Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. 19 rómantískur fyrir komu tónskálds- ins. í stríði við Bismarck Þegar Bismarck blés til stríös fyrir sameiningu þýska ríkisins árið 1866 kom Ludwig það fyrst til hugar 36 segja af sér. Hann hélt til Sviss þar sem Wagner dvaldi en sneri heim aftur og ákvað að leggja í stríðið á móti Prússum og tapaði illilega. Eftir ósigurinn tók hann sér ferð á hendur um Þýskaland og var fagnað sem hetju þrátt fyrir allt. Konungurinn varð ekki sigraður hvernig svo sem hernum vegnaði. Enn neyddist hann til að leggja út í stríð árið 1870 og nú gegn Frökkum aö undirlagi Bismarcks sem nú reyndist sigursæll bandamaður en ekki óvinur. Konungur hafði hins vegar óbeit á hemaði og eftir þetta komu geðveilur hans æ betur í ljós. Hann fór einforum um Alpana, lagði á ráðin um byggingu kastala en lét ráðgjöfum sínum eftir stjórn ríkisins. Þarna var sjálfur ævintýrakonung- urinn kominn fram á sjónarsviðið. Eyddi fjölskylduauðnum Eyðslusemi konungs áttu sér fá takmörk og á seinasta valdaári sínu tókst honum að eyða tvöfalt meim en tekjur hans voru og þegar hann lést námu skuldir hans 21 milljón marka. Þetta varð til þess að ætt- menn konungs settu honum þau skilyrði að hann yrði að draga úr útgjöldum sínum og snúa aftur til starfa sem æðsti maður ríkisins eða segja af sér. Fjölskyldan var einfald- lega að fara á hausinn og hafði hún þó safnað auði í 800 ár. Ludwig þráaöist við og gerði hvor- ugt. Um mitt sumar árið 1886 úrskurðuðu íjórir læknar að kon- ungur væri geðveikur og ófær um að stjórna. Þeir höfðu þó aldrei hitt hann. Ráðgjafar konungs vildu setja hann af en höföu ekki vald til þess. Þýskalandskeisari hafði einn það vald og helsti ráðgjafi hans var Otto von Bismarck. Járnkanslarinn var á móti þessu ráðabruggi en ákvað að skipta sér ekki af því. Ludwig dvaldi í kastalanum Neuschwanstein meðan á þessu stóð og vissi ekkert hvaö fór fram fyrr en sveit lögreglumanna var send til að handtaka hann. Þjónustuhð konungs og lögreglumenn úr nágrenninu snerust til varnar og konungur var ekki tekinn. Eftir þetta er sagt að konungur hafi haft hug á að flýja til Austurríkis þar sem frænka hans og eina vinkona var keisaraynja. Hann hætti við og skömmu seinna kom handtökusveitin honum aö óvömm í kastalanum og ævintýrakonungur- inn var fallinn. Einangrun í einn dag Hann var fluttur i einangrun í kast- ala við Stambergervatn. Vist konungs þar stóð þó ekki lengi því daginn eftir fannst hann á floti í vatn- inu og var allur. Eftir þetta hófust réttarhöld í málinu og ýmis vitni leidd fram til að sanna eða afsanna geðveiki konungs. Ýmsar sögur voru sagðar af konungi. Ein var sú að hann hefði ráðið mann til aö smíða flugvél og eitt sig átti hann aö hafa sent út sendiboða í leit að ríki með fullkomið stjórnarfar. Þegar það væri fundið ætlaði konungur að fá þaö í skiptum fyrir Bæjaraland. Það er þessi saga sem er sögð í kvikmynd Viscontis um Ludwig II. Við gerð myndarinnar var ekkert til sparað að gera allt umhverfið sem glæsilegast eins og hæföi ævintýra- konungnum. Stíllinn er ef til vill ofhlaðinn enda er myndin bæöi minnismerki um stórhuga leikstjóra og stórhuga konung. -GK Möss Goldie. laugavegi 39. Reykjavik Skátabúðin, Snortabraut 60. Reykjavik Hera, Eiðistorgi. Seltjatnarnesi Ylfa, Engihjalla 8. Kópavogi Gloria. Strandgötu 31, Halnarfirði Fell. Þverholti, Mosfellsba Bjarg, Akranesi Kauplélag Borgfirðinga, Borgarnesi Rocky, Úlafsvlk Fell, Grundarfirði Þórshamar. Stykkishólmi Kaupf. Hvammsfjarðar, Búðardal Eplið, Isafirði Einar Guðfinnssan, Bolungarvik