Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
29
pv____________________________________Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Reglusamur maður í fastri vinnu óskar
eftir herb. eða einstaklingsíbúð. Góðri
umgengni og skilvísum greiðslum hei-
tið. Uppl. í síma 16149.
Reglusöm hjón með 1 barn óska að
taka á leigu 3ja herb. íbúð í Reykja-
vík, frá 1. sept. Uppl. í síma 94-4447
(f.h. og e. kvöldmat). Helga.
Tæknlskólanema og unnustu bráð-
vantar húsnæði, má þarfnast lagfær-
ingar. Er húsasmiður, heimilishjálp
ef óskað er. Uppl. í síma 97-81288.
Þrír námsmenn óska eftir 3ja-4ra herb.
íbúð til leigu frá 1. sept. Reglusemi
og skilvísar greiðslur. Fyrirfram-
greiðsla möguleg. S. 46029 á kvöldin.
Óskum eftir 3ja-4ra herb. íbúð í Hafn-
arfirði frá 15. oktqber í Iengri eða
skemmri tíma. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Erum 3 í heimili. S. 651419.
250 þúsund fyrirframgreiðsla. Vantar
4ra þerb. íbúð eða einbýlishús. Uppl.
í símum 681793 eða 84109.
2-3ja herb. ibúð óskast til leigu. Ein-
hver fyrirframgreiðsla möguleg. Uppl.
í síma 18681.
Háskólanemi óskar eftir herbergi í
vetur með aðgangi að eldhúsi og baði.
Uppl. í síma 96-61637.
Leiguskipti. 2-3ja herb. íbúð í Reykja-
vík óskast í skiptum fyrir 3ja herb.
íbúð á Akranesi. Uppl. í síma 93-13113.
Ung móðir með 2 börn óskar eftir góðu
og öruggu húsnæði sem fyrst. Nánari
uppl. gefur Ragna í síma 77802.
Ung reglusöm kona óskar að taka 3-4
herb. íbúð á leigu í vesturbænum eða
á Seltjarnarnesi. Uppl. í síma 27854.
5-6 herb. ibúð. Óskum að taka á leigu
5-6 herb. íbúð. Uppl. í síma 45841.
■ Atvinnuhúsnæði
Iðnaðar og skrifstofuhúsnæði í mið-
borginni, 320 fm, leigist í einu lagi,
gott útsýni. Sanngjörn leiga. Uppl. á
skrifstofutíma, sími 25755.
Lilið verslunarhúsnæði við aðalgötu í
miðborginni til leigu, frá 1. sept. n.k.
Nöfn með upplýsingum sendist DV
merkt “ Verslunarhúsnæði".
Litið verslunarhúsnæði við aðalgötu í
miðborginni til leigu frá 1. september
nk. Nöfn með upplýsingum sendist
DV merkt “Verslunarhúsnæði 4470“.
Skrifstofuhúsnæði við aðalgötu í mið-
borginni til leigu, ca 75 m2. Nöfn með
upplýsingum sendist DV merkt
“Skrifstofuhúsnæði 4468“.
Óskum eftir að taka á leigu verslunar-
húsnæði, stærð ca 80-120 ferm. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-4464.
■ Atvinna í boði
SÖLUMAÐUR. Óskum eftir að ráða
strax eða sem fyrst mann til sölustarfa
á verkfærum. Traustur maður með
góða framkomu og hæfileika til að
ræða við hvern sem er er okkar mað-
ur. Æskilegt væri að hann hefði bíl.
Tilboð með sem bestum upplýsingum,
merkt „Laun + bónus“, sendist DV
sem allra fyrst.
Smáauglýsingaþjónusta DV. Þú getur
látið okkur sjá um að svara fyrir þig
símanum. Við tökum við upplýsingun-
um og þú getur síðan farið yfir þær í
ró og næði og þetta er ókeypis þjón-
usta. Síminn er 27022.
Mötuneyti. Við erum að leita að góðri,
sjálfstæðri manneskju til að sjá um
mat og kaffi starfsfólks okkar. Áætl-
aður vinnutími 8-13.30. Starfstími
hefst 4. ágúst nk. Steinar hf., Stálhús-
gagnagerð, Smiðjuvegi 2, sími 46600.
Afgreiðsla-bakarí. Óskum eftir að ráða
röskan og duglegan starfskraft í af-
greiðslu. Vinnutími 13-19. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-4474.
