Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Síða 31
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
31
33 V
Sandkom
Heimilisbók-
haldið
Útkoman úr heimilisbók-
haldi þeirra Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Bryndísar
Schram, sem birtist í DV, hef-
ur að vonum vakið athygli
fyrir sparsemi og útsjónar-
semi. Fólk hefur velt fyrir sér
hvemig fyigja mætti fordæmi
þeirra hjóna og eftirfarandi
saga átti sér stað í einum stór-
markaðanna nú fyrir helgi.
Er skýringin á lágum matarreikning-
in hjá Bryndisi og Jónl komin fram
í dagsljósió?
Ung hjón voru að gera helg-
arinnkaupin þegar manninum
datt í hug að spyrja hvað ætti
að vera í helgarmatinn.
„Við fáum okkur bara Brynd-
ísarmat og rekum heimilið
ódýrt,“ svaraði konan
„Ertu vitlaus, kona, við höfum
alls ekki efni á því að fara
alltaf út að borða,“ var svar
eiginmannsins.
Laxa-Ella
Konur hafa sífellt verið að
ryðja sér meira til rúms í þjóð-
félaginu og hafa sótt inn á
flest þau svið sem karlmenn
vom einráðir á áður. Laxveiði
hefur ekki farið varhluta af
þessu en konum sem þær
stunda hefur sífellt verið að
fjölga. Nú er sögð sú saga að
kona nokkur, sem kölluð er
Ella, gefi þaulæfðustu stang-
veiðimönnum ekkert eftir og
sé svo fiskin að hún hafi feng-
ið viðurnefnið Laxa-Ella.
Þetta nafn veldur þónokkrum
erfiðleikum þegar segja á út-
lendingum frá afrekum Ellu
því að sé nafni hennar snarað
yfir á ensku verður það „Salm-
on-Ella“ sem hljómarein-
hvem veginn ekki alveg nógu
vel.
Farþega-
hremmingar
Menn geta lent í ýmsu á
ferðalögum og það er kannski
eins gott að vera við öllu bú-
inn og hafa tímaáætlun sína
ekki ofþrönga. Ferðalangur,
sem fór til Lúxemborgar í vor,
segir hverjum sem heyra vill
frá grátbroslegri uppákomu.
Ferðalangurinn fórtil Lúxem-
borgar snemma morguns og
eftir að lent hafði verið á þar-
lendri grund héldu farþegarn-
ir inn í flugstöðina og tóku sér
stöðu við færibandið til að
bíða eftir töskunum sínum.
Leið nú og beið og fóru menn
nú eitthvað að ókyrrast en
biðu þó sem fastast. Eftirdá-
góða stund enn var tilkynnt í
hátalarann að fólk þyrfti ekki
að bíða eftir töskunum, þær
hefðu orðið eftir á Islandi og
kæmu með vél í eftirmiðdag-
inn. Ekki þarf að taka fram
að þetta riðlaði ferðaáætlun
hjá einhverjum því fólk átti
framhaldsflug og alls kyns
pantanir sem breyta þurfti í
samræmi við þetta. Þó var bót
í máli að allir sem vildu fengu
matarmiða afhenta sem fram-
vísa átti í veitingasölu flug-
vallarins.
Vélarvilla í
Blaðaprenti
Fyrir skömmu tóku að-
standendur Blaðaprents sig
til, lögðu land undir fót og
keyptu nýjar pökkunarvélar
af útlendum höndlurum. Þeg-
ar heim var komið, búið að
setja vélarnar saman og átti
að fara að nota þær kom babb
í bátinn. Fyrir það fyrsta var
ekki hægt að pakka Alþýðu-
blaðinu í þeim. I öðru lagi
Ávallt viðbú-
inn
Sveinn Þormóðsson, ljós-
myndari DV, er kunnur fyrir
árekstrarmyndir sínar en
hann er ávallt með fyrstu
mönnum á vettvang og jafnvel
á undan laganna vörðum.
