Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
13
Neytendur
Fleira matur en feitt ket
Nýtt framvarp ríkisstjómarinnar
um breytingar á tollum og söluskatti
hefur vakið mikla athygli. Nái frum-
varpið fram að ganga munu ýmis
matvæh hækka um allt að 25%.
Mesta athygli hlýtur þó að vekja að
meðal þessara matvæla era brauð,
grænmeti, ávextir og fiskur, en gos-
drykkir standa í stað, sem og
sælgæti. Þá munu niðursuðuvörar
lækka í verði.
Kindakjöt og smjör í hvert mál
Eitt atriði frumvarpsins er og mjög
umdeilt en það er sú ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að kindakjöt, mjólk,
smjör og nú síðast ostur séu mikil-
vægustu neysluvörar heimilanna.
Þessi ákvörðun stangast verulega á
við manneldismarkmið fyrir íslend-
inga en í þriðju grein markmiðanna
segir svo:
„Fituneysla fari ekki yfir 35% af
heildarorkunni, og hlutfallið milli
mettaðrar og ómettaðrar fitu verði
aukið frá því sem nú er í allt aö
0,4.
Til þess að ná þessu markmiði má
draga úr neyslu kjötfitu, mjólkurfitu
og harðrar jurtafeiti en nota þess í
stað mjúka fitu. Gott er að auka
neyslu á fiski, fiskolíum og annarri
mjúkri fitu.“ Leturbreyting DV.
Af framansögðu er greinilegt að
ríkisstjómin hefur ekki haft þessi
markmið að leiðarljósi. Við spurðum
Jón Gíslason, formann Manneldis-
félags Reykjavíkur, um þetta:
„Það stenst engan veginn að mjólk,
smjör og kjöt séu mikilvægustu
fæðutegundirnar. í manneldismark-
miöum er lögð áhersla á önnur
matvæli. Það vekur furðu aö þessar
vörur skulu hækka í verði, þetta er
greinilega ekki gert út frá manneldis-
markmiðum, hér eru augljóslega
önnur sjónarmið á ferðinni.
Það er einnig stórfurðulegt að gos-
drykkir skuli standa í stað og að
sykur skuli aðeins hækka um 13%.
Einnig sýnist mér að sælgæti sé
flokkað meö gosdrykkjum sem gerir
það að verkum að það mun ekki
hækka í verði heldur jafnvel
lækka.“
Gosdrykkir og sælgæti
Já, sykur hækkar aðeins um 13%
og er þó ein af fáum vörategundum
sem fást á lágu verði hér á landi. Þó
vekur einna mesta furðu að gos-
drykkir og sælgæti skuli ekki hækka
neitt. Samkvæmt tölum frá Tann-
verndarráði er sykumeysla hér á
landi með því mesta sem þekkist,
enda sykur jafnvel ódýrari hér en á
Kúbu, þar sem hann er framleiddur.
Enda hefur enginn tollur verið á
sykri, ekkert vöragjald og ekkert af-
greiðslugjald til þessa.
í greinargerð frá Tannverndarráði
kemur fram að einn mikilvægasti
þátturinn í forvamarstarfi gegn
tannskemmdum er rétt fæðuval og
þá að sykumeysla sé sem minnst og
þar með neysla gosdrykkja og sæl-
gætis. Síðastíiðið ár varði heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið tveimur og
hálfri milljón króna til forvamar-
starfs og var áætíað að sú fjárhæð
yrði tvöfólduð næsta ár. Við spurð-
um Magnús R. Gíslason tannlækni
um áhrif þessara breytinga á for-
vamarstarf í tannlækningum en
hann situr í Tannvemdarráði:
„Við erum fegnir ef sykur hækkar
eitthvað í verði og eins er til bóta ef
tannburstar og tannkrem lækka. Það
er sannað að bein fylgni er milli syk-
umeyslu og tannskemmda og höfum
við því lagt til að sykurverð verði
hækkað. Samkvæmt þessu þá mun
sykur hækka um 13% og verður því
enn á lægra verði hér en á annars
staðar á Norðurlöndum.
Við erum ekki hrifnir af gosdrykkj-
um og sælgæti og það er ekki í
samræmi við stefnu okkar að ávextir
og grænmeti sé hækkað en gos-
drykkir og sælgæti ekki.“
Jurtaætur skattlagðar
Einn er sá hópur manna sem hvað
harðasta útreið fær ef þessi breyting
nær fram að ganga en það era nátt-
úralækningamenn. Sérstaða þeirra
felst í því að þeir neyta ekki þeirra
matvæla sem ríkisstjómin hefur
ákveðið að séu nauðsynlegustu
fæðutegundirnar. DV hafði tal af
Jónasi Bjarnasyni, en hann er for-
seti Náttúrulækningafélags íslands:
„Ég álít að hér sé að hluta til stefnt
í öfuga átt við manneldismarkmið,
og stefnu okkar félags.
Þetta á sérílagi við um hækkun á
grænmeti en augljóslega er gert ráð
fyrir verulegri hækkun tolla á því.
Með framvarpinu fylgdi umsögn
frá fjármálaráðherra um að meö
þessum breytingum yrðu mikilvæg-
ustu matvæli greidd niður.
U pplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
i Kostnaður í nóvember 1987:
Matur og hreinlætisvörur kr.
1 Annað kr.
Alls kr.
DV
Skilgreiningin á mikilvægustu kindakjöt og mjólkurafurðir. Mikil- Þetta eru þau matvæli sem aUar
matvælum er í meira lagi vafasöm vægustu matvælin era að sjálfsögðu heilsufarsráðleggingar byggjast á.“
ef mikilvægustu matvæhn era grænmeti, ávextir, mjólk og brauð. -PLP
Jessop er stærsta ljósmyndavöru-
verslunarkeðja í Bretlandi.
iHESSOP
Hefur nú sett á markað myndavél
sem hentar öllum.
. Kynningarverð frá
MVv 2.950
•með 36 mynda litfilmu og rafhlöðum.
Mjög skýrar myndir.
2ja ára ábyrgð.
3 litir: svart, svart/silfrað, svart/rautt.
Hlífðartaska kr. 290.
Takmarkað magn fyrir jól.
Þetta er góð jólagjöf.
Pöntunarsími fyrir póstsendingar 91-651414 og 623535. Símapantanir
alla daga kl. 9—22. Póstversl. Príma, box 63, 222 Hafnarfjörður
FÓTÓHÚSIÐ
Bankastræti, sími 21556.
Opið kl. 9-18, laugardaga 10-18.
S VISA S EUROCARD
Quick
Srhf 1
Með: sjálfvirkri
filmufærslu
(autowind)
föstum fókus
innb. flassi
#
ól
36 mynda litfilmu
rafhlöðum