Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Neytendur
Smákökubaksturinn gefur
okkur Jólailm í húsið
Nokkrar „sortir“ af Ijúffengum jólasmákökum.
Smákökubakstur tilheyrir jólun-
um eins og svo margt annað
umstang. Margir ljúka gífurlegum
bakstri af löngu fyrir jól, geyma
jafnvel kökurnar í frystikistunni
þangað til slagurinn hefst. Aðrir
líta ekki á smákökubakstur sem
einhvers k'onar leiðinlega kvöð
heldur baka til þess að gæða sér
og sínum á einhveiju góðgæti í til-
efni jólanna. Það gefur svo sannar-
lega jólalega lykt í húsið þegar
verið er að baka brúnar sýrópskök-
ur. Það ætti því ekki að gera til
þótt smákökur séu bakaðar þegar
jólin eru á næsta leiti. En hafa verð-
ur einhvem hemil á því hve mikið
er bakað. Það er ekkert gaman að
ætla að gera sér dagamun með
smákökum þegar allir eru orðnir
hundleiðir á þeim.
Fjölskyldur eiga líka sínar hefð-
bundnu jólasmákökur þar sem
bakað er eftir sömu uppskriftunum
ár eftir ár. En hérna koma nokkrar
sem gæti verið gaman að prófa:
Haframjölskökur
100 g smjörl.
100 g ljós púðursykur %
rifinn börkur af einni appelsínu
rifmn bökur af einni sítrónu
50 g hveiti
225 g haframjöl
örlítið natrón
salt
1 eggjarauða
Hrærið smjör, sykur og rifna börk-
inn þar til hræran verður ljós.
Hrærið svo eggjarauðuna saman
við: Bætið svo þurrefnunum út í
og hræriö þar til deigið verður sam-
fellt. Hnoðið létt og fletjið þunnt
út. Stingið út kringlóttar kökur og
raðið þeim á smurða plötu með
góðu millibili. Bakið við 180°C í ca
10-15 mín. Látið kökurnar kólna
aðeins á plötunni áður en þær eru
teknar af og kældar á kökugrind.
Salthnetukökur
50 g smjörl.
50 g púðursykur
50 g saltaðar, gróft saxaðar jarð-
hnetur
75 g hveiti
örlítið lyftiduft
Hrærið smjörl. og sykur þar til
hræran verður létt og ljós. Blandið
þá þurrefnunum saman við og
hrærið þar til deigið verður þétt.
Búið þá til litlar kúlur sem þrýst
er á með gafíli. Látið á smurða
plötu með góðu millibili. Þrýstið á
þær með gafíli og bakið við ca 180°C
hita.
Möndlukökur
3 stífþeyttar eggjahvítur
175 g strásykur
225 g möndluflögur
Skreytt með bræddu suðusúkkul-
aði
Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið
sykrinum út í smátt og smátt. Bæ-
tið svo möndlunum út í.. Setjið
deigið í litla hrauka á plötuna sem
klædd hefur verið álpappír. Bakið
kökumar við ca 160° C hita í 35
mín. Þegar kökurnar eru orðnar
kaldar er bráðnu suðusúkkulaði
sprautað úr sprautupoka með mjó-
um stút ofan á kökumar.
Piparkökur
2 dl möndlur
200 g smjörl.
2 dl sykur
1 dl síróp
2 tsk. engifer
2 tsk. kanill
2 tsk. negull
1 tsk. natrón
ca 350 g hveiti
Takið hýðið af möndlunum, gott
að láta þær í skál með sjóðandi
vatni. Þá losnar hýðið strax af
þeim. Saxið þær síðan. Geymið.
Hrærið sykur og smjörlíki þar til
það er ljóst og létt. Látið þá síróp,
krydd og natrón út í. Bætið þá
möndlunum út í ög meiri hluta
hveitisins.
Látið þá deigið á borðið og hnoðið
það þar til það verður létt og slepp-
ir borðinu. Skiptið því til helminga
og búið til aflangar pylsur. Vefjið
þeim inn í álpapppír og geymið á
köldum stað til næsta dags.
Skerið þær þá í þunnar sneiðar
og bakið á bökunarpappír. Látið
plötuna vera í miðjum ofni, hitinn
ca 175°C, bökunartími ca 10 mín.
Látið aðeins kólna á plötunni áður
en kökurnar eru teknar af henni.
Við látum þetta duga og óskum
ykkur góðrar skemmtunar.
-A.Bj.
„Tískufatnaður unglinga
bæði ómerkilegur og dýr“
- segir móðir sem fór í tískuverslanir með dóttur sinni
Langbest er að reyna að læra hvað hlutirnir kosta og haga síðan inn-
kaupunum eftir því hvar verðið er hagstæðast. Það getur kostað að
fara þurfi í fleiri en eina verslun þegar mikil innkaup eru gerð. En það
getur borgað sig. DV-mynd GVA
Umtalsverður
verðmunur
Unglingarnir þurfa á leiðbeiningiun
að halda til þess aö verða kröfuharð-
ir neytendur.
