Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Útiönd
Mubarak hrttirYasser Arafat í Addis Ababa
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hitti í gær Yasser Arafat, leiðtoga
frelsishreyfingar Palestínumanna, að máli í Addis Ababa, höfuðtx)rg Eþíóp-
íu. Þetta er íyrsti fundur þeirra frá því Egyptar lokuðu skrifstofu frelsis-
hreyfingar Palestínumanna í Kaíró fyrir þremur mánuðum síðan.
Leiðtogarnir hittust i villu Mubaraks í Addis Ababa, þar sem þeir báðir
sækja leiðtogafund einingarsamtaka Afríku. Eftir fundinn í gær sagði utan-
ríkisráðherra Egyptalands að leiðtogamir myndu hugsanlega funda aftur
meðan á ráðsteftiunni stendur.
Arafat sagði eftir ftmdinn að hann hefði verið bróðurlegur og meira en
sáttafundur.
Undirbúa endumýj-
aða baráttu gegn
ríkisstjóminni
Andstæðingar ríkisstjómar Cora-
zon Aquino á Filippseyjumundirbáa
nú endumýjaða baráttu gegn henni.
Stuðningsmenn Ferdinand Marcos,
fyrrum forseta, sem Aquino steypti
af stóli á síðasta ári, hafa undanfar-
ið látið æ meira á sér bera. Uppreisn-
armenn Muhameðstrúarmanna: á
suðurhluta Filippseyja fengu í gær
fyrirmæli um að grípa að nýju til
aðgerða gegn stjómvöldum og talið
er að til mikilla átaka geti komið á
næstunni.
Að sögn talsmanna Múhameðstrú-
armanna hafa samningaviðræður
við stjómina ekki borið árangur. :
Áttræður maður tekinn fýrir kókaínsmygl
Áttreeður ítali var í gær handtekinn á flugvellinum við Amsterdam, þegar
toUverðir fundu tæplega þrjú kíló af kókaíni, falin í ferðatösku sem hann
haiði meðferðis.
Maðurinn, sem er búsettur í Santa Cruz í Bólivíu, sagðist ekki hafa vitað
af eiturlyfjunum í töskunni, enda ætti hann ekkert í henni.
Búist var við að dómstóll í Amsterdam myndi taka um það ákvörðun á
miðvikudag hvers kyns ákærur yrðu bomar fram gegn manninum. Þann
dag verður hann áttatíu og eins árs.
Leiðtogar tatara hitta Gromyko í dag
Reshat Dzhemilov, einn helstiléið-
togi tatara í Sovót ríkjumun og
nokkrir fylgismenn hans, munu i dag
ganga á fund Andrei Gromyko, for-
seta Sovétríkjanna og ræða við hann
um vandamál sín á Krímskaga, þar
sem tatarar vilja endurreisa sjálf-
stjómarlýðveldi sitt.
Hundruð tofcua hafa undanfama
daga efnt til mótmæla í Moskvu, til
þess að knýja stjómvöld til úrbóta.
ólíklegt er talið að stjómvöld fáist
til að afgreiða mál tatara án tengsla
við mál annarra þjóðarbrota í Sovét-
ríkjunum.
Strendur Bretlands með þeim óhreinustu
Að sögn umhverfisvemdarmanna í Bretlandi eru baðstrendur þar með
þeim óhreinustu í Evrópu og aðeíns seytján af um eitt þúsund ferðamanna-
stöðum sem á þeim er að fi nna, ero lausir við mengun af völdum frárennslis.
Að sögn umhverfisvemdarmannanna uppfylla allt of fáar baðstrendur
Bretlands þær kröfur sem settar em innan Evrópubandalagsins um mengun-
arvamir. I skýrslu samtaka þeirra kemur fram að einungis seytján baðstrend-
ur geta talist mengunarlausar og geta státað af hinu svonefnda „bláa fána“,
sem er merki Evrópubandalagins fyrir ómengaða baðstaði.
