Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Viðskipti_______________________________________________________________________dv
Verðbreytingamar um áramótin:
Folk hikar nu við að kaupa
vörur sem lækka í verði
Skyndikönnun DV í gær á meðal
verslunareigenda um viðbrögð fólks
við þeim miklu verðbreytingum sem
verða um áramótín sýna glöggt að
fólk hikar nú við að kaupa vörur sem
ríkisstjórnin hefur samþykkt að
lækka um áramótin. Svar ýmissa
verslana er reyndar verðlækkun
strax á þessum vörum. Kaupmenn
segja að almenningur geri sér samt
ekki fulla grein fyrir því sem sé að
gerast og spyrji mikið um breyting-
arnar. Hjá einu fyrirtæki, Raíha hf.,
sem selur þvottavélar og ísskápa, en
hvort tveggja hækkar um áramótin,
fengust þau svör að ekkert kaupæði
hefði gripið um sig og virtist sem
fólk héldi að allar vörur lækki um
Pemngamarkaður
INNLÁNSVEXTlt? (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 20-22 Lb,lb
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 20-24 Úb
6mán.uppsögn 22-26 Ab
12 mán. uppsögn 24-30,5 Úb
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar.alm. 6-12 Sp,lb
Sértékkareikningar 10-23 Ib
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3,5-4 Ab,Úb, Lb,Vb
Innlán meðsérkjör- 19-34,5 Úb
um Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7,25 Ab,Sb, Vb
Sterlingspund 7,75-9 AbVb, Sb
Vestur-þýskmörk 3-3,5 Ab.Sp, Vb
Danskar krónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 35-36 Úb.Vb.
* Sb.Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 35-39 Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5 Allir
Útlán til framleiðslu
isl. krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandaríkjadalir 9-10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-býskmörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala des. 1886 stig
Byggingavísitala des. 344 stig
Byggingavísitala des. 107,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 5% 1 . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Avöxtunarbréf 1,3456
Einingabréf 1 2,484
Einingabréf 2 1,454
Einingabréf 3 1,534
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,497
Lffeyrisbréf 1.249
Markbréf 1,272
Sjóðsbréf 1 1,218
Sjóðsbréf 2 1,077
Tekjubréf 1,308
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiöir 196 kr.
Hampiöjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaöarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viöskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb=Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
ekkert kaupæði á vönim sem hækka
Þvottavélar hækka í verði um ára-
mótin. Áætluð hækkun er 15 pró-
sent. ísskápar og saumvélar hækka
lika um 15 prósent.
Mynd sem þessi kemur trauðla til
að sjást nú í desember. Hljómflutn-
ingstæki lækka í verði eftir áramót
og fólk er farið að bíða með að
kaupa nýju græjurnar.
msm
Hreinlætistæki, eins og baðker og klósett, lækka í verði eftir áramótin sem
og blöndunartæki. Sturtuklefar munu hins vegar hækka í verði að sögn
verslunarmanna.
áramótin. En hverju svara kaup-
mennirnir?
Afpantanir á teppum
Jón H. Karlsson, framkvæmda-
stjóri í Teppalandi-Dúkalandi, segir
að hann hafi fengið nokkrar afpant-
anir en ríkisstjómin hefur lofað 20
prósenta lækkun á gólfteppum og
dúkum. „Ég tel að áhrifin séu ekki
komin í ljós ennþá. En þegar á laug-
ardaginn fór fólk að hika í kaupum
sínum.“
Jón segir að hans fyrirtæki muni
bregðast við með verðlækkun strax
til aö ná fram sölu, enda blasi það
við að lager fyrirtækisins lækki í
verði hvort sem er um áramótin og
eins sé búið að leggja út í mikinn
auglýsingakostnað sem skili sér ekki
að óbreyttu.
Að sögn Jóns býst hann við að þó-
nokkrir muni kaupa teppi í desember
hvernig sem allt veltur þar sem við-
tekin venja sé hjá fólki að gera fínt
hjá sér fyrir jólin og teppaleggja eða
skipta um teppi.
