Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
19
Erlendmyndsjá
Draum-
urinn
hans
pabba
Baráttan heldur áfram
Sú árátta hefur löngum loðaö viö
feður aö vilja aö synimir feti í fót-
spor þeirra. Þessi fyrrverandi
flutningabílstjóri, Jurgen Storm að
nafni, er þar engin undantekning.
Honum þykir greinilega jafngott
aö byija snemma og hefur þegar
smíðað „Utla“ eftirlíkingu af uppá-
halds flutningabílnum sínum, sem
hann notar til þess aö venja soninn
við. Notar hann eftirlíkinguna til
þess aö draga strákinn um gang-
stíga í almenningsgörðum Vestur-
Berlínar, enda hefur stráksi ekki
enn réttindi til að aka um hrað-
brautir.
Sonurinn, Marc Storm, virðist
hins vegar ekkert hrifinn af þessu
uppátæki pabba gamla. Líklega
verður Jiirgen róðurinn þungur,
að minnsta kosti ef mótmæh
stráksa mildast ekki eitthvað með
aldrinum.
Marc er þó ekki nema fimmtán
vikna gamaU og hugsanlega á hon-
um eftir aö finnast meiri fengur í
að aka trukknum þegar hann eldist
hæfilega.
Baráttan gegn fíkniefnaframleiöslunni í Suður-Ameríku heldur áfram af
fuUum krafti og í síðustu viku voru það yfirvöld í Perú sem fundu og eyði-
lögðu mikla miðstöð fyrir kókaínframleiðslu í landi sínu. Við aðgerðirnar
nutu Perúmenn aðstoðar bandarískra starfsbræðra sinna og á annarri mynd-
inni má sjá þyrlu frá Bandaríkjamönnunum að störfum í frumskóginum. Á
hinni er einn ráðherra ríkisstjómarinnar í Perú að vigta hluta fengsins, en
verksmiðjan gat framleitt kókaín fyrir fimmtán milljónir dollara á viku.
Hin hliðin á leiðtogafundinum
Sem kunnugt er mistókst leiðtogum ríkja Evrópubandalagsins að finna lausn á fjárhagsvanda bandalagsins á fundi
sínum í Kaupmannahöfn um helgina. Fleiri vandkvæði en fjárhagsleg steðja að bandalaginu, meðal annars óánægja
með að það skuli yfirleitt vera til. Þótt leiðtogamir reyndu að brosa allt hvað af tók og sýna samvinnuvilja var
önnur hlið og sýnu neikvæðari á leiðtogafundinum. Danska lögreglan varð að senda út mikið lögreglulið tU þess
að hemja mótmæh þeirra sem vilja Dani úr bandalaginu og bandalagið út í hafsauga. Á meðfylgjandi myndum má
sjá hettuklædda mótmælendur, óeinkennisklædda lögregluþjóna með brugðnar byssur og svo sömu lögregluþjóna
á flótta undan gijóthríð frá mótmælendum. Það var greinilega mikið um að vera í kóngsins Kaupmannahöfn um
helgina.
'J.'.'.'.'.'.M