Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
23 ’
íþróttir
Þessirgerðu mörkin
ísland
Kristján Arason 7/4, Þorgils Óttar 6, Valdimar 4, Guð-
mundur 3, Sigurður G. 3 og Páll Ólafsson 2.
Júgóslavía
Zlatan Zaracevic 7, Zlaton Portner 7/3, Jozef Holpert 3,
Sinisa Prokic 2, Skobodan Kuzmaovsky 1, Goran
Perkovac 1 og Boris Jakak 1.
Guðmundur Guðmundsson gripinn hálstaki í leik íslendinga og Júgóslava í
gær. Okkar menn unnu sigur eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir sömu þjóð fyrir fáeinum dögum i Noregi.
DV-mynd Brynjar Gauti
HandknatUeikur: ísland - Júgóslavía
Ófaranna hefht
- ísland lagði heimsmeistara Júgóslava í Laugardalshöll í gærkvöldi, 25-22
Islendingar báru sigurorð af Júgó-
slövum í landsleik í gærkvöldi, 25-22,
eftir aö staðan haíði verið 11-10 okk-
ar mönnum í vil í hléinu.
1 Viðureignin tók lit af erfiðu „pró-
grammi“ beggja þjóða, bæði lið
nýflogin hingað heim eftir talsverð
átök í Noregi. Kepptu þjóðimar þar
í Polar-Cup eða „Lottó-móti“, eins og
heimamenn nefndu keppnina.
Þótt þreyta sæti í mönnum var tals-
verður hraði í leik íslenska liösins í
gærkvöldi. Náði það snemma foryst-
unni og varð hún fljótlega nokkuð
afg^randi. Tölur sem þessar sáust:
1-0, 3-0, 3-1, 4-1, 6-3, 8-4 Og 9-5.
Þegar þar var komið eða undir lok
fyrri hálfleiks tóku Júggar á sig rögg
og söxuöu á forskot Islands. Náðu
þeir þó aldrei að jafna og var bilið
eitt mark í hléinu eins og áður sagði.
í fyni hálfleik vakti athygli þétt
vörn íslands lengst af, dágóð mark-
varsla og frábær framganga Vaidim-
ars Grímssonar, hornamanns úr
Val. Skilaði hann varnarhlutverki
sínu vel og var mjög drjúgur í sókn-
inni. Gerði hann þijú mörk á þeim
tíma og eitt ógleymanlegt eftir send-
ingu frá Einari Þorvarðarsyni í
markinu.
Island hóf síðari hálfleikinn
með látum
ísland byrjaði síðari hálfleikinn
með látum, hófst þá þáttur fyrirhð-
ans, Þorgils Óttars Mathiesen, sem
hafði sýnt óvenjulega stillingu í
sókninni. Gerði hann fjögur af fyrstu
sex mörkum íslands í hálfleiknum
en Kristján Arason, félagi hans úr
Firðinum, sá um hin tvö.
Júgóslavar náðu ekki að svara fyr-
ir sig fyrr en staöan var orðin 15-10
fyrir ísland. Var vöm þeirra enda
sem hrip á upphafsmínútum hálf-
leiksins og sóknin ráðalaus. Hnoö og
ruðningur fram og aftur sem fór ekki
fram hjá vökulum augum sænskra
dómara, þeirra Krister Broman og
Kjell Ehasson. Fóru þeir sænsku
raunar mjög í skapið á júgóslavneska
þjálfaranum, Abas Aslagis. Endaði
senna þeirra þriggja með brottvikn-
ingu þjálfarans og má segja að þar
hafi sá síðasttaldi htið rautt í orösins
fyhstu merkingu.
Tvísýnt undir lokin
Er hða tók á seinni hálfleikinn fóru
Júggar að svara betur sókn íslands
og keyrðu á sama tíma upp hraðann
í eigin sóknarleik. Varð afraksturinn
um leið skárri og minnkaði þá sífeht
bilið milh höanna. Breyttu þeir stöð-
unni úr 20-17 í 20-19 og síöan aftur
úr 22-19 í 22-21.
Var þá spenna mikil og mistök ís-
lendinga mörg sem kostuðu nærri
sigurinn. Kristján Arason, sem átti
annars ágætan dag í gær, missti þá
boltann tvívegis í hendumar á mót-
herjunum.
Það sem réð mestu í gærkvöldi var
að reynslan skhaði sínu. Strákamir
náðu að hrista heims- og ólympíu-
meistarana af sér í lokin þrátt fyrir
tvísýna stöðu, 23-22, þegar htið liíði
af leik.
Sigurður Gunnarsson veitti þá
gestunum rothöggið með glæshegum
þrumufleyg, 24-22. Guðmundur Guð-
mundsson rak síðan smiðshöggið
örfáum sekúndum fyrir leikslok,
25-22.
Hrakfaranna hefnt
Segja má aö ísland hafl í gærkvöldi
hefnt hrakfaranna frá því í Noregi á
dögunum. Þar tapaði íslenska liðið
stórt, 17-24, átti enda afleitan dag.
Annað yar upp á teningnum í gær-
kvöldi. íslenska hðið lék þá nökkuð
vel, sérstaklega í vöm, en sýndi hins
vegar sjaldnar sínar bestu hhðar í
sókninni. Þá var markvarslan ágæt
sé hliðsjón tekin af þeim skotum
gestanna sem dundu á markinu.
Margar sóknir Júgóslava runnu
nefrúlega út í sandinn án þess að
þeim gæfist færi á að skjóta.
Aö þessu sinni vantaöi marga
frækna leikmenn í hö Júgóslava,
meðal annars þá Puc, Vujovic, Is-
akovic, Mrkonja, Cvetkovic og Rnic.
Engu að síður er þessi sigur frækinn,
- enn ein skrautfjöður í hatt hand-
boltans á íslandi. -JÖG
bára
FULLKOMtN VÉL
k
FRÁBÆRU VERÐl
★ Heitt og kalt vatn,
* 400/800 snúningar,
* íslenskar merkingar
á stjórnborði,
★ 18 þvottakerfi,
sjálfstætt hitaval.
Sí&
kr.27.997
KRINGLUNNI, SÍMI 685440.
Poiaroid - Myndavél og vasadiskó
SAMAN í PAKKA
á aðeins kr. 3.350,-
Myndavélin er með
innbyggt eilífðarfiass.
Rafhlaðan er í
filmupakkanum.
Sem sagt, filman í,og
myndavélin er tilbúin
Vasadiskóið
er eitt hið
minnsta
á markaðinum.
CrO, metal.
YNDAÞJONUSTAN HF
igavegi 178 - Slmi 685811
alls fagri;