Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
33
DV
Fólk í fréttum
Óttar Yngvason
Óttar Yngvason, forstjóri ís-
lensku útflutningsmiöstöðvarinn-
ar, hefur verið í fréttum DV vegna
umræðna um sölu á hörpudiski til
Bandaríkjanna. Óttar er fæddur 5.
mars 1939 í Reykjavík og lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla íslands 1966.
Hann var forstjóri Ferðaskrifstofu
ríkisins 1966-1967 og rak eigin mál-
flutningsskrifstofu 1967-1977. Óttar
hefur verið forstjóri íslensku út-
flutningsmiðstöðvarinnar. frá 1972.
Hann var formaður Stúdentafélags
jafnaðarmanna 1960-1961 og Varð-
bergs 1966-1967. Óttar var formaö-
ijr Neytendasamtakanna
1970-1973. Golfmeistari íslands var
hann 1962 og Reykjavíkur 1965,
1969 og 1974. Kona Óttars er Elín
Birna Daníelsdóttir, f. 20. febrúar
1939, hjúkrunarkona. Foreldrar
hennar eru Daníel Brandsson, b. á
Fróðastöðum í Hvitársíðu, og kona
hans, Unnur Pálsdóttir. Böm
þeirra eru Unnur Guðrún, f. 27.
ágúst 1962, kennari í Rvík; Helga
Melkorka, f. 16. maí 1966, lögfræði-
nemi; Yngvi Daníel, f. 22. desember
1968; og Rakel, f. 4. júní 1973.
Systkini Óttars eru Öm, f. 24.
mars 1929, fulltrúi hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins, og Steinunn, f. 9.
maí 1934, gift Herði Einarssyni, for-
stjóra í Rvík. Foreldrar Óttars eru
Yngvi Jóhannesson, fulltrúi í Rvík,
og kona hans, Guðrún Jónsdóttir.
Meðal fóðursystkina Óttars eru
Jakob Smári skáld, faðir Bergþórs
Smára læknis og Katrínar Smára,
móöur Jakobs Yngvasonar eðhs-
fræðings; Sigurður, faðir Flosa
veðurfræðings; Helgi, faöir Jó-
hannesar, forstjóra Happdrættis
háskólans; Guðný, móðir Úlfs
Ámasonar hvalafræðings; Ragn-
heiður, móðir Ólafs H. Oddssonar,
læknis á Akureyri; Haukur, faðir
Hauks aðstoðarflugmálastjóra og
Leifs leikara. Yngvi er sonur Jó-
hannesar L.L., prests á Kvenna-
brekku, bróður Valgerðar,
langömmu Guðrúnar Á. Símonar
ópemsöngkonu. Jóhannes var son-
ur Jóhanns, prests á Hesti,
Tómassonar, b. og stúdents á
Stóru-Ásgeirsá Tómassonar. Móðir
Yngva var Steinunn, systir Guð-
mundar, föður Þórarins tónskálds,
dóttir Jakobs, prests á Kvenna-
brekku, Guðmundssonar. Faðir
Jakobs var talinn Ingjaldur, prest-
ur í Nesi, Jónsson, bróðir Friðriks,
langafa Ólafs Hjartar, afa Ólafs
Ragnars Grímssonar. Móðir Stein-
unnar var Steinunn, dóttir
Guðmundar, verslunarstjóra í
Innri-Njarðvík, Péturssonar og
konu hans, Ragnheiðar Guð-
mundsdóttur, systur Helga bisk-
ups, langafa Sigurðar Hafstein,
föður Hannesar Hafstein ráðuneyt-
isstjóra.
Guðrún er dóttir Jóns Berg-
manns, skálds og lögregluþjóns í
Hafnarfirði, Sigfússonar Berg-
manns, b. á Króksstöðum í Mið-
firði, Guðmundssonar, bróöur
Sveins, prests í Kirkjubæ, Skúla-
sonar, langafa Brynjólfs Bjama-
sonar, forstjóra Granda. Móðir
Sigfúsar var Júlíana, dóttir Steins,
sonar Sigfúsar Bergmanns, b. á
Þorkelshóli í Víðidal, langafa Guð-
mundar Bjömssonar landlæknis,
Páls Kolka og Jónasar, föður Ög-
mundar fréttamanns. Meðal
afkomenda hans eru einnig Ingi-
mundur Sigfússon, forstjóri Heklu,
og Bjöm Guðmundsson prófessor.
