Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Qupperneq 30
30
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Nýjar bækur
Ný teiknimyndasaga:
Dómsdagur
Komin er út hjá Iðunni ný bók um
blaðamanninn og einkaspæjarann
ji Frank eftir Martin og Chaillet. Nefn-
ist hún Dómsdagur.
Mörgu hefur nú Frank Fanndal
lent í um dagana en ævintýrið, sem
hann hér upplifir, slær allt út. Án
þess að hann fái rönd við reist er
Verð frá kr. 1.180,-
farið með hann á dularfullan stað en
hver það gerir og hvað þar tekur við
veit hann ekki... Bjarni Fr. Karls-
son þýddi. Verð kr. 798.
Vandratað í veröldinni
eftir Franziscu Gunnarsdóttur
Út er komið hjá Vöku-Helgafelli
fyrsta bók Franziscu Gunnarsdóttur,
Vandratað í veröldinni. í bókinni seg-
ir Franzisca á eftirminnilegan hátt
frá dvöl sinni á Skriðuklaustri í
Fljótsdal í Múlasýslu hjá afa sínum,
rithöfundinum Gunnari Gunnars-
syni, og ömmu sinni, Franziscu.
Bókin er fyrst og fremst saga af upp-
vexti ungrar stúlku og höfundurinn
varpar ljósi á ýmsa þætti sem tengi-
ast hugmyndaheimi barnsins og
þroskaferli á viðkvæmu mótunar-
skeiði. í bókinni eru einnig skemmti-
legir kaflar um skáldið Gunnar
Gunnarsson og fá lesendur að kynn-
ast honum í nýju ljósi. Börn taka
eftir ýmsu í fari manna sem fullorðn-
um er hulið og Franziscu tekst
einkar vel að endurheimta hið harns-
lega sjónarhorn og gildismat ungu
telpunnar í frásögnum af afa sínum
og öðru fjölskyldufólki.
Höfundur vefur saman þjóðsögum
og ævintýrum sem henni voru hug-
leikin á barnsaldri, lífsskoðunum og
hugmyndum sem hún tekur í arf frá
umhverfmu. Vandratað í veröldinni
er 140 bls. og er prentuð í Prentstofu
G. Benediktssonar, Kópavogi, og
bundin í Bókfelli hf., Kópavogi. Bók-.
in kostar 1.998 krónur og fæst í öllum
bókaverslunum.
Bangsi gamli
eftir Jane Hissey. Komin er út hjá
Iðunni ný barnabók sem heitir
Bangsi gamli og er eftir Jane Hissey.
Hér er á ferðinni saga úr barnaher-
berginu þar sem leikfóngin spretta
fram lífi gædd og taka til sinna ráða
þegar einn elsti vinurinn, hann
Bangsi gamli, hefur verið settur í
kassa og borinn upp á háaloft. Og
hver kannast ekki við snjáða gamla
aritfyriraUa
desember
i FLOTII
^jevíl°n
aaiúe^01'
Nýtt
heíti
K
blaðsölu-
stöðuiu
uxfl
ailt land
1 LESEFNI
UrVai VIÐALLRAHÆFI
27022
bangsann sem krakkarnir hafa ólm-
ast með og kúrt hjá? En nú verður
að bjarga bangsa úr prísundinni.
Fallegar myndir á hverri síðu segja
jafnframt söguna. Þórgunnur Skúla-
dóttir þýddi. Verð kr. 498.
Ný bók um Kristínu
Jónsdóttur,
brautryðjanda í íslenskri myndlist
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefið
út bókina Kristín Jónsdóttir - lista-
kona í gróandanum eftir Aðalstein
Ingólfsson listfræðing, en þann 25.
janúar næstkomandi eru 100 ár hðin
frá fæðingu hennar.
Kristín Jónsdóttir var einn af
brautryðjendum íslenskrar málara-
hstar og jafnframt fyrsta íslenska
konan sem gerði myndlist að ævi-
starfi. Hún var fædd að Arnarnesi
við Eyjaljörð og stundaði nám við
Konunglegu listaakademíuna í
Kaupmannahöfn frá 1911 th 1916. Bjó
Kristín síðan í Kaupmannahöfn til
1924 er hún fluttist heim til íslands
ásamt manni sínum, Valtý Stefáns-
syni búfræðingi, síðar ritstjóra
Morgunblaðsins, og Helgu, dóttur
þeirra. Tók Kristín virkan þátt í ís-
lensku menningarlífi til dauðadags,
árið 1959.
Um málverk Kristínar sagði Þor-
valdur Skúlason: „(Þau) munu verða
glitrandi þáttur íslensku menningar- •
sögunnar um langan aldur.“
Bókin Kristín Jónsdóttir - hsta-
kona í gróandanum er 197 bls. að
stærð. í henni eru 65 litmyndir auk
svart-hvítra mynda og Ijósmynda.
Bókin geymir einnig tvö erindi um
myndhst sem Kristín samdi fyrir út-
varp.
Hafsteinn Guðmundsson sá um
útlit bókarinnar en Kristján Pétur
Guðnason um ljósmyndun hsta-
verka.
Kristín Jónsdóttir - listakona í gró-
andanum kostar kr. 4.875.
Þrautgóðir á raunastund
18. bindi Björgunar- og sjóslysa-
sögu íslands eftir Steinar J. Lúðvíks-
son.
Út er komið hjá Emi og Örlygi 18.
bindi bókaflokksins Þrautgóðir á
raunastund eftir Steinar J. Lúðvíks-
son.
í hinni nýju bók er fjallaö um at-
burði áranna 1969, 1970 og 1971, en
áður hafa atburðir frá aldamótum
og fram til ársins 1969 verið raktir
auk þess sem ein bókin í flokknum,
er Loftur heitinn Guðmundsson rit-
aði, fjallaði um brautryðjendur
slysavarnastarfsins á íslandi. Verð
kr. 1.890.