Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Qupperneq 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Iþróttir
• Ólafsfirðingarnir í Leiftri gera harða hríð að marki Fram i leik liðanna í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar á dögunum.
DV-mynd G. Bender
Árangur Leifturs frá Ólafsfirði hefur komið verulega á óvart í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu. í dag er liðið
í efsta sæti deildarinnar og á einn leik til góða gegn Vestmannaeyingum sem var frestað vegna þess að ekki var
flugfært til Eyja. Frammistaða Leifturs verður enn giæsilegri ef haft er í huga að liðið kom upp úr þriðju deild
á síðasta keppnistímabili.
Áhugi bæjarbúa kom bersýnilega í ljós á dögunum þegar Leiftur mætti Fram í 8-liða úrslitum Bikarkeppni
Knattspyrnusambands íslands en á leikinn mættu 700 áhorfendur en á Ólafsfirði búa alls um 1150 íbúar. Mikill
áhugi var á staðnum fyrir þessum umrædda leik og varla rætt um annað manna í milli nokkrum dögum fyrir leik.
Það er ekki á hverjum degi sem bæjarbúar fá sjálfa íslandsmeistarana í heimsókn. DV-menn fóru norður á
ÓlafsQörð til að fylgjast með leiknum og til að fræðast enn meira um þennan uppgang knattspyrnunnar og góða
frammistöðu Leifturs í 2. deildinni, snerum við okkur til tveggja manna sem eru vel kunnugir þessum málum.
-JKS
„Stuðningur bæjarbúa oj
fyrírtækja ómetanlegur1
- segir Þorsteinn Þorvaldsson formaður knattspymudeildar Leifturs á Ólafsfirði
„Auðvitað er ég í sjöunda himni
með árangur okkar manna í deild-
inni það sem af er keppnistímabilinu.
Okkar takmark fyrir mótið var
halda sér í deildinni enda við nýliðar
en við komum upp úr þriðju deild-
inni á síðasta keppnistímabili. Það
gefur samt auga leið að gott gengi
er góð auglýsing fyrir bæinn okkar.
Annars er mjög erfitt að segja til um
hveijir sigra í deildinni í ár. Mörg
lið koma til með að blanda sér í þá
baráttu og erum við staðráðnir í að
vera með í þeim mikla slag sem fram-
undan er,“ sagði Þorsteinn Þor-
valdsson, formaður knattspymu-
deildar Leifurs, í viðtali við DV á
dögunum.
Þorsteinn Þorvaldsson er fæddur
Ólafsfirðingur og er sparisjóðsstjóri
á staðnum. Hann tók við stöðu spari-
sjóðsstjóra 25 ára gamall og var þá
yngsti maðurinn sem gengdi slíkri
stöðu á landinu. Þorsteinn lék í
mörg ár með liði Léifturs en lagði
skóna á hilluna á síðasta ári.
„Vörum við of mikilli bjart-
sýni“
„Margir sigrar okkar í deildinni
fram að þessu hafa verið sannfær-
andi og þá sérstaklega á heimavelli
en þar höfum við halað flest okkar
stig inn. Á útivöllum hefur baráttan
verið gífurleg og ég er á því að með
smáheppni værum við búnir að
vinna fleiri sigra þar. Annars vil ég
fyrir alla muni vara við of mikilli
bjartsýni. Mótið er aðeins rúmlega
hálfnað og enn töluvert langt í land“.
„Stuðningur bæjarbúa og fyr-
irtækja ómetanlegur"
„Skilningur bæjarbúa og fyrir-
tækja á íþróttamálum á staðnum er
ómetanlegur. Þeir eru ósparir að
koma til hjálpar þegar eitthvað
stendur til. Þeir hafa flykkst á
heimaleiki okkar í sumar og verið
• Þorsteinn Þorvaldsson, formaður
knattspyrnudeildar Leifturs á Ólafs-
firði. DV-mynd G. Bender
okkur mikill stuðningur. Ekki má
gleyma þætti sjómannsins hér á Ól-
afsfirði. Nýlega tóku áhafnir skip-
anna sig saman og gáfu okkur
upptökutæki sem gerir okkur kleyft
að taka alla leiki okkar upp á mynd-
band. Síðan setjumst við niður eftir
leikina og fórum yfir það sem betur
má fara. Þetta tæki kemur í góðar
þarfir og eiga áhafnimar mikið lof
skilið fyrir gjöfina."
„Æfingaferðin til Englands
skilaði árangri“
„S.l vor hófum við undirbúning
fyrir keppnistímabilið með æfinga-
ferð til Englands og æfðum tvisvar
á dag. Sú ferð hefur ótvírætt skilað
góðum árangri. Við lékum þijá leiki
í förinni, unnum tvo leiki og einn
tapaðist. Sigruðum meðal annars lið
Cambridge og Colchester. Þama úti
vom strákamir saman frá morgni
til kvölds og skapaðist góður andi í
kringum liðið sem er að skila sér í
dag.“
„Bygging grasvallar ákveðin“
„I dag spilum við okkar heimaleiki
á malarvelli en ákveðið er að ráðast
í byggingu grasvallar á hausti kom-
andi. Okkur hefur verið úthlutað
svæði sunnan við malarvöllinn.
Bygging hans verður fjárfrek en eins
og ég sagði áður njótum við góðs
skilnings bæjarbúa á framkvæmd-
unum og einnig er sveitarfélagið
tilbúið að koma okkur til hjálpar.
Grasvöllur er það sem koma skal og
ég er á því að liðið myndi njóta sfn
enn frekar við slíkar aðstæður."
„Ánægðir með störf Óskars
þjálfara"
„Við erum mjög ánægðir með störf
þjálfara okkar, Óskars Ingimundar-
sonar. Hann hefur náð að byggja
upp sterkt og skemmtilegt lið og á
án efa eftir að ná meiru út úr því.