Bílstjóri. Bílstjóri óskast á svínabú í
nágrenni Reykjavíkur þar sem bíl-
stjórastarfið er 70%, hitt önnur vinna.
Fæði og húsnæði fylgir. Uppl. í síma
92-46702 frá kl. 18 til 20.
Starfskraftur óskast. Óskum eftir að
ráða vanan aðstoðarmann í bakarí.
Uppl. á staðnum milli 8 og 13 í dag
og næstu daga. Björnsbakarí, Hring-
braut 35.
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða
mann vanan bifreiðaviðgerðum. Ein-
hver enskukunnátta_ nauðsynleg.
Uppl. á Bílaleigunni Ás, Skógarhlíð
12 (ekki í síma).
Hafnarfjörður. Starfsfólk óskast í
kjötdeild, pökkun, uppfyllingu og á
kassa. Kostakaup hf., Reykjavíkur-
vegi 72, Hafnarfirði.
Oskum eftir að ráða til starfa strax
ábyggilegan, laghentan starfskraft við
léttan iðnað. Uppl. frá kl. 13-15 í sím-
um 83499 og 83484.
Góður og reglusamur starfskraftur
óskast til að koma heim og gæta 2ja
bama, fyrri part dags, frá 1. sept. Góð
laun fyrir hæfa manneskju. S. 23632.
Járniðnaðarmenn, rafsuðumenn eða
menn vanir járniðnaði óskast. Uppl.
í síma 651698 á daginn og 671195 á
kvöldin og um helgar.
Kjötafgreiðsla. Óskum eftir að ráða
vant fólk til kjötafgreiðslustarfa.
Uppl. gefur verslunarstjóri í síma
82599.
Meiraprófsbílstjóri óskast i framtíðar-
vinnu, helst með rúturéttindi. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-4469
Natco hreingerningaþjónusta.
Óskum eftir starfsfólki til að annast
hreingerningastöð. Hafið samband í
síma 688484.
Okkur vantar röska og duglega menn
til starfa á matvörulager. Góð laun
og frítt fæði í hádeginu. Uppl. í síma
35105.
Ráðskona óskast til að sjá um iítið
heimili í uin það bil 3 vikur. Frítt
fæði og húsnæði. Barn ekki fyrir-
staða. Sími 96-61786 milli kl. 19 og 20.
Starfskraftur óskast í leikfangaverslun
í miðbænum frá kl. 9-14, þarf að geta
byrjað strax. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-4463.
Starfskraftur óskast til starfa við léttan
saumaskap og fleira, unnið frá kl. 9
til 17.30. Sími 19909. Fjölprent hf.,
Þingholtsstræti 6.
Sætabrauðshúsið sf., Leirubakka 34,
óskar eftir manneskju til ræstinga-
starfa. Uppl. í síma 74900 frá kl. 10-14
næstu daga.
Óska eftir að ráða starfskraft til garð-
yrkjustarfa, mikil vinna. Æskilegt að
viðkomandi hafi meirapróf, þó ekki
skilyrði. Uppl. í síma 72148.
Óska eftir starfskrafti frá nk. mánaða-
mótum í nýlenduvöruverslun, helst
vönum, hálfsdagsstarf kemur til
greina. Uppl. í síma 34020.
Óskum að ráða mann til að sjá um
pizzastað, þarf að vera vanur. Með-
mæli æskileg. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-4460.
Óskum eftir duglegu og reglusömu
starfsfólki á skyndibitastað, 18 ára og
eldra, vaktavinna, framtíðarvinna.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-4461.
Fiskvinna. Vantar flatningsmenn og
fólk í almenna fiskvinnu. Uppl. í síma
40888 og 76055 eftir kl. 8.
Matvælaframleiðsla. Starfsfólk óskast
til matvælaframleiðslu strax. Nánari
uppl. í síma 33020. Meistarinn hf.
Matvöruverslun. Vanur starfskraftur
óskast í kjötafgreiðslu og fleira. Uppl.
í síma 50291.
Starfskraftur óskast á bílaverkstæði,
helst vanur. Uppl. í síma 54332 frá kl.
10 til 18 virka daga.
Stúlka óskast sem au-pair til USA í
eitt ár, frá 1. september. Uppl. í síma
93-41540 frá kl. 11-12 f.h.
Trésmiðir óskast í mótaslátt, mikil
vinna. Uppl. í síma 76043 eftir kl. 19.
Jens Magnússon.
Vanan stýrimann vantar á rækjubát
sem gerður er út frá Sauðárkróki.
