Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Síða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Sviðsljós
Ölyginn
sagði...
Patrick Duffy
sem sló í gegn í Dallasþátt-
unum, var lengi að koma sér
á toppinn. Árið 1978 lék
hann í sjónvarpsþáttum sem
hétu Maðurinn frá Atlantis.
Þeir þættir urðu alveg mis-
heppnaðir og urðu lang-
lægstir í áhorfendakönnun-
um sem gerðar voru. Skjótur
endi var bundinn á þær sýn-
ingar og Patrick dæmdur
sem misheppnaður leikari.
Síðan þá hefur mikið vatn
til sjávar runnið og hann
skaust upp á stjörnuhimin-
inn sem góði gæinn Bobby
og hefur verið þar síðan.
Jackie Gleason
þessi fyrrum frægi grínisti, á
nú aðeins 6 mánuði ólifaða.
Læknar hafa fundið krabba-
mein sem hefur breiðst út í
líkama hans og nú bíður
hann dauðans. Jackie tekur
þessu með jafnaðargeði. „Ef
guð vill fá fleiri grínista til
sín þá er ég tilbúinn að hitta
hann," segir hann og brosir.
„Ég hef lifað mínu lífi og er
tilbúinn að deyja. Ég skil vel
að dauðinn kemur alltaf að
lokum og ég get alveg tekið
því. Ég ætla bara að njóta
tímans sem ég á eftir en ég
er búinn undir endalokin,"
sagði Jackie, sem nú er 71
árs, ennfremur.
Billy Joel
poppari og píanisti, mun
verða fyrsta bandaríska
stjarnan til að koma til Sov-
étríkjanna nú þegar slökun-
arstefnan er í algleymingi.
Billy mun koma fram í
Moskvu og Leningrad. Kon-
an hans, Christie Brinkley,
og dóttirin Alexa Ray munu
fara með honum og ætlunin
er að skoða sig eitthvað um
í leiðinni. Sviðsljósið þorir
að fullyrða að Billy hefur
ekki í hyggju að lenda á
Rauða torginu þó örugglega
muni hann skoða staðinn.
Hótel Saga:
Tískusýningar og
kynning á íslenskri ull
Nýlega var garðskálinn á Hótel
Sögu, sem hlotið hefur nafnið Skrúð-
ur, formlega opnaður. Skrúður er
endapunkturinn á breytingum þeim
sem orðið hafa í anddyri hótelsins
en nú er aðeins eftir að opna aðstöðu
til hvers kyns líkamsræktar í kjallar-
anum.
í Skrúði er ætlunin að bjóða upp á
létta rétti, smurbrauð, kaffi og kökur
auk þess sem hægt verður að fá
þyngri steikur. Áhersla verður lögð
á góðan fljótlegan mat fyrir fólk með
lítinn tíma.
Á hverju þriðjudagskvöldi í sumar
kl. 20.30 munu svo Módelsamtökin
sýna nýjustu línuna í ullarfatnaði;
Ullarlínuna 1987. Þessar tískusýn-
ingar munu til að byrja með standa
yfir háferðamannatímann. Kynnar
Módelsamtakanna verða þau Heiðar
Jónsson og Birna Bjarnadóttir. Að-
allega verður kynntur fatnaður frá
Álafossi og versluninni Ull og gjafa-
vörur sem er í hótelinu.
Hótel Saga á 25 ára afmæli í ár og
verður haldin vegleg afinælishátíð í
haust þar sem ekki gefst tími til að
halda hana sem skyldi yfir háanna-
tímann.
Séð yfir hluta hins huggulega garðskála, Skrúðs. Lengst til hægri situr Bjarni Sigtryggsson aðstoðarhótelstjóri og
við hlið hans Wilhelm Wessman, framkvæmdastjóri Gildis hf., sem sér um allan veitingarekstur fyrir Hótel Sögu.
Fljótlegur matur og góður. Lögð verður áhersla á létta smárétti en auk
þess verður hægt að fá allan venjulegan veitingahúsamat.
Ullarlínan 1987. Glæsilegar vörur kynntar af Módelsamtökunum í Skrúði,
garðskála Hótel Sögu. DV-myndir JAK
Á hvolfi
Þetta óvenjulega veitingahús heldur engin furða því húsið er
stendur við hraðbraut rétt vestur bókstaflega á hvolfi og þar að auki
af Tókýó og veldur oft umferða- aðeins hallandi.
röngþveiti á veginum. Það er Eigandi Papin, en svo heitir stað-
Gestir staðarins virðast ekkert láta byggingalagið hafa áhrif á matarlyst-
ina. Takið eftir blóminu sem „stendur" í loftinu.
L. '
Harla óvenjulegur en skemmtilegur byggingamáti.
urinn, vildi að veitingastaður hans
yrði óvenjulegur og öðruvísi en
aðrir svo að eftir honum yrði tekið.
Honum hefur svo sannarlega tekist
ætlunarverk' sitt því Papin er einn
vinsælasti veitingastaðurinn í
Tókýó og ferðamenn halda varla
vatni af hrifningu yfir honum. Að
innan er staðurinn jafnskrítinn og
að utan því að allt sem hægt er að
hafa á hvolfi er á hvolfi og hom
og línur vægast sagt upp og niður.
Myndirnar á veggjunum snúa
öfugt og jafnvel pottaplönturnar
hanga á hvolfi niður úr loftinu!
Þeir gestir sem inn koma í fyrsta
sinn verða víst oft svolítið ringlað-
ir en hið góða andrúmsloft og
matur lagar þann sjúkleika fljót-
lega.