Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. 17 Lesendur Þjóðarátak í spamaði: Þungaskattur á einstaklinga Þessi tvö myndu sennilega jafna hvort annað út og borga meðalgjald ef til kæmi að leggja þungaskatt á einstaklinga. Valdemar skrifar: í sambandi við áform nýrrar ríkis- stjómar til íjáröflunar í ríkissjóð, t.d. með innheimtu þungaskatts af bifreið- um landsmanna, er margs að gæta. Eitt ej- það að álögur þær sem bif- reiðaeigendur þurfa að inna af hendi nú þegar em komnar langt úr hófi fram og munu smám saman leiða til þess að ekki svarar kostnaði að reka eigin bifreið lengur. Mun margur vinstri maðurinn ekki harma það svo mikið sem þeir vinstri menn hafa am- ast við „blikkbeljunni" eins og þeir kalla þarfasta þjón nútímans. En hvað um það. Við vinnufélagam- ir vorum að ræða þetta með þunga- skattinn einn daginn, kom þá einn þeirra með þá bráðsnjöllu hugmynd að eina úrræðið sem dygði ríkinu til að afla þeirra tekna sem til þarf væri að leggja þungaskatt í einhverri mynd á alla þá einstaklinga sem náð hefðu kosningaaldri. Þessi þungaskattur gæti verið með sama sniði og nú er íyrirhugaður á bifreiðar landsmanna, þ.e. að upphæð yrði ákveðin á hvert kg þunga hvers kjósanda. Upphæðin mætti gjaman vera helmingi hærri en nú er áætluð á hvert bifreiðakíló, þ.e. 8 kr. Ef við hugsum okkur að meðalþyngd hvers kjósanda sé 70 kg greiðir hver gjaldskyldur 560 kr. og ef miðað er við kjósendafjölda sem var síðast 106 þús- und þá fengjust í ríkissjóð um eða yfir 60 milljónir króna. Þar með er ekki öll sagan sögð því þetta gjald skilaði ríkissjóði ómældum tekjum i mun betra heilsufari fólks sem tæki nú upp á því að grenna sig svo um munaði til að plata ríkið eins og hér er plagsiður. Það „plat“ myndi spara ríkinu á nánast öllum sviðum og þensla og viðskipti hvers konar myndu stórminnka. En svo mætti líka hugsa sér að ríkið hefði upphæðina eitthvað hærri og reyndi t.d. á þremur árum að ná inn öllum halla ríkissjóðs og lækka úti- standandi erlendar skuldir svo um munar. Með ca 10 þúa. króna framlagi frá hveijum kjósenda á hverju ári í þrjú ár mætti ná inn nokkrum milljörðum króna og ef það mætti verða til þess að loka vanskiladæmi okkar Islend- inga að fullu yrðu flestir sáttir við að greiða þessa upphæð gegr. því t.d. að leggja á hilluna ýmsa tynrhugaða skattstofna, s.s. fyrirhugað þungagjald á bifreiðum o.fl Þetta er nú sett fram hér sem hug- mynd ein af mörgum mögulegum. En hvernig er það með hið opinbera. Er engra nýrra og frjórra hugmynda að vænta þaðan til að koma okkur á rétt- an kjöl, nema smáskammtalækningar? Má aldrei reyna neitt nýtt, t.d. í formi þjóðarátaks einhvers konar? Hvað um þjóðarhappdrætti ef menn geta ekki sæst á þungaskattinn á einstaklinga? MÁLARAR Tilboð óskast í málun hússins að Fellsmúla 9-11. Nánari upplýsingar og útboðsgögn í síma 34381 (Ólafur) á kvöldin. Frá Laugaskóla, Dalasýslu Kennarastaða við skólann er laus til umsóknar. Aðal- kennslugreinar: Erlend mál. Allar nánari upplýsingar gefur Kristján Gíslason skólastjóri í síma 93-41269 eða 93-41262. RÍKISSPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR Ritari óskastá birgðastöð ríkisspítala aðTunguhálsi 2. Góð vinnuaðstaða, mötuneyti og ferðir til og frá vinnu. Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður birgða- stöðvar í síma 671362. Reykjavík, 28. júlí 1987. SÚÐAVÍK DV óskar eftir að ráða umboðsmann í Súða- vík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 94-6928 og afgreiðslu DV, Reykjavík, sími 91-27022. ÓLAFSVÍK DV óskar eftir að ráða umboðsmann í Ólafs- vík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 93-61243 og afgreiðslu DV, Reykjavík, sími 91-27022. ,55*% , - á morgun - miðvikudag 16 SÍÐNA BLAÐAUKI Efni m.a.: * Allt um mótsstaði verslunarmanna- helgarinnar. * Leiðbeiningar um viðleguútbúnað. * Góð ráð um grill og grillrétti. * Hvernig á að aka á þjóðvegunum. * O.fl., o.fI., o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.