Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 2
2 Fréttir Hestaatið á faugardaginn: Allt í sambandi við þetta afbrigðilegt ■segir Elín Guðjónsdóttir leikkona „Ég er búin að vera veik síðan ég sá þetta og mér fínnst allt í samband við þetta vera afbrigðilegt,“ sagði Elín Guðjónsdóttir leikkona sem var einn aukaleikara í atriði því í kvik- mynd Hrafns Gunnlaugssonar, „í skugga hrafhsins, sem tekið var við Gullfoss á laugardag þegar tveimur hestum var þar att saman. „Ég veit ekki hver hefur leyfi til þess að heimila kvikmyndatöku þama, því að þama vom unnar skemmdir á gróðri," sagði Elín. Elín sagði að á syllunni við Gull- foss, þar sem hestaatsatriðið var kvikmyndað, hafi verið fjöldi fólks og það margt ifla klætt og skjálfandi af kulda. Þama hafi verið rifið upp torf og þar kveilctir eldar. Rigningu sagði Elín hafa verið og grasið hafa troðist niður. Sagði hún að tveir menn með lang- ar oddmjóar stengur hafi stungið hestana þannig að séð hafi á þeim og æst þá þannig upp hvom gegn öðrum. Sagði hun að tamningamað- ur hafi selt Hrafni hestana. Þegar annar hesturinn lét undan síga fyrir hinum og stökk burtu sagði Elín að hesturinn hafi tvístrað mannfiöldan- um og hún sjálf hefði kastast í jörðina. „Það var mildi að ég varð ekki undir hestinum og það var ábyggilega enginn tiyggður fyrir slysum af þessu tagi,“ sagði Elín og bætti því við að hún væri nokkuð marin eftir byltuna. Sagði hún að hestamir hefðu bar- ist svo séð hefði á þeim á eftir. „Ég gat ekki horfi á þetta. Mér ofbauð þetta svo að ég á engin orð til að lýsa því sem þama fór £ram,“ sagði Elín Guðjónsdóttir. -ój Margeir með dóttur sinni, Elisabetu, og eiginkonu, Sigríði Indriðadóttur, en þær mæðgur tóku á móti skákmeist- ara Norðurlanda á Reykjavíkurflugvelli i gær. Margeir heldur hér á verðlaunagripnum góða sem er rúm sjö kiló að þyngd. DV-mynd Brynjar Gauti Er vonandi að komast á góðan skrið núna -segir Margeir Pétursson, nýkrýndur skákmeistari Norðurianda „Það var óneitanlega ánægjulegt að sigra á þessu móti. Þetta var þó engan veginn sterkasta mótið sem ég hef tekið þátt í á árinu en ánægðastur var ég með að ná jafnháu vinnings- hlutfalli og raun varð á því. Meðal keppenda vom margir sterkir skák- menn,“ sagði Margeir Pétursson, nýkrýndur skákmeistari Norðurlanda, en hann kom heim frá Færeyjum í gærdag. Margeir varð einn í efsta sæti með átta vinninga af ellefu mögulegum en Helgi Ólafsson hafhaði í öðru sæti með sjö og hálfan vinning ásamt Dön- unum Curt Hansen og Mortensen. Margeir er fimmti Islendingurinn sem hreppir titilinn skákmeistari Norður- landa en hinir eru Baldur Möller, Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson og Freysteinn Þorbergsson. Margeir sagðist hafa teflt á noklmun mjög sterkum mótum á þessu ári, meðal annars í Moskvu og New York, og gengið þokkalega. Hann vonaðist því til þess að vera að komast á góðan skrið núna. „Ég er búinn að vera að tefla við toppmennina í heiminum að undan- fómu og vonandi hefur eitthvað síast inn í mig. Ég ætla að leggja meiri áherslu á skákina á næstunni og í því skyni hætti ég að vinna fulla vinnu hjá Búnaðarbankanum um síðustu mánaðamót og ætla framvegis aðeins að vinna hálfan daginn. Nú á að gefa allt í skákina!