Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Síða 32
.32
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Frá Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands
Kennara vantar nú þegar við að Æfingaskóla Kenn-
araháskóla Islands. Um er að ræða kennslu í
handmennt sem nemur um það bil einni stöðu. Ráð-
ið verður í starfið út þetta skólaár. Nánari upplýsingar
veitir skólastjóri í símum 84565 og 84566.
?>
X "KflMA - RANNA '
FYRIR RAFMAGNSHELLUR
„Kína"pannan er notuð til að snöggsteikja. Snöggsteiking er aðal-
eldunaraðferð í kínverskri matargerðarlist. Pannan er hituð með
olíu, t.d. sojaolíu. Þegar pannan er orðin vel heit er smáskorinn
maturinn settur í og snöggsteiktur með því að snúa og velta hon-.
um hratt. Leiðbeiningar um notkun og nokkrar uppskriftir fylgja.
Þessi panna er steypt með sérstakri fargsteypuaðferð sem gefur
bestu hugsanlegu hitaleiðni. Þess vegna hentar hún mjög vel
fyrir snöggsteikingu á rafmagnshellum. Kínapönnuna má nota til
að djúpsteikja og gufusjóða, einnig til að brúna og krauma (hæg-
sjóða). Fæst í um 80 búsáhaldaverslunum um allt land.
Framleldd af Alpan hf., Eyrarbakka.
Heildsöludreifing Amaro - heildverslun, Akureyri, sími 96-22831
Nauðungaruppboð
á Kalmannsvöllum 3, nr. 1V, þinglýstur eigandi Trico hf., fer fram í dómsal
embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, föstudaginn 11. des. kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Vesturgötu 78 B, þinglýstur eigandi Hjörtur
Júlíusson, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, föstu-
dáginn 11. des. kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Árni Einarsson hdl., Jón
Sveinsson hdl. og Tryggingastofnun rikisins.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Kirkjubraut 7, neðri hæð, þinglýstur eigandi
Sigurður B. Hauksson, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á
Akranesi, föstudaginn 11. des. kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Lands-
banki íslands, Tryggingastofnun ríkisins og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Akurgerði 17, neðri hæð, þingl. eigandi
Soffía Guðmundsdóttir, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á
Akranesi, föstudaginn 11. des. kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Landsbanki
íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skagabraut 40, þingl. eigandi Hinrik Gunnarsson, fer fram í
dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, föstudaginn 11. des. kl.
11.30. Uppboðsbeiðandi er Jón Sveinsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og siðara á fasteigninni Melteigi 6, þingl. eigendur Tómas J. Sig-
urðsson og Sigurlaug Emilsdóttir, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu
57 á Akranesi, föstudaginn 11. des. kl. 11.15. UppboðsbeiðendurerU Trygg-
ingastofnun ríkisins, Veðdeild Landsbanka Islands, Lögmenn, Hamraborg
12, Sigurður G. Guðjónsson hdl. og Landsbanki íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Vallholt 21, neðri hæð, þingl. eigandi Bjarni
Magnús Guðmundsson, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á
Akranesi, föstudaginn 11. des. kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir
Thoroddsen hdl. og Landsbanki Islands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Túngötu 16, Eskifirði, þingl. eigandi Sigurð-
ur Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. des. 1987 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðandi er Árni Halldórsson hrl.
______________________ Bæjarfógetinn á Eskifirði
Nýjar plötur___________________pv
Lög Jóns Múla Ámasonar við texta Jónasar Ámasonar
Perlur gærdigsins
Það er í raun ótrúlegt að enginn
skuli fyrr en nú taka saman lög Jóns
Múla Amasonar og gefa út á hljóm-
plötu. Lögin, sem flest eru samin við
söngleiki þeirra bræðra Jóns Múla
og Jónasar Ámasona, hafa lifaö góðu
lífi í upprunalegum útsetningum
enda mörg laganna hreinar gersem-
ar, einstaklega melódísk, og textar
Jónasar mjög góðir en um leið auð-
lærðir.
