Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Fréttir_______________________________
Niðurgreiðslur 1988
2,9 milljarðar króna
- leggja mætti slrtlag á 1.800 kílómetva af þjóðvegakerfinu fyrir sömu fjárhæð
Fyrir alla þá fjármuni, sem ríkis-
stjórnin ætlar að setja í að greiða
niður kindakjöt, smjör, mjólk og
aðrar landbúnaðarvörur á næsta
ári, mætti leggja bundið slitlag á
1.800 kílómetra af þjóövegakerfi
landsins.
Niðurgreiðslur á landbúnaðar-
vörum verða 2,9 miUjarðar króna
á næsta ári eftjr síðustu ákvörðun
ríkisstjórnarinnar. Hafa þær
Neytendasamtökin mótmæla ný-
settu banni á innflutning „franskra
kartaflna“ og telja samtökin að með
því sé réttur neytenda þverbrotinn.
Telja samtökin að hér sé um iðnað-
arvöru að ræða og landbúnaðarráðu-
neytinu óviðkomandi. Nefna
samtökin að íslenskar kartöflur séu
óhentugri en erlendar til þessarar
framleiðslu og því megi búast við
versnanndi gæðum og hækkuðu
verði. Hvetja samtökin önnur ráðu-
„Það er farin héðan tólf tonna til-
raunasending og það er vilji hjá
Norðmönnum fyrir því að kaupa það
sem við höfum," sagöi Stefán Val-
geirsson, formaöur bankaráðs
Búnaðarbankans, í samtali við DV
en Búnaðarbankinn hefur kannað
sölumöguleika á íslenskum kartöfl-
um ytra í samráði við kartöflubænd-
ur.
„Það er aðeins spurfúng hvort
kartöflurnar standast þær kröfur
sem Norömenn gera varðandi stærð
og gæði kartaflnanna en þurrefnis-
innihald þeirra verður að vera yfir
hækkað um 82% frá fjárlagafrum-
varpinu í haust en þá var miðað
við að niðurgreiðslur næmu 1,6
miUjörðum króna.
í fjárlögum yfirstandandi árs eru
niðurgreiðslur á landbúnaðarvör-
um upp á 1,1 milljarð króna. Stefnir
því í að hækkun á milli ára nemi
1,8 milljörðum króna.
Bara fyrir hækkunina á milli ára
mætti leggja bundið slitlag á meira
neyti til þess að beita sér fyrir því
aö landbúnaðarráðuneytið fari að
lögum.
Ennfremur gera Neytendasamtök-
in athugasemd við fyrirhugaða sölu
á eignum Grænmetisverslunar land-
búnaðarins til Ágætis, enda séu
íslenskir neytendur réttmætir eig-
endur umræddra eigna. Leggja
samtökin til aö horfið verði frá sölu
eignanna á því verði sem rætt hefur
verið um. -ój
20%,“ sagði Stefán.
Varðandi samþykkt Framleiðni-
sjóðs um að hafna því að styrkja
þennan útflutning sagði Stefán að
hann liti ekki á þá samþykkt sem
endanlega. Menn vildu vita hvert
verðið ytra yrði þegar upp væri stað-
ið og búast mætti við hærra verði ef
kartöflumar líkuðu vel. Hins vegar
bjóst Stefán við því að ef ekki tækist
að koma á verðjöfnun á innlendum
kartöflum, þannig að ekki yrði
grundvöllur fyrir útflutningi, þýddi
það að henda þyrfti þúsundum tonna
af framleiðslu ársins. -ój
en 1.100 kílómetra, sé miðað við
upplýsingar Vegagerðarinnar um
að hver kílómetri kosti um 1,6
milljónir króna.
Með ákvörðun ríkisstjómarinnar
fyrir helgi er fyrirséð að framlög
ríkissjóðs til landbúnaðarmála í
heild munu meira en tvöfaldast á
milli ára. Samkvæmt fjárlögum,
sem samþykkt vora fyrir þetta ár,
fær landbúnaðurinn til sín 2,7
Mikill hiti var í þeim Seltimingum
er komu á fund sem JC nes stóð fyr-
ir á Eiðistorgi í fyrrakvöld um fyrir-
hugaðar byggingarframkvæmdir á
Seltjamarnesi og dagvistunarmál
þar í bæ. Mest fór fyrir fyrirhugaðri
byggingu húsanna 18 á Valhúsahæð
sem rísa eiga á næstu 18-20 mánuð-
um. Virtist þorri fundarmanna vera
andvígur þessum byggingarfram-
kvæmdum.
