Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Utiönd
Handtökur
vegna mót-
mæla
Mikið hefur veriö um ýmiss
konar mótmælaaögeröir í Was-
hington undanfama daga í
tengslum viö komu Mikhails
Gorbatsjov, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksms, þangað til
fundar viö Reagan Bandaríkja-
forseta. Hefur lögregluliö borgar-
innar haft i nógu að snúast til aö
hafa hemil á öllum þeim sem vilja
annaöhvort koma mótmælum á
framfæri viö sovéska leiðtogann
eöa bara nota þetta tækifæri til
þess að vekja athygli á sér og
málstað sínum.
í gær handtók lögreglan í Was-
hington mann einn sem reyndi
að ryöja sér leiö að bílalest Gor-
batsjovs þegar hann var aö koma
til sovéska sendiráðsins í Was-
hington. Maöurinn haíöi fótbolta
undir öörum liandleggnum og
þótti hinn grunsamlegasti. '
Maöurinn, sem heitir David
Steinbacker, var tluttur fyrir
dómara, ákærður fyrir ólæti á
almannafæri og sektaöur um eitt
þúsund krónur.
Þá handtók lögreglan í Was-
hington nokkra af leiötogum
bandarískra gyðinga þegar þeir
efndu til mótmæla fyrir framan
sovéska sendiráöiö. Gyðingarnir
voru aö mótmæla hlutskipti gyö-
inga í Sovétríkjunum og höfðu
þeir fáriö inn fyrir vegatálmanir
viö sendiráðið, inn á svæöi sem
þeim var óheimilt að vera á.
Gyðingarnir vorú ekki ákæröir
heldur sleppt skömmu síðar.
Á myndinni má sjá hvar gyö-
ingarnir eru handteknir.
Samningum
fagnað
Undirritun samningsins um
eyöingu meöaldrægra kjam-
orkuvopna i Evrópu var viöa
fagnað í gær. í mörgum Evrópu-
ríkjum voru hátíðarhöld meö
flugeldasýningum og kampavins-
flóði og heillaóskir bárust leiö-
togum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna víöa aö. Meðal
annars var samningunum fagnað
mjög meöal stjómvalda í Austur-
Evrópuríkjum og forráðamenn
Atlantshafsbandalagsins fógn-
uðu þeim einnig.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
hóp unglinga sem safnasl haföi
saman í Moskvu til aö fylgjast
meö undirritun samningsins og
fagna henni.
Ólafur Anaison, DV, Washington;
Það var mikil stemning í austursal
Hvíta hússins þegar Ronald Reagan,
forseti Bandaríkjanna, og Mikhail
Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna,
gengu í salinn til aö skrifa undir
fyrsta samkomulag sögunnar sem
felur í sér fækkun á vopnum. Þjóð-
söngur Sovétríkjanna var leikinn og
einhver sérstakur hátíöleiki lá í loft-
inu. Tvö hundruð og fimmtíu manns,
bæöi sovéskir og bandarískir, voru
viöstaddir.
Leiðtogarnir fluttu stutt ávörp.
Reagan sagöi að þegar hann hefði
fyrst sett fram tillögu um núlllausn-
ina hefðu margir talið hana byggöa
á óskhyggju. Aörir hefðu talið hana
áróðursblað og enn aðrir sagt að hún
væri óraunhæf og gæti aldrei oröið
að veruleika. Nú væri þessi
óraunsæja sýn hins vegar oröin að
veruleika.
Reagan endurtók gamalt sovéskt
heilræði sem hann hafði látið fara frá
sér á blaðamannafundi í síðustu
viku: „Doveryai no peroveryai" sem
þýðir treystu en sannreyndu. Þá
greip Gorbatsjov fram í fyrir forset-
anum og sagði: „Þetta segir þú á
hverjum einasta fundi,“ og létu við-
staddir þá í ljós fognuð sinn. Reagan
bætti þá við: „Mér líkar þetta svo
vel.“
Reagan lauk ávarpi sínum með því
að segja að Gorbatsjov ætti skiliö að
fá góða hvíld og átti þar við að Sovét-
leiðtoginn hefði lagt hart að sér til
að gera afvopnunarsamkomulagið
mögulegt.
Gorbatsjov sagði að nú væri rétt að
þeir verðlaunuðu sig með því að taka
til starfa. Sagðist hann vona að 8.
desember 1987 yrði dagur sem minnst
yrði í sögubókum, dagur sem mark-
aði skil milli ógnar kjamorkustríðs
annars vegar og tímabils þar sem
mannkynið afvopnaðist hins vegar.
Að þessum oröum sögðum settust
leiðtogamir að sáttaborði og skrif-
uðu undir tímamótasamninginn.
Þurfti hvor þeirra að skrifa nafnið
sitt sextán sinnum.
Að því búnu gengu þeir Ronald
Reagan og Mikhail Gorbatsjov inn í
Leiðtogarnir við sáttaborð við undirritun afvopnunarsamkomulagsins.
hátíöarmatsal Hvíta hússins. Þaðan
ávörpuðu þeir þjóðir Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna í sjónvarpsútsend-
ingu sem sýnd var beint í báðum
löndum.
í ávarpi sínu sagði Reagan að al-
þjóðlegt traust og öryggi gæti ekki
náðst án opinna þjóðfélaga sem
veittu fijálsu upplýsingastreymi,
skoðanafrelsi, prentfrelsi og ferða-
frelsi. Reagan sagðist ætla að ræöa
um mannréttindamál og málefni
ákveðinna heimshluta á fundi sínum
með Gorbatsjov.
