Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Side 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Erlend myndsjá
i-
Gæti ver-
ið víða
Fréttamyndir af bömum innan um
rústir og önnur ummerki átaka ber-
ast nær daglega um þessar mundir.
Þessi mynd gæti því verið víða að,
jafnt frá Beirút sem Indlandi, sem
Perú.
Áletrunin á veggnum kemur þó
upp um staðinn en þetta era rústir
ráðhúss bæjar eins í Perú þar sem
til mikilla átaka hefur dregið milli
stjómarhers og skæraliða maóista.
Maóistamir brenndu ráðhúsið til
grunna með öllu því sem í var.
Á sömu slóðum standa nú yfir
miklar aðgerðir gegn eiturlyfjaheild-
sölum. Hafa efnafræðistofur þeirra,
þar sem þeir vinna eiturlyfin, verið
rústaðar af lögreglu sem starfar
meðal annars fyrir fjármagn fj-á
Bandaríkjunum.
Er nema von að stúlkukindin sé
þungbúin?
Frisbfið þribigt
Sá merki leikur frisbí, sem felst í því
að kasta svifkringlu á milli sín, á nú
þrjátíu ára afinæli. Leikur þessi er
einkum í uppáhaldi hjá ungmennum
og hundum á baðströndum hinna heit-
ari landa.
Hörkutólið
hún amma
Hún amma kleif í síðustu viku
hæsta tind Fuji-fjalls á Japanseyjum.
Amma heitir raunar Hulda Crooks,
liðlega níræð kona frá Kalifomíu. Á
myndinni sjást samferðamenn henn-
ar fagna henni þegar hún hafði
unnið afrekið.
Ekki setjast allir í helgan stein
þótt aldurinn færist yfir.
Árlegur
straumur
pílagríma
að hefjast
Abdel A1 Mohammed Mahgoub, sem
er nær sextugur, var meðal þeirra
fimm þúsund múhameðstrúar píla-
gríma sem komu til alþjóðaflugvallar-
ins í Kaíró dag einn í síðustu viku.
Pílagrímamir vora allir á leið áfram
til Saudi Arabíu þar sem þeir munu
heimsækja helga staði múhameðstrú-
armanna. Talið er að um áttatíu
þúsund Egyptar muni fara í pílagríms-
för á þessu ári en' þeim þykir það
nauðsyn að komast á helgar slóðir að
minnsta kosti einu sinni á ævinni.
Sumir leggja allt lífsstarf sitt í að
safna fyrir slíkri ferð en aðrir era bet-
ur settir og hafa efni á að hafa með
þjón til þess að halda á sólhlífinni og
bera farangurinn.
Snákasæringaskóli mömmu
Þessi litla stúlka er að læra snákasæringar af mömmu sinni. Þær tilheyra
þjóðflokki Shapuria, sem býr á bátum á fljótum Bangladesh, og hefúr ofan af
fyrir sér með snákasýningum. Auðvitað þarf að byrja þjálfun fyrir svo vanda-
samt starf snemma.
Styðja við Lonetree
Ættingjar og vinir bandaríska landgönguliðans Clayton Lonetree hafa
undanfarið safnast saman við dómshúsið í Quantico þar sem Lonetree er
nú fyrir herrétti, sakaður um að hafa heimilað ástmeyjum sínum í Sovétríkj-
unum aðgang að leyndarskjölum sendiráðs Bandaríkjanna í Moskvu, þar
sem hann var öryggisvörður. Ættingjamir, sem allir era Navajo indíánar,
reyna vafalítið að særa fram anda Lonetree til stuðnings í þeirri von að
hann hljóti vægan dóm. Hvort andamir hafa einhver áhrif á dómarana er
svo önnur saga. Búist er við að dómur falli í máli Lonetree áður en langt
um liður.