Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. 7 Fréttir Homafjörður: Útsýnisferðabátur með sex manns hætt kominn - skemmdarverk höfðu verfð unnin á bátnum Báturinn Svala, sem leigður hefur verið út til útsýnisferða á Homafírði í sumar, var hætt kominn á föstu- dagskvöldið. Fjórir farþegar voru í bátnum, auk tveggja manna áhafh- ar. Báturinn var staddur út af Óslandi þegar hann varð bensínlaus. Þegar grípa átti til varabirgðanna kom í ljós að þær voru ekki um borð og talstöðin var óvirk. Því var kastað út akkeri og látið reka meðan beðið var eftir hjálp. „Þetta var röð óhappasagði Sig- fus Harðarson, hafhsögumaður á Höfh. „Það hafði verið brotist inn í bát- irrn skömmu áður, varabensínbrús- anum stolið og talstöðvarloftnetið brotið en um þetta vissu eigendumir ekki þegar lagt var í útsýnisferðina.“ Á Oslandi er góður útsýnisstaður og þar áttu margir leið um, gang- andí og akandi, á meðan Svalan dólaði fyrir utan. Bátsverjar veifuðu og reyndu að kalla til vegfarendanna á óslandi sem misskildu aðfarir báts- verja og veifuðu á móti og blikkuðu bílljósum. Það var ekki fyrr en aðstandendur bátsverja fóru að hafa áhyggjur að bátur var sendur áleiðis til að kanna hvort ekki væri allt með felldu. „Þá tók nú ekki betra við,“ sagði Sigfus. „Þegar hjálparbáturinn kom að Svölunni drógu skipverjar upp akkerin alls hugar fegnir og tóku við tóginu frá aðstoðarbátnum. Þá vildi ekki betur til en svo að vélar hjálparbátsins drápu á sér og vildu ekki í gang aftur." í hjálparbátnum var hins vegar talstöð svo að hægt var að kalla eft- ir aðstoð sem barst fljótlega en þá var bátana tvo farið að reka stjóm- laust út fjörðinn. Fiskibáturinn Þytur og hafnsögubáturinn drógu vélarvana bátana tvo til hafhar. ATA Viðtalið DV „Starfið er mitt stærsta áhugamár - segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi „Ég hóf störf hjá Ríkisendurskoð- un árið 1970 og hef síðasta áratug verið viðloðandi fjármálaráðuneytið líka þar sem ég var skipaður skrif- stofustjóri fyrir fjórum árum,“ segir Sigurður Þórðarson, löggiltur end- urskoðandi og nýskipaður vararíkis- endurskoðandi. Er þetta í fyrsta skipti sem skipað er í þessa stöðu eftir breytingar sem urðu á verkefha- sviði Ríkisendurskoðunar með lögum frá síðasta ári. Sigurður ér 45 ára gamall og kvæntur Hinriku Halldórsdóttur sem starfar I Sparisjóði Hafnarfjarð- ar. Eiga þau þrjú börn, tvær dætur, 20 og 21 árs, og 12 ára gamlan dreng. „Ég er Hafnfirðingur, fæddur og uppalinn þar og vil hvergi búa ann- ars staðar. Eftir að hafa lokið gagnfræðaprófi vann ég um skeið hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar og ioks var ég við nám í tvö ár hjá IBM úti í Dan- mörku.“ Sigurður hefur víða komið við síð- an þá, hann var um tíma yfirmaður tölvudeildar hjá Hótel Loftleiðum og einnig var hann deildarstjóri hjá ríkisendm-skoðun og í gjaldadeild fiármálaráðuneytisins. Nú er hann formaður stjómar Skýrsluvéla ríkis- ins og Reykjavíkurborgar svo og Lyfjaverslunar ríkisins. „Ég þekki nú orðið töluvert til þeirra starfa sem munu felast í þess- ari stöðu,“ segir Sigurður. Þetta verður mjög víðtækt starf fyrir utan almenna endurskoðun, með þessum lögum var Ríkisendurskoðun flutt undir yfirumsjón Alþingis í stað fjár- málaráðuneytisins. Við höfum eftir- lit með framkvæmd fjárlaga og verðum þingnefndum til aðstoðar. Einnig önnumst við alla stjómsýslu- endurskoðun. Eins og sjá má verður þetta mjög fjölbreytt starf enda hlakka ég til að takast á við það. Áhugamálin? Það er einfaldlega starfið, fátt annað kemst að. Ég á ekkert sérstakt hobbí. hef t.d. engan sérstakan áhuga á íþróttrmi eða öðni slíku. Ef ég á einhvern frítima þá eyði ég honurn með fjölskyldunni í rólegheitum." -BTH Siguröur Þóröarson, löggiltur endurskoðandi og nýskipaður vararikisendur- skoðandi, hefur störf á haustmánuðum. DV-mynd Brynjar Gauti Gullstuldur frá tannlækni málflutningur fyrir Sakadomi „Það eru fjögur ákærð fyrir þetta og er ákæran í mörgum köflum og efnisatriði margvísleg. Þetta snýst ekki eingöngu um þetta gullstuldar- mál,“ sagði Ágúst Jónsson sakadóm- ari. I gær fór fram málflutningur fyrir sakadómi þar sem ákært er fyrir inn- brot í nokkur hús í Reykjavík, meðal annars var stolið 550-600 grömmum af tanngulli frá tannlækni en verð- mæti . þess mun vera um 200.000 krónur. Ákært var fyrir skjalafals og fjársvik en mvndbandstæki og spólur voru svikin út úr 4 m\Tidbandaleigum og hefur aðeins 1 komist til skila. Einnig er ákært fyrir árísanafals en gefnar voru út 5 ávísanir og var sú hæsta að upphæð 6000 krónur. Tveir hinna ákærðu eru ásakaðir um hylm- ingu með þrí að hafa tekið við og haft þýfi í sinni vörslu. Að síðustu er ákært ftrír fikniefnabrot í tengslum við hina meintu þjófhaði. Ágúst sagði að þau fjögur tengdust ekki öll öllum ákæruatriðum. Hér \árt- ist ekki hafa verið um skipulagðan hóp að ræða heldur ..tilfallandi sam- vinnu". Búist er ríð að dómur falli innan tíðar. -JFJ Vetrardvöl í Mallorkasól 5 mánuðir kr. 68.700,- Vegna langtímasamninga getum við boðið ótrúlega ódýra vetrardvöl í 1. flokks íbúðum á eftirsóttum stað. (Miklu ódýrara en að dvelja heima í vetrargarra og hálku.) Nú! Sólarlandaferðir vikulega til margra staða, 1, 2 eða 3 vikur. Hægt að stansa í London á heimleiðinni. FLUGFEROIR Vesturgötu 17 SOLRRFLUG A OLLUM ALDRI VANTARI EFTIRTALIN HVERFI Reykjavík Bollagötu Guðrúnargötu Gunnarsbraut Kjartansgötu *************** Flyðrugranda Álagranda ******************************* ******************************* Baldursgötu Bragagötu Nönnugötu Kirkjuteig Hraunteig Otrateig ******************************* Kópavog Kjarrhólma Hvannhólma Vallhólma ******************************* AFGREIÐSLA Þverholti 11, simi 27022 Grundarstíg Ingólfsstræti Amtmannsstíg Bjargarstig ******************************* Heiðargerði Hvammsgerði Skálagerði Hjailabrekku Lyngbrekku Nýbýlaveg 60-80 Garóabæ Markargrund Ásgarð Njarðargrund Ægisgrund

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.