Verkfoll í Júgóslavneskri hafnarborg
Verkamenn í Rijekla, stærstu hafiiarborg Júgóslavíu, eru nú í verkfalh,
í annað skipti á aðeins tveimur mánuðum. öll starísemi í höfti borgarinnar
lagðist niður í gær og biður þar þrjátíu og sex skip eftir að verða fermd,
að sögn Tanjug-fféttastofunnar.
Verkfallsmenn eru að mótmæla lélegri lífeafkomu í landinu og er verkfall
þeirra liður í röð verkfalla, sem gengið hafa yfir landið undanfárið. Verk-
falhð hófet um síðustu helgi og er talið að um hundrað og tuttugu þúsund
tonn af vamingi bíði þess að komast á skip.
Að sögn júgóslavanesku frétfastofunnar hafa verkamennimir um 182 þús-
und dínara é mánuði, eða sem nemur tæplega hundrað og sextíu dollurum.
Það mun vera nokkuð yfir meðallaunum í Júgóslavíu, en mennimir krefj-
ast að minnsta kosti tíu prósent hækkunar.
Einingarsamtök
Afnkurikja aðstoði
gyðinga í Eþíópíu
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, og Mensistu, aðalritari Einingarsamtaka
Afríkuríkja, heilsast við upphaf fundar samtakanna í Addis Ababa i gær.
Símamynd Reuter
Leiðtogar aðildarríkja Einingarsam-
taka Afríku komu í gær saman til
þriggja daga fundar í Addis Ababa,
höfuðborg Eþíópíu. Aðeins seytján af
fimmtiu aðildarríkjum sendu þó leið-
toga sína á þennan fund, sem að
líkindum mun mest fjaha um kyn-
þáttaaðskilnaðarstefhu Suður-Afríku
og efnahagsvandkvæði Afríkuríkja
almennt.
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu,
var í gær kjörinn aðalritari samtak-
Javier Peerez, aðalritari Sameinuðu
Þjóðanna, og Gro Harlem Bmndtland,
forsætisráðherra Noregs, sem em
heiðursgestir fundarins, réðust bæði
harkalega á stefhu stjómvalda í Suð-
ur-Afríku, í ávörpum sínum í gær.
Búist er við að fundurinn fjalli um
árásarstefriu þá sem Moammar Gadd-
afi, leiðtogi Líbýu, hefur rekið gagn-
vart grannríkinu Chad. Gaddafi mun
hafa haft spumir af þeirri fyrirætlan
fyrirfram enda var hann ekki mættur
til fundarins í morgun.
50 kílóa sprengja
í vegkantinum
Þórður Jóhaimssan, DV, Zurich;
Vömflutningabílstjóri nokkur trúði
ekki sínum eigin augum er hann sá
fimmtíu kílóa sprengju liggja í veg-
kantinum er hann ók fram hjá þorpinu
Kandersteg í Sviss á dögunum.
Var sprengjan virk og hafði hún leg-
ið í fjörutíu ár í hlíðum þorpsins en
komið í ljós í umrótinu sem varð vegna
mikilla vatnavaxta í Sviss að undanf-
örnu. Sprengjan hefúr nú verið gerð
óvirk.
Þann 19. desember 1947 spmngu
margar sprengjur á þessum slóðum og
lagðist þorpið Mitholz í rúst. Fimmtán
manns fórust við þann atburð.
Italir látast af völdum hita
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísrael, fór þess í gær á leit við Eining-
arsamtök Afríkuríkja, að þau kæmu
til aðstoðar gyðingum þeim sem eftir
em í Eþíópíu og hjálpi þeim við að
flytjast til fjölskyldna sinna í ísrael.
Shamir sagði á fundi með þúsundum
ísraelskra innflytjenda frá Eþíópíu að
hann hefði farið þess á leit við eining-
arsamtökin að þau gengjust fyrir því
að eþíópískir gyðingar fengju að fara
úr landi og setjast að í ísrael.
Kvaðst Shamir vonast til að yfirvöld
í Eþíópíu léðu einingarsamtökunum
eyra.
Um átta þúsund eþíópskir gyðingar
vom fluttir flugleiðis til Israel árið
1984, eftir að þeir höfðu farið gang-
andi frá heimalandi sínu til Súdan.
