Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
5
Fréttir
Slátrun hafin að nýju
SS tapaði 2 milljónum
„Við byrjuðum í morgun að slátra
aftur frá þeim 7 svínabúum sem salm-
onellan greindist ekki frá. Nú heftir
svínakjöt frá okkur ekki verið til sölu
í nokkra daga en ég á ekki von á því
að þetta hafi áhrif á söluna í framtíð-
inni. Fólk veit að allt verður gert til
að tryggja öiyggi neytenda eins og
frekast er unnt, auk þess sem uppruni
sýkingarinnar er ekki frá okkur kom-
inn,“ sagði Steinþór Skúlason, fram-
leiðslustjóri Sláturfélags Suðurlands.
Steinþór sagði að hann áætlaði að
útlagður kostnaður íyrirtækisins
vegna þessarar salmonellusýkingar
væri tæpar 2 milljónir króna. „Við
höfum hent 400-500 kílóum af svína-
kjöti frá sömu slátrun og það kjöt var
úr sem sýking fannst í. Veltutap hefur
orðið vegna þess að varan hefur ekki
verið til sölu í viku. Rannsóknarkostn-
aður er einhver og svo það að setja
okkar fólk í önnur verkef'ni," sagði
Steinþór og bætti því við að hann teldi
sýkinguna núna vera einstakt tilfelli
en ekki eiga við um svínabú almennt.
-JFJ
Aukning
lambakjotssölu
- í kjötfar salmonelluumræðu
„Lambalærið er sigurvegari helg- ura það að nokkuð hefði dregið úr Hrafir Bachmann í Kjötmiðstöð-
arinnarhjámér. Þaðhefursebtmun svínakjötssölu að undanfómu en Mt- inni var sá eini sem sagði að sala
meira af því en venjulega. Kjúkl- il sala hefði verið í kjúklingum að heföi aukist á svínakjöti en hann
ingasala er svipuð en það er minni undanfömuogværinúenginmerkj- sagðist hafa Napoleon-svín frá Ak-
eftirspum eftir svínakjöti en áður. anleg minnkun. Greinileg aukning ureyri. Hann taldi að dræm sala á
Fólk talar rnikíð um þessa salmon- væri þó í neyslu á lambakjöti. „Við kjúklingumværiekkiendilegasalm-
ellusýkingu og spyr mikið um kjöt- vorum með fallegar svínakótelettur onelluumræðu að kenna, fólk væri
ið,“ sagði Guðmundur Júlíusson í hér fyrir helgi, sem heföu átt að selj- farið að verða þreytt á kjúkfingum
Kjötbúri Péturs. ast, en fólk hélt að sér höndum og að sínu mati.
Flestir kjötkaupmenn, sem DV keypti frekar lambakjötið," sagði -JFJ
hafði samband við, voru sammála Maria Hafsteinsdóttir í Hamrakjöri.
Heitt vatn i planið hjá skattinum og sparisjóðnum á Siglufirði svo fólk kom-
ist með peningana hvernig sem viðrar, segja pípararnir.
DV-mynd Jón G. Hauksson
DV á Siglufirði:
Planað fyrir skattinn
Halcion misnotað hériendis
- segir Óttar Guðmundsson
„Við vitum það að Halcion er
ávanabindandi og það er mikið mis-
notað meðal áfengissjúklinga á ís-
landi. Ef um misnotkun er að ræða sér
maður sams konar einkenni og eru
fylgifiskur oftieyslu sterkra lyfja svo
sem einbeitingarleysi og minnisstap,"
sagði Óttar Guðmundsson, yfirlæknir
á meðferðarstöðinni Vogi.
Eins og fram hefur komið hefur hol-
lenskur dómstóll komist að þeirri
niðurstöðu að nefrid sérfræðinga verði
látin kanna ftillyrðingar um alvarleg-
ar aukaverkanir af völdum svefnlyfs-
ins Halcion. Þetta lyf er töluvert notað
hérlendis en þá í fjórfalt smærri
skömmtum og er þannig hættulaust
að sögn Ólafs Ólafssonar landlæknis.
„Það er engin ástæða til að taka
lyfið af markaði þó að hætta sé fyrir
hendi á misnotkun. Það er sama hætta
og með önnur benzodiazepamlyf. Það
þarf frekar að vara lækna við að skrifa
mikið út af þessu og ekki til áfengis-
sjúklinga."
Óttar sagði að Halcion heföi náð
vinsældum meðal misnotenda róandi
lyfja. Á Vog kæmu árlega um 400
sjúklingar sem hefðu misnotað róandi
lyf og þar af væri töluverður hópur
sem misnotað hefði Halcion. Hann
sagðist ekki vita um aðrar aukaverk-
anir en þær sem hlytust af völdum
misnotkunar á öðrum róandi lyfjum.
Þvi þyrfti ávallt að fara varlega í að
skrifa út lyfseðla á róandi lyf.
-JFJ
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Þeir segjast setja lagnimar fyrir
heita vatnið í planið hjá skattinum
og sparisjóðnum á Siglufirði svo að
fólk komist inn með peningana hvem-
ig sem viðrar. Þeir eru píparar. Plast-
Regína Wioiaröisen, DV, Gjögri:
Eva Sigurbjömsdóttir, hótelstýra
á Djúpuvík, segir að gestakoma hafi
verið óvenjumikil í ár, bvijaði strax
í júní, enda em vegir góðir og veð-
rið með besta móti og Eva heppin
með nýráðið starfsfólk. Eva sjálf var
rörin em garantemð í 50 ár þannig
að næstu hálfa öldina verður auð stétt
hjá skattinum á Siglufirði. Annars er
þetta góð og sjálfsögð nýting á heita
vatninu, það færi annars beint í sjó-
inn, segja píparamir.
að girða lóð í kringum hótehð með
grænum trollhampi og strengja kað-
al að ofan og neðan til að halda
girðingunni uppi. Meðfram hlóð hún
síðan steinum og varð útkoman
ljómandi smekkleg. Má með sanni
segja að hótelið sé stolt Djúpuvíkur.
Gestakoma mikil á Djúpuvík
SERTILBOD
LÆKKAÐ VERÐ
NISSAN PATROL
■ ■ffBi ■ IT» ■ ■ ■ www wwm
Vegna hagstæðra samninga erlendis getum
við afgreitt strax:
Nissan Patrol jeppa.
Nissan Patrol pickup.
Aðeins örfáii bílar.
Góð greiðslukjör.
M1957-1987 Ny
30 $
ára^
Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni
■H INGVAR HELGASON HF.
■ RR Sýninyarsalurinn/Riiuðíigerði, simi 33560.