„Fyrir nokkru fór ég með dóttur
minni í nokkrar svokallaðar tísku-
verslanir við Laugaveginn. Það gekk
alveg fram af mér hve ómerkilegur
hann er, fatnaðurinn sem unghngun-
um er boðið upp á, og það hka á
okurverði," sagði kona nokkur sem
lýsti ánægju sinni með umfjöllun
okkar á neytendasíðunni um bama-
fatnað nú nýlega. Vhdi konan koma
á framfæri ósk um að við fjölluðum
á svipaðan hátt um fatnað fyrir ungl-
ingana. Verður það tekið th athugun-
ar.
„Það virðist ekki skipta neinu máh
hvemig þessi fatnaður er, aht virðist
seljast, hversu ómerkhegt sem það
er. Saumaskapurinn var alveg
hræðhegur á mörgum og allflestum
þessum búðarfötum. Það myndi eng-
in „saumakona" voga sér að láta
svona frá sér. Á sumum flíkunum
gat munað mörgum cm á faldinum
og sums staðar var hann ósaumaður,
og auðvitað allt gert í vél. Á einu
phsi, sem var með klauf að aftan,
munaði einum 2 cm á stykkjunum
og auðvitað er engin fhk straujuð,“
sagði konan.
Hún sagði einnig að sér þætti þessi
fatnaður í dýrari kantinum þegar t.d.
ófóðrað phs kostaði um og yfir 2 þús-
und kr., það væri ekki nema klukku-
tíma saumaskapur á flíkinni.
Blússur, algerlega ómerktar og hla
saumaðar, kostuðu á 4 þúsund kr.
„Og að selja unglingum fatnað, sem
ekki þohr þvott, er auðvitað alveg
fyrir neðan allar hellur. En aht virð-
ist þetta seljast. Unghngamir, og hér
á ég við menntaskólakrakka, hafa
geysimikla peninga mihi handanna.
Þeir vinna mikið með skólanum og
eyða svo peningunum sínum í þenn-
an tískufatnð.
Afgreiðslufólkið í þessum verslun-
um er svo uppáþrengjandi aö það er
varla hægt að komast út frá því án
þess að kaupa eitthvað. Ég kynntist
því af eigin raun,“ sagði konan.
„Svo veit afgreiðslufólkið næsta ht-
ið um þennan fatnað, sem það er að
selja, ekki einu sinni hvaðan vörum-
ar em. Og í mörgum tilfehum vom
þær ahsendis ómerktar og auðvitað
engar upplýsingar um meðferð á flík-
inni. Svo er kannski farið.í hana einu
sinni og síöan aldrei meir.“
Viðmælandi okkai’ sagðist telja að
hér á landi væri boðið upp á vönduð
barnafót og einnig vandaðan kven-
fatnað. En tískufatnaðurinn fyrir
unghngana væri hér bæði ómerki-
legur og dýr, sagöi hún.
Ótrúlega margar tískuverslanir
em í Reykjavík, miðað við fólks-
fjölda, og víst er um þaö að víða eru
á boðstólum óvandaöar vörar og dýr-
ar. En auðvitað eiga skólakrakkar
og óharðnaðir unglingar erfitt með
að átta sig á hvort um er að ræða
ómerkhegan fatnað og hla saumað-
an, bara ef fötin em „smart“ að
þeirra dómi. Langsamlega flestir
unghngar fara án leiösagnar fullorð-
inna 1 fatakaupaleiðangra og láta
stjómast af því sem þeim er leiðbeint
um í verslunum.
Dóttir viðmælanda okkar er sann-
arlega heppin að eiga móður sem
hefur tækifæri og áhuga á að kenna
henni að velja og hafna í fataverslun-
um og fara vel með þá fjármuni sem
hún hefur aflað sér með mikihi
vinnu.
Verömunur getur verið umtals-
verður innan sömu vömmerkja.
Einnig getur munað á milh vöru-
merkja en þá getur einnig verið um
að ræða annan mismun. Á það er
enginn dómur lagöur hér. Við
greinum aðeins frá hæsta og lægsta
verði sem kom fram í verðkönnun
Verðlagsstofnunar í október.
Fólk er hvatt til þess að kynna
Plastfilma Rul-let 15 m x 30 cm
sér verð áður en kaupin em gerð
og bera saman. Ef gaumur er gef-
inn að verðinu kemur það smám
saman upp í vana og menn fara að
taka eftir því ef um einhvem vem-
legan verðmun er að ræða.
T.d. er hæsta verð á plastfilmu
30x30 cm 114 kr„ en sams konar
fhmu má fá á 89 kr. Þarna munar
28%, sem er hreint ekki lítið. -A.Bj.
Meðal- Lægsta Hæsta Mismunur
verð verð verð f %
Móðir hefur lítið átit á þeim tískufatnaði sem fáanlegur er á unglinga
61.11 58.00 64.00 10,3%
Plastfilma Rul-let 30 m x 30 cm 90.82 81.50 99.80 22,5%
Plastfilma Vita Wrap 15 m x 30 cm 69.05 61.00 79.00 29,5%
Plastfilma Vita Wrap 30 m x 30 cm 100.40 89.00 114.00 28,1%
-A.Bj.