Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987. Fréttir Hér sést hvernig framtiðarskipulagið verður - Bústaðavegurinn færist og kemur yfir brú inn á Snorrabraut. Mikla- brautin færist síðan suður fyrir Umferðarmiðstöð. Hringbraut færð til „Það má segja að framkvæmdimar leiði til þess að Hringbrautin í núver- andi mynd muni færast suður fyrir tannlæknadeild og Umferðarmiðstöð," sagði fngi Ú. Magnússon gatnamála- stjóri um framkvæmdir sem em í þann mund að hefjast. Ingi sagði að byrjunarframkvæmdir hæfust í haust en verkið ætti að taka um 2 ár, þetta væri mikið mannvirki. Byrjað yrði á þvi að flytja Bústaðaveg- inn á hæðina fyrir ofan Slökkvistöðina og byrjað á brúnni sem væri tenging inn á Snorrabraut. „Skógarhlíðin í sinni núverandi mynd leggst niður en Bústaðavegur- inn verður látinn halda áíram fyrir ofan Slökkvistöðina og vestur fyrir Sölufélag garðyrkjumanna. Þetta tengist svo með brú inn á Snorrabraut- ina,“ sagði Ingi. „Miklabrautin fyrir austan Mikla- torg sveigist til suðurs á móts við Rauðarárstíginn, út úr núverandi legu, og fer undir brúna og færist suð- ur fyrir Tannlæknadeild og Umferðar- miðstöð og kemur inn í Hringbrautina við Sólevjargötu" Ingi sagði að þeir gerðu sér grein fyrir að þetta væri mikið álagssvæði í höfuðborgarumferðinni og því yrðu útbúnar einhvers konar slaufur til bráðabirgða á meðan á þessum fram- kvæmdum stæði. Síst af öllu vildu þeir fá frekari umferðarhnút á þessum stað. -JFJ Patreksfjörður: Útlendingar reynast vel Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbaekur ób. 14-15 Lb.Sp. Úb.Bb, Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-18 Ab 6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25,5-27 Ib.Bb Ávísanareikningar 4-15 Ab.lb. Vb Hlaupareikningar 4-8 Ib.Lb Innlán verötryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsógn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24 Bb.Sb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Sp.Vb. Ab Sterlingspund 7,5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Danskar krónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 27-28.5 Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 25-26 eða kge Almenn skuldabréf 25-31 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) Utlán verötryggo 28,5-30 Lb Skuldabréf Að 2.5árum 7,5-9 Úb Til lenqritíma 7,5-9 Úb Útlántilframleiðslu isl. krónur 23-29 Vb SDR 7,75-8 Bb.Lb, Úb.Vb Bandarikjadalir 8,5-9,25 Bb.Lb. Úb.Vb Sterlingspund 10-10,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,25-5,5 3,5 Úb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 36 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júli 1721 stig Byggingavísitala 320stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestini arfélaginu); Ávöxtunarbréf 1,1634 Einingabréf 1 2,163 Einingabréf 2 1,283 Einingabréf 3 1,337 Fjölþjóðabréf 1,030 Kjarabréf 2,158 Lífeyrisbréf 1,088 Markbréf 1,075 Sjóösbréf 1 1,058 Sjóðsbréf 2 1,058 Tekjubréf 1,174 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 255 kr. Flugleiðir 175kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 114kr. Iðnaðarbankinn 137 kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 120kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp=Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn blrtast I DV á fimmtudögum. „Þessir útlendingar, sem við höfum haft hér í vinnu, hafa reynst afbragðs- vel. Þetta fólk vinnur vel, er glaðlynt og þægilegt og gengur snyrtilega um,“ sagði