Innflytjendur þessir hafa gerst æ há-
værari í kröfum sínum um að þeim
fimmtán þúsund gyðingum, sem enn
em taldir vera í Eþíópíu, verði heimil-
að að flytja til ísrael.
Eþíópía sleit stjómmálasambandi
við ísrael 1973 meðan á styrjöld ísra-
ela og araba stóð.
Baldur Róberisson, DV, Genúa:
Um fimmtíu manns hafa látist af völd-
um mikilla hita er verið hafa á
Suður-Ítalíu síðustu daga. Hefur hit-
inn verið yfir fjömtíu stig í heila viku.
Flestir þeir er látist hafa hafa verið
aldraðir og vom margir þeirra rúm-
liggjandi á sjúkrahúsum sem ekki
höfðu loftkælingu. Þó er vitað um að
minnsta kosti tíu látna er voru á unga
aldri og að því er virtist heilbrigðir.
Skógareldar hafa brotist út á nokkr-
um stöðum og vatnsskortur er í
mörgum borgum. Á meðan íbúar í
suðurhluta landsins voro að stikna var
haglél og rigning hjá löndum þeirra á
Norður-Italiu um helgina. I Feneyjum
fór hitinn niður í átján gráður.
Aurskrið-
ur loka
vegum
Þóröur Jóhaimssan, DV, Zurich;
Hundruð þorpa í Sviss eru sam-
bandslaus og öll umferð úr lagi
vegna storma, þrumuveðurs og
aurskriðna sem lokað hafa vegum
og jámbrautarleiðum í suður- og
austurhluta Sviss síðustu viku.
Mikill fjöldi ferðamanna á leið
suður á bóginn frá Norður-Evrópu
gerir björgunarstarf vegna vatns-
skaðans enn erfiðara.
Spáð er batnandi veðri hér í Sviss
og uppstyttu.
Stuðningsmaður Marcosar gripinn
Corazon Aquino, forseti Filippseyja,
skipaði í morgun heryfirvöldum að
gæta stöðugt ofursta sem grunaður er
um að vera höfuðpaurinn á bak við
nokkrar valdaránstilraunir.
Ofurstinn, Rolando Abadilla, stuðn-
ingsmaður Marcosar fyrrum forseta,
hefur verið sakaður um pyntingar og
morð á þúsundum stjómarandstæð-
inga undir stjóm Marcosar.
Abadilla var gripinn í gær við fyrir-
tæki, sem hann á, nálægt herbækistöð
í grennd við Manilla. Hans hafði verið
leitað í sex mánuði. Var hann hand-
tekinn á meðan Aquino ávarpaði
þingið sem í gær kom saman í fyrsta
skipti eftir fimmtán ára hlé.
Hvatti hún þingmenn til þess að
styrkja herinn til þess að hann gæti
verið viðbúinn valdaránstilraunum
hægri manna og auknum afekiptum
kommúnista. Nokkrum klukkustund-
um áður en hún tók til máls sprengdu
skæroliðar kommúnista í héraðinu
Kalinga-Apayao herflutningabíl í loft
Bænúur etndu tii motmæia rett par nja sem ping Piiippseyja kom saman
í Manilla í gær í fyrsta skipti eftir fimmtán ára hlé. Simamynd Reuter
upp og skutu til bana þá er ekki fór-
ust í sprengingunni. Fórust átján
hermenn og sex særðust.
1 kosningabaráttunni lofuðu margir
þingmanna að tekin yrði til athugunar
vera bandarískra herbækistöðva á
eyjunum. Annaðhvort yrði Banda-
ríkjamönnum skipað að hypja sig eða
krafist betri kjara. Búist er við hörðum
umræðum um þetta mál á Filippseyj-
um en samningurinn milli Bandaríkj-
anna og Filippseyja um hersetu rennur
út árið 1991.
Víst þykir að deilumar muni hafa
áhrif á framtíðarsamskipti ríkjanna
beggja.
Umsjón:
Halldór Valdimarsson og Ingibjörg Sveinsdóttir