Gorbatsjov sagði í sínu ávarpi aö
áhrif þessa samnings næöu langt út
fyrir það sem í honum stæði og að
þetta væri einungis byijunin á alls-
heijar kjarnorkuafvopnun.
Gorbatsjov sagði að í Reykjavík
heföi verið höggvið á þann hnút sem
stóð í vegi fyrir kjamorkuafvopnun
og það heföi veriö sá árangur, sem
þar náðist, sem hefði gert það mögu-
legt að ná þessu samkomulági nú og
einnig því sem á eftir mynpi fylgja.
Sagði Gorbatsjov Sovétmenn vera
vongóða um að þegar forseti Banda-
ríkjanna heimsækir Sovétríkin á
næsta ári muni nást samningur um
að eytt verði helmingi allra lang-
drægra kjarnorkueldflauga.
Gorbatsjov sagði ennfremur að
möguleiki væri á samkomulagi um
verulegan niðurskurö á heföbundn-
um herafla og vopnum í Evrópu og
ástæða væri til að hafa áhyggjur af
auknum umsvifum á því sviði.
Þetta var ef til vill athyglisverðasta
yfirlýsing gærdagsins. Með þessu
opnaði Gorbatsjov dymar fyrir því
að raunverulega sé hægt að eyða öll-
Simamynd Reuter
um kjamorkuvopnum. Þáð sem
hingað fil hefur komið í veg fyrir að
Bandaríkjamenn gætu samþykkt
allsheijar kjamorkuafvopmm hafa
verið yfirburðir Sovétmanna í Evr-
ópu á sviði hefðbundinna vopna.
Gorbatsjov kom inn á mannrétt-
indamál í ávarpi sínu. Hann sagði
að fólk vildi búa í veröld sem tryggði
öflum rétt til lífs, frelsis og hamingju
og að raunveruleg mannréttindi
yrðu að vera tryggð. Gorbatsjov
sagði að fólk vildi búa í heimi sem
væri lýðræðislegur og frjáls, þar sem
hver þjóð gæti skipað sínum málum
að vild án utanaðkomandi afskipta.
Hann sagði að þær þjóðfélagsbreyt-
ingar í Sovétríkjunum sem kenndar
eru við perestroika eða endurbætur
miðuðu að því að gera slíka veröld
að veruleika.
Sögulegt samkomu-
lag undirritað
Hagfræði rekur þá áfram
Ólafiir Amaison, DV, Waahington;
Nú þegar skrifað hefur verið undir
samning um eyðingu aflra meðal-
drægra og skammdrægra eldflauga
er eðlilegt að menn spyiji sig hvað
valdi því að stórveldin hafi í fyrsta
skipti orðið ásátt um að grisja í
vopnabúrum sínum.
Ymsir telja að hörð afstaða Reagan-
stjómarinnar í vígbúnaðarmálum
hafl neytt Sovétmenn aö samninga-
borðinu og leitt til þessa samkomu-
lags. Aðrir telja að nýir menn og
breytt viðhorf í Kreml hafi ratt
brautina. Það er nokkuð til í báðum
þessum sjónarmiðum og þau eiga
bæði rétt á sér. Líklega hefði sá ár-
angur, sem nú hefur náðst, ekki
orðið til nema vegna þess að beggja
þessara þátta hefur notið viö.
Það verður hins vegar ljóst ef kafað
er dýpra ofan í hlutina aö afvopnun-
arscúnkomulagið, sem nú hefur
náðst, hefur flarska lítið með her- og
vamarmál að gera.
í gær skrifuðu Ronald Reagan og
Mikhail Gorbatsjov undir samkomu-
lag sem felur það í sér aö bæöi
Bandaríkin og Sovétríkin geta fært
fjármuni frá sviði vamarmála yfir á
önnur svið efnahagslifsins.
Vamarmál eru ein helsta ástæöa
þess mikla fjárlagahalla sem Banda-
ríkin hafa búið við undanfarin ár.
Eina raunhæfa leiðin til að draga
verulega úr fjárlagahalla Bandaríkj-
anna án þess að það raski um of
efnahagslífinu er að draga úr útgjöld-
um til vamarmála. Það er hins vegar
ekki hægt ef vígbúnaðarkapphlaupið
geisar áfram af fullum krafti.
Þótt hermál taki sannarlega sinn
toll hjá Bandaríkjamönnum em þaö
þó smámunir á móti því sem er hjá
Sovétmönnum. Fjárlög Sovétríkj-
anna em ekki nema tæpur helming-
ur af fjárlögum Bandaríkjanna. Því
munar mun meira um hveija krónu
sem fer í vígbúnað þar heldur en í
Bandaríkjunum. Ástandið er ennþá
þannig aö lífskjör fólks em afleit,
almennur matar- og vömskortur.
Gorbatsjov vill breyta ástandinu
og bæta hag borgara sinna. Það getur
hann ekki nema með því að taka
peninga frá vamarmálum. Þess
vegna hefur nú í fyrsta skipti verið
hægt að fækka kjarnorkuvopnum í
heiminum.
Það er af þessari sömu ástæðu að
menn geta verið nokkuð bjartsýnir á
að í náinni framtíð takist að fækka
kjamorkuvopnum enn frekar og
jafnvel eyða þeim með öflu.
Leiðtogar Sovétríkjanna em ekki
allt í einu orðnir svona góðir menn
heldur er það hrein hagfræði sem
rekur þá áfram. Niðurstaðan getur
orðið betri og ömggari heimur með
bættan hag fyrir alla.