Jens Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Patreks- íjarðar. Óvenju margir útlendingar hafa ve- rið við vinnu í frystihúsinu, einir 16 þegar tíðindamenn DV áttu leið hjá. Fólkið kemur frá öllum heimshomum og Jens sagði að ekki væri óvenjulegt að heyra um 10 tungumál töluð í frysti- húsinu. Hann sagði að þessi fjölþjóð- asamvinna gengi vel og hann væri mjög hlynntur því að ráða útlendinga til vinnu. Skortur væri á vinnuafli, útsvarið frá útlendingunum rynni til Patreksíjarðar auk þess sem íslenskir aðkomumenn hefðu flestir ekki reynst jafnvel og útlendingamir. -JFJ Umtalsverður fjöldi útlendinga er við störf á Patreksfirði og stundum er ekki óvenjulegt að heyra töluð þar 10 tungumál. DV-mynd KAE Þessi turn er rétt við afleggjarann til Hofsóss. Hann er ekki skakkur eins og sá í Píza, en gerir sitt gagn. Spurningin er; hvers konar gagn? DV-mynd JGH DV á Hofsósi: Hvaða tum er nú þetta? Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Þetta er ekki skakki tuminn í Píza, ekki eldflaug, ekki súrheystum. Þetta er vatnstuminn rétt við afleggjarann niður á Hofsós. Tuminn var settur upp til að fá kraft á kalda vatnið til Hofsós- búa, en mjög flatlent er á þessum slóðum. Og ef þú vilt vita meira um þennan tum þá er aðeins efsti hluti hans vatnstankur. Mesti parturinn er steypt undirstaðan. Reykvískir holræsamenn á Siglufirði, Rögnvaldur Guðmundsson og Gunnar Oddsson. „í þessari lögn er allt stíflað.“ DV-mynd JGH DV á Siglufirði: Reykvíkingar hreinsa skolp Siglfirðinga Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Rögnvaldur Guðmundsson og Gunn- ar Oddsson hjá Holræsahreinsuninni hf. í Reykjavík vom að hreinsa lagn- imar á Siglufirði á dögunum. „Við komum hingað á hverju sumri,“ sögðu þeir. Þeir em báðir Reykvíkingar. Menn fiá Holræsahreinsuninni fara í hvert einasta bæjarfélag á landinu. Mikið starf í skolpinu. „í þessari lögn er allt stíflað. Það er langmest sandur sem sest í lagnim- ar. Að sögn þeirra félaga vom þeir bún- ir að vera átta daga á Siglufirði og ætluðu að vera tvo til þrjá daga í við- bót. „Við tökum sjaldnast allar lagn- imar í bæjunum." Alviðra í Soginu: 34-35 punda lax sem ekki tók „Það var 34-35 punda lax þama á Öldunni en hann tók ekki neitt, sama hvort honum var boðið fluga, spúnn eða maðkur," sagði Hrafnkell Kjartansson við Sogið á sunnudag- inn en þar reyndu menn við boltalax lengi dags en hann tók ekki. „Það Veiðivon Gunnar Bender var rosalégt að sjá sporðinn á hon- um.“Þórarinn Sigþórsson og Hrafh- kell vom sammála um stærð laxins en þeir vom þama á brúnni og horfðu á hann. Veiðimenn reyndu víða við fisk á Alviðrusvæðinu á sunnudaginn en hann var frekar tregur, það komu þó þrír laxar á land, 15 punda og tveir 4 punda. Alls hafa veiðst 88 laxar og er stærstur lax Magnúsar Haraldssonar, 30,2 pund, svo 19 punda, 18 og 17 punda. Flugan og tóbýinn hafa gefið langbest, einnig flugur eins og Black and Blue, Dent- ist, Rauð Frances, Black Seep, Olsen túpa og Þingeyingur túpa svo ein- hverjar séu nefndar. Bleikjur hafa verið að fást og em komnar 22 á land frá 1,5 punda til 4. Víða var að sjá mikið af bleikju en þær vildu ekki flugur veiði- manna, margar vom vænar. Bestu staðimir em Klöppin, Ald- an, Tunnan og Breiðan og Bæjar- strengur hefúr gefið vel þótt fiskur hafi fengist víðar. Veiðimaður glímir við lax rétt fyrir neðan Pallinn í Öifusá á sunnudaginn og laxinn hafði betur þvi skömmu seinna fór hann af. Á Pallinum eru komn- ir á milli 90 og 100 laxar. DV-mynd G.Bender.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.