Það er Almenna bókafélagið er gef-
ur út Lög Jóns Múla við texta
Jónasar Ámasonar sem er einstak-
lega stirt nafh á hljomplötu. Það er
sem betur fer eini stirðleikinn við
þessa ágætu skífu sem svo sannar-
lega gerir ekkert annað en að gleðja
eym þeirra er kunna að meta góða
tónlist.
Jón Múli hefur á áratugalöngum
ferli sem útvárpsmaður verið helsti
talsmaður jassins á íslandi og er það
því vel við hæfí að við útsetningar á
lögum hans er sveiflan alltaf í bak-
grunninum og stundum tekur hún
völdin og hljóðfæraleikaramir, sem
meira og minna hafa komið við sögu
íslensks jass á síðari árum, njóta sín
og spinna nótur við einfaldar og fall-
egar melódíur Jóns Múla.
Sá sem mestan heiður á af útsetn-
ingum laganna er Eyþór Gunnarsson
sem um leið leikur á hljómborð. Út-
setningar hans em einfaldar eins og
lögin, hvergi ofhlaðnar rafmagni.
Nokkrir söngvarar koma við sögu.
Bubbi Morthens syngur af krafti Við
heimtum aukavinnu. Sif Ragnhildar-
dóttir syngur eina nýja lagið á
plötunni, Það vaxa blóm á þakinu,
lag sem vex við hverja hlustun og
sýnir að þrátt fyrir lítinn afrakstur
í tónsmíðum á síðustu áram kann
Jón Múli enn listina að semja falleg
lög.
Oft er sagt um söngmenn að þeir
syngi með eigin nefi. Það má til sanns
vegar færa um bræðuma Jón og Jón-
as og Magnús Eiríksson. Fáir munu
öfunda þá af röddum þeirra en fáir
gætu leikið eftir þeim þann lifandi
söng sem einkennir Einu sinni á
ágústkvöldi og Úti er aUtaf að snjóa.
Lögin era sannkölluö skemmtihlust-
un.
Stærstur er hlutur Ellenar Krist-
jánsdóttur. Henni hefur fariö geysi-
lega fram og þótt ekki sé hún
raddmikil þá er raddbeiting hennar
tíl fyrirmyndar. Henni tekst best upp
í Gettu hver hún er. Einn söngvari
er ónefndur, Bjami Arson. Þann
unga pilt vantar ekki söngröddina
en þjálfunina vantar hann en það
• mun öragglega koma með tímanum.
Þvi er hann sá eini sem á einhvern
hátt passar ekki á þessa plötu.
Um hlj óðfæraleikarana þarf ekki
að fjölyrða. Eyþór, Rúnar, Gunn-
laugur og Tómas eru í aðalhlutverk-
um og bregðast ekki frekar en fyrri
daginn og Ami Scheving leikur með
glæsileik á víbrafón, nokkuð sem
hann ætti að gera mun oftar.
í heild hefur tekist vel aö koma
lögura Jóns Múla til skila. Engin
stórátök finnast en fagmennskan og
leikgleðin í fyrirrúmi.
HK
Hremming - Kjartan Ólafsson og Kari Ágúst Úlfsson
BWausir
Skólaslit. Nemandi með fallein-
kunnir tekur skólastjórann og tvo
kennara í gíslingu. Sá kúgaði hefur
tögl og hagldir um stimd. Yfirmenn
verða undirmenn. En fyrr en varir
ná lærifeðumir aftur undirtökunum.
Svo hefst skólinn aftur að hausti rétt
eins og venjulega.
Hér er um atburðaras í leikriti að
ræða. Verkið er eftir Barrie Keeffe
og hefur verið sýnt í Iðnó upp á síð-
kastið. Keeffe skrifaði leikritið með
breskt skólakerfi í huga. Engu að síð-
ur er margt í verkinu sem skilar sér
ágætlega hér uppi á íslandi. Ekki síst
birtist firringin í huga nemandans
ljóslifandi í hreint stórkostlegri leik- ■
mynd. Jámgrindverk era alls staðar
eins og í rammgerðu fangelsi.