Móðir Jóns var Jóhanna, dóttir
Jóns, b. á Sveðjustöðum, Guð-
mundssonar og konu hans, Ingi-
bjargar Halldórsdóttur, systur
Helgu, langömmu Björgvins
Schram, föður Ellerts Schram rit-
stjóra. Móðir Guðrúnar var Helga,
systir Gísla, afa Gunnars verk-
fræðings og Ólafs arkitekts, Sig-
urðssona. Helga var dóttir
Magnúsar, útgerðarmanns á Mið-
Óttar Yngvason
húsum í Garði, Þórarinssonar.
Móöir Magnúsar var Sigriður
Magnúsdóttir, systir Guðmundar,
langafa Ásmundar Guðmundsson-
ar biskups. Móðir Helgu var
Guðrún Einarsdóttir, b. í Norður-
garði í Mýrdal, Ólafssonar.
Afmæli
Haraldur Helgason
Haraldur Helgason arkitekt, Há-
teigsvegi 16, Reykjavík, er fertugur
í dag. Haraldur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hann varð stúdent frá MR 1967 og
stundaði nám í byggingarlist í
Manchester 1968-74. Að námi lo-
knu kom hann heim og starfaði á
Teiknistofu Jes Einars Þorsteins-
sonar til 1979 en hefur síðan þá
rekið eigin teiknistofu. Haraldm-
var formaður Arkitektafélags ís-
lands 1982-84.
Kona Haraldar er Karen, f. á
Akureyri 27.12. 1950, en þau giftu
sig 20.7. 1982. Foreldrar hennar:
Eiríkur Guðmundsson, sem er lát-
inn en var lengi kjötiðnaðarmaður
á Akureyri, og Anna Sveinsdóttir.
Dóttir Karenar og kjördóttir Har-
aldar er Ragnheiður, f. 1980.
Haraldur á tvo bræður og eina
systir: Þórhallur, útgerðarstjórihjá
Hraðfrystistöð Reykjavíkur, f. 17.9.
1934, er giftur Arnbjörgu Örnólfs-
dóttur en þau búa í Reykjavík og
eiga þrjú böm; Gunnlaugur, tækni-
fræðingur og stöðvarstjóri hjá
Skeljungi í Skerjafirði, f. 2.2. 1936,
er sambýlismaður Valgerðar
Bjömsdóttur, en Gunnlaugur á
fjögur börn; Bergljót Gyða, há-
skólanemi í Reykjavík, f. 23.1.1938,
er gift Aðalsteini Davíðsson cand.
mag., orðabókarhöfundi og
menntaskólakennara, en þau eiga
þrjá syni.
Foreldrar Haraldar: Helgi Elías-
son fræðslumálastjóri, f. 18.3.1904,
og kona hans, sem er látin, Hólm-
fríður Davíðsdóttir, f. 9.9. 1911.
Föðurforeldrar Haraldar voru El-
ías, f. á Síðu, lengi yfirkennari við
Miðbæjarskólann, Bjarnason og
kona hans, Páhna frá Meöallandi
Ehasdóttir. Ehas var sonur Bjama,
hreppstjóra í Hörgsdal, Bjarnason-
ar, hreppstjóra á . Keldumýri,
Bjamasonar. Kona Bjarna í Hörgs-
dal var Helga Pálsdóttir, prests í
Hörgsdal,' Pálssonar klausturhald-
ara Jónssonar. Páhna var dóttir
Haraldur Helgason.
Ehasar, b. og smiðs að Syöri-Steins-
mýri, Gissurarsonar, b. þar, Páls-
sonar. Móðurforeldrar Haraldar
vom Davíð, kaupmaöur á Þórshöfn
á Langanesi og síðar í Reykjavík,
Kristjánsson, og kona hans, Hah-
dóra Amljótsdóttir, prests á
Sauðanesi, Ólafssonar,. þess er
skrifaði fyrsta íslenska hagfræðiri-
tið, Auðfræði.
