Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. 21 Iþróttir • Darraðardans á marklínu FH-inga. Varnarmönnum FH tókst að bægja hættunni frá eins og reyndar oft í leiknum. DV-mynd Brynjar Gauti KR-ingarnir misstu af Keflavík Sigurður Björgvinsson, miðvall arleikmaðurinn sterki í liði Kefl- víkinga, mun að öllum Ukindum missa af leik ÍBK og Þórs í 1. deild- inni í knattspyrnu sem fram fer á morgun. Sigurður varð fyrir meiðsluln í leik ÍBK og Vals á sunnudagskvöldið. Þetta er mikið áfall fyrir Keflvík- inga því auk þess að þurfa að leika á heimavelli Þórsara á Akureyri, eiga tveir aðrir fastamenn í liði ÍBK við meiðsli að stríða. Það eru þeir Guðmundur Sighvatsson og Englendingurinn Peter Farell. Taldar eru litlar líkur á að nokkur þremenninganna leiki gegn Þór á morgun. • Keflvíkingar voru mjög ósátt- ir við dómgæsluna í leik sínum gegn Val á sunnudagskvöld. Vildu þeir meina að dómari leiksins hefði sleppt mörgum ljótum brotum og meðal annars þegar brotið var á Sigurði Björgvinssvni. -SK Ámi og Ámý í efstu sætum Gyifi Kristjánsaon, DV, Akureyii íslandsmótið í golfi hófet á Akureyri í gær með keppni í 3. fl. karla og Metsölu- bækur á ensku vikulega í flugi. titlar af tímaritum frá USA. toppsæti í Krikanum - töpuðu fyrir baráttuglöðum FH-ingum í gærkvöldi „Þetta var sigur stórkostlegrar liðs- heildar þar sem allir gerðu sitt besta og útkoman var frábær sigur. Liðið heíúr leikið mjög vel í síðustu tveimur leikjum og vörnin hefur loks smollið saman. Ef við náum að halda þessu striki þá á ég ekki von á öðru en góð- um úrslitum í næstu leikjum," sagði Ian Fleming, þjálfari og leikmaður FH, eftir að lið hans hafði unnið góðan sigur á KR-ingum á Kaplakrikavelli í gærkvöldi. Með sigri hefðu KR-ingar náð toppsæti 1. deildar en þeir máttu þó sætta sig við tap gegn baráttuglöð- um FH-ingum sem mjökuðust hins vegar flær botnsætinu. Bæði lið hófu leikinn af miklum krafti og strax á fyrstu mínútu var Andri Marteinsson nálægt því að skora fyrir KR en skot hans fór í hlið- ametið. FH-ingar náðu síðan óvænt forystunni í leiknum á 4. mínútu þegar Kristján Hilmarsson skoraði með föstu skoti eftir góða fyrirgjöf frá hægri. Eftir markið náðu KR-ingai' völdum á vellinum en minnstu munaði að FH-ingar bættu öðm marki við þegar Jón Erling Ragnarsson potaði boltanum í stöng eftir mistök Páls markvarðar. Bjöm Rafnsson komst síðan í færi eftir þunga sókn KR en Halldór náði að verja og síðan tókst vamarmanni FH að bjarga á línu. KR-ingar héldu áfram þungri sókn eftir leikhlé en annað reiðarslag kom yfir liðið á 60. mínútu þegai' Bragi Bergmann dóm- ari dæmdi FH-ingum vítaspynu. Páll, markvörður KR-inga, hrinti Guðjóni Guð- mundssyni, þegar boitinn var víðs fjarri. og dómarinn var í engum vafa þrátl fyrir áköf mótmæli gestanna. Guðmundur Hilmarsson skoraði af öryggi úr vítinu og Stadan Staðan í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu eftir leikinn í gærkvöldi: FH - KR 2-1 Valur „11 6 4 1 20-8 22 Þór „11 7 0 4 21-16 21 KR „11 5 4 2 19-8 19 ÍA „11 5 2 4 18-17 17 Fram „11 4 3 3 15-15 15 KA „11 4 2 5 13-10 14 Völsungur „11 3 3 4 10-11 12 ÍBK „11 3 2 6 16-23 11 FH „11 3 1 7 11-21 10 Víðir 11 0 7 4 5-19 7 FH-ingar komnir í 2-0. Skömmu síðar var þeim Kristjáni Hilmarssyni og Þorsteini Halldórssymi vikið af leikvelli fyrir slags- mál og bæði lið léku því aðeins tíu. Á 85. mínútu tókst KR-ingum að minnka mun- inn þegar sterk vöm FH sofnaði eitt andartak og Pétur Pétursson var mættur á staðinn og skallaði í netið. Lengra kom- ust vesturbæingar ekki og öivæntingar- fullar sóknir þeirra á lokamínúttmum runnu út í sandinn og FH-ingar fögnuðu innilega þegar flautað var til leiksloka. ..Þetta var spurningin um að vera fyrri til að skora. FH-ingar settu okkur út af laginu í bvrjun og síðan fór allt úr sam- bandi þegar vítasp\-rnan var dæmd. Það þýðir samt ekkert að gefast upp þrátt f\TÍr tvö slæm töp í röð og við einbeitum okkur að meistaratitlinum sem f\n\" sagði Gor- don Lee. þjálfari KR. í samtali við DV eftir leikinn. Bestir í liði FH voru þeir Jón Erling Ragnarsson og Ian Fleming en annm-s átti allt liðið góðan dag og baráttan var mikil hjá liðinu. Pétur Pétursson var bestur hjá KR-ingum eins og svo oft áður en aðrir léku undir getu. -RR 2. fl. kvenna. Eftir fyTsta dag í 3. fl. karla hefur Ámi Ketill Friðriks- son, GA, forystu á 85 höggum. I 2. fl. kvenna hefur Amý L. Áma- dóttir, GA, forvstu á 90 höggum. -SK Jón sigraði _ Síðustu greinar á meistaramóti íslands í frjálsum fóru fram í gær- kvöldi. Jón Diðriksson, ÍR, sigraði í 3000 metra hindrunarhlaupi á 9:30,6. Sveit HSK sigraði í 4x400 metra boðhlaupi kvenna á 4:00,8. Sveit UÍA sigraði í 4x400 hoð- hlaupi karla á 3:27.1. í frmmtar- þraut sigraði Þorsteinn Þórsson. IR, hlaut 3342 stig. -JKS/ÓU Augnabliksmenn, voru á ferðalagí í Austurriki fyrir skömmu en sem kunnugt er leikur liðið í a-riðli 4. deildar. í Austurriki keppti liðið gegn SK Stroble. Austurrikismennirnir mættu til leiks í fullum herklæðum en Augnabliksmenn létu strigaskóna nægja. Kópavogsbúarnir sigruðu 5-1 og unnu veðmál um 25 lítra ölkút. Myndin hér að ofan var tekin af Augnabliks- mönnum og eiginkonum á flugvellinum í Salzburg. DV-mynd GTK Allt að 80°/« afsláttur af O spennandi lesefni á ensku í vasabroti Laugavegi 178 Sími 68-67-80. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.