Fram kom á fundinum að á næst-
milljarða króna eða um 6% af fjár-
lögum. Nú er orðið Ijóst að á næsta
ári mun þessi atvinnuvegur fá 5,9
milljarða króna eða um 9,4% af
fjárlögum.
Um helmingur fer í niðurgreiðsl-
ur en aðrir stórir liðir era útílutn-
ingsbætur, bætur vegna riðuveiki,
jarðræktarframlög og tilrauna-
stöðvar.
unni verða byggðar 218 íbúðir á
Seltjarnamesi og hugsanlega geta
um 20 hús bæst við ef samningar
nást um að byggja við Bollagarða.
Þessar íbúðir tryggja nægt hús-
næðisframboð í bænum næstu 8-5
árin, að sögn Sigurgeirs Sigurðsson-
ar, bæjarstjóra Seltjamarness. Aðrir
ræðumenn vora bæjarfulltrúarnir
Guðrún Þorbergsdóttir og Guð-
mundur Einarsson.
-JBj
Fotmaður Manneldisráðs:
„Manneldisráð hefur gefið út
manneldismarkmið og þessi
sköttun er ekki í samræmi við
það sem í markmiðunum er sett
fram,“ sagði Snorri P. Snorrason
læknir, formaður Manneldisráðs,
í samtali við DV þegar hann var
spurður að þvi hvort sú neyslu-
stýring stjórnvalda, sem felst í
breytingum á skattlagningu
neysluvara, sainrýmdist mark-
miðum Manneldisráðs.
„Samkvæmt okkar rannsókn-
um er neysla harörar fitu, eins
og feits kjöts, meiri hér á landi
en æskileg er. Það er ekki taliö
ráðlegt að þaðan komi meira en
35% af heildarneyslunni en hér á
landi er hlutfaUið yfir 40%. Einn-
ig er hlutfall sykurs um helmingi
hærra en æskilegt er talið,“ sagði
Snorri.
Snorri sagöist ekki sjá að skatt-
lagning stjórnvalda væri í
samræmi við stefnu í manneldis-
málum og ekki taldi hann skatt-
lagninguna heldur í samræmi við
þá heilbrigöisáætlun sem heil-
brigðisráðherra heföi lagt fram.
„Sijórnvöld taka ekki tillit til
manneldismála að þessu leyti,“
sagði Snorri og bætti því við að
Manneldisráð hefði vænst þess
að meira hefði verið hugsað um
þessa þætti.
-ój
Veðurfar hefur verið með ein-
dæmum gott í vetur og hefur
óvenjulítiil snjór verið um allt
land. Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur tjáði okkur aö nóvember í
ár hefði verið sá 8. hlýjasti á öld-
inni og sá hlýjasti síðan 1968 í
höfuöborginni. Snióleysiö í
Reykjavík sagði Trausti þó al-
vanalegt þvi velþekkt er að ekki
snjói á höfuðborgarsvæðinu fram
að áramótum.
Akureyringar eiga að venjast
meiri kuldum en Reykvíkingar
en nú era hlýindi óvenjumikil á
Akureyri og tiltölulega hlýrra
þar en í Reykjavík miöað við
meöalár. Nóvember í ár var sá
hlýjasti á Akureyri síðan 1956.
-KMU
Franskar kartöflur:
Innflutningsbanni mótmælt
Seltirningar ræða fyrirhugaðar húsbyggingar á Valhúsahæð. DV-mynd BG
Andstaða gegn húsbygg-
ingum á Valhúsahæð
Noregskartöflurnar:
Tólf tonn farin utan
í dag mælir Dagfari
Palli var einn í heiminum
íslendingum er ekkert óviðkom-
andi. Sérstaklega ef þeir geta verið
á móti einhverju. Það er eiginlega
alveg sama hvað gert er, hvað
ákveðið er eða hvað til stendur,
aUtaf skulu rísa upp hópar og sam-
tök, sem beijast gegn því sem gert
er, ákveðið er eða til stendur. Þann-
ig var Davíð ekki fyrr búinn að
ákveða byggingu ráðhússins við
Tjörnina en upp reis hópur sem
mótmælti og stofnaði baráttusam-
tök gegn ráðhúsinu sem líklega
verður til þess að ráðhúsið verður
byggt. Við þekkjum baráttusam-
tökin gegn her í landi sem er
árangursríkasta aðferðin til að
halda hemum í landi. Við þekkjum
baráttusamtökin fyrir gamla mið-
bænum sem er besta auglýsingin
til þess að fólk fari annað til að
versla. Við þekkjum samtökin gegn
reykingum og tóbaki sem hafa
haldið lífi í sígarettureykingum. í
pólitíkinni stofnaði kvenfólkið
Kvennalista sem hjálpaði körlun-
um til að ná meiri tökum á gömlu
flokkunum eftír að kvenfólkiö fór
í sérstakan flokk. í síðustu kosn-
ingum stofnuðu nokkrir óánægöir
sjálfstæðismenn Borgaraflokkinn
sem hefur sparað Sjálfstæðis-
flokknum ómæld óþægindi af því
að þagga niður óánægjuraddir í
sínum eigin röðum.
