Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Page 6
6
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
Útlönd
úr flugvél á ferð
Snorri Valæan, DV, Vin;
Austurríska lögreglan leitar nú
ákaft vísbendinga sem gætu leitt
til lausnar stórráns sem framið
var nú í vikunni.
Verið var aö flytja peninga-
sendingu, þrjátíu og þrjár miIU-
ónir króna, frá Bozen á ítalíu til
Vínar og var fyllstu öryggisráð-
stafana gætt Peningamir voru
fluttir í brynvörðum bílum tii
Innsbruck þar sem þeir voru sett-
ir f flugvél sem flytja átti þá til
Vínar.
En þar sáu hinir slóttugu ræn-
ingjar sér leik á boröi og gripu inn
í atburðarásina. Þeir hlupu með-
fram vélinni þar sem hún var á
leiðinni út á brautarenda, þrifu
upp hurðina á farangursrýminu
og hirtu peningasekkina fjóra
sem þar lágu.
Fátt hefur komiö fram við rann-
sókn málsins sera að gagni getur
komið. Þó grunar lögregluna að
hér sé ítalska mafían að verki því
hverfandi líkur eru á aö vitneskja
um peningasendinguna hafi
komið frá Austurríki.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 19-21,5 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 19-23 Ab
6mán. uppsögn 20-25 Ab
12mán.uppsögn 22-28 Úb
18mán. uppsögn 31 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp
Sértékkareikningar 8-20.5 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3.5-4 Ab.Úb,
Lb.Vb
Innlán meðsérkjör- 19-34 Sp vél.
urrr Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6,5-8 Ab
Sterlingspund 8,5-9 Ab.Úb, Vb.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskar krónur 8,5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 31-33 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 33-36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 31-35 Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 33-36 Lb, Bb
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 9-9,5 Úb.Sb, Sb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 29,5-31 Sb
SDR 8,25-9,25 Sp
Bandarikjadalir 9,25-10,75 Sp
Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb
Vestur-þýskmörk 5,75-6,75 Sp
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45.6 3,8 á
mán.
MEÐALVEXTIR
överðtr. nóv. 87 31,5
Verðtr. nóv. 87 9.1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala nóv. 1841 stig
Byggingavisitala nóv. 341 stig
Byggingavísitala nóv. 106,5stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% 1 . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verÖbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1.3079
Einingabréf 1 2,426
Einingabréf2 1,421
Einingabréf 3 1,503
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2.42Ó
Lífeyrisbréf 1.220
Markbréf 1,239
Sjóðsbréf 1 1,178
Sjóðsbréf 2 1,135
Tekjubréf 1,268
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingurhf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um peningamarkað-
inn blrtast i DV á fimmtudögum.
Neyðfet oh'umálaráðhetra
Noregs ti afsagnar?
Páll VilhjáJmsson, DV, Osló:
Hætta er á að olíumálaráðherra
Noregs, Arne Öien, verði aö segja af
sér eftir að sex fulltrúar ríkisins í
stjórn norska ríkisolíufyrirtækisins
Statoil sögðu í gær að þeir vildu
draga sig úr stjórn fyrirtækisins.
Fulltrúamir sex sögðu af sér vegna
óánægju með málsmeðferðina á þvi
fjármálahneyksli sem skekur Statoil.
Olíuhreinsunarstöð Statoil í Mong-
stad í Vestur-Noregi, sem er í bygg-
ingu, mun kosta um það bil sex
milljörðum norskra króna meira en
áætlað var.
Það komst upp um Mongstad-
hneykslið, eins og það er kkllað í
norskum íjölmiðlum, fyrir nokkrum
vikum. Síðan hefur spennan vaxið
jafnt og þétt. Yfirstjórn Statoil og ol-
íumálaráðherra Noregs stóðu fast á
því að ekki væri ástæða til að stjóm
Statoil eða forstjóri fyrirtækisins,
Arve Johnsen, segðu af sér. Hægri
flokkurinn og Framfaraflokkurinn
Arve Johnson, forstjóri norska ríkis-
olíufyrirtækisins Statoil.
kröfðust þess að stjórn og forstjóri
Statoil sættu ábyrgð og yrðu látnir
fara frá fyrirtækinu. Áhrifamiklir
fjölmiðlar eins og Aftenposten og
Verdens Gang studdu kröfuna.
Það leit hins vegar út fyrir að stjóm
Statoil og olíumálaráðherrann ætl-
uðu að standa af sér storminn. En
snemma í þessari viku lagði ríkis-
endurskoðunin fram álit á málinu.
Álitið er „drepandi gagnrýni" á yfir-
stjörn Statoil eins og einn af leið-
togum miðjuflokkanna sagði á
stórþinginu í vikunni.
