Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
11
Utlönd
Raisa Gorbatsjova umkringd börnum í breskum skóla í gær. Enn einn al-
mannatengslasigurinn í höfn. Símamynd Reuter
Raisa vinsæl
en óræð
Raisa Gorbatsjova, eiginkona aðal-
ritara sovéska kommúnistaflokks-
ins, sem nú er í Washington í fylgd
með manni sínum, þykir óræö í
meira lagi. Lítið sem ekkert er vitað
um hvað frúin ætlar að gera í Was-
hington þótt ljóst sé að hún ætlar
ekki að eyða of miklum tíma með
Nancy Reagan, forsetafrú þar.
Eiginkonurnar munu báðar verða
með eiginmönnum sínum við fjórar
athafnir í tengslum við leiðtogafund-
inn. Upphafsathöfn, lokaathöfn, og
tvö kvöldverðarboð. Þá ætlar Nancy
að ganga um Hvíta húsið með Raisu
og sýna henni þar innanstokksmuni.
Að öðru leyti er ekki ætlunin að
frúrnar hittist neitt meðan á leið-
togafundinum stendur,
Slúðurdálkahöfundar hafa ieitt
getum að því að Nancy Reagan sé í
raun lítið um Raisu Gorbatsjovu gef-
iö. Tíu ára aldursmunur er á þeim
tveim. Raisa mun vera fimmtíu og
fimm ára en Nancy er talin sextíu
og sex ára þótt hún sjálf segist vera
sextíu og fjögurra.
Þá hefur Raisa til að bera glæsileik
og „sjarrna" sem hefur áunnið henni
miklar vinsældir á Vesturlöndum og
er tahð að Nancy þyki hún sjálf falla
heldur illilega í skuggann af þeirri
sovésku.
Sumir telja að Nancy sé enn reið
frú Gorbatsjovu fyrir að hafa ákveðið
á síðustu stundu að fara með eigin-
manni sínum til fundarins í Reykja-
vik á síðasta ári. Þar átti Raisa hug
og hjarta bæði almennings og fjöl-
miðla og segja sumir af samstarfs-
mönnum bandarísku forsetafrúar-
innar að henni hafi þótt illa að sér
vegið þar.
Raisa hóf ferðina til Washington
með dæmigerðum hætti. Meðan
bóndi hennar hjalaði við Margaret
Thatcher í London heimsótti hún
skóla í nágrenninu og vann þar enn
einn sigur sinn í almannatengslum.
Þeir sem til þekkja segja nú að
Nancy sé orðið verulega.heitt í hamsi
út af vinsældum sovésku frúarinnar
en hins vegar þýði einfaldlega ekki
fyrir hana að ganga til samkeppni
því að hún hafl ekki sömu persónu-
töfra og sú sovéska.
JÓLALJÓS
40 Ijósa útisería Hvít — Rauð — Blá
Hver sería er 40 ljós og spennubreytir.
Hægt er að nota tvær seríur við hvem spennubreyti.
Vönduð sería og hættulaus.
Samþykkt af Rafmagnseftirhti ríkisins.
Verð: i sería og spennubreytir kr. 1.800,
aukasería kr. 900.
Rafkaup
Suðurlandsbraut 4
108 Reykjavík
Sími 681518
ÚTSÖLUSTAÐIR:
ALLAR HELSTU RAFTÆKJAVERSLANIR
SVÖRTU AUGUN
Erik Nerlöe
TÍNA
Eva Steen
GÓÐI HIRÐIRINN
EIse-Marie Nohr
ANGELA ÁST OG HAMINGJA
Theresa Charles Barbara Cartland
Hin svörtu augu unga sígaun-
ans vöktu þrá hennar eftir
frelsi — frelsi sem hún hafði
lítið kynnst áður. Og ljúfir
tónar fiðlu hans ollu því, að
hún ákvað að flýja burtu með
honum. En vissi hún hvert
hún var að flýja? Nei, hún var
of ung og reynslulítil til að
vita það. Hún skildi ekki að
blind ást hennar leiddi hana
aðeins út í ófyrirsjáanlegar
hættur.
Hún er ung og fögur og hefur
kynnst manni sem hún elskar.
Framtíðin blasir við þeim„
en örlögin verða til þess að
skilja þau. Hún sér sig
nauðbeygða til að hverfa úr
lffi hans. Með fegurð sinni og
miklum hæfileikum sínum
á listskautum nær hún langt,
en þegar best gengur upp-
götvast að hún er haldin
banvænum sjúkdómi. Einmitt
þá kemur maðurinn sem hún
elskar aftur inn í líf hennar.
Hún hvarf og ekkert fréttist af
henni. Loks var hún talin af
og álitin dáin. Dag einn birtist
hún í sendiráði í Thailandi,
aðframkomin og þungt haldin
af hitasótt, og rnundi ekki
hvað hún hét. Með góðri
læknishjálp nær hún sér fljótt,
og nokkru seinna er hún á
leið heim. Hún er full af lífs-
þrótti og hlakkar til að sjá
aftur manninn, sem hún
elskar og hún hafði gifst stuttu
áður en hún varð fyrir áfall-
inu. En fjögur ár eru langur
tími, og maður hennar hafði
fyrir löngu talið hana af.
SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SE
Angela Smith sækir um
læknisstarf í bænum Whey-
stone. Þar ætlar hún einnig að
reyna að jafna sig eftir slys,
sem hún lenti í, í hreinu
sveitalofti og kyrrlátu um-
hverfi. Hún fær starfið, en
henni er vantreyst sem lækni
og litin hornauga sem persóna
í fyrstu. En smátt og smátt
vinnur hún traust og álit
fóiks. Angela missti mann
sinn og dóttur í bflslysi og líf
hennar hefur verið tómlegt
síðan slysið varð. En er hún
kynnist Mikael Traymond, ró-
legum og yfirveguðum lækni,
vakna tilfinningar hennar á
ný.
Aðeins tvær persónur bjargast
í land, þegar skipið brotnar í
klettunum við strönd Ferrara,
ævintýramaðurinn Sir Harvey
Drake og hin fagra Paolina
Mansfield. Þau voru bæði á
leið til Feneyja og-faðir
Paolinu fórst með skipinu. Sir
Harvey Drake stingur upp á
því við hana, að hún ferðist
með honum sem systir hans
áfram til Feneyja. Þar segist
hann auðveldlega munu geta
fundið ríkan eiginmann
handa henni — og um leið
ætlar hann að tryggja sína
eigin framtíð. Paolina fellst á
hugmyndina, og framundan
er ævintýralegt og viðburða-
ríkt ferðalag.
PRISMA