Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Sljómznál
Stjórnarandstaðan yfivgaf
þingsal í mótmælaskyni
stjómariiðum tókst ekki að afgreiða staðgreiðslukerfið til annarrar umræðu
Vegna ónógrar þátttöku í at-
kvæðagreiðslu í neðri deild Al-
þingis í gærkvöldi tókst ekki að
afgreiöa tvö stjómarfrumvörp, sem
snerta staðgreiðslukerfi skatta, til
þingnefndar og annarrar umræðu.
Stjómarandstæðingar höfðu yfir-
gefið þingsalinn í mótmælaskyni
við að Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra svaraði ekki fyr-
irspurnum þeirra um ýmis atriði
staðgreiðslukerfisins. Eftir sat 21
stjórnarliöi til að greiða atkvæði,
sem er ekki nóg. I salnum þurfa
að vera minnst 22 af 42 þingmönn-
um neðri deildar til að atkvæða-
greiðsla teljist gild.
Þegar stjórnarliðið sá að einn
þingmann vantaði upp á að málið
fengist afgreitt hófst víötæk leit. Sjá
mátti þingverði og ráðherra hlaupa
um ganga og hliðarbergi þinghúss-
ins en án árangurs. Sex stjórnarlið-
ar, af þeim 27 sem sæti eiga í
deildinni, reyndust ekki vera í
þinghúsinu og stjórnarandstæð-
ingar neituðu að ganga inn í
þingsal.
í tímahraki þingsins hafði stjóm-
arliðið ráðgert að staðgreiðslan
yrði afgreidd til þingnefndar í
fyrradag. Það frestaðist vegna
margra og langra ræðna stjómar-
andstæðinga um annað mál. Er því
bagalegt fyrir stjórnina að at-
kvæðagreiðsla skuli enn frestast.
Ef Jón Baldvin hefði kosiö að
svara öllum fyrirspurnum stjóm-
arandstæðinga, einkum Steingríms
J. Sigfússonar, Alþýðubandalagi,
hefði hvort sem er orðið að fresta
atkvæðagreiðslu því komið var að
lokum fundartíma og þingflokks-
fundir að hefjast.
Jón Baldvin kom reyndar upp og
sagði að svör hefðu þegar komið
fram eða að þau væri að finna í
álitsgerð milhþinganefndar um
staðgreiðsluna. Þetta svar sagði
Steingrímur J. Sigfússon aldeilis
ófullpægjandi og óviðunandi.
-KMU
Karl Steinar Guðnason, forseti neðri deildar Alþingis, ræðir hér viö þá Þorvald Garðar Kristjánsson og
Karvel Pálmason, sem snýr baki í myndavélina, og er ekki ólíklegt að þeir hafi verið að koma sér á mæ-
lendaskrá i umræðunni um kvótafrumvarpið í gær. DV-myrid KAE
Kvótafrumvarpið til sjávarútvegsnefnda:
Vestfirðingar með
kvótann í höndunum
- þori ekki að spá hvort frumvarpið fari óbreytt í gegn, segir Halldór Ásgrimsson
í gær lauk í efri deild Alþingis
fyrstu umræðu um frumvarp til
laga um fiskveiðistjómun og var
því vísað til sjávarútvegsnefndar.
Ákveðið hefur veriö að sjávarút-
vegsnefndir beggja deilda fjalli
samtímis um frumvarpið til að
flýta fyrir afgreiðslu þess.
Svo viU til að Vestfjarðaþing-
mennirnir Karvel Pálmason, í efri
deild, og Matthías Bjamason, í
neðri deild, eru formenn sjávarút-
vegsnefnda deildanna og því má
segja að Vestfirðingar hafi kvóta-
frumvarpið í höndunum. Fram-
varpið verður ekki afgreitt úr
nefndunum nema með þeirra sam-
þykki og fyrst er það Karvel.
Karvel sagði brosandi eftir fyrstu
umræðu í efri deild í gær að vel
mætti vera að gerðar yrðu breyt-
ingar á frumvarpinu og að það yrði
vart afgreitt úr sjávarútvegsnefnd
efri deildar fyrr en undir eða um
helgina. Við fyrstu umræðu í deild-
inni í gær lýsti Karvel sig andvígan
fjölmörgum atriðum í frumvarpinu
og sagöist ekki eiga samleið með
þingflokki Alþýðuflokksins í þessu
máli.
Halldór Ásgrímsson ságði í gær
að hann þyrði engu að spá um það
hvort kvótafrumvarpið kæmist
óbreytt í gegnum Alþingi en hann
mælti fyrir því og tók þátt í umræð-
unni í efri deild við fyrstu umræðu.
í umræðunni í gær kom fram að
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, lýsti sig algerlega
andvígan frumvarpinu, hann væri
einfaldlega á móti kvóta við fisk-
veiöamar. Hann sagði þjóðarhags-
muni krefjast þess aö kvótinn og
sú spilling sem honum fylgdi yrði
afnuminn. Guðmundur H. Garð-
arsson, flokksbróðir hans, sagðist
aftur á móti styðja fmmvarpið
þrátt fyrir augljósa annmarka þess
að hafa kvótakerfi.