Uppl. í síma 76132.
Þykkvabæjar hf. Starfsfólk óskast hjá
Þykkvabæjar hf. í Hafnarfirði. Uppl.
í síma 641155 milli kl. 12 og 15.
Óska eftir röskum bílstjóra til að keyra
skutlubíl í ca 1 mánuð, frá 1. ágúst.
Uppl. í síma 31579.
Óskum að ráða bílstjóra með meira-
próf og tvo til þrjá verkamenn.
Véltækni hf., sími 84911 og hs. 39773.
Góður starfskraftur óskast. Uppl. í síma
30677.
Vélavörð vantar á 150 lesta rækjuskip.
Uppl. í símum 92-68206 og 92-68582.
■ Atvinna óskast
24 ára gömul stúlka óskar eftir framtíð-
arvinnu, 50-70%. Hefur stúdentspróf,
bílpróf og reynslu í skrifstofustörfum,
einkarekstri o.fl. Margt kemur til
greina. Góð laun óskast. Uppl. í síma
18391 e.kl. 15.
Atvinnurekendur! Vantar ykkur starfs-
kraft? Látið okkur sjá um ráðninguna.
Aðstoð - ráðgjöf, ráðningarþjónusta,
Brautarholti 4, 105 Reykjavík, sími
91-623111.
Atvinnurekendur! Er 24 ára gamall,
vanur afgreiðslu + skrifst.st. + tölvu-
innsl. + lagerst. + útkeyrslu o.fl.
Vantar vinnu strax. Sími 41937.
Rúmlega þrítugur maður óskar eftir
atvinnu. Hefur mikla reynslu í sölu-
mennsku og samskiptum við fólk.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-4472.
17 ára pilt, sem býr í Grafarvogi, vant-
ar vinnu nú þegar til 1. sept. Uppl. í
síma 671289.
Ég er 23 ára karlmaður og óska eftir
útkeyrslustarfi. Vinsamlegast hringið
í síma 641032 eftir kl. 14.
■ Bamagæsla
Barngóð manneskja óskast til að koma
heim og gæta 2ja barna ca 10 daga í
mánuði. Er í vesturbæ. Uppl. í síma
621146.
Dagmamma í Kópavogi getur tekið
börn í pössun frá byrjun ágúst. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-4457.
Óska eftir unglingi til að gæta 2ja barna
meðan farið er með barn á róló eða
leikskóla, sem næst Öldugranda.
Uppl. í síma 611914.
Óska eftir unglingi til að passa 2ja ára
dreng 3-4 tíma eftir hádegi í sumar,
bý í Norðurmýri. Uppl. í síma 17637
eftir kl. 19.
Óskum eftir barnapíu fyrir 2 stelpur,
4ra og 5 ára, eftir hádegi næstu 4 vik-
ur, sem næst Fífuseli. Uppl. í síma
76986.
Vantar ungling í Hólahverfi til að passa
8 mánaða gamalt barn í ágúst. Uppl.
í símum 82020 og 72443, Hanna.
Yndislegur 17 mánaða drengur í vest-
urbæ óskar eftir pössun frá 10-13.
Uppl. í síma 29445.
■ Einkamál
Liðlega fertugur maður leitar að
traustri, fallegri konu. Er 1,80, óþarf-
lega þrekinn núna, annars myndarleg-
ur og hress, inni í flestu, ekki ríkur
núna en með ráðherralaun, fráskilinn,
góður pabbi, afar einlægur, en kre-
fjandi. Svaraðu strax, með allra helstu
upplýsingum (mynd skemmir alls
ekki), bréfm leggist inn til DV, merkt
„Alvara 284“.
Ég er 44 ára karlmaður og bý úti á
landi og langar að komast í kynni við
konu á aldinum 35-45 ára, með sam-
búð í huga ef um semst. Svör sendist
DV, merkt „E-4338“.
1000 einhleypar stúlkur úti um allan
heim vilja kynnast þér. Glæný skrá.
Fáðu uppl. strax í s. 623606 alía daga
milli 16 og 20. Fyllsta trúnaði heitið.
Ungur maður óskar eftir að kynnast
fjárhagslega sjálfstæðri konu. Fullum
trúnaði heitið. Svar sendist DV. merkt
Hex 4459.
■ Hremgemingar
Hólmbræður - hreingerningastöðin.