Tilboð í hreinlætistæki
minnkað snariega
Einar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnsvirkjans, segir
að tilboð í hreinlætistæki hafi
minnkað snarlega. Á lista ríkis-
stjórnarinnar segir að hreinlætis-
tæki eigi að lækka um 45 prósent um
áramótin. „Þeir sem ekki geta beðið
kaupa, aðrir ætia að bíða,“ segir Ein-
ar. Hann segist þegar hafa skellt á
verðlækkun í verslun sinni upp á 15
til 25 prósent sem gilda eigi til jóla.
„Ég er að koma til móts við fólk sem
vil klára fyrir jól og getur ekki beðið
þótt verðlækkunin um áramóti blasi
við þessu fólki."
Fólk er hikandi
í hijómtækjum
Óskar Tómasson, verslunarstjóri í
Hljómbæ, segir að fyrstu viðbrögð
markaðarins sé aö lúka, bíða fram
yfir áramót. Hljómflutningstæki eiga
að lækka um 15 prósent samkvæmt
lista ríkisstjórnarinnar. „Fólk var
greinilega hikandi á laugardaginn
eftir að fréttir um verðlækkun eftir
áramót varð ljós,“ segir Óskar. Hann
segir ennfremur að viðbrögð Hljóm-
bæjar séu þau að, gefa fólki meiri
staðgreiðsluafslátt en áður, eða
hækka hann úr 5 prósentum í 10
prósent, aluk þess hafi um þriggja
prósenta gengissig krónimnar gagn-
vart þýskum mörkum að undan-
fórnu ekki verið tekið inn í verðið.
Hnrfapörin rjúka út
Sigurður Sigurðsson, eigandi
verslunarinnar Hamborgar, segir að
engar breytingar hafi orðið í sölu á
hnífapörum eða borðbúnaði og að
það sé mikil sala. Hnífapör eiga að
lækka í verði um 50 prósent sam-
kvæmt lista ríkisstjómarinnar og
borðbúnaöur um 40 prósent. „Það
var miklu betri sala á laugardaginn
en sama laugardag í fyrra,“ segir
Sigurður.
Hik í kaupum á ritvélum
Ægir Ármannsson, sölumaður hjá
Skrifstofuvélum hf„ segir að þeir
hafi orðið varir við að fólki hiki við
að kaupa ritvélar og reiknivélar. Á
listanum fræga segir aö skólaritvélar
lækki um 40 prósent. „Það er nú svo
undarleg staða á markaðnum með
skólaritvélar að þær hafa ekki verið
til í Reykjavík undanfarinn mánuð
eftir mikla sölu í haust. En fólk hikar
greinilega við að kaupa dýrari ritvél-
ar og reiknivélar, það vill bíða og sjá
hvað gerist.“
Ekkert kaupæði í ís-
skápum og eldavélum
Ingvi Ingason, forstjóri Rafha hf. í
Hafnarfirði, segir að ekkert kaupæði
hafi gripið um sig hvað snertir elda-
vélar, kæliskápa eöa þvottavélar.
