Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
5
DV
Fréttir
Rottækar breytingar í útvarps- og sjónvarpsmálum V-Evropu:
Verður gervihnattasjónvarp hjáist hér?
Fyrirhugaöar eru róttækar breyting-
ar á útvarps- og sjónvarpsmálum í
V-Evrópu en þaö er Evrópuráðið sem
ætlar sér aö samræma reglur á þessu
sviöi. Þaö er ljóst aö það getur oröiö
erfitt fyrir mörg Evrópuríkjanna aö
játast undir samþykkt þessa. Reynd-
ar hafa aðeins verið lögð drög að
sáttmála sem nefnist í lauslegri þýð-
ingu sáttmáli um útvarps- og sjón-
varpsefni milli landa.
Það kom fram í samtali við Þór-
unni Hafstein í menntamálaráðu-
neytinu að hér væri um flókna hluti
að ræða. Það væri gríðarlega margt
sem þyrfti að taka tillit til.
Það má því vera allt eins líklegt að
mörg aðildarríkjanna myndu setja
einhver sérákvæði, þar á meðal við
íslendingar. Þessar hugmyndir eru
reyndar aðeins á byrjunarstigi en
fyrirhugað er að sáttmálinn verði
undirritaður á ráðherrafundi í
Stokkhólmi sem fer fram í nóvember
á næsta ári.
„í þessum sáttmála er um það að
ræða að V-Evrópulönd undirriti
samning sem tryggir frjálst flæði
upplýsinga til landanna gegnum
gervitungl,“ sagði Markús Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri sem hefur setið
fundi í Strassbourg vegna þessa
máls. Markús sagði að feikilega mik-
ið væri gerast í gervihnattamálum í
Evrópu núna og tók sem dæmi að
samtök evrópskra sjónvarpsstöðva
(EBU) hefðu fyrir stuttu tekið á-
kvörðun um sérstaka íþróttarás sem
yrði rekin í samstarfi við gervi-
hnattafyrirtæki.
„Þarna er verið að reyna að ná
samstarfi um auglýsingareglur sem
gilda milli landa og fá þá á hreint
hver beri endanlega ábyrgð á efni
sem fer til dreifingar um gervi-
hnetti."
Verður þýðingarskyldunni
fórnað?
Það sem snertir okkur íslendinga
e.t.v. hvað mest eru þau atriði sem
lúta að þýðingarskyldunni. Eins og
kunnugt er var lögð á það mikil
áhersla í núverandi útvarpslögum
að ekki mættu fleiri en 36 heimili
tengjast sjónvarpskerfi án þess að
efnið sé þýtt. Það er óvíst að ákvæði
sem þetta sé í anda nýju laganna og
yrðu því íslendingar að fá inn sérá-
kvæði til að vernda það.
Svipaða sögu má segja um Norð-
menn og vilja þeirra til að banna
auglýsingar sem getup valdið því að
þeir leggi einnig fram sérákvæði. Það
er því ljóst að nú, sem áður, getur
orðið erfitt að finna einn „evrópsk-
an“ vilja í þessu máli. En af hverju
er þá verið að koma fram með þessar
tillögur nú?
„Nú er verið að bregðast við aukn-
um gervihnattasendingum á milli
landa. Mörg þessara ríkja sjá að ekki
er hægt að komast hjá þessum send-
ingum og vilja þau því binda í reglur
Þorsteinn sendir Matthías
Matthías Á. Mathiesen samgöngu- í tilkynningu frá forsætisráðuneyt-
ráðherra mun sækja fund forsætis- inu segir að Þorsteinn Pálsson hafi
ráðherra Norðurlanda í Osló í dag, sökum anna ákveðið að hætta við að
miðvikudag. sækja fundinn. -KMU
atriði eins og auglýsingar, ofbeldi og
efni sem særir blygðunartilfinningu.
Þetta er tilraun tfi að samræma regl-
ur ríkja um þessi atriði," s'agði
Þórunn Hafstein. Þá hefur verið bent
á að þetta sé viðleitni Evrópu til að
veija sig fyrir utanaðkomandi menn-
ingarstraumum.
Þann 15. október komu fram til-
mæli frá Norðurlandaráði til ráð-
herranefndar um að Norðurlöndin
reyndu að nálgast sameiginlega nið-
urstöðu í þessu máli og að tekin yrði
jákvæð afstaða til sáttmálans.
-SMJ
Þarftu að láta líta á
þinn?
Sérfræðingur verksmiðjanna fer yfír Trabant bíla
og veitir ókeypis ráðgjöf í umboðinu:
Miðvikudaginn 9. desember.
Fimmtudaginn 10. desember.
Föstudaginn 11. desember.
Laugardaginn 12. desember.
Aila dagana frá kl. 9-18.
Verið veikomin!
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.
Elna er saumavél sem kemur þér á óvart. Sérstaklega
meðfærileg og prýdd öllum þeim kostum, sem nauðsyn-
legir þykja, svo sem tvöfaldan lokusaum (overlock),
sjálvirka gerð hnappagata og margan annan Qölbreyti-
legan saum.
Elna, er heimsþekkt fyrir frábærar saumavélar,
Þú ættir að líta við og kynna þér kosti Elna.
Þf