Nýlega voru stofnuð samtök gegn
sorginni sem sjálfsagt ætla að beita
sér fyrir því að íslendingr hætti að
syrgja ástvini sína en haldi gleð-
skap í staðinn í hvert skipti sem
einhver nákominn fellur frá.
Nú er þaö nýjast á sviði mótmæl-
anna að búið er að stofna enn ein
samtökin sem heita átök gegn háv-
aða. Nokkrir nafngreindir ein-
staklingar, sem vilja fá að vera í
friði fyrir hávaða annarra og þola
greinilega ekki að umgangast ann-
að fólk, hafa ákveðið að beita sér
gegn hávaða án þess að sá hávaði
sé skilgreindur frekar.
Af myndum sem hafa birst af
stofnfundinum má sjá að helstu
forsprakkarnir era víðkunnir kve-
rólantar og sérviskupúkar sem
aldrei hafa getað sætt sig við að
annað fólk látí í sér heyra og flokka
það undir hávaða og lætí. Hjá
svona mönnum flokkast þaö líka
undir ónæði að þurfa aö tala við
annað fólk. Þetta era nokkurs kon-
ar Pallar, einir í heiminum, sem
hrökkva upp með andfælum og
fara í fýlu ef samborgaramir gerast
svo ókurteisir aö ávarpa þá með
þeim hávaða sem fylgir því aö tala.
Þama má sjá Flosa Ólafs, sem
þolir sennilega ekki að fólk skapi
hávaða með því að hlæja af fyndni
hans, Atla Heimi Sveinsson tón-
skáld, sem þolir sennilega ekki
hávaðann af tónsmíðinni sinni,
Harald Ólafsson, sem þolir ekki
lætin í Framsókn eftir að honum
var sparkað út af listanum hjá
Framsókn, Steingrím Gaut Krislj-
ánsson borgardómara sem hefur
skrifað lærðar greinár um þann
hávaða sem skapast af þvi aö bif-
reiðar aki um götumar. Flestum
þessara manna er það sameiginlegt
að heyra ekki hávaðann í sjálfum
sér vegna hávaðans sem þeir heyra
í útvarpsstöðvunum. Gætí nú ekki
einhver góður maður bent þessum
áhugasömu samtökum á að til sé
takki á útvarpstækjunum sem er
tíl þess hafður að geta kveikt og
slökkt á þeim. Það mundi sjálfsagt
hjálpa þeim í baráttunni gegn háv-
aðanum að læra á þennan takka.
Annars verður fróðlegt að koma
á fund hjá þessum samtökum sem
berjast gegn hávaðanum og eiga
með þeim þagnarstund því varla
fara menn að efna til umræðna og
skapa af því hávaða þegar átakið
gegn hávaðanum er árangursrík-
ast með því einfaldlega að þegja á
mannamótum. Þessir menn hefðu
verið góðir á tímum þöglu mynd-
anna. Þá hefði Flosi og kó getað
farið í fimmbíó til aö hvíla sig frá
hávaðanum sem hlýst af því að
leikaramir heyrast tala saman í
kvikmyndum og leikritum. Næst
ætlár Dagfari að fara með eyma-
hlífar í Þjóöleikhúsið til að láta í
ljós stuðning sinn viö það átak gegn
hávaðanum sem kverólantamir
ætla að berjast fyrir eftir áramótin.
Gott að átakið hefst ekki fyrir jól.
Annars hefðu þeir sennilega raðst
inn í kirkjurnar og kveðið niður
hávaðann af jólasálmunum!
Dagfari