Kaupf. Steingrimsfjarðar. Hólmavik Verslun Sig. Pálmasonar, Hvammstanga Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi Kaupf. Húnvetninga, Skagaströnd Sparta, Sauðárkróki Mm Kotra, Dalvik Kápusalan, Akureyri Garðarshólmi, Húsavik Verslunarf. Austurlands. Egilsstöðum Bjólfsbær Seyðisf irði Versl. Hákonar Sófuss., Eskifirði Kaupf. Þór hf„ Hellu Steini og stjáni. Vestmannaeyjum Xport. Keflavik Glæsilegasta höll Ludwigs II. er Neuschwanstein. Þar lifði hann i ævintýra- heimi sínum. una sem birtist í þessum ævintýra- höllum því þangað sækja árlega þúsundir ferðamanna og haft hefur verið á orði að konungur hefði varla getað fjárfest betur. En hvernig maður var það sem kaus sér heim ævintýranna til að hrærast í? Fáir hafa efast um að kon- ungur var geðveikur og ekki er þeirri hugmynd haggað í kvikmynd Visc- ontis. Ludwig var fæddur til ríkis- erfða árið 1845. Afi hans og nafni sat þá enn á valdastóli í Bæjaralandi en krónprinsinn, MaximÚian, faðir Ludwigs, kom til valda fáum árum síðar. Hann var fullkomlega áhuga- laus um stjórn ríkisins en sinnti vísindaiðkunum af miklum móð. Sækið Wagner Ludwig ólst upp í stórum kastala og fékk snemma meiri áhuga á ævin- týrum en lífinu eins og það var í raunveruleikanum. Á unghngsárun- um hafði hann mestan áhuga á rómantískum sögum og ljóðum og liföi í eigin heimi. Þegar hann var 16 ára ruddust nýir og áður óþekktir straumar inn í líf hans. Það var þeg- ar hann heyrði í fyrsta sinn óperu eftir Wagner og eftir það dáði hann og dýrkaði tónskáldið. Skömmu áður en Ludwig var krýndur konungur hitti hann Prúss- ann Otto von Bismarck, sem síðar fékk viðurnefnið járnkanslarinn, í fyrsta og eina sinn. Bismarck átti síöar eftir að hafa mikil áhrif á örlög konungs. Þetta voru ólíkir menn, annar rómantískur sveimhugi en hinn pólitískur refur. Samt fór vel á með þeim og Bismarck hafði mynd af konungi á vegg í skrifstofu sinni. Ári síðar var Ludwig orðinn kon- ungur, þá á 19. aldursári og þess vanmegnugur á allan hátt að stjóma ríkinu. Hann tók hlutverk sitt samt alvarlega, ólikt fóður sínúm, og lagði allt kapp á að vera mikilfenglegur konungur. Eitt fyrsta verk konungs var að gera mann út af örkinni til að telja Wagner á að setjast að við hirðina í Bæjaralandi og tónskáldið þáði. Aðallinn í Bæjaralandi var hins vegar ekki eins hrifinn af þessum gesti og fékk því til leiðar komið að konungur bað Wagner að hverfa úr landi eftir rúmlega árs dvöl við hirð- ina. Konungurinn þótti víst nógu Kross í Starnbergervatni. A þessum stað endaði Ludwig II. ævidaga sina. enda gefur þessi efniviður fullt tilefni til ofhlaðins stíls. Ludwig II. þekkti fá takmörk í bmðh og hefur verið kallaður ævintýrakonungurinn vegna þeirrar áráttu sinnar að end- urvekja glæsileik miðaldanna í byggingum. Konungurinn og kastalarnir Frægasta minnismerkið um Lud- wig B. er kastalinn Neuschwanstein nærri Fussen í Bæjaralandi. Þetta var bústaður konungs, byggður í miðaldastíl, og hæfir betur fomu ævintýri en 19. öldinni. Og hann lét ekki sitja við að reisa sér þessa höll eina heldur lét hann einnig byggja sér sína Versali með kastala sem heitir Herrenchimesee og raunar var aldrei fullgerður. Til aö kóróna þetta lét hann reisa Linderhof kastalann við Oberammergau og sparaði hvergi tu. Meðan á byggingu þessara til- gangslausu kastala stóð þótti næsta augljóst að þeir væra tÚ þess eins fallnir að tæma sjóði ríkisins og ekki högnuðust þegnarnir á byggingar- gleði konungs. Síðar hafa menn þó kunnað betur að meta stórmennsk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.