Stofnsett 1952. Hreingerningar og
teppahreinsun í íbúðum, stiga-
göngum, skrifstofum o.fl. Sogað vatn
úr teppum sem hafa blotnað. Kredit-
kortaþjónusta. Sími 19017.
Teppa- og húsgagnahreinsun. Tilboðs-
verð. undir 40 ferm, 1400.-. Fullkomnar
djúphreinsivélar sem skila teppunum
nær þurrum. Margra ára revnsla. ör-
ugg þjónusta. Sími 74929.
Þrif, hreingerningar, teppahreinsun.
Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í
símum 33049 og 667086. Haukur og
Guðmundur Vignir.
Gólfteppahreinsun, húsgagnahreins-
un. Notum aðeins það besta. Amerísk-
ar háþrýstivélar, sértæki á viðkvæm
teppi. Erna og Þorsteinn, s. 20888.
Viltu láta skina? Tökum að okkur allar
alm. hreingerningar. Gerum föst til-
boð eða tímavinna og tilboð í dagþrif
hjá fyrirtækjum. Skínandi, s. 71124.
Hreingerningar á íbúðum og stofnun-
um, teppahreinsun og gluggahreins-
un, gerum hagstæð tilboð í tómar
íbúðir. Sími 611955.
M Þjónusta___________________
Stór-Reykjavikursvæðið. Húseigendur,
ath. Tek að mér endurnýjun, viðhald
og lagfæringar á gömlum húsum,
einnig nýsmíði á gluggum, lausum
fögum og hurðum. Sími 92-14808 e.kl.
19.
Málningarþj. Tökum alla málningar-
vinnu, úti sem inni, sprunguviðg. -
þéttingar. Verslið við fagmenn með
áratuga reynslu. S. 611344 og 10706.
Get bætt við mig málningarverkefnum,
úti sem inni, geri tilboð ef óskað er.
Uppl. í símum 76247 og 20880.
Leigjum út loftpressutraktor í stærri og
smærri verk. Uppl. í síma 74800, 985-
20221 og 621221.
Múrverk, flísalagnir, múrviðgerðir,
steypur. Skrifum á teikningar.
Múrarameistarinn, sími 611672.
■ Ökukennsla
Ökukennarafélag islands auglýsir.
Guðbrandur Bogason, s. 76722,
Ford Sierra, bílas. 985-21422,
bifhjólakennsla.
Gunnar Sigurðsson, s. 77686,
Lancer ’87.
Sverrir Björnsson, s. 72940,
Toyota Corolla ’85.
Jóhann G. Guðjónsson, s. 21924-
Lancer 88. 17384,
Skarphéðinn Sigurbergsson, s. 40594,
Mazda 626 GLX '86.
Geir P. Þormar, s. 19896,
Toyota.
Hallfríður Stefánsdóttir. s. 681349,
Subaru Sedan ’87, bílas. 985-20366.
Sigurður Gíslason, s. 667224,
Mazda 626 GLX ’87, bílas. 985-24124.
Gylfi K. Sigurðsson kennir á Mazda 626
’86, ökuskóli, öll prófgögn. Kennir
allan daginn, engin bið. Visa - Euro.
Heimas. 689898, bílas. 985-20002.
M.Benz 190 E, G 840. Ökuskóli og öll
prófgögn, engir lágmarkstímar og að-
eins greitt fyrir tekna tíma. Bjarnþór
Aðalsteinsson. Uppl. í sima 666428.
Kenni á Mazda GLX '87. Kenni allan
daginn. engin bið. Fljót og góð þjón-
usta. Greiðslukjör. Kristján Sigurðs-
son. sími 24158 og 672239.
Kenni á Mazda 626, engin bið. Hörður
Þór Hafsteinsson. sími 672632.
M Garðyrkja
Túnþökur. Sérræktaðar túnþökur frá
Hrafntóftum ávallt fvrirliggjandi.
verð 50 kr. fm. gerum tilboð í stærri
verk. Áratuga reynsla tryggir gæðin.
Túnþökur. Smiðjuvegi D12. Kópavogi.
Uppl. í símum 78155 og 985-23399.
Garðeigendur, ath. Alhliða þjónusta á
sviði garðyrkju. Garðsláttur. hellu-
lagnir o.fl. Halldór Guðfinnsson
skrúðgarðyrkjumeistari. s.30348.
Túnþökur.Höfum til sölu úrvalsgóðar
túnþökur. Áratugarevnsla tryggir
gæðin. Túnverk. túnþökusala Gvlfa
Jónssonar. Uppl. í sima 72148.
