Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987. IÐUNN Bók sem skiptir okkur máli Mikhaíl Gorbatsjov PERESTROTKA NY HUGSUN, NY VON Ein athyglisverðasta bók síðari ára á alþjóðlegum vettvangi, Bók eftir þjóðarleiðtoga Sovétríkjanna, Mikhaíl Gorbatsjov, þar sem hann fjallar um hinar nýju stjórnmálahugmyndir sínar. Á ótrúlega hreinskilinn hátt gerir hann hér grein fyrir aðstæðum þjoðar sinnar fram á þennan dag. Með áherslu á opinskáa umræðu meðal allra þjóða fjallar hann um afvopnunarmál og heimsfrið. — Hugmyndir sem geta skipt sköpum. Pessi bók er uppgjör Höllu Linker við þá ímynd sem skapaðist af henni í gegnum fjölmiðla í fjöldamörg ár. Aldrei sást annað en yfirborðið, frœgð og velgengni. En þannig var líf hennar aldrei í raun og veru. Nú lítur hún til baka yfir tuttugu og átta ár í hjónabandi með manni sem var fimmtán árum eldri en hún og stjórnaði henni eins og brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana. Pegar hann lést skyndilega kom að því að hún þurfti að standa ein og óstudd í fyrsta sinn, bjarga sér, læra að umgangast karlmenn, kynnast því að verða ástfangin eins og ung stúlka . . . Sú ganga var ekki þrautalaus, en að lokum hefur Halla náð því marki að geta litið björtum augum til framtíðarinnar, virt fyrir sér fortíðina með augum áhorfandans, hlegið og grátið — sátt við sjálfa sig. Saga Höllu er engin harmsaga, heldur óvenjuleg ævisaga óvenjulegrar konu, sem séð hefur og reynt fleira en flestir Islendingar og hefur umgengist bæði hausaveiðara og Hollywoodleikara. Konu, sem var virt og dáð út á við, en fékk þó ekki einu sinni að ráða hárgreiðslu sinni sjálf. Frásögnin lætur engan ósnortinn, en hún vekur líka ótal hlátra, því að Halla kann flestum betur að draga fram skoplegu hliðarnar á því sem fyrir hana hefur borið. MIKHAIL GORBATSJOV ftrestrojka NYHUCSUN NYVON BRÆÐRABORGARSTÍG 16 ■ SÍMI 28555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.