Og hér kemur loksins þessi plata
inn í myndina. Kjartan Ólafsson
Smartbandsmaður samdi fjögur lög
sem notuð eru til að afmarka atriði
leiksins. Þetta er áheyrileg tónlist en
tvímælalaust veikasti hlekkur upp-
færslunnar í Iðnó. Kjartan notar
einvörðungu hljóðgervla og kemst
annað veifið á flug í nettum laglínum.
Lögin sem slík undirstrika aftur á
móti engan veginn þema verksins: í
köldu umhverfi skólans hljómar tón-
listin ekki ósvipað og samgöngur á
KFUM-fundi. Aðalpersónan verður
eins og Sid Vicious í silkináttfótum.
Hrátt rokk, jafnvel ómengað pönk,
hefði gert útslagið.
Á hinn bóginn stendur tónlistin
þokkalega ein sér. Kjartan er ágætur
lagasmiður en treystir í þessu tilviki
um of á mátt hljóðgervlanna. Platan
líður fyrir flatneskjulegar útsetning-
ar þó lögin séu aðeins fjögur. Ein-
stæðingsskapurinn í textum Karls
Ágústs Úlfssonar er hins vegar til
fyrirmyndar ef andrúmsloft verksins
er haft í huga. Firring er heldur alls
ekki bundin leikriti Keeffes. Fyrir-
bærið leitar jafnt á alla þegna
nútímaþjóðfélagsins, meira að segja,
líka á íslandi.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
GreHarnir - Dúbl í hom
HljómsveK á krossgötum
Þrátt fyrir að Greifarnir hafi verið
í hópi vinsælli hljómsveita landsins
um alllangt skeið hafa þeir ekki sent
frá sér breiðskífu fyrr en nú. Reynd-
ar stóð til að þessi plata kæmi út í
sumar en tímaleysi setti þar strik í
reikninginn og í staðinn kom út 12
tommu plata sem hljómaði nokkuð
flausturslega gerð.
Þessi fyrsta breiðskífa Greifanna
verður ekki sökuð um að vera flaust-
urslega gerð og greinilegt að Greif-
amir eru í mikilli framfór. Hins
vegar er ljóst að hljómsveitin stendur
á krossgötum hvað stíl og stefnu
varðar og fróðlegt að vita hvaða kost-
ur verður ofan á.
Það sem ég á við með þessu er að
hljómsveitin verður að gera það upp
við sig hvort hún ætlar að stefná á
fullorðinsmarkaðinn eða halda sig
við að vera unglingahljómsveit.
Grelfarnlr.
Á þessari plötu era þeir nokkuð
tvistígandi og hvort sem það er vilj-
andi eða ekki hefur efni sem er meira
í fullorðinskantinum raðast á aðra
hhð plötunnar en unglingaefnið á
hina hliðina. Og þessi skipting á
bæði við um tónlist og texta. Undan-
tekning frá þessu er síðasta lagið á
unglingahliðinni; Þaö lag stingur
raunar nokkuð í stúf við annað efni
á plötunni, bæði í tónum og texta.
Enn sem fyrr er það Kristján Viðar
Haraldsson sem semur lungann af
lögum Greifanna og á hér ágæta
spretti, hefur þessa tilfmningu fyrir
grípandi laglinum sem til þarf og á
þaö bæði við í rólegum og hröðum
lögúm. Ein melódía finnst mér bera
af á plötunni en það er lagið Nótt,
rólegt lag, alveg gullfallegt og textinn
klæðskerasniðinn.
Greifamir eru, sem fyrr segir, í
mikilli framfór og þá sérstaklega sem
hljóðfæraleikarar. Kristján Viðar er
sömuleiðis í framför sem lagasmiður
og það er greinilega í hans hendi aö
ákvarða í hvaða átt hljómsveitin
heldur héðan í frá.
-SþS-