Túnþökur. Vélskornar túnþökur.
Greiðsluskilmálar. Eurocard og Visa.
Björn R. Einarsson. Uppl. í símum
666086 og 20856.
Túnþökur,heimkeyrðar eða sóttar á
staðinn. Hagstætt verð, magnafsl.,
greiðslukjör. Túnþökusalan Núpum.
Olfusi, s. 40364, 611536, 99-4388.
Garðsláttur. Tökum að okkur garðslátt
og hirðingu garða, sanngjarnt verð.
Uppl. í sima 44541.
3 Túnþökur til sölu. Gott tún. Skjót
þjónusta. Gott verð. Uppl. í síma 99-
4686.
Hellulagnir eru okkar sérgrein. 10 ára
örugg þjónusta. Látið fagmenn vinna
verkin. Garðverk, sími 10889.
Moldarsalan. Heimkeyrð gróðurmold,
staðin og brotin. Uppl. í síma 31632.
M Húsaviðgerðir
Háþrýstiþvottur og/eða sandblástur á
húsum og öðrum mannvirkjum.
Traktorsdælur af stærstu gerð,
vinnuþr. 400 bar (400 kg/cm2). Tilboð
samdægurs. Stáltak hf., Borgartúni
25, sími 28933, kvöld- og helgars. 39197.
EG þjónustan auglýsir. Alhliða húsvið-
gerðir, þ.e.a.s. sprungur, rennur, þok,
blikkkantar (blikksmeist.) og öll leka-
vandamál, múrum og málum o.m.fl.
S. 618897 frá kl. 16-20. Gerum tilboð
að kostnaðarlausu. Abyrgð.
Háþrýstiþvottur, húsaviðgerðir.
Viðgerðir á steypuskemmdum og
sprungum, sílanhúðun og málningar-
vinna. Áðeins viðurkennd efni,
vönduð vinna. Geri föst verðtilboð.
Sæmundur Þórðarson, sími 77936.
Verndið eignina. Við bjóðum rennur
og niðurföll, leysum öll lekavanda-
mál. Klæðum hús og skiptum um þök.
Öll blikksmíði. Fagmenn. Gerum föst
verðtilb. Blikkþjónustan hf., sími
27048, (símsvari). Kreditkort.
Kreditkortaþjónusta. Sparaðu þér spor-
in! Þú hringir inn smáauglýsingu, við
birtum hana og greiðslan verður færð
inn á kortið þitt! Síminn er 27022.
Byggingafélagið Brún.Nýbyggingar.
Endurnýjun gamalla húsa. Klæðning-
ar og sprunguviðgerðir. Fagmenn.
Símar 15408 og 72273.
Verktak sf., simi 7.88.22. Háþrýstiþvott-
ur, vinnuþrýstingur að 400 bar.
Steypuviðgerðir - sílanhúðun.
(Þorgrímur Ó. húsasmíðam.)
Múrarar geta bætt við sig viðgerðar-
verkefnum, sprunguviðgerðir o.fl.
Sími 622251.
■ Sveit
Hálfsmánaðar sumarauki fyrir 7-12 ára
börn að sumardvalarheimilinu Kjarn-
holtum. Biskupstungum. Vegna
mikillar eftirspurnar verður auka-
námskeið 16-28 ágúst. Reiðnámskeið,
heyskapur. íþrótta- og leikjanám-
skeið, siglingar, ferðalög, sund,
kvöldvökur o.fl. Uppl. í síma 687787.
■ Þjónusta
Við þvoum og bónum bílinn á aðeins
10 mínútum, þá tökum við bíla i hand-
bón og alþrif, djúphreinsum sæti og
teppi, vélaþvottur og nýjung á ís-
landi. plasthúðum vélina svo hún
verður sem ný. Opið alla daga frá kl.
8-19. Sækjum sendum. Bón- og bíla-
þvottastöðin, Bíldshöfða 8, v/hliðina
á Bifreiðaeftirlitinu, sími 681944.
MÓÐA
MILLI
GLERJA?
Erum með sérhæfð tæki til að fjar-
lægja móðu á milli glerja, varanleg
og ódýr aðgerð. Verktak, sími 78822.
■ Bílar tQ sölu
o
Dodge Challanger ’70 til sölu, 8 cyl.,
sjálfskiptur í gólfi, krómfelgur, breið
dekk. Verð 120.000 kr. Bein sala. Uppl.
í síma 26254.