Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1987, Síða 37
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987.
Svartar og hvítar feg-
urðardrottningar
Það er ekki lengra síðan en á laug-
ardaginn sem ungfru svarta Ameríka
’87 var kosin. Sú sem hlaut titilinn
heitir Sharon Briscoe. Hún var him-
inlifandi þegar ungfrú Ameríka ’83
(með engum formerkjum!) setti kór-
ónuna á höfuð hennar og krýndi
hana fegurðardrottningu svartra
kynsystra sinna. Sharon var valin
úr hópi 11 svartra yngismeyja.
Símamynd Reuter
Margt er skrítið í kýrhausnum. Á
sama tíma og þjóðir heims, þ.á m.
Bandaríkin, fordæma kynþáttamis-
réttið í S-Afríku eru í þessum sömu
Bandaríkjum, landi frelsis og lýð-
ræðis, ennþá kosnar tvær fegurðar-
drottningar; hvít og svört! Þetta
hróplega misræmi sannar best að
gömlu máltækin, um bjálkann og
flísina og það að leita langt yfir
skammt, eru enn í fullu gildi.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Prins og prins-
essa í póló
Þau hjónin Karl og Díana eru mikið í\tít hvers konar íþróttir og kapp-
leiki. Þau létu sig heldur ekki vanta á alþjóðlega pólókeppni sem nýlega
fór fram í Windsor á Englandi. Díana lét sér nægja að horfa á keppnina en
þar vann lið N-Ameríku bikarinn með 8 mörkum gegn 5 í úrslitakeppninni
við lið Englands. Kalli aftur á móti tók þátt i keppni sem íram fór auk
aðalkeppninnar og þar vann lið hans sigur og aukabikar. Það er því full
ástæða fyrir Kalla að brosa og vera glaður.
Símamvndir Reuter
Prince
hefur nú tekist að vinna hug
og hjarta Sheenu Easton. Þetta
byrjaði allt saman með því að
Prince samdi lag fyrir Sheenu.
Síðan þá hafa þau verið óað-
skiljanlegir vinir og Sheena
syngur t.d. á nýjustu plötu
Prince, Sign of the times. Það
var þó ekki fyrr en Sheena skildi
við eiginmann sinn nr. tvö að
ástin fór að blómstra á milli
þeirra Prince. Nú hittast þau
alltaf þegar þau geta og Prince
hefur nýverið keypt íbúð í París
þar sem þau geta verið saman
þegar þau eru í Evrópu. Flestir
vinir þeirra skötuhjúa halda að
þetta samband eigi framtíð fyrir
sér og víst er að þau eru mjög
hamingjusöm og yfir sig ást-
fangin.
Melissu Gilbert
gengur ekkert alltof vel að halda
í Rob Lowe. Nýjustu fréttir úr
þeim herbúðunum herma að nú
hafi Rob slitið sambandi þeirra
og giftingaáformum endanlega.
Náinn vinur segir Rob hafa
hringt í Melissu og sagt að hann
gæti ekki hugsað sér að giftast
strax. Honum finnist hann vera
of ungur og ef hann ani í hjóna-
bandshnapphelduna þá gæti
það haft slæm áhrif á feril hans
og frama. Melissa er að vonum
miður sín og neitar að ræða
sambandsslitin. Sviðsljósið bíð-
ur spennt eftir nánari fréttum
af þessum óákveðnu skötuhjú-
um og eftirsóttasta piparsvein-
inum um þessar mundir.
lætur ekkert tækifæri ónotað til
að skjóta beittum, illskeyttum
skotum í Madonnu. Nú fyrir
stuttu sagðist Whitney frekar
mundu deyða börnin sín en að
horfa upp á þau verða eins og
Madonna. „Madonna segir
Ijóta og hræðilega hluti eins og
„Sofðu hjá hverjum þeim sem
þig langar til." Hún er ekki beint
kvenleg og siðprúð," segir
Whitney og hryllir við. „Hún
verður gleymd og grafin eftir
nokkur ár." Madonna hefur
ekkert látið í sér heyra um þessi
orð Whitney enda er talið að
keppnisskap og öfund ráði
tungu hennar þar sem þær
keppast nú um toppinn á
bandaríska listanum.
Whitney Houston
Joan
vairn
Síðasta föstudag féll dómur í skilnaðarmáli Joan Collins og Peters
Holm. Joan stóð uppi sem sigurvegari í þessari lotu málaferla þeirra
skötuhjúa. Joan var himinlifandi þegar dómurinn féll og lyfti hendi
í fögnuði sínum. Það var heldur lægra risið á Peter Holm sem sagð-
ist ekki vera búin að ákveða hvort hann áfrýjaði dómnum. í fylgd
með Joan á meðfylgjandi Reutersmynd er lögfræðingur hennar sem
kom málinu farsællega í örugga höfn - að minnsta kosti fyrir Joan.