í marki KR í flestum .
KR-ingum í sumar og á hann ör- leikjum liðsins i sumar. |
I. — — — — — — — — — — —__________________________J
Nítján frá síðasta
titli KR í 1. deild
| Það em liðin heil 19 ár síðan KR
I varð síðast íslandsmeistari í 1. deild
I karla í knattsp.vmu. Alls hafa KR-
Iingar orðið 19 sinnum íslandsmeist-
arar í 1. deild og árið 1978 vann liðið
I Islandsmótið í 2. deild.
■ • Þrú- KR-ingar hafa orðið
I markakóngar í 1. deild frá því árið
: 1912. F.vrst vai-ð Þórólfur Beck
| mai-kakóngur ái-ið 1959 en þá skor-
aði hann 11 mörk. Arið eftir varð
hann einnig mai-kakóngur með 15
mörk og enn árið 1961 en þá skoraði
hann 16 mörk. Baldvin Baldvinsson
varð síðan markakóngur árið 1965
og skoraði þá 10 mörk. Síðast áttu
KR-ingar mai-kakóng árið sem liðið
varð síðast fslandsmeistari í 1. deild.
1968. Þá varð Ólafur Lámsson
markakóngur með 8 mörk.
• Lið KR-inga, sem keppir í 1. deild íslandsmótsins, ásamt Gordon Lee, þjálfara liðsins.