Fram að þeim tíma höfðu miðju-
flokkarnir, Kristilegi þjóðarflokkur-
inn og Miðflokkurinn, verið hallir
undir sjónarmið ríkisstjórnarinnar
og tóku ekki undir kröfu Hægri
flokksins og Framfaraflokksins. Álit
ríkisendurskoðunarinnar breytti
þessu og vilja nú miðflokkamir að
yfirstjórn Statoil segi af sér.
í gær sögðu svo sex fulltrúar ríkis-
ins í stjórn Statoil af sér. Afsögn
þeirra setur mikinn þrýsting á olíu-
málaráðherrann, Arne Öien, og
getur fariö svo að hann verði að velja
á milli þess að breyta fyrri afstöðu
sinni um brottrekstur stjórnar og
forstjóra Statoil eða að segja af sér
sjálfur. Arne Öien tilkynnti seint í
gær að hann myndi skipa nýja full-
trúa ríkisstjórnarinnar í stað þeirra
sem sögðu af sér í gær.
Nýtt vín í lögreglufylgd
Háukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn:
Beaujolais nouveau eða hið nýja
beapjolais rauðvín var á boðstólum
í Frakklandi frá miðnætti aðfara-
nótt fimmtudags. Komu þessa víns
eða gerjuðu berjasaftar, þar sem
um er að ræða uppskeru þessa árs,
er ætíð fagnað í Frakklandi.
En það sem gerir komu þessa víns
sérstaka fyrir aðra Evrópubúa,
ekki síst Dani, er kapphlaupiö um
að vera fyrstur með beaujolais til
síns heimabæjar. Er oft miklu til
kostað enda góð auglýsing í formi
blaðaviðtals sem af kapphlaupinu
hlýst.
Voru það upprunalega tveir Bret-
ar er veðjuðu um hver yrði fyrstur
með beaujolais nouveau yfir Erm-
arsund. Síðan hefur kapphlaupið
geisað til margra landa um þetta
leyti ár hvert. Hafa hótel og veit-
ingastaðir lagt sig alla fram við að
sigra í kapphlaupinu og þá til dæm-
is með stuðningi bílfyrirtækja sem
einnig fá góða auglýsingu í leiðinni.
Kapphlaup Dana í ár hefur vakið
sérstaka athygli og reiði margra
þar sem vínið kom í fylgd blikk-
andi lögreglubíla til Hotel D’Angla-
terre í Kaupmannahöfn. Sá
þekktur kappaksturmaður um að
keyra vínið frá Kastrupflugvelli óg
inn á Kóngsins Nýja torg klukkan
hálfíimm um nóttina. Var keyrt á
hundrað kílómetra hraöa og marg-
sinnis á rauðu ljósi.
Lögreglustjóri Kaupmannahafn-
ar og varðstjóri viðkomandi lög-
reglustöðvar hafa krafist skýrslu
um málið. Segir varðstjórinn að
ekki sé leyfilegt að aka með blikk-
andi Ijósum undir þessum kring-
umstæðum og það sé ekki hlutverk
lögreglunnar að veita einkaflutn-
ingi sérstaka fylgd. Lögreglan sjái
einungis um fylgd þjóðhöfðingja af
öryggisástæðum.
I þinginu verður dómsmálaráð-
herrann krafinn svars um atburð-
inn og um leið beðinn um að
tryggja að lögreglan verði í fram-
tíðinni notuð til brýnni verkefna
en vínfylgdar.
En hvað sem uppátækjum vin-
flytjenda líður bragðast beaujolais
nouveau 1987 samkvæmt vínpostu-
lum vel miðað við þriggja vikna
vín. Þó þykir synd að Beaujolais
vínræktarsvæðið verði að mestu
þekkt fyrir þessa beijasaft en ekki
þau eðlu vín er þaðan koma.
Tillaga MHterrands sló
sósíalista út af laginu
Bjami Hinrikssan, DVj Bordeaux:
Það er greinilegt að með því að
koma fram í útvarpsviðtali síðastlið-
inn þriðjudag hefur Mitterrand
forseta tekist það sem hann ætlaöi
sér. Það er að draga athyglina frá
vopnasölumálinu og óhreinum f]ár-
málum sósíalista.
Tillaga hans um að lög um fjár-
mögnun stjómmálaflokka og kosn-
ingaherferða verði afgreidd fyrir
næstu forsetakosningar virtist slá
andstæðinga sósíalista út af laginu.
I fyrstu voru viðbrögð miöju og
hægri flokkanna frekar neikvæð.
Síðan reyndi Chirac forsætisráð-
herra að taka frumkvæðið með boði
til leiötoga allra flokka um aö hittast
í forsætisráðherrahöllinni í næstu
viku til að hefja fundi þar sem reynt
yrði aö komast að samkomulagi um
lagafrumvarp.
Auðvitað er sjálfgefið aö enginn
flokkur getur staðið opinberlega á
móti eftirliti með fjármálum sínum
en hins vegar miá ekki fyrir neina
muni líta út sem ríkisstjórnin sé aö
samþykkja tillögur forsetans. Og
ekki em flokkamir sammála um
framkvæmd né eðli eftirlitsins.