Júlíus Sólnes og Guðmundur
Ágústsson, Borgaraflokki, lögðust
gegn kvótafrumvarpinu og boðuðu
breytingartillögur flokksins við
þaö.
Eiður Guðnason og Karl Steinar
Guðnason, Alþýðuflokki, sögðust
styðja frumvarpiö þrátt fyrir að
þeir væm að mörgu leyti andvígir
kvótakerfinu.
Skúli Alexandersson og Svavar
gestsson, Alþýðubandalagi, voru
frumvarpinu andvígir eins og þaö
er og hefur Alþýðubandalagið lagt
fram breytingatillögur.
Danfríður Skarphéðinsdóttir,
Kvennahsta, lagðist gegn fmm-
varpinu og boðaði breytingatiUög-
ur Kvennalistans sem greint var
frá í DV í gær.
Sem fyrr segir er, ekki búist viö
að fmmvarpið komi til annarrar
umræöu í efri deild fyrr en undir
helgina.
-S.dór
Holskefla skatta-
hækkana hvelfist
yflr þjóðina
- sagði Óli Þ. Guðbjartsson á Alþingi í gær
„Miklar skattahækkanir ríða yfir.
Holskefla skattahækkana hvelfist
yfir þjóðina á þessum dögum,“ sagði
Óli Þ. Guðbjartsson, þingmaður
Borgaraflokksins, um breytingar
þær sem ríkisstjórnin heföi tilkynnt
í fjölmiðlum á óbeinum sköttum;
söluskatti, tollum og vörugjaldi.
Þessi orð féllu við umræður um
staðgreiðslukerfi skatta. Ræddu
þingmenn þar um skattamál.
„Almennar skattaálögur í landinu
tel ég vera aukast gífurlega með þess-
um breytingum. í vændum er skatt-
þynging þótt þaö dyljist í ræðu
hæstvirts íjármálaráðherra," sagði
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
Alþýðubandalagsins.
Steingrimur sagði að með skatti á
matvæli myndi matarkostnaður vísi-
tölufjölskyldu aukast um 20.600
krónur á ári. Meðalfjölskylda, sem
hefði 300 króna timakaup, myndi
þurfa aö bæta viö sig 70 klukku-
stunda vinnu, eða tæpum tveim
vikum, til að greiða þennan auka-
kostnað.
Þingmaðurinn sagði einnig að ný-
justu upplýsingar um hækkun fast-
eignamats um rúma 100 mfiljarða
króna, sem væri 50 milljarða króna
hækkun umfram byggingarvísitölu,
þýddi 300-600 milljóna króna hækk-
un á tekjum sveitarfélaga.
-KMU
Norður/suðurlínan í kvótafrumvarpinu:
Óvíst með samstöðu
þingmannanna 32ja
„Ég þori ekki að segja til um það
hvort þingmennimir 32 sem skrifuðu
undir bréfið um norður/suðurlínuna
halda hópinn. Aðstæður hafa breyst
þar sem karfaafli togara af suður-
svæðinu hefur verið aukinn til að
'vega upp á móti meiri þorskkvóta
togara af norðursvæðinu," sagði
Guðmundur G. Þórarinsson alþing-
ismaður í samtali við DV í gær.
Guðmundur var einn af frum-
kvöðlum þess að þingmennirnir
skrifuðu undir bréfið tí.1 ráðgjafar-
nefndarinnar á dögunum.
Hann sagði það ljóst að þessir þing-
menn þyrftu nú að meta málið upp
á nýtt og það yrði síöan að koma í
ljós hvort þeir héldu saman.
Þessir 32 þingmenn voru úr Vest-
urlands-, Reykjavíkur-, Reykjanes-
og Suðurlandskjördæmi, að undan-
skildum ráðherrum af þessum
svæðum. Því er ljóst að hópurinn er
í meirihluta á Alþingi ef hann beitir
sér.
-S.dór
Verkefnafærsla milli ráðuneyta:
Orkar tvímælls
sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðhena
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
sagði við umræður á Alþingi að sú
breyting að færa útflutningsverslun
úr viðskiptaráðuneyti yfir í utanrík-
isráðuneyti orkaði tvímæhs á ýmsa
lund. Kvaðst hann taka undir margt
af þeirri gagnrýni sem fram kæmi í
áliti minnihluta þingnefndar. Ráð-
herrann lýsti því þó yfir að hann teldi
að frumvarp um þessa breytingu
ætti að verða að lögum sem allra
fyrst og nefndi viðræður íslendinga
við ríkjabandalög þeirri skoðun til
Stuðnings.
Tveir fyrrverandi viðskiptaráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins, Matthí-
as Bjamason og Matthías Á.
Mathiesen, em andvígir breyting-
unni.
Þingmenn stjómarandstöðu, með-
al annars Steingrímur J. Sigfússon,
Kristín HaUdórsdóttir og Óli Þ. Guð-
þjartsson, hafa gagnrýnt að þessa
breytingu skuli eiga að keyra í gegn-
um Alþingi fyrir jólaleyfi. í máli
þeirra hefur komið fram aö breyting-
in þarfnist nánari skoðunar. Hafa
þau ennfremur sagt hana skiptimynt
í stjómarmyndunarsamningum.
-KMU