Guðfinnur Jónsson
Marinó Jónsson
Marinó Jónsson byggingameist-
ari, Hvammshhð 2, Akureyri, er
fimmtugur í dag. Marinó fæddist á
Hóh í Köldukinn í Liósavatns-
hreppi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann flutti til Akureyrar
1959, tók svéinspróf í húsasmíði
1963 og öðlaðist meistarabréf í iðn-
inni 1966. Marinó vann tyá Tré-
smiðjunni Reyni til 1970 en
starfrækti eigið fyrirtæki, Hús-
byggi sf., frá 1970-1980. Marinó
hefur svo verið framkvæmdastjóri
Meistarafélags byggingamanna á
Norðurlandi frá 1980.
Kona Marinós er Dómhildur
Lilja, f. 12.7. 1945, en þau giftu sig
12.7. 1968. Foreldrar hennar era
Olgeir, b. á Vatnsleysu í Fnjóska-
dal, Lúthersson og Þóra Ármanns-
dóttir.
Marinó og Dómhildur Lilja eiga
þrjú börn: Magneu Kristínu
menntaskólanema, f. 1968, Olgeir
Þór menntaskólanema, f. 1969, og
Þórunni Ósk menntaskólanema, f.
1971.
Marinó er yngstur fjögurra
bræðra en hinir eru: Sigurður
Guðni, b. á Hóh, sem býr þar ásamt
móður sinni; Helgi, bifreiðarstjóri
á Dalvík og starfsmaöur frystihúss-
ins þar, giftur Maríu Steingríms-
dóttur; Jakob, leigubílstjóri á
Akureyri, giftur Hólmfríði Ólafs-
dóttur.
Foreldrar Marinós: Jón Jakobs-
son, b. á Hóh, en hann er látinn,
og ekkja hans, Magnea, f. á Hálsi í
Kinn, Sigurðardóttir.
Tilmæli til afmælisbama
Blaöið hveturafmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsingar
um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upp-
lýsingar þurfa að þerast í síðasta lagi tveimur
dögum fyrir afmælið.
Guðfinnur Jónsson, starfsmaður
hjá Áhaldahúsi Seltjamamess, til
heimihs að Sogavegi 176, Reykja-
vík, er sjötíu og fimm ára í dag.
Guöfinnur fæddist að Urriðavatni
í Fellum í Norður-Múlasýslu, Hann
var tvö fyrstu æviárin hjá móður
sinni að Refsmýri í Fellum, en ólst
upp að Urriðavatni frá 1914. Guð-
finnur var við búfræðinám á
Hvanneyri frá 1930 en hann út-
skrifaðist þaðan 1932. Guðfmnur
fór þá aftur austur að Urriðavatni
en þaöan flutti hann til Vest-
mannaeyja 1951. Hann starfaði í
ellefu ár hjá Vinnslustöð Vest-
mannaeyja og síðan hjá Vest-
mannaeyjabæ frá 1963. Guðfmnur
flutti til Reykjavikur þegar gosið
hófst í Heimaey og hefur búið þar
síðan. Hann hóf störf hjá ísbimin-
um þegar hann kom til Reykjavík-
ur en sama árið hóf hann svo störf
hjá Áhaldahúsi Setjarnamess þar
sem hann stafar enn.
Guðfinnur giftíst 2.3. 1952, Unu,
f. í Reykjavík 12.1.1925, d. 6.11.1966,
dóttur Haralds netagerðarmanns
Guðmundssonar og konu hans, Éf-
emíu Jóhannesdóttur. Haraldur
var móðurbróðir Guðmundar í.
Guðmundssonar, en bróðir Efemíu
er Þórður, trúboði á Fálkagötunni
í Reykjavík.
Guðfinnur og Una misstu tvö
börn við fæðingu en tvö börn þeirra
lifa: Jóna Bergljót, f. 23.10.1954, er
húsmóöir í Reykjavík, en dætur
hennar eru Hafnhildur Una, íjórt-
án ára, og íris Ósk, átta ára; Halldór
Ámi, f. 12.5.1956, er garðyrkjumað-
ur í Reykjavík.
Guðfinnur átti sex háhsystkini,
fjögur sammæðra og tvö samfeðra.
Af systkinum hans lifir einn bróðir
hans sammæðra og bróöir hans
samfeöra. Systkini Guðfmns: Einar
Guttormsson, læknir í Vestmanna-
eyjum, f. 15.12. 1901, en hann er
látinn. Meðal barna hans má nefna
Pétur leikara og Guttorm forstjóra
Ámunnar; Sigfús Guttormsson, b.
