Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 38
50 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. Image, 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 84.000, stgr. 76.210. Plaza, 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 96.000, stgr. 87.210. Sandra hornsófi kr. 95.950,- stgr. 85.950. Amerísk olíumálverk í álrömmum, stærðir 1,23x1,53, kr. 21.500,1,28x1,02, kr. 19.500,1,02x0,77, kr. 15.500. OPIÐ ALLA LAUGARDAGA KL. 9-16. Greiðslukjör allt að 11 mán. með Eurocredit eða Visa vildarkjörum. VJIMhmiA EURO V/SA KREDIT u • n SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 84850 P. O. BOX 8266 - 128 REYKJAVÍK JþróttapistiU Mikilvægt að sigra Handboltalandsliðiö okkar er að slá í gegn þessa dagana og ekki í fyrsta skipti. Leikur liðsins gegn Pólverjum á miðvikudagskvöldið liður þeim seint úr minni sem sáu. Ég hef fylgst með landsliði okkar í nokkuð mörg ár og ég hef ekki séð íslenskt landslið leika betri hand- knattleik en í fyrri hálfleiknum í fyrri leiknum gegn Pólverjum. Leikur þessi var mikill sigur fyrir handboltann, stærsti sigur á Pól- verjum frá upphafi, en líklega var þó enginn ánægðari en pólski landsliðsþjálfarinn okkar, Bogdan Kowalczyk. • Mörg og erfið verkefni eru framundan hjá landsliðinu og þössa stundina stendur yfir alþjóð- legt mót á Akureyri sem ísland ætti að vinna. Landslið okkar hefur nokkuð oft hafnað í öðru, þriðja eða fjórða sæti á alþjóðlegum mótum og meginástæðan fyrir því er sú að liðið hefur ekki náð að sýna nægi- lega jafna leiki. Eftir frábæran landsleik virðist einbeiting leik- manna oft hafa horfið og í kjölfar glæsilegs sigurs hefur oft komið slakur leikur og jafnvel slæmt tap. Þetta þurfa leikmenn að laga og þeir gera það. Við eigum í dag leik- reyndasta landshð í heimi og það á að vera fært um að laga svona hluti. Það er því mikilvægt að ís- land sigri á mótinu nyrðra um helgina. Valið kom ekki á óvart Val landsliðshópsins, sem lék leikina gegn Pólveijum og keppir nú á Akureyri og Húsavík um helg- ina, kom ekki á óvart. Þó komu fram óánægjuraddir þess efnis að Héðinn Gilsson ætti að vera í hópn- um eftir stórleik hans með FH- ingum gegn Valsmönnum í 1. deildinni. Hafa verður í huga að Héðinn er aðeins 19 ára gamall og óharðnaður sem handknattleiks- maður. Hann er að mínu mati ekki sá yflrburðamaður að landsliðið geti ekki án hans verið. Hann á framtíðina fyrir sér og það að setja hann nú þegar inn í landsliðshóp- inn gæti hreinlega eyðilagt hann sem handboltamann. Héðinn er framtíðarmaður í landsliðinu en þarf að taka út líkamlegan og and- legan þroska áður en hann fær tækifæri til að leika lykilhlutverk með landsliðinu. Bogdan veit hvað hann er að gera og hann veit líka nákvæmlega hvar Héðinn stendur. Það kæmi mér ekki á óvart þótt Bogdan trompaði honum út sem leynivopni íslands á ólympíuleik- unum en ég yrði ekkert hissa þótt Héðinn fengi sín fyrstu alvörutæki- færi með landsliðinu eftir ólympíu- leikana. Að hafna atvinnumennsk- unni var hárrétt ákvörðun Héðinn Gilsson fékk á sínum tíma boð frá vestur-þýska félaginu Essen um að líta á aðstæður og kanna grundvöll fyrir hugsanleg- um samningi við liðið. Niðurstaðan varð sú að Héðinn hafnaði samn- ingi á þeim forsendum að hann væri of ungur og vissulega var þetta hárrétt ákvörðun og skyn- samleg. Héðinn verður án efa kominn í erlent lið áður en langt um líður en það er mín skoðun og reyndar margra annarra að hann þyrfti helst að vera búinn að leika 40-50 landsleiki áður en hann færi að leika með erlendu liði. Pétur með bestu víta- skyttum í NBA-deildinni Pétur Guðmundsson er að