Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
7
Fréttir
Sala Tltorsjarða:
Matsnefnd
skipuð
„Viö ætlum að kaupa þessar
jarðir en við eigum einíaldlega
ekki peninga fyrir þeim. Ef jarða-
kaupin verða ekki sundurliöuð
þá fá þeir Óttar og Páll jarðlm-
ar,“ sagði Guðmundur Alberts-
son, oddviti Kolbeinsstaða-
hrepps, en á mánudaginn skipaöi
sý8lumaðurinn í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu i matsnefnd
sem á að leggja mat á verð jarð-
anna við Hafijaröará. Er þaö gert
vegna beðni hreppanna og sam-
kvæmt ákvæði í jaröalögunum.
,3>ama á aö meta tO verðs 10
jarðir og ána sjálfa," sagöi Jón
Magnússon, fulltrúi sýslumanns,
en matsmenn, sem eru tveir, hafa
frjálsar hendur viö starf sitt.
Matsmennimir, sem skipaðir
vora, era Gísli Kjartansson, lög-
maður í Borgamesi, og Karl
Ómar Jónsson, verkfræðingur í
Reykjavík.
„Þeir eiga að leggja mat á heild-
arverð jarðanna en auðvitað
munu þeir sundurliða það því
hver jörð hefur sína sérstöku
kosti. Þeir taka þó ekki afstööu
til þess hvort seija verður jarðim-
ar sér eða í pakka,“ sagði Jón og
bætti við aö líklega þyrfii úrskurð
dómstóla um hvort þyrfti að
skfija jarðirnar í sundur við sölu
þeirra. Matsnefndin fær ekki
langan tíma til starfa því hún á
að skila niðurstööum sínum 18.
desember.
-SMJ
Rauði kross íslands:
Hjálparstofnun kirkjunnar:
„Jólasöfnunin er prófsteinninn í ár
- segir Sigríður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
„Með jólasöfnuninni kemur í ljós
hvort Hjálparstofnun kirkjunnar
endurheimtir það traust sem hún
glataði fyrir rúmu ári. Með tveimur
síðustu söfnunum kom fram að
stofnunin hefur öðlast eitthvað af
þessu trausti aftur en jólasöfnuninn
er prófsteinn okkar á þessu ári,“
sagði Sigríður Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, á blaðamannafundi
stofnunarinnar.
Arleg jólasöfnun Hjálparstofnunar
kirkjunnar með yfirskriftina Brauð
handa hungruöum heimi hófst form-
lega 6. desember og stendur fram til
jóla. Söfnunin er með svipuöu sniði
og fyrri ár en söfnunarfénu verður
að mestu varið til hjálpar bágstödd-
um í Eþíópíu en þar er nú yfirvofandi
hungursneyð. Gíróseðlum og söfn-
unarbaukum verður dreift inn á öll
heimili auk þess sem seld verða svo-
kölluð friðarkerti í öllum blómabúð-
um og kaupfélögum.
-JBj
Aðstandendur Hjálparstofnunar kirkjunnar: Séra Solveig Lára Guðmunds-
dóttir, séra Þorbjörn Hlynur Árnason, Sigríður Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri, Árni Gunnarsson og Haraldur Ólafsson.
DV-mynd Brynjar Gauti
Miðbærinn um helgar:
Endar með því að
mii
við verðum undir
„Það endar með því að við verðum
undir og einhverjir okkar slasast.
Við eram alltof fáliðaðir,“ sagði
varðstjóri hjá lögreglunni í Reykja-
vík þegar hann var spurður um þau
miklu læti sem era í miðbæ Reykja-
víkur um helgar.
Fyrir skömmu hugðist lögreglu-
- segir varðstjóri hjá lögreglunni
maður taka áfengisflösku af ungl-
ingi. Hópur unglinga réðst þá aö
lögreglumanninum og varð hann að
láta í minni pokann og hrökklast í
burtu til að forðast að verða fyrir
meiðingum.
Varðstjórinn sagði að ekki væri
gerandi að senda tvo lögreglmenn
saman í miöbæinn, þó þeir hefðu með
sér talstöð væri erfitt að koma að
lögreglubílum og ekki er tryggt að
þeir væra í næsta nágrenni.
Lögreglan er alláhyggjufull vegna
skemmtistaðarins sem opnaður
verður fljótlega í Nýja bíói. Þó sagt
sé að aldurstakmark verði tuttugu
ár, þá sýni reynslan aö erfitt er að
fylgjast með að yngrafólk sæki ekki
skemmtistaði sem ætlaðir era eldra
fólki.
Varðstjórinn sagðist ekki telja aö
miðbærinn væri hættulegur venju-
legur fólki um helgar en hann væri
varasamur. -sme
Eþíópíusöfnunin
gekk illa
„Söfnun Rauöa kross íslands vegna
yfirvofandi hungursneyöar í Eþíópíu
gekk mjög illa,“ segir Hannes Hauks-
son, framkvæmdastjóri Rauða kross
íslands. Aðeins söfnuðust um 500
þúsund kr. frá því í lok október fram
í byijun desember. Árangurinn verð-
ur því að teljast lítill. Til saman-
buröar má nefna aö 1986 gekkst
Rauði krossinn fyrir söfnun til hjálp-
ar flóttakonum og -bömum frá
Súdan og söfnuðust þá um 3 milljón-
ir. Hannes segir ástæður fyrir því
hve illa gekk margar en sú helsta sé
aö almenningur á íslandi geri sér
ekki grein fyrir hversu ástandið sé
slæmt í Eþíópíu þar sem lítið hefur
verið fiallaö um máliö í fiölmiðlum.
Enn er ástandið ekki orðið svo slæmt
að hægt sé að sýna myndir af fólki
sem er aðframkomið af hungri og
höfði söfnunin því lítið til almenn-
ings sem hefur litlar sannanir fyrir
því að neyðarástand sé að skapast.
Af þessum sökum hefur Rauði kross
íslands bragðið á það ráð að leggja
fram 500 þúsund af eigin fé til hjálpar
Eþíópíumönnum og ætlar stofnunin
að fara fram á við íslensk sfiómvöld
að þau leggi fram sömu upphæð.
-JBj
Neyöarastand er að skapast í Eþíóp-
íu en Vesturlandabúar hafa ekki enn
gert sér grein fyrir þvi.