“ sagði Margeir. -ATA ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. DV Hestaat á íslandi: Var síðast hald- ið á Alþingis- hátíðinni 1930 Hestaöt voru tíðkuð hér á landi á söguöld og er fræg ffásögn í Njálu af einum slíku. Síðasta hestaat sem hald- ið var hér á landi var á Alþingishátíð- inni árið 1930 en heldur þótti lítið til þess koma þar sem hestamir sýndu minni tilburði til að slást en vonir áhorfenda stóðu til. Til þess tíma er talið að hestaat hafi síðast farið fram hér á landi árið 1625. Hestaat fer þannig ffam að tveir graðhestar eru leiddir fram á völlinn og meri í hestalátum notuð til þess að æsa þá upp. Þegar hestamir vom orðnir óðir í merina var þeim att sam- an og þeir látnir beijast. „I hestaati lemjast hestamir og slást,“ sagði Gunnar Bjamason ráðu- nautur í samtali við DV. „Ef þetta eru stóðhestar þar sem aldursmunur er nokkur og sá eldri er skapmikill, getur farið svo að hann drepi þann yngri. Það er ekki algengt en getur komið fyrir," sagði Gunnar. „Það þarf að hafa meramar með til að æsa upp hestana. Þetta var aðalbíóið til foma, eins og segir í Njálu,“ sagði Gunnar. Gunnar sagðist hafa séð hestaatið á Alþingishátíðinni bam að aldri og sagði að mönnum hefði þótt heldur lítið til koma. Enda hefði það hvort tveggja verið að stóðhestamir hefðu þekkst og einnig hitt að engin hefði merin verið til að örva hestana. Þvi hefðu hestamir ekki séð mikla ástæðu til þess að slást. -ój Hestaat bannað með lögum? „Ég tel að hestaat sé bannað sam- kvæmtjmda dýravemdunarlaganna," sagði Sigurður Sigurðarson, forsvars- maður dýraverndunamefridar sem skipuð er af menntamálaráðherra, í samtali við DV. Sagðist Sigurður telja að hestaat samræmdist ekki þeim tilgangi að vemda dýr, enda gengi það út á að etja hestunum saman. Sagði hann það ffumskyldu að fara vel með dýr en hestaat gæti ekki kallast góð meðferð eða það að stinga þau og etja saman til bardaga. Gunnar Bjarnason sagðist í samtali við DV ekki telja að hestaat væri bannað i lögum. Sigurður Líndal pró- fessor sagði í samtali við DV að ekki væri í lagasafni ákvæði um hestaat, það hefði verið fellt niður. Kvaðst hann ekki reiðubúinn til að kveða upp úr með það hvort hestaat væri lögbrot samkvæmt íslenskum lögum. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Þórunni Hafstein lögfræðingi í menntamálaráðuneytinu, em refsiá- kvæði við brotum gegn dýravemdar- lögum sektir eða varðhald allt að einu ári, ef um fyrsta brot er að ræða, en þyngri refsingu mætti beita vegna ít- rekaðra brota. -ój Rannsóknarlögreglan við sendibílinn eftir að hann fannst við Vesturberg í Reykjavík. DV-mynd S Innbrotið á Selfossi: Sendibíllinn fundinn en þjófarnir ekki Sendibfllinn, sem stolið var við innbrotið í Vömhús KÁ á Selfossi í fyrrinótt, fannst við Vesturberg í Reykjavík skömmu fyrir klukkan þrettán i gær. Rannsóknarlögreglan tók bílinn í sína vörslu tfl frekari rannsóknar. Engin verðmæti munu hafa verið í bílnum. Leit stendur yfir af innbrotsþjófunum. Þjófamir fóm inn ura þakglugga og festu þar kaðal og renndu sér síð- an niður hann. Eftir að hafa látið greipar sópa um afgreiðslukasaa í versluninni fóm þjófamir niður í kjallara en þar var sendibíllinn geymdui- með lykhmum í. Sam- kvæmt heimildum, sem DV fékk í gær, munu þjófamir hafa stolið um 200 þúsund krónum í peningum. Ekki er enn ljóst hvort fleiru var stolið. Miklar varúðarráðstafanir vom við Vömhúsið í gærmorgun og fékk starfsfólk ekki að fara inn í húsið fyrr en um hádegi. Ekki fékkat upplýst í gær hvemig rannsókn málsins gengur. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.