Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
17
Lesendur
Bréfritari vill láta sjónvarpa frá þingfundum.
Vinnulag alþingismanna:
Tillögur til úrfoóta
Guðrún Jóhannesdóttir skrifar:
Ég vil þakka Svövu Jónsdóttur
skelegga grein hennar í DV hinn 1.
des. um slælega skipulagða vinnu
alþingismanna, löng frí þeirra á
sumrum og vetrum, svo sem jólafrí,
sem virðast „opin í báða enda“, o.s.
frv.
En varðandi það að þingmenn
mæti illa á fundum í þinginu, sem.
þeir þó þiggja rífleg laun fyrir, kann
ég einfalt ráö til úrbóta. Það er að
sjónvarpa beint úr þinghúsinu þá
daga sem fundir eru. Þetta ráð myndi
örugglega duga því reynslan hefur
sýnt að þingmenn mæta alltaf éf þeir
vita af sjónvarpsvélum í nánd, enda
allra manna hégómlegastir og telja
sig öðrum mönnum álitlegri.
Nú tel ég víst að margir myndu
mótmæla og álíta þetta ráð of dýru
verði keypt. En á móti vil ég benda
á ráð til að lækka kostnað við þing-
haldið.
1. Að fækka þingmönnum svo sem
um þriðjung.
2. Að afnema margfóld lífeyrisrétt-
indi þingmanna (sumir segja að þau
geti orðið allt að fertugfóld miðað viö
réttindi ,,almúgans“).
3. Að afnema ýmis fríðindi, svo sem
símakostnað (t.d. greiðslur vegna
heimasíma), ferðakostnað o.s.frv.
4. Þá munu þingmenn fá í þinginu
máltíðir á „spottprís" (mér er sagt,
að sama gildi um allt starfslið þings-
ins, um sextíu manns). - Þetta ætti
að afnema.
5. Sagt er að Alþingi hafi um langt
skeið haft mann á ríflegum launum
við að semja ævisögur þingmanna
og að stórfé sé varið til að gera mál-
verk af þingmönnum. - Þetta ætti
auðvitað að leggja niður.
Greiðslukortin:
Kaupmenn hlynntir kortum
Jóhann skrifar:
Lengi vel var það svo, meðan krít-
arkortin voru ekki orðin eins almenn
og nú er, að kaupmenn þóttust vera
að gera viðskiptavinum sérstakan
greiða með því að samþykkja þau
sem greiðslumáta.
Þeir sögðu sem svo: Við fáum þetta
ekki greitt fyrr en sex vikum seinna
og þessir peningar liggja vaxtalausir
á meðan. Síðan var farið að tala um
að þeir sem greiddu út í hönd en
notuðu ekki greiðslukort fengju sér-
stakan afslátt,
Auðvitaö er greiðsla með krítar-
korti ekkert annað en staðgreiðsla
og mun öruggari en t.d. ávísanvið-
skipti, að ekki sé nú talað um
reikningsviðskipti eins og enn tíðk-
ast hjá mörgum matvörukaupmönn-
um a.m.k. Þegar greiðslukortavið-
skipti hafa konjist í gang hjá
einhverjum kaupmanni fær hann
stöðugt inngreiðslur mánaðarlega
eftir að fyrstu sex vikumar eru liðn-
ar og þarf yfirleitt engar áhyggjur
að hafa því að þeir eru mjög fáir sem
vilja missa kort sín vegna vanskila.
Raunar hafa kaupmenn aldrei
þurft að kvarta neitt yfir viðskiptum
gegn greiðslu með krítarkortum. Þau
eru örugg. Nú er svo komið að marg-
ir kaupmenn eru farnir að biöla til
viðskiptamanna sem nota mest-
megnis greiðslukort í viðskiptum.
Þannig hefur nú Félag íslenskra
bókaverslana sent frá sér tilkynn-
ingu og ákveðið að nótum vegna
greiðslukorta, sem greitt er með í
bókaverslunum eftir" 7. desember,
verði ekki framvísað fyrr en á næsta
greiöslutímabili!
Þetta er augljóslega gert til að örva
bókakaup fyrir jólin og menn þurfa
þá ekki að vænta innheimtu fyrir þau
fyrr en í byrjun febrúar á næsta ári.
Félag bókakaupmanna flokkar
þetta „boð“ undir það að það sé svo
mikið „álag á starfsfólk" síðustu dag-
ana fyrir jól, þegar nýtt greiðslu-
kortatímabil hefst, að dreifa þurfi
„álaginu". - Kaupmenn fái einnig
„betri yfirsýn" yfir sölu bóka sinna,
segja þeir líka. Segjast bókakaup-
menn ekki efast um að fleiri verslan-
ir fari að dæmi þeirra.
Eg segi nú bara: Hver hefur beðið
bókakaupmenn um þennan
„greiða"? Ef ég fer og kaupi bækur
á tímabilinu frá 7. til 17. des. á ég þá
á hættu að krítarkortanóta mín verði
geymd þar til 1. febrúar, nema ég
taki annað fram? Ég kæri mig ekkert
unl það og mér er enginn akkur í
þessum greiða.
Ég held að annað og meira búi hér
að baki. Ég held einfaldlega að bóka-
kaupmenn séu hræddir um að bækur
seljist ekki að þvi marki sem æski-
legt væri, enda bækur orðnar mjög
dýrar, og haldi að þeir höfði til fólks
með þessum hætti. En ef, Kins vegar,
þetta verða viðbrögð kaupmanna al-
mennt, að þeir taki aö sér að geyma
krítarkortanótur nú í jólamánuði, þá
hljóta þeir að halda þeim siö áfram
og taka þar með upp nýja og breytta
þjónustu fyrir hönd greiðslukorta-
fyrirtækjanna,
Guð láti gott á vita ef kaupmenn
almennt eru orðnir svona hlynntir
greiðslukortunum sem þeir manna
mest vantreystu í byrjun og gera
enn, sumir hverjir.
RAGNARSBAKARI
AUGLÝSIR
Bakarar óskast sem fyrst
Vegna mikillar vinnu vantar okkur heils- og hálfs-
dagsfólk í pökkun. Upplýsingar í síma 92-12120.
FRANSKA VINNUKONAN
Hin fræga VATNSKNÚNA uppþvottavél var hönnuð handa ykkur
sem hafið lítið eldhús, skrifstofu eða hjólhýsi og sumarbústaði.
Það er kostur við gegnsætt lokið að þar má fylgjast með hvað
þvottinum líður.
CAROCELLE þvær rækilega diska eftir 6 manns á 10 mfn., þvott-
ur og skolun meðtalin, tengist beint i krana í eldhúsvaski. Hún
þarf ekki nema nokkra dropa af fljótandi sápu. Til að þurrka þarf
ekki nema lyfta lokinu. Á hverri CAROCELLE þvottavél er tengi-
stykki fyrir kranann og slanga sem auðvelt er að tengja við.
SMÁSÖLUSTAÐIR
Þorsteinn Bergmann, Skólavörðustíg 36, Hraunbæ 102,
og flest kaupfélög.
Heildsölubirgðir
Þingholtsbraut 44 - símar 43969, 40354
L ÝSANDIKROSSAR
Á LE/ÐI
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
Leiðir tilboð bókakaupmanna til breytinga á greiðslukortaviðskiptum?