Þetta þrennt á að hækka í verði um
15 prósent um áramótin samkvæmt
listanum góða. „Við höfum orðið
varir við auknar fyrirspumir en ekk-
ert meira. Mér finnst eins og fólk
haldi að allt eigi að lækka um ára-
mótin.“ Um kaup á frystikistum, en
þær eiga að lækka um 5 prósent, seg-
ir Ingvi að svarið sé einfalt:
„Þaö kaupir enginn frystikistu
núna.“
-JGH
Þetta er listinn sem tjarmala- - Þvottavélar, kæhskápar,
ráðuneytiö hefur sent frá sér og saumavélar, 15%
sýnir dæmi um breytingar á vöm-
verði samkvæmt samkomulagi Vörur sem lækka f verðl og
ríkisstjómarinnar vegna breytinga áætluð verðlækkun I pró-
á óbeinum sköttum sem taka gildi sentum
um áramótin. - Niöursoðnir og þurrkaðir
ávextir 35%
Vörur sem ekki taka verð- Fryst og niðursoöið
breytingum grænmeti, 15%
- Mjólk - Haframjöl og hveiti, 9%
~ Skyr - Sjampó, 25%
- Smjör - Tannburstar, 45%
- Dilkakjöt - Tannkrem, 25%
- Gosdrj-kkir - Ilmvötn og rakspírar, 45%
- Sápur og þvottaefni - Varahtir, 47%
- Föt og skófatnaöur, - Borðbúnaður, 40%
- Húsgögn - Hnífapör, 50%
- Áfengi og tóbak - Þurrkarar, 15%
- Bifreiöar - Sjónvörp og
- Skólavömr myndbandstæki, 11%
- Hljómflutningstæki, 15%
Vörur sem hækka í verði og - Frystikistvu, 5%
áætluð hækkun í prósentum - Skólaritvélar, 40%
- Alifugla- og svínakjöt, 5-10% - íþróttavörur, 10-40%
- Nautakjöt, 10-15% - Bifreiðavarahlutir, 20%
- Fiskur, 25% - Iljólbaröar, 20%
- Innilutt nýtt grænmeti, 7% - Hreiniætistæki, 45%
- Kaffi, 2-3% - Blöndunartæki, 30%
- Sykur, 13% - Raflagnavörur, 30%
- Brauð, 13% - Gólfteppi og dúkar, 20%
- Ostar, 15-20% (með fyrirvara) - Steypustyrktarjára, 5%
- Egg, 5-10%
- Nýir ávextir, 13% -JGH
Verðbreytingamar:
Vangaveltur kaupmanna í gær
A meðal þeirra verslunarmanna
sem DV ræddi við í gær um fyrir-
hugaðar verðbreytingar um áramót-
in og viðbrögð markaðarins núna,
þegar aðeins 15 dagar eru til jóla,
mátti heyra ýmsar vangaveltur eins
og um gengislækkun íslensku krón-
unnar um áramótin, áframhaldandi
gengislækkun dollarans, frjálsa
álagningu verslana og verðhækkanir
erlendis.
Sagt yar: „Ég tel að ekki séu öll
kurl komin til grafar um þessar verð-
breytingar. Það er líka verðbólga
erlendis og verðhækkanir koma oft
fram í pöntunum sem gerðar eru í
desember og janúar.“
Sagt var: „Ef dollarinn heldur
áfram að lækka halda Evrópumynt-
irnar líka áfram að hækka. Þetta
þýðir aftur sígandi gengi íslensku
krónunnar gagnvart myntum Evr-
ópu og það gæti vegið eitthvað upp á
móti þessari lækkun um áramótin.“
Sagt var: „Það er frjáls álagning í
landi og það er ekkert gefið að ríkis-
stjórnin geti gefið upp svona áætlað-
ar tölur um hvað hitt og þetta muni
lækka mikið í verði um áramótin."
Sagt var: „Ríkisstjómin hefur
ákveðið að lækka vörur um svo og
svo mikið en ætlar hún sér bara ekki
að ná þessu aftur til baka með gengis-
fellingu um áramótin." -JGH
Þvátt fyrir altt:
„Það er búið að vera mjög líflegt
að gera hér í Tollvömgeymslunni,
mikið afgreitt af sjónvarpstækjum
og hljómflutningstækjum, bæði í gær
og í dag. Rétt í þessu er verið að af-
greiða kjaftfullan bíl af hljómflutn-
ingstækjum," sagði Helgi Hjálmars-
son, forstjóri Tollvömgeymslunnar,
við DV í gær.
Helgi sagði að sér virtist samt að
heldur væri farið að draga úr því að
fyrirtæki leystu út þær vörur sem
kæmu til með að lækka í verði um
áramótin. „Ég held aö áhrifin komi
betur í ljós á næstu dögum þegar
viðbrögð almennings sjást betur.“
Um jólatraffíkina í Tollvöra-
geymslunni segir Helgi að þaö hafi
verið mjög mikið aö gera það sem
aferdesember. -JGH