Allir stjómmálaleiðtogamir hafa
lýst sig fúsa til fundarhalds þannig
aö ef vel gengur gæti Chirac snúið
vörn í sókn. Reyndar sækir hann að
sósíalistum á öðrum vígstöðvum því
að í nýafstaðinni ferð sinni til eyj-
unnar Reunion í Indlandshafi, sem
tilheyrir Frökkum, gagnrýndi hann
harðlega stefnu fyrrverahdi stjórnar
sósíalista í málefnum þeirra land-
svæða sem áður voru nýlendur
Frakka en teljast nú hluti Frakk-
lands.
Forsætisráðherra Frakklands, Jacques Chirac, hefur boðað til fundar f
næstu viku þar sem fjalla á um tillögu Mitterrands Frakklandsforseta um
eftirlit með fjármálum stjórnmálaftokkanna. simamynd Reuter
Haiikur L. Hauksson, DV, Kaupmliöín:
Meirihluti utan stjórnarflok-
kanna í danska þinginu hafhar
því að Kristjanía verði rudd. Þaö
er niðurstaða umræðu um
Kristjaníu i þinginu á fimmtudag.
Jafnaöarmenn, róttækir vinstri
menn, sósíalistar og Sameining-
arstefna samþykktu tillögu er
gerir ráö fyrir lögleiðingu staðar-
ins og 2,5 miHjónum danskra
króna í félagsmálastarf.
Bæði ríkisstjórn og stjómar-
andstaðan eru sammála um að
Kristjanía greiði fyrir rafmagn,
vatn og hita og að hin 23 veitinga-
hús og krár staðarins veröi að
hafa leyfi til rekstursins. Ef þau
verða rekin án leyfis hótar dóms-
málaráöherra lokun þeirra.
Þrátt fyrir niðurstöðu Kristja-
níumálsins á þingi ætlar ríkis-
stjórnin að leggja fram
lagafrumvarp um lokun staðar-
ins á tveimur árum. Framfara-
flokkurinn óskar eftir lokun
Kristjaniu nú þegar og þá jafnvel
meö aðstoð hersins ef þinfa þykir
en slíkt þykir óframkvæmanlegt
í raun.
Þó eru allir, bæöi þingmenn og
íbúar staðarins, sammála um að
Kristjania geti ekki lifað lengi
sem felustaður fyrir afbrotafólk í
stórum stfl.
Frakkar
hlynntír
líknarmorði
Bjami lírtriksaan, DV, Bordeaux:
í nýlegri skoðanakönnun kem-
ur í ljós að 85 prósent Frakka telja
að sjúklingi, sem þjáist óbærilega
af ólæknandi sjúkdómi, eigi að
hjálpa aö deyja ef hann óskar
þess. Að vísu vill hluti þessa hóps
að einungis sé hætt lyfjagjöf og
annarri aöstoö án þess að flýtt sé
fyrir dauðanum að ööru leyti. En
meirihlutinn vill aö aögerðir
læknanna séu ákveðnari og fljót-
virkari.
Alls vilja 76 prósent Frakka aö
núverandi lögum sé breytt svo
þeir sem frarakvæmi líknarmorð
séu ekki sóttir til saka.
Ýmis samtök, sem beijast fyxir
réttinum til að deyja, starfa nú í
Frakklandi. Til dæmis Voru ný-
lega stofnuð samtök sem vilja að
mögulegt sé að fórna lífi ný-
fæddra barna sera fæðast mjög
alvarlega fótluö.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
jafnviðkvæmt mál og líknarmorð
en þótt gagnrýna megi gildi skoð-
anakannana, eins og þeirra sem
vísað er til, til dæmis voru áUir
aðspurðra við hestaheilsu og
ómögulegt að vita hvemig þeir
myndu bregðast viö sem sjúkl-
ingar, má segja að hún bjálpi til
við að gera umræöuna opnari og
draga úr því þagnargildi sem
dauöinh liggur oft í.
Marokkóbúí
hlaut frönsk
Bjami Knrikssan, DV, Bordeaux:
Afhending Goncourt verölaun-
anna, sem eru ein helsta bók-
menntaviöurkenningin í
Frakklandi, hefur hlotiö nokkra
athygli vegna þess að verðlauna-
hafinn, Tahar Ben Jelloun, er
marokkanskur og skrifar bækur
er byggja á hinum arabiska
menningarheimi. Hann hefur
búið í Frakklandi frá 1971 og
skrifar á frönsku.
Þetta er f fýrsta sinn sem verö-
launin eru veitt ríthöfundi frá
Maghreb en svo nefna Frakkar
nýlendur sínar norðan Sahara.
Jelloun fékk verðlaunin fýrir
bók sína La nuit sacré eða Hin
heilaga nótt.