gera góða hluti með nýja félaginu sínu í NBA-deildinni í bandaríska körfuboltanum. Hann hefur náð sér að fullu eftir slæm meiðsli og uppskurð í baki og er til alls vís í vetur. Mínútunum, sem hann leik- ur með, fer fjölgandi með hveijum leik en helsta vandamálið hjá hon- um hafa verið villuvandræði í fyrstu leikjunum. Raunar er það svo að dómarar í NBA-deildinni taka nýja leikmenn í deildinni fyrir í leikjum og þeir fá lítið að gera fyrr en þeir eru búnir að leika í deildinni í nokkur ár. Pétur hefur náð þeim frábæra árangri að hafa ekki enn brennt af vítaskoti í leikj- um San Antonio Spurs. Aðeins tveir eða þrír aðrir leikmenn í deildinpi hafa náð þeim árangri að þitta úr öllum skotum sínum. Pétur hefur nú hitt úr 19 vítaskotum í röð og vonandi stendur hann í stýkk- inu í næstu leikjum. Byijunin hjá Spurs er betri en menn reiknuðu menn. Liðið hefur, þegar þetta er skrifað, unníð 3 leiki af sex en í fyrra sigraði liðið í 28 leikjum af 82 í deildinni. Það stefnir því allt í betri árangur hðsins í vetur en í fyrra. íslendingar jafnokar Evrópumeistaranna Austur-þýski landsliðsmaðurinn Rainer Ernst skoraði á dögunum sigurmark Austur-Þjóðverja gegn Evrópumeisturum Frakka í und- ankeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu og þetta mark Ernst á síöustu mínútu leiksins gerði það að verkum að íslendingar hlutu jafnmörg stig í riðlinum og Evrópu- meistararnir. Markatala Frak- kanna er þó mun betri og þeir fá því þriðja sætið. Þetta er glæsilegur árangur, svo ekki sé meira sagt, og við getum verið stolt af þessum árangri landsliðsins í knattspyrnu. Ásgeir sannaði sig enn einu sinni Knattspymumaðurinn Ásgeir Sigurvinsson er annar glæsilegur fulltrúi okkar á íþróttasviðinu úti í hinum stóra heimi. Hann lék á ný með Stuttgart gegn Bayern Mtinchen um síðustu helgi eftir langvarandi meiðsli og sýndi góð tilþrif. Stuttgart sigraði, sem kunn- ugt er, 3-0, á heimavelli sínum og þessi framganga Ásgeirs er honum eflaust mjög svo kær því það var einmitt Bayem Munchen sem fór mjög illa með hann þegar hann var hjá félaginu. Þá gátu forráðamenn liösins ekki notað hæfileika hans. Þeir hinir sömu hijóta hins vegar að vera farnir að sjá hve Ásgeir er snjall knattspyrnumaður og það er vissulega ánægjulegt ef Ásgeir nær að sýna sínar bestu hhðar annars staðar en í búningi Bayern Mtinchen. Sagt var í fréttum hér heima að Ásgeir hefði verið besti maður vaharins í leiknum gegn Bayern en hins vegar fékk hann 2 í einkunn hjá Kicker og 3 hjá Welt am Sonntag. Vandræðaástand hjá öðrum atvinnumönnum Aðrir atvinnumenn okkar virð- ast eiga í vandræðum hjá hðum sínum. Sigurður Jónssoii er enn ekki í myndinni hjá ShefSeld Wed- nesday, Lárus Guðmundsson er upp á kant við forseta Kaiserslaut- ern, Ath Eðvaldsson spilar ekki leik með Bayer Uerdingen, Arnór er að vísu farinn að leika eftir rifr- ildi við forráðamenn Anderlecht, sem virðist hafa sett mark sitt á leik hans, og Guðmundur Torfason virðist hanga á bláþræði í liði Wint- erslag. Nú hefur þjálfari hðsins verið rekinn og framtíð Guðmund- ar í aðalhði félagsins er óljós í meira lagi. Þetta er vægast sagt vandræðaástand en vonandi taka þessir snjöllu leikmenn sig saman í andlitinu óg komast í lið hjá félög- um sínum á næstunni. Stefán Kristjánsson • Alfreð Gíslason átti frábæran leik í fyrri leik íslands og Póllands í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið. Alfreð, sem er Akureyringur, mun örugglega leggja sig allan fram á mótinu á Akureyri og Húsavík og það er mikilvægt að landslið okkar sigri á mótinu. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.