Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Jarðarfarir
Páll Jónsson lést 22. júlí sl. Hann
fæddist á ísafirði 27. nóvember 1908,
sonur hjónanna Jóns Hrjóbjartsson-
ar og Rannveigar Samúelsdóttur.
Páll bjó fyrstu 45 ár ævi sinnar á
ísafirði og starfaði þá lengst af hjá
Kaupfélagi ísfirðinga. Hann fluttist
búferlum til Reykjavíkur 1953 og
gerðist starfsmaður Flugfélags ís-
lands. Páll var starfsmaður FÍ og
Flugleiða til 1978. Útför hans verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Aðalheiður Konráðsdóttir frá
Sauðárkróki verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, þriðjudag 28.
júlí. kl. 15.
Asta Jónsdóttir verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29.
júlí kl. 13.30.
Bergþóra Guðmundsdóttir frá
Sevðisfirði, sem andaðist 21. júlí sl..
verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu miðvikudaginn 29. júlí kl. 10.30.
Friðrik Kristján Sigfússon yfir-
tollvörður, Miðgarði 18. Keflavík,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 29. júlí kl. 15.
Gunnar Ingólfur Kristófersson
frá Gíslabæ verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 29.
júlí kl. 13.30.
Kristján Friðrik Helgason,
Munkaþverárstræti 14, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Sveinn Magnússon, Hólsgötu 4,
Neskaupstað, verður jarðsunginn frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 28. júlí. kl.
14.
Guðný Finnbogadóttir, Hlíð, verð-
ur jarðsungin frá Djúpavogskirkju
miðvikudaginn 29. júlí kl. 14.
Græðum landið um verslun-
armannahelgina
Samtök um GRÆNA FRAMTÍÐ ráðgera
landgræðsluferð í nágrenni Laugarvatns
um verslunarmannahelgina. Ferð þessi er
farin í samráði við landgræðslustjóra.
Svein Runólfsson, og er ætlunin að sá
grasfræi með áburði eftir því sem kraftar
leyfa í rofabörð i nágrenni Laugarvatns.
Allir þeir sem láta sér annt um íslenska
náttúru eru hvattir til að taka þátt. Farið
verður með bifreið frá Guðmundi Jónas-
syni á föstudagskvöld kl. 20.30 frá BSÍ.
Tjaldað verður á Laugarvatni aðfaranótt
laugardags og farið til baka á laugardags-
kvöld. Ferðin er farin til að sýna fram á
að almenningur getur gert eitthvað raun-
hæft til að stöðva uppblástur landsins og
ennfremur er ætlunin að hafa áhrif á
stefnu stjórnvalda í þessum efnum. Um
þessar mundir er stödd hér á landi frú
Regina Opitz. áhrifamaður í flokki græn-
ingja í Svartaskógi í Vestur-Þýskalandi.
Frú Opitz hefur ferðast um ísland og er
snortin af fegurð íslenskrar náttúru. Hún
tekur þátt í ferðinni og verður stödd á
Lækjartorgi þar sem skráning sjálfboða-
liða í ferðina fer fram á milli kl. 12 og
13.30 alla daga þessa viku.
Starf forstöðumanns
Listasafns íslands
Menntamálaráðuneytið hefur sent til birt-
ingar í dagblöðum og Lögbirtingablaði
auglýsingu um starf forstöðumanns Lista-
safns íslands. Umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og starfsferil skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25.
ágúst nk. í auglýsingunni er fram tekið
að ráðgert sé að setja í stöðuna til eins
árs. Ástæða þess er sú að menntamálaráð-
herra hvggst á næsta Alþingi bera fram
frumvarp þar sem æviráðning verði af-
numin í þessu starfi og tekin upp tíma-
bundin ráðning eins og t.d. í gildi er í
Þjóðleikhúsinu. Er þetta í samræmi við
starfsáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem
kveðið er á um að æviráðning embættis-
manna verði afnumin.
Tapað - Fundið
Hjól týnd úr Fossvogi
18. júní sl. voru tvö hjól tekin fyrir utan
hús í Fossvoginum. Annað er grátt 10 gíra
Steelmaster og hitt rautt B.MX hjól með
svörtum BMX plastgjörðum. Ef einhverjir
vita hvar hjólin eru niðurkomin þá vin-
samlegast hringið í síma 688569.
Tilkyimingar
Ættarmót
- Ættarmót verður haldið á Reykhólum í
Austur-Barðastrandarsýslu 1. ágúst nk.