Allflestir leikmenn liðsins eru við
nám fyrir sunnan á vetuma og halda
hópinn vel saman. Til að mynda
æfðu þeir saman, þegar færi gafst, á
svæði fyrir utan sundlaugamar í
Laugardag."
„Fórum upp í 1. deild í innan-
húsknattspyrnu“
„Á síðasta Islandsmóti í innan-
húsknattspymu komust við upp úr
annarri deild í þá fyrstu. Það er
mjög góður árangur ef tekið er mið
af því að ekkert íþróttahús er hér á
Ólafsfirði. Hins vegar hefur okkur
verið úthlutað svæði til byggingar
og verður vonandi hið fyrsta ráðist
í byggingu þess. íþróttahús í fullri
stærð yrði staðnum mikil lyftistöng.
Það er ekki nokkur spuming,“ sagði
Þorsteinn Þorvaldsson að lokum.
-JKS
• Á Ólafsfirði búa um 1150 manns og áhugi fyrir knattspyrnu á staðnum
er gífurlegur og árangur Leifturs eftir þvi góður. DV-mynd G. Bender
DV
Um síðustu helgi tóku handknattleiks-
menn í Gróttu sig til og léku handknattleik
látlaust í einn sólarhring og mun það vera
íslandsmet. Skipt var í tvö lið og samtals
skoruð um sextán hundruð mörk. Tilgang-
urinn með öllu saman var að safha fyrir
Þýskalandsferð en Gróttumenn munu dvelj-
ast í æfingabúðum í Þýskalandi og halda
þeir utan 21. ágúst. „Við erum ekki enn
búin að fá endanlega tölu en það kæmi mér
ekki á óvart þótt upphæðin sera safnaðist
væri í kringum fimmtíu þúsund. Strákamir
ættu því allavega að eiga fyrir aukaboltum
og nýjum skóm,“ sagði Björg Ámadóttir,
fonnaður stuðningsmannafélags Gróttu, í
samtali við DV.
• Þreyttir Gróttumenn hvíla sig. Þeir settu
um helgina íslandsmet í maraþonhand-
knattleik.
DV-mynd S
Amór heldur uppteknum hætti
Kris^án Bemburg, DV, Beigiu;
Eins og fram hefur komið í DV meiddist
Amór Guðjohnsen á fæti hér heima í sum-
arfriinu og hefur hann ekki getað leikið
æfingaleiki með Anderlecht fyrr en nú um
síðustu helgi. Anderlecht lék þá gegn 2.
deildar liðinu Overpelt og sigraði, 4-0.
Mikla athygh vakti frábær samleikur Ar-
nórs og Krencevic í liði Anderlecht. Þeir
náðu greinilega mjög vel saman. Krencen-
vic skoraði tvö mörk í leiknum og Amór
eitt. Amóri var síðan skipt út af þegar tutt-
ugu mínutur voru liðnar af síðari hálfleik
enda hefur hann h'tið sem ekkert getað æft
síðustu vikumar. Amór varð sem kunnugt
er markakóngur í 1. deild belgísku knatt-
spyrnunnar í fyrra og virðist því ætla að
halda upptekniun hætti þótt ekki sé alltaf
mikið mark takandi á æfingaleikjum.
Guðmundur lagði upp mark
Það er ekki bara Amór Guðjohnsen sem
gerir það gott í æfingaleikjum í belgísku
knattspymunni þessa dagana. Guðmundur
Torfason hefur leikið mjög vel með Winter-
slag í leikjum liðsins að undanfömu. Um
síðustu helgi lék Winterslag gegn Tonger-
en, gamla liðinu hans Magnúasr Bergs, og
lauk leiknum með jafiitefli, 1-1. Tongeren
náðí forystunni í fyrri hálfleik en í þeim
síðari lagði Guðmundur knöttinn fyrir fætur
Jannsens sem jafnaði metin.
Maraþonviðureign i tennis
Tennissnillingamir, Boris Becker frá
Vestur-Þýskalandi og Bandaríkjamaðurinn
John McEnroe, háðu mikið maraþoneinvígi
á tennisvellinum um síðustu helgi. Viður-
eign þeirra var liður í Davis Cup keppninni
og stóð slagurinn yfir í sex klukkustundir
og 39 mínútur. Er þetta einn lengsti tennis-
leikur sem frám hefur farið og varð að gera
hlé á orrustunni til að gefa þeim félogum
kost á því að hvíla sig í miðjum leik. Svo
fór að lokum að Boris Becker sigraði og
úrslitatölumar em vægast sagt óvenjulégar
þegar tennis er annars vegar: 4-6, 15-13,
10-8 og 6-2.
Leiðrétting
í gær misritaðist, í frásögn af pollamóti
Eimskips og KSt föðumafh eins piltanna
sera þátt tóku í mótinu. Um var að ræða
piltinn sem valínn var besti markvörður
b-Hða. Hann heitir Leon Pétursson og leikur
með Akranesi.
Azinger kominn i tæpar 24 millj.
Bandaríkjamaðurinn, Paul Azinger, sem
var mjög nálægt því að sigra á British Open
á dögunum í golfinu, hefur þénað vel á þessu
ári og nema tekjur hans nú um 24 milljónum
króna. Azinger er því tekjuhæstur á „Am-
eríkutúmum“ en næstur á listanum er Scott
Simpson með um 18 milljónir.
• I „Evróputúmum“ er Bretinn Ian Wo-
osman en hann hefur það sem af er þessu
ári unnið sér inn um 10,5 milljónir króna.
I öðm sætinu er Nick Paldo, sem á dögunum
vann British Open, með um 9 milljónir
króna.