Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. 19 I>V í sveita sms andlitis Örn Arnarson Menntun: Rafeindavirkjun frá Iðnskóla íslands. Starfssvið: Starfar við viðhald og viðgerðir á rafeindatækjum, lækninga- tækjum og búnaði sjúkrahússins. Tækj abúnaðurinn er margvisleg- ur, allt frá einföldum diktafónum, sjönvörpum, videotækjum og kalltækjum til flóknari tækja svo sem röntgentækja og svokallaðra „tissue processora“. Síðast- nefndu tækin eru til að búa vefjasýnishom undir smásjár- skoðun. Það besta: Það besta við starfið er auðvit- að það að þetta er mitt áhugasvið, ég bef gaman af því að vinna í rafinagni. Tækjabúnaðurinn hérna er skemmtilegur að eiga við hann. Svo er afskaplega al- mennilegt fólk hér ú sjúkrahús- inu og þetta er gott andrúmsloft að starfa í. Það er raunar svo margt gott við þetta starf að erfitt er að velja úr. Það versta: Ég veit hreint ekki hvað er verst við þetta starf. Ég er ekki búinn að vera hér svo lengi að ég hef ef til vill ekki enn rekið mig á gallana. Þegar ég reyni að leita einhvers galla við starfið sjálft kemur ekkert í hugann. Launin em auðvitað meingöl- luð, að minnsta kosti vel í lægri kantinum. Þau eru líklcga það versta við þetta starf. Við erum ríkisstarfsmenn hérna og það vita lfklega allir hvað það þýðir í launamálum. Draumurirm Ætli draumurinn sé ekki mest sá að vera góður í sínu fagi. Mig langar auðvitað að kynnast þess- um tækjum hér betur, ef til vill komast í aðstöðu ti) að læra á viðhald þeirra og viðgerðir. Hér fara menn mikið á alls kyns nám- skeið því við verðum að vita vel hvað við erum að gera. Svo er það náttúrlega þessi gamli draumur um að verða sjálf- stæður, eignast sitt eigið verk- stæði. Hann rætist þó ekki í náinni framtíð. Eins og ég sagði áður hef ég ekki verið lengi í þessu svo lík- legt er að draumurinn um að öðlast öryggi í faginu sé stærstur enn sera komið er. Hann er alla- vega sá sem þarf að vinna að fyrst. Heilbrigðismál Vítahríngur öryggisleysis og skorts á stefnumiðum „Fólk kemur mikið til mín með ýmiss konar spennuvandamál. Örvunin er orðin svo mikil í líkama þess að hún hefur safhast saman og skilar sér i spennu. Þetta fólk hefur líkamleg ein- kenni í maga og brjósti og kvíðatil- finningu sem hefur í för með sér öryggisleysi. Það á í erfiðleikum með að umgangast annað fólk og er þar með komið inn í vítahring. Þetta teng- ist svo sjálfsmynd viðkomandi ein- staklinga, endurspeglast í hjónabands- vandamálum og tilvistarvandamálum, fólk finnur til skorts á stefhu og inni- haldi í lífinu, hefur ekki markmið að stefha að,“ sagði Baldvin Steindórsson sálfræðingur í viðtali við DV. Umdeild grein Sálfræði er sá þáttur heilbrigðis- þjónustu sem ef til vill er einna mest litið á sem feimnismál. Hún var til skamms tíma læknum þymir í augum og þótt hin síðari ár hafi aukist skiln- ingur á nauðsyn þess að fjalla um sálræn vandamál einstaklinga, ekki síður en líkamlega krankleika, gætir þess enn að það þyki veikleikamerki að leita aðstoðar sálfræðings. Jafn- framt finnast enn þeir læknar sem telja að finnist ekki hein líkamleg orsök vanlíðunar tilheyri meðferð hennar ekki heilbrigðisþjónustu. Aðspurður um þessar gömlu og nokkuð rótgrónu deilur sagði Baldvin að vissulega væri þetta enn viðkvæmt mál en