Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Blaðsíða 9
1
Vorumað
taka upp
kjóla, dress í
miklu úrvali
og margt
fleira.
TÍSKUVERSLUNIN
YLFA
KAUPGARÐI
KÓPAVOGI
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Utlönd
Sjúkraliöar aka einum hinna særðu út úr byggingunni. Sfmamynd Reuter
Kreditkorta-
tímabil
Myrti átta
Maður vopnaður aflmiMum riíHi
skaut til bana átta manns í skrif-
stofubyggingu í Melboume í Ástralíu
í gær og framdi síðan sjálfsmorð með
þvi að stökkva niður af tíundu hæð
hússins.
Lögreglan í Melbourne segir aö
maðurinn hafi farið um nokkrar
hæðir byggingarinnar og hafi hann
skotið á hvern þann sem á vegi hans
varð. Særði maðurinn fimm manns,
auk þeirra sem létu lifið. Hann not-
aði skotfæri frá ástralska hernum.
Þetta er í annað sinn á aðeins fjór-
um mánuðum sem fjöldamorð eru
framin í Melbourne. í ágústmánuði
gekk fyrrum Iiðsforingjaefni úrástr-
alska hernum berserksgang í borg-
inni, myrti sjö manns og særði
nitján.
Ekki er vitað hvað orsakaði fjölda-
morðin í borginni í gær. í fyrstu var
talið að maðurinn hefði upphaflega
ætlað að ræna lánastofnun í húsinu
en lögreglan hefur alfarið hafnað
þeirri kenningu.
Ljóst er þó að íjöldamorðinginn
lenti í deilu við kunningja sinn á
skrifstofu lánastofnunarinnar, sem
er á fimmtu hæð hússins. Hóf hann
þar skothríðina og virðist hafa misst
gjörsamlega stjórn á sér.
Ejórir af hinum myrtu voru í lyftu
í húsinu, aðrir voru inni á skrifstof-
um og göngum hússins.
Um klukkustund eftir að skothríð-
in hófst braut maðurinn glugga á
tíundu hæð hússins og lét sig falla
út þrátt fyrir að fólk, sem komið var
að honum, reyndi að halda honum
inni.
Eitt fórnarlamba morðingjans.
Símamynd Reuter
Sjomenn sigla
á eigin ábyrgð
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmarvnahöfn:
Nils Wilhjelm, iðnaðarráðherra
Dana, hefur beðið samtök skipafé-
laganna í Danmörku um tryggingu
fyrir því að danskir sjómenn verði
ekki neyddir til að sigla inn í Pers-
aflóa. Segir ráðherrann að danska
sjómenn megi ekki setja á svartan
lista ef þeir vilja í land áður en siglt
er inn á stríðssvæði eins og Persaf-
lóa.
Viðbrögð ráðherrans koma í kjöl-
far íranskrar árásar á olíuflutn-
ingaskipið Estelle Mærsk á
sunnudag þar sem einn danskur
sjómaður lét lífið og ítali særðist.
Sjómannasambandið brást hart við
og krefst banns við siglingum dan-
skra sjómanna á Persaflóa.
Talsmaður sambandsins, sem
einnig situr á þingi fyrir samein-
ingarstefnu, gekk svo langt að kalla
iðnaðarráðherrann morðingja þar
sem hann hefði ekki þegar staðið
fyrir slíku banni.
Tók ráðherrann ásakanirnar
ekki alvarlega en fór hins vegar
strax að rannsaka ásakanir sjó-
mannasambandsins gegn skipafé-
lögunum þess eðlis að sjómenn
væru settir á svartan lista og fengju
ekki vinnu aftur ef þeir neituðu að
sigla með inn í Persaflóa. Sjómenn-
irnir eiga í dag rétt á að fara í land
áður en siglt er inn í Persaflóa þar
sem slíkt tengist ákveðinni áhættu.
Vill iðnaöarráðherrann að sjó-
mönnum megi vera fullkomlega
frjálst að velja í slíkum tilfellum
án hættu á að vera settir á svartan
lista. Þeir sem sigla með inn í Pers-
aflóa fá hátt álag á laun sín vegna
hættunnar enda er siglingin þá á
eigin ábyrgð.
Jafnaðarmenn hafa svipaðar
hugmyndir uppi en vilja ekki frek-
ar en iönaðarráðherrann setja
bann við siglingum Dana á Persaf-
lóa.
Sjómannasamböndin stungu
mótmælabréfi inn um lúguna á ír-
anska sendiráðinu eftir árásina þar
sem ekki var opnað fyrir þeim.
Krefjast samböndin nákvæmari
skýringar á árás írana á friðsam-
legt skip á alþjóðahafsvæði.
Vorumað
taka upp
kjóla, dress í
miklu úrvali
og margt
fleira.
TÍSKUVERSLUNIN
YKKAR
KLEEFARSELI26
HJÁ SELJASKÓLA
NÝTT KREDITKORTATÍMABIL