í Krossi í Fellum, f. 12.11.1903, en
hann fórst með Ghtfaxa 1951; Berg-
ljót, húsmóðir á Sílalæk, f. 3.12.
1906, er látin; Guðlaugur, b. á Lyng-
felli, f. 7.11. 1908, dvelur nú á
elliheimilinu í Vestmannaeyjum.
Systkini Guðfinns samfeðra: ðlaf-
ur, b. á Urriðavatni, f. 1.8. 1923;
Þórdís, f. 1924, dó á fyrsta árinu.
Foreldrar Guðfinns: Jón b. á Ur-
riðavatni, Ólafsson, f. 10.12. 1891,
og Oddbjörg Sigfúsdóttir, f. 7.6.
1881. Föðurforeldrar Guðfinns
vora Ólafur, b. á Urriðavatni, Hjör-
leifsson og Anna frá Hvanná,
Kristjánsdóttir Kröyer. Systir
Önnu var Gunnþórunn, amma Sig-
ríðar Hagalín. Kona Kristjáns var
María EUn Þorgrímsdóttir, prests
í Hofteigi og Þingmúla, Amórsson-
ar, prests á Bergsstöðum í Svart-
árdal, Árnasonar, biskups á
Hólum, Þórarinssonar. Kona séra
Þorgríms var Guörún Pétursdóttir,
b. í Engey, Guðmundssonar, lang-
afa Guörúnar, móður Bjama
forsætisráðherra. Móðurafi Guð-
finns var Sigfús, b. að Meðalnesi,
Oddsson, b. á Hreiöarsstöðum,
Jónssonar, b. á Meðalnesi, Odds-
sonar, sonar Ingunnar skyggnu,
Davíðsdóttur, systur Áma, fóður
Hannesar, prestaskólakennara og
heimspekings. Kona Sigfúsar var
Guðfinna Oddsdóttir, b. á Fljóts-
bakka, Hildibrandssonar. Bróöir
Guðfinnu var Sigfús, faðir Sigfúsar
þjóðsagnasafnara. Kona Odds
Hildibrandssonar var Þuríður
Hallsdóttir, b. að Sleðbrjótí, Sig-
urðssonar, bróöir Bjöms, langafa
Önnu, móður Þórhalls Tryggva-
sonar bankastjóra.
Andlát
Guðrún Ragna Guðmundsdóttir, Sigurborg Karlsdóttir, Skarphéð- Hörður Ágúst Hjörleifsson varð
Lindarbraut 2, Seltjamarnesi, and- insgötu 12, lést í Landakotsspítala bráökvaddur á heimili sínu í Kaup-
aöist sunnudaginn 6. desember. 7. desember. mannahöfn þann 7. desember.
Munið að senda okkur myndir.
60 ára___________________
Ragnheiður Elín Jónsdóttir, Baug-
holti 6, Keflavík, er sextug í dag.
Engilráð Ólafsdóttir, Brekkugötu
13, Vestmannaeyjum, er sextug í
dag.
50 ára___________________________
Ragnheiður Þorgilsdóttir, Dyn-
skógum 9, Hveragerði, er fimmtug
í dag.
Hreinn Benediktsson, Kleppsvegi
130, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Guðrún Á. Halldórsdóttir, Sunnu-
vegi 5, Selfossi, er fimmtug í dag.
Hún tekur á móti gestum á heimili
sínu, laugardaginn 12.12. eftir
klukkan 20.00.
Svanhildur Friðriksdóttir, Bakka-
hhö 27, Akureyri, er fimmtug í dag.
Ingólfur Jón Sveinsson bóndi, Lág-
múla, Skefilsstaðahreppi, er
fimmtugur í dag.
40 ára_________________________
Rósa Björnsdóttir, Möðrufehi 3,
Reykjavík, er fertug í dag.
Elís Guðmundsson, Brekkustíg 12,
Njarðvík, er fertugur í dag.
Þóra Grétarsdóttir, Grashaga 2,
Selfossi, er fertug í dg.
Thomas Saint Amant, Einholti 10D,
Akureyri, er fertugur í dag.
MH
MEIRI
HÁTTAR
SMÁ-
AUGLÝSINGA-
BLAÐ
Auglýsingasíminn
er
27022