væri þó að gjörbreytast. „Á undanfömum árum hefur sál- fræðin þróast frá því að vera fyrst og fremst fræðigrein,“ sagði Baldvin, „yfir í fag með markvissar hagnýtar vinnuaðferðir. Samhliða þessu hefur traust lækna og annarra samstarfs- hópa og reyndar almennings gagnvart okkur vaxið. Sálfræðingar beina athygli sinni mikið að atferli og lífsstíl einstakl- inga, ganga ef til vill ekki út frá beinum sjúkdómsgreiningum eins og geðlæknar hafa tilhneigingu til að gera, heldur reyna að horfa á lífsstíl mannsins í heild.“ Heildræn nálgun - Hversu aðskilin em þessi starfs- svið? „Aðskilnaður greinanna fer dvín- andi. Það hefur orðið sveifla í þá átt að skoða manninn í heild sinni sem gerir það að verkum að mörkin þynn- ast út. í dag geta sálfræðingur og geðlæknir verið líkari í starfsháttum sínum heldur en til dæmis tveir sál- fræðingar eða tveir geðlæknar þó að faghópamir eigi rætur í ólíkum hefð- um. Starfssvið einstakra greina heil- brigðisstétta snertast líka í síauknum mæli. Má þar nefna næringarfræði, sem allar heilbrigðisstéttir líta til meir og meir. Viðhorf okkar til heilbrigði Við fjöllum mikið um ýmiss konar spennuvandamál. Baldvin Steindórsson sáifræðingur. em að breytast mikið, einstaklingur- inn er sífellt meir meðvitaður um þá ábyrgð sem hann ber sjálfur á líkam- legri og andlegri heilsu sinni. Við erum að gera okkur betur grein fyrir því að rótin að heilbrigði liggur í lífsstíl okk- ar, viðhorfum, næringu, vinnu og fleiru sem mótar daglegt líf okkar, en ekki í því að einfaldlega gera við það sem bilar. Þessi viðhorfabreyting, sem átt hefur sér stað samfara aukinni menntun, breytir svo kröfum þeim sem almenn- ingur gerir til fagfólks. Það tekur ekki við hlutum frá sérfræðingum eins og áður þegar nánast var litið á lækni sem almáttugan. Fólk er gagnrýnna og leitar meir eftir upplýsingum. Opnara fyrir nýjungum Þetta allt gerir fólk svo opnara fyrir nýjungum. Hér áður voru allir þeir taldir skottulæknar sem fóru út fýrir hið hefðbundna. Nú eru bæði lærðir og leikir opnari, til dæmis viðurkenn- um við nú frekar þá möguleika sem felast í dýpkun og þroska vitundar okkar, áhrif þess sem við neytum á daglegt líf okkar og mikilvægi reglu- bundinnar hreyfingar fýrir andlega og líkamlega heilbrigði okkar.“ - Hvaða gildi hefur hugleiðsla? • „Ætli hugrækt sé ekki betra orð. Það er nauðsynlegt að stunda hugrækt af einhverju tagi til þess að veita okkur hvíld frá amstri dagsins, hugarró. Hugrækt getur verið fólgin í íhugun, hún getur verið það að hlusta á tón- list eða ótal margt annað sem hvílir hugann. Líklega er bænin eitt elsta form hugræktar." - Ráðleggur þú þá sjúklingum þín- um að biðja? „Ég gef fólki helst ekki beinar ráð- leggingar heldur reyni að skapa þær aðstæður að það geti ráðlagt sér sjálft. Svo sannarlega er ég ekki á móti því að fólk biðji. Þetta stefnuleysi og tóm, sem ég minntist á, lýsir sér raunar oft í því að fólk hefur ekki leitað svara við þeim grundvallarspumingum sem þarf að svara til að við vitum hver við .. .einkenni i maga og brjósti og kvíði... erum og hvert við stefnum. Sú fyrsta af þessum grundvallarspumingum er hvort við trúum og þá hverju. Trú eða trúleysi er ákveðin afstaða sem við veljum og sem jafhframt getur haft miklar afleiðingar i för með sér fyrir okkur ef við tökum afstöðu. Þótt sum- ir komist ágætlega af án þess að svara sjálfum sér því til hvort þeir trúi og hverju, 'verður þetta uppgjör oft að- kallandi þegar við lendum í vandræð- um með líf okkar. Við vanrækjum hins vegar flest þetta hugtak, tökum ekki afstöðu til þess eða látum ekkert fylgga á eftir um það hverju við trúum. Ég hitti oft fólk sem er í vandræðum vegna þess að þarna er hluti af því sjálfu sem það hefúr ekki gert upp við sig.