Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Side 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Miðum
hraða
ávallt
aðstæður
UMFERÐAR
IX
Laus staða
Starf forstööumanns Listasafns islands er laust til
umsóknar. Ráðgert er að sett verði í stöðuna til eins
árs.
Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
25. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið 24. júlí 1987
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem varauglýst í 22., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Blikanesi 28, Garðakaupstað, þingl. eigandi Már
Egilsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 31. júlí
nk. kl. 13.45 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun upp-
boðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem varauglýst 122., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Lindarbraut 28, Seltjarnarnesi, þingl. eigandi Hreiðar
Karlsson o.fl., fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 31.
júlí nk. kl. 14.15 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun upp-
boðsréttarins. Uppboðsþeiðandi er Valgarður Sigurðsson hdl.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst í 49., 58. og 63. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1986, á eigninni Bollagörðum 29, Seltjarnarnesi, þingl. eigandi
Ragnheiður Latz Guðjónsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu
31 föstudaginn 31. júlí nk. kl. 14.45 og verður því síðan fram haldið eftir
nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Iðnþróunarsjóður.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst í 93., 100. og 104. tbl. Lög-
birtingablaðsins 1986, á eigninni Æsustöðum, Mosfellshreppi, þingl. eigandi
Hlrf Ragnheiður Heiðarsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31
föstudaginn 31. júlí nk. kl. 15.30 og verður því síðan fram haldið eftir nán-
ari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Örn Höskuldsson hdl.
_____________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst 122., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Hagalandi 5, Mosfellshreppi, þingl. eigandi
Guðmundur Haraldsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstu-
daginn 31. júlí nk. kl. 16.00 og verður því siðan fram haldið eftir nánari
ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofnun ríkisins.
_____________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst 122., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Melkoti, Mosfellshreppi, þingl. eigandi Guðný
Halldórsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 31.
júlí nk. kl. 16.15 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun upp-
boðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Valgarður Sigurðsson hdl.
___________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst í 22., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Jónstóft/Hraðastaðalandi, Mosfellshreppi, þingl.
eigandi Sigríður Halldórsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31
föstudaginn 31. júlí nk. kl. 16.30 og verður því síðan fram haldið eftir nán-
ari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppþoðsþeiðandi erTryggingastofnun ríkisins.
_______________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Menning
Módel af tónlistarhúsinu tilvonandi.
Samtök um byggingu tónlistarhúss:
Einhugur meðal
tónlistarmanna
Hönnun hússins komin á fullan skrið.
„Við erum hætt að spytja hvort
þetta hús verði byggt, við erum farin
að spyrja hvenær," sagði Ármann Öm
Ármannsson, formaður Samtaka um
byggingu tónlistarhúss, í samtali við
DV þegar blaðið spurði hann frétta
af tónlistarhúsinu sem ráðgert er að
rísi í Laugardalnum í Reykjavík innan
fárra ára. „Hönnunin er komin á góð-
an skrið en við vonumst til að henni
ljúki á næsta ári,“ sagði Ármann enn-
fremur.
Aðalsviðið stækkað
Um þessar mundir er liðlega ár liðið
frá því að úrslit vom tilkynnt í sam-
keppni um teikningu af tónlistarhús-
inu en eins og kynnt var í fjölmiðlum
á sínum tíma hlaut tillaga Guðmundar
Jónssonar arkitekts fyrstu verðlaun.
Þann 15. apríl síðastliðinn vom undir-
ritaðir samningar við Guðmund um
framhaldsvinnu við húsið og frá þeirn
tíma hefur hann unnið að hönnun
þess, meðal annars í samvinnu við
Stefán Einarsson hljómburðarsérfræð-
ing.
„Það varð nokkur dráttur á að hægt
væri að ganga frá þessum samning-
um,“ sagði Ármann, „bæði vegna
þeirra deilna sem vom um notkunar-
möguleika hússins og eins vegna
ýmissa samningsatriða. Guðmundur
starfar á eigin teiknistofú í Noregi og
því reyndist nauðsynlegt að samræma
gjaldskrár milli landanna. Þessi mál
em nú að baki. Byggingamefhd húss-
ins, sem er skipuð þaulreyndum
mönnum í byggingariðnaði; arkitekt-
um, verktökum og byggingameistur-
um, hefúr allt síðasta ár unnið af
miklum eldmóði við að koma hönnun-
inni áfram og nú er mikilvægum
áfanga hennar lokið."
Stendur fyllilega undir nafni
Á sínum tíma vom margir óhressir
yfir því að ekki væri gert ráð fyrir
uppfærslum á óperum eða söngleikjum
í tónlistarhúsinu. Aðalsviðið var ein-
faldlega of lítið. Á nýjustu teikningum
hefúr það hins vegar verið stækkað,
auk þess sem gert er ráð fyrir að svið-
ið í litla salnum komi til með að nýtast
sem hliðarsvið þegar þess verður þörf.