Það eru niðjar hjónanna Arndísar
Bjarnadóttur og Hákonar Magnússonar
er þar bjuggu 1899 til 1920. Nánari upplýs-
ingar um ættarmótið gefa Arndís Magnús-
dóttir í síma 53826 eða Ingunn Jónasdóttir
í síma 36269.
Öldrunarlækningadeildir
Landspítalans
fá sjónvarpstæki að gjöf
Nýlega afhenti Rauði kross Islands 3 sjón-
varpstæki að gjöf til öldrunarlækninga-
deilda Landspítalans í Hátúni 10 b. Tæki
þessi. sem eru á háum hjólahorðum. eru
einkum ætluð til nota inni á sjúkrastofum
fyrir þá sjúklinga sem eru rúmfastir og
eiga þess ekki kost að horfa á sjónvarp í
setustofu. Rauði krossinn efndi til söfnun-
. ar í samvinnu við Bylgjuna fyrir síðustu
jó! þar sem fólki gafst kostur á að senda
jólakveðjur á Bylgjunni gegn vægu gjaldi
og skyldi öllum ágóða varið til öldrunar-
verkefnis RKÍ. Alls söfnuðust kr. 97.800
og var ákveðið að verja þessu fé til kaupa
á fyrrnefndum sjónvarpstækum í þeirri
von að það geti stytt öldruðum sjúklingum
stundirnar.
Ráðstefna um rækju á isafirði
Dagana 20.-22. ágúst verður haldin ráð-
stefna um rækju á ísafirði. Það eru
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins og Fé-
lag rækju- og hörpudiskaframleiðenda sem
að ráðstefnunni standa. Tilgangur ráð-
stefnunnar er þríþættur: 1. Að taka út
stöðu iðnaðarins eins og hann er nú, 2.
• Að freista þess að gera grein fyrir mögu-
leikum iðnaðarins og takmörkunum í
framtíðinni. 3. Að gefa mönnum er málið
varðar, tækifæri til að hittast og ræðast
við. Fjallað verður um öll helstu efni sem
varða rækju og rækjuvinnslu, svo sem
öflun hráefnis, vinnslu, gæðaeftirlit og
markaðsmál. Þeir sem áhuga hafa á að
taka þátt eru beðnir að hafa samband við
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á
, Isafirði í síma 94-3768 en þar eru veittar
nánari upplýsingar.
Giftingarhringur fannst
á biðstöð við Háaleitisbraut. Eigandi get-
ur vitjað hans á óskilamunadeild lögregl-
unnar.
Tóbíasertýndur
frá heimili sínu. Laufásvegi 2a. Hann er
blágrár með hvítt á bringu. Einkenni:
mannelskur og vælir upp í fólk. Þeir sem
hafa orðið varir við hann eða vita hvar
hann er niðurkominn vinsamlegast hringi
í síma 23611.
Vasamyndavél fannst
við Laugarbakka, Edduhótel, þann 11. júlí
sl. Upplýsingar í síma 14706.
Ferðlög
Útivistarferðir um
verslunarmannahelgi
31. júlí - 3. ágúst.
1. kl. 20 Núpsstaðarskógar. Tjöld. Einn
skoðunarverðasti staður á Suðurlandi.
Gönguferðir m.a. að Tvílitahyl og Súlu-
tindum. Fararstjóri Björn Hróarsson.
2. Kl. 20 Lakagigar - Leiðólfsfell. Gist
tvær nætur við Blágil og eina nótt við
Eldgjá. Gengið um hina stórkostlegu
Lakagíga. Ekinn Línuvegur að Leiðólfs-
felli. A heimleið er Eldgjá skoðuð,
Ófærufoss og Landmannalaugar. Farar-
stjóri: Þorleifur Guðmundsson.
3. kl. 18 Kjölur - Drangey - Skagafjörð-
ur. Ógleymanleg Drangeyjarsigling.
Litast um í Skagafirði o. fl. Svefnpokagist-
ing.
4. Kl. 20 Þórsmörk. Ódýr Þórsmerkur-
ferð. Gönguferðir. Góð gisting í Útivistar-
skálunum, Básum. Munið sumardvölina.
Miðvikudagaferð 29. júlí kl. 8.
5. Laugardag kl. 8. Skógar - Fimm-
vörðuháls - Básar. Dagsferð yfir hálsinn.
Gist í Básum.
6. Laugardag kl. 8 Þórsmörk - Eyjafjöll.
Gist í Útivistarskálunum Básum.
7. Hornstrandir - Hornvík 30. júlí - 4.
ágúst. Tjaldbækistöð í Homvík. Dags-
ferðir þaðan. Fararstjóri Lovísa Christ-
iansen.
Dagsferðir 29. júlí, 2. og 3. ágúst í Þórs-
mörk.