Sveinn var nýlega staddur í
Hollandi í sumarfríi og ók þar
fram á árekstur og var ekki
Send heim
með kortið
Erlendar slettur og tökuorð
geta stundum valdið hinum
mesta misskilningi eins og
eldri frú mátti reyna fyrir
skömmu. Hún var á leið til
Frakklands í sumarleyfi og
var sagt að enginn kæmist til
Frakklands nema að hafa
„vísa“ og var þar átt við vega-
bréfsáritun. Konunni fannst
þetta nú heldur skrítið en fór
nú samt og fékk sér þetta vísa
voru vélamar allt of seinvirk-
ar og í þriðja lagi þurfti að
handpakka þeim pökkum sem
vom undir 15 blöðum. Segja
kunnugir að því hafi þurft að
handpakka megninu af pökk-
unum. Var því lítill ávinning-
ur af vélakaupunum og er sagt
að aftur sé hafin leit að nýjum
pökkunarvélum.
Sveinn Þormóósson lét sitt ekki eftir
liggja enda er ekki gott myndetni
tátið liggja ómyndað. Hér er sýnis-
horn af hollenskum árekstri.
seinn á sér heldur dró upp
myndavélina af gömlum vana
og myndaði í bak og fyrir. Var
hann á undan hollenskum lög-
reglumönnum á vettvang, þeir
komu hjólandi eftir nokkra
stund og flautuðu af öllum lífs
og sálarkröftum í stað sírenu-
væls.
og hélt galvösk í ferðalagið.
Það ku hafa verið heldur
skrítið upplitið á frönsku
landamæravörðunum þegar
þessi eldri og virðulega frú dró
upp vísakortið sitt og veifaði
framan í þá og krafðist inn-
göngu í landið út á það. Varð
þama hin mesta rekistefna en
við Frakkana varð engu tauti
komið. sú gamla var send heim
aftur með vísakortið og sagt
að ná sér í alvöru „vísa“.
Umsjón:
JónasFr. Jónsson
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboö, sem var auglýst í 22., 27. og 30. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1987, á eigninni Kríunesi 7, Garðakaupstað, þingl. eigandi Jóhanna
Jóhannsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 31.
júlí nk. kl. 13.30 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun upp-
boðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Garðakaupstað.
__________________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Vinningstölurnar 25. júlí 1987.
Heildarvinningsupphæð: 3.625.002,-
1. vinningur var kr. 1.816.604,- og skiptist á milli 2 vinningshafa, kr. 908.302,- á mann.
2. vinningur var kr. 542.973,- og skiptist hann á 241 vinningshafa, kr. 2.253,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.265.425,- og skiptist á 7.231 vinningshafa, sem fá 175 krónur hver.
Upplýsingasimi: 685111.
BtAÐSÖLUBÖJíZ
Seljið
Komið á afgreiðsluná"
— Þverholti 11 um hádegi virka daga.
AFGREIÐSLA
SÍMI27022
DV á Ólafsfirði:
Gera ömmur bömin
óþekk?
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
„Er það ekki yfirleitt þannig að
ömmum er kennt um að gera bama-
bömin óþekk og troða í þau óhófsmol-
um,“ sögðu eldhressar ömmur á
Ólafsfirði, Svava Friðjónsdóttir og
Anna Gottliebsdóttir, þar sem þær
vom að passa bamabörnin.
Þetta með óhófsmolana kom til
vegna þess að ömmubamið hennar
Svövu var með súkkulaði og ekki var
hægt að komast hjá því að spyrja hvort
þetta væri nú rétt fæða.
Þær Svava og Anna em mágkonur
og hittust á fömum vegi með bama-
bömin. Annars em þær stöllur
nýkomnar úr lúxusreisu um Norður-
löndin. „Við tókum að sjálfsögðu góða
veðrið úr Ólafsfirði út með okkur.“
Sérlega lífsglaðar konur. Svava er
móðir Gottliebs Konráðssonar sem
varð annar í keppninni sterkasti maður
Norðurlands.
„Nei, hann fékk örugglega ekki
súkkulaði sem bam heldur íslenska
kjötsúpu," svaraði Svava kímin um
fæði sonarins.
Svava Friðjónsdóttir með ömmubarnið Ólaf Þór Ólafsson, 1 árs, og Anna Gottliebsdóttir með Sigríði Sæland Óladótt-
ur. Sérlega lifsglaðar ömmur sem ræða um óþekkt og óhófsmola ömmubarna. DV-mynd JGH