“ Hvað viljum við? „Þetta er í raun mun stærra mál en það ef til vill virðist og hefur meiri áhrif á líf okkar en við hneigjumst til að halda. Spumingar um trú og aðrar sem fylgja í kjölfarið liggja að rótum tilveru okkar og meðan við svömm þeim ekki getur skapast tóm eða ófull- nægja í líf okkar þótt við höfum allt sem hugsast getur til brunns að bera og öll þessi svonefndu lífsgæði sem við sækjumst eftir. Ég heyrði Parkinson ræða um leið- indi í sjónvarpinu hér um daginn. Hann var að tala um að við íslending- ar værum vel menntaðir, byggjum við góðar aðstæður og værum veraldlega vel stödd en vissum samt ekki hvað við vildum. Við erum skammtímasinn- uð og okkur vantar stefhu sem gefið getur lífinu gildi. Þessar fullyrðingar hans lúta að sama bmnni og þetta með trúna.“ Að sanna sig - Hvemig hefur heilbrigðiskerfið bmgðist við þessari sveiflu sem þú talar um? „Við íslendingar erum yfirleitt seinir til en tökum svo hraustlega á þegar til framkvæmda dregur. Það hafa ver- ið krafmiklar hugmyndafræðilegar breytingar víða erlendis síðustu tvo áratugi en em að koma hingað núna. Heilbrigðiskerfið hjá okkur er íhaldssamt og á að vera það. Það á ekki að hlaupa eftir hvaða bylgjum sem er. f raun opnast það þegar hlutir hafa sannað gildi sitt. Heilbrigðiskerfið stjómast að sjálf- sögðu af hugmyndafræði læknisfræð- innar. Það skiptist í svið og algengt að þeir sem starfa á hverju sviði fyrir sig sjái ekki út fyrir sitt afmarkaða umfjöllunarsvæði. Sjónarhom sér- fræðingsins er ráðandi og þá týnist oft sú heild sem maðurinn er. Það er svo margt sem við vitum nú sem rennir stoðum undir þessa heild- rænu nálgun. Til dæmis kenningamar um A og B týpur af atferli þar sem því hefur verið haldið fram að streita sé rneiri áhrifaþáttur í hjarta- og æða- sjúkdómum heldur en aðrir þættir til samans. Fjöldamargt mætti tína til í þeim efhum. Þetta lýtur auðvitað allt að umönn- un og því hvemig heilbrigðiskerfið mætir sjúklingum sínum. Til dæmis þeim sem þjást af krabbameini og öðr- um mjög erfiðum sjúkdómum. Tilfinn- ingahliðin er enn mikið útundan en fiöldi rannsókna hefur sýnt fram á að viðhorf sjúklings til sjúkdóms síns getur haft mikil áhrif á bata. Það er nauðsynlegt að fjalla meir um þá hlið mála, sjá fólk sem einstakling en ekki tilfelli. Það er áhugavert í tengslum við þetta að það sem fyrst og fremst hefur breytt heilbrigði okkar á þessari öld em ekki framfarir innan hinnar tæknivæddu læknisfræði. Fyrst og ffemst em það framfarir í hreinlætis- málum, húsnæðismálum og þvi sem varðar næringu sem hafa stuðlað að bættri heilbrigði. Þótt enginn vilji vera án læknisfræðinnar getur verið hollt að hafa þetta i huga.“ .. .sem hefur í för með sér öryggis- leysi... Umsjón: Halldór K. Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.