Hljómsveitargiyfjan hefur einnig ve-
rið stækkuð. Armann kvað bygging-
una verða nokkuð dýrari fyrir bragðið,
...,,en hún mun aftur á móti standa
fyllilega undir nafiii sem tónlistarhús
fyrir flutning hvers konar tónlistar.
Allir hópar tónlistarmanna; popparar,
óperufólk, djassarar og sinfóníkerar,
em nú samstíga um húsið. Auk þess
er ljóst að tónleikahúsið verður eina
húsið hér á landi sem getur tekið við
stærri ráðstefnum." Þess má geta að
stærri salur hússins á að rúma 1.400
áheyrendur en í minni salnum verða
sæti fyrir á fjórða hundrað manns.
Eitt skref í einu
Armann sagðist stundum vera
spurður að því hvenær hafist yrði
handa við grunn hússins en hann tók
mönnum vara við að vera of óþolin-
móðir í þessu efhi. „Þeir sem hafa litla
þekkingu á byggingariðnaði átta sig
ekki alltaf á því að tveir þriðju af þeim
tíma sem tekur að koma upp húsi em
hönnunartími. Það þarf að teikna
hvert einasta smáatriði enda liggja 25
til 30 starfsár að baki hönnunar á
svona byggingu. Teikningamar einar
vega kannski 50 til 100 kíló. Ég get
aðeins ítrekað að við erum á góðum
gangi en förum ekki nema eitt skref í
einu. Það verður vonandi hægt að
bjóða út framkvæmdir sem fyrst eftir
að hönnun lýkur og við erum staðráð-
in í að vera fljót að byggja þegar við
hefjumst handa.“
Kostnaður við hönnunina hingað til
nemur 10 milljónum króna en heildar-
hönnunarkostnaður er áætlaður um
50 milljónir. Að sögn Ármanns hafa
borgaryfirvöld og alþingismenn sýnt
málinu velvilja en samtökin hafa énn
sem komið er ekki leitað til hins opin-
bera vegna fjárstuðnings. „Við stefn-
um að því að ljúka hönnuninni án
opinberra framlaga en ljóst er að ís-
lenska þjóðin kemur til með að
fjármagna þetta hús með einum eða
öðrum hætti. Núna stendur fyrir dyr-
um að afla fjár til þess að standa undir
áframhaldandi hönnunarvinnu en á
næstu mánuðum bráðvantar okkur 10
milljónir."
Væntanlegt fjáröflunarátak
Samtök um byggingu tónlistarhúss
hyggjast safha þessu fé með ýmiss
konar fjáröflun á hausti komanda, þar
á meðal happdrætti og tónleikahaldi.
„Við vitum að við eigum vísan stuðn-
ing allra tónlistarunnenda og erum
sannfærð um að þetta átak skilar okk-
ur því fjármagni sem þarf,“ sagði
Ármann. „Mest ríður á að happdræt-
tið gangi vel en auk þess ætlum við
að halda stórtónleika í Háskólabíói í
október þar sem fjölbreyttur hópur
tónlistarfólks kemur fram. Auk þess
er ráðgert að gefa út hljómplötu. Ann-
ars hafa samtökin mörgjám í eldinum.
Svo dæmi sé nefnt hefur Martin Ber-
kofsky píanóleikari verið geysilega
ötull við að afla byggingu fjár en á
síðustu mánuðum hefur hann haldið
eina 6 styrktartónleika víðs vegar um
heim í því augnamiði.“
Ármann kvaðst vera bjartsýnn á
framhaldið. „Þegar við komum saman
haustið 1983, nokkrir áhugamenn um
tónlist, og ákváðum að beita okkur
fyrir byggingu tónlistarhúss var það
vegna þess að brýn þörf var á slíkri
byggingu hér á landi. Síðan þetta gerð-
ist hafa tónlistarmenn misst Austur-
bæjarbíó, eina þokkalega tónleikasal-
inn í Reykjavík. Aðstaða Sinfóníu-
hljómsveitarinnar i Háskólabíói hefúr
aldrei verið annað en til bráðabirgða.
Sé tekið mið af þessu og þeirri miklu
grósku sem er í tónlistarlífinu, þrátt
fyrir aðstöðuskortinn, er ljóst að þörf
fyrir gott tónlistarhús hefur aldrei
verið meiri.
Upp á síðkastið hefur mér fundist
að við Islendingar séum að gera okkur
sífellt betur grein fyrir því að við vilj-
um standa undir nafhi sem mennning-
arþjóð. Maður hefði getað átt von á
að öll slík menningarvitund drukkn-
aði í auknu framboði af erlendu
fjölmiðlaefni en mér sýnist að þessu
sé öfúgt farið. Ég ber engan kvíðboga
fyrir starfsemi tónlistarhússins þegar
þar að kemur.“
JKH