Nánari uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1. Allir geta verið með í Útivistar-
ferðum. Sjáumst. Útivist.
Viðmiðunin á Hofsósi er 11 ára og yngri í fótboltanum. Stúlkur og drengir æfa saman af krafti undir stjórn þjálf-
ara síns, Árna Stefánssonar, fyrrum markmanns landsliðsins. DV-mynd JGH
Svava Kjartansdóttir húsmóðir:
„Sjónvarpið er tímaþjófur4
í gærkvöldi
Þó að sjónvarpið sé svakalegur tíma-
þjófur horfi ég mikið á það. Það er
þá mest ríkissjónvarpið sem ég horfi
á því ég á ekki afruglara og er ákveð-
in í að fá mér hann ekki. Nógu
miklum tíma eyðir maður í sjón-
varpið samt. Ég horfi þó á fréttimar
á Stöð 2. Mér finnast þær líflegri og
það er að miklum mun léttara yfir
þeim. Svo finnst mér kostur að þær
byrja fyrr. Maður sest oft niður í
rólegheitum eftir matinn og þá vill
maður sjá fréttir strax. Svo em oft
góðir þættir strax á eftir fréttunum
á Stöð 2 en langar og leiðigjamar
auglýsingar í ríkissjónvarpinu.
Framhaldsþáttum fylgist ég tölu-
vert mikið með eða eftir því sem ég
hef áhuga á. Mér finnst t.d. fram-
haldsþátturinn Borgarvirki, sem
sýndur var á sunnudagskvöldið.
mjög góður.
Kvikmyndir vil ég hafa léttar og
skemmtilegar. Ég hef mikla ánægju
af svoleiðis myndum en ekki þessum
kvikmyndavalið búið að vera mjög
lélegt í sumar, það er bókstaflega
ekki horfandi á sjónvarpið. Það er
nú einmitt um helgar sem helst er
horft á kassann og þá er lágmark
að bjóða upp á eitthvað gott.
Þetta er svona það helsta sem ég
horfi á en ég á það líka til að sitja
yfir beinum útsendingum í fótbolta
þó ekki venjulegum íþróttaþáttum.
Ég hlusta ekki mikið á útvarp. Það
er helst á morgnana sem kveikt er
á því og þá er helst stillt á Bylgj-
una. Það er létt yfir henni og það
er gott að fá svoleiðis undirspil þeg-
ar maður er að vinna. Þátturinn
Vikuskammtur á sunnudögum, þeg-
ar farið er yfir fréttir vikunnar,
finnst mér mjög góður en allir síma-
tímar fara í taugamar á mér og eru
mjög leiðigjamir.
Ég fer af og til í bíó en er orðin
frekar löt við það. Það er frekar að
maður fari út í sjoppu og nái sér í
góða videospólu.
verðlaunamyndum eins og t.d. vom
sýndar sl. laugardag. Þegar ég sest
fyrir framan sjónvarpið vil ég slappa
af og horfa á eitthvað létt. Mér finnst
Svava Kjartansdóttir.
DV á Hofsósi:
Boltabömin hans Áma
Jón G. Haúksson, DV, Akureyri:
Krakkamir á Hofsósi em áhugas-
amir í fótbolta undir stjóm þjálfara
síns, Áma Stefánssonar, fyrrum mark-
manns KA, Fram og landsliðsins. Ekki
er vitað um neinn sjötta og fimmta
flokk drengja og stúlkna að ræða held-
ur er viðmiðunin 11 ára og yngri og
æfa bæði kynin saman. Félagið á Hots-
ósi heitir Höfðstrendingur. Þess má
geta að Ámi Stefánsson býr á Sauðár-
króki þar sem hann er íþróttakennari.
En hann fer létt með að aka 40 kíló-
metrana til Hofsóss og bregða boltan-
um á loft.
Bandaríkin gefa eftir
Bandaríkjamenn hafa boðað full-
trúa Sovétríkjanna í afvopnunarvið-
ræðunum í Genf á sérstakan fund í
dag.
Ætlunin mun vera að leggja fram
nýjar tillögur um fækkun eldflauga í
Evrópu, sem fela í sér að Bandaríkin
gefi eftir í ýmsum þáttum er hafa stað-
ið samningum fyrir þrifum.
Mikið var um árekstra í Reykjavik i gær. „Þetta er stress, það er ekki aðstæðum að kenna,“ sagði lögreglu-
maður i morgun en i gær urðu 30 árekstrar í Reykjavík. Áreksturinn á myndinni varð i morgun á mótum
Höfðabakka og Fálkabakka. DV-mynd S