Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Page 34
34
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987.
Jarðarfarir
Guðbergur S. Guðjónsson frá As-
garði í Grímsnesi andaðist á Hrafn-
istu í ReyKjavík mánudaginn 7.
nóvember. Jarðsett veröur frá Bú-
staöakirkju þriðjudaginn 15. des-
ember kl. 13.30.
Oddur Kristjánsson, Hlíðarvegi 27,
Kópavogi, sem andaöist 3. desember
sL, verður jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju fostudaginn 13. desember
kl. 13.30.
Sigurjón Maríasson, er andaðist 2.
desember, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju flmmtudaginn 10.
desember kl. 15.
Fundir
Skýrslutæknifélag íslands
heldur almennan félagsfund að Hótel
Loftleiðum, Leifsbúð, fimmtudaginn 10.
desember kl. 16. Fundarefni: Höfunda-
réttur hugbúnaöar. Á félagsfundinum
mun verða leitast við að skýra hvað felst
í hugtakinu höfundaréttur hugbúnaðar
og flytja fréttir af stööu þessara mála á
erlendum vettvangi. Fimdurinn er öllum
opinn. Kaffiveitingar.
Digranesprestakall
Jólafundur kirkjufélagsins verður í safn-
aðarheimilinu við Bjamhólastig fimmtu-
daginn 10. desember ki. 20.30. Settur
biskup íslands, sr. Sigurður Guðmunds-
son, verður gestur fundarins. Dúfa
Einarsdóttir syngur einsöng. Flutt verða
jólaljóð og fleira á dagskrá. Veislukaffi
verður fram borið.
TOkyimingar
Myndakvöld Ferðafélagsins
í kvöld, 9. desember, kl. 20.30 efnir Ferða-
félagið til myndakvölds á Hverfisgötu
105. Efni þessa myndakvölds er fjölbreytt
að vanda. Nokkrir félagsmenn sýna
myndir og segja frá eftirminnilegri ferö
sem þeir hafa farið. Dregið verður úr
nöfnum þátttakenda í afmælisgöngum
FÍ í sumar. Veitingar í hléi. Verð kr. 100.
Flass - ný hljómplata
Út er komin platan „Flass". Á plötunni
eru sex lög, öll eftir Einar Oddsson sem
leiktu-jafnframt á hljómborð. Aðrir flytj-
endur eru: Haukur Hauksson, söngur,
Þröstur Þorbjömsson, gítar, Ólöf Sigurð-
ardóttir, söngur, Eva Albertsdóttir og
Edda Borg Ólafsdóttir, bakraddir. Upp-
tökur fóm fram í Stúdló Sýrlandi og
Hljóðrita. Stjóm upptöku og forritun
annaöist Þorsteinn Jónsson. Höfundur
gefur sjálfur út plötuna en hljómplötuút-
gáfan Steinar hf. sér um dreiflngu.
Náttsöngur
verður haldinn í Hallgrímskirkju í kvöld
kl. 21. Þar koma fram Skagfirska söng-
sveitin undir stjóm Björgvins Þ. Valdi-
marssonar og María Einarsdóttir, sem
syngur einsöng. Að loknum söng kórsins
^ verður tíðagjörð, náttsöngm- að fomum
hætti. Það hefur verið venja undanfarin
ár að kórar heimsæktu kirkjuna og
syngju aðventu- og jólalög í helgihaldi á
aðventu. Að þessu sinrú koma margir
kórar við sögu, nk. sunnudag syngur
bamakór Kársnesskóla í guðþjónustu og
eftir viku syngur Dómkórinn í náttsöng.
Sunnudaginn 20. desember syngur
bamakór Austurbæjarskólans í guðs-
þjónustu og á aðfangadagskvöld syngja
Kór Hamrahlíðaskóla og Hamrahlíðar-
kórinn við aftansöng kl. 18.
Ríkisútvarpið - sjónvarp opn-
ar verslun
í dag 9. desember opnar Ríkisútvarpið -
sjónvarp verslun á jarðhæð í húsi sjón-
varpsins, Laugavegi 176. Þar verða til
sölu myndsnældur með ýmsu innlendu
og erlendu efni. Verslunin verður opin
alla virka daga kl. 14-18.
Tórúeikar
Kór Snæfellingafélagsins
í Reykjavík
heldur sína árlegu jólatónleika í kirkju
Óháða safnaðarins við Háteigsveg nk.
sunnudag 13. desember kl. 15. Kórinn
flytur ýmis verk, m.a. eftir J.C. Bach,
Mozart, Schubert o.fl. Sl. þijú ár hefur
Friðrik Saem. Kristinsson verið söng-
stjóri og Þóra V. Guömundsdóttir annast
undirleik á orgel eða planó. Kór Snæfell-
inga hvetur alla þá Snæfellinga sem búa
á Reykjavíkursvæöinu að fjölmenna á
þessa jólatónleika og taka með sér gesti.
Menning_________’_____________________________________________________dv
Einleikarapróf Hildigunnar Halldórsdóttur í Norræna húsinu í gærkvöldi
Kvöldverður til heiðurs
Gorbatsjov-hjónunum
Fyrstu skref
í hópi þeirra gesta, sem hingað til
hafa lítið komið við sögu samskipta
stórveldanna, voru meðal annarra
Claudette Colbert leikkona, Joe Di-
maggio, fyrrum homaboltastjama,
Chris Evert tennisstjama, Mari Lou
Retton, ólympíumeistari í fimleikum,
og James Stewart leikari.
I boðinu var að sjálfsögðu auðkýf-
ungurinn aldni, Armand Hammer,
sem hefur átt mikil viðskipti við Sov-
étríkin í gegnum tíðina, og hljóm-
sveitarstjórinn þekkti, Mstislav
Rostropovich, sem fæddur er í Sovét-
ríkjúnum.
Fátt er skemmtilegra, uppbyggi-
legra og meira hressandi en að
verða vitni aö góðu verki sem hefur
veriö undirbúið af alúð og heilind-
um. Og ekki er nú verra ef sá sem
vinnur verkið er að stíga fyrstu
skref út í lífið og listina. Þannig
Tónlist
Leifur Þórarinsson
voru tónleikar á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík í Norræna
húsinu í gærkvöldi, einleikara-
prófstónleikar Hildigunnar Hall-
dórsdóttur fiðluleikara, sem naut
þama ágætrar aðstoðar Chather-
iné Williams píanóleikara.
Tónleikarnir hófust á framúr-
Hildigunnur Halldórsdóttir leikur i Norræna húsinu i gærkveldi
■V ' '
skarandi fiðlugyðingamúsík Emst
Blochs, Nigun, sem heimtar mik-
inn tón og frjálst spil og heilmikið
af sætsúrum tilfinningum. Á svona
stykkjum má oft vel heyra hvort
viðkomandi er fiðluleikari í sér og
þó að Hildigunnur eigi nokkuð í
land að ná öllu fram sem býr undir
í svona músík leyndi sér ekki að
hún hefur neistann. Hvort sá neisti
á eftir að verða glóð eða bál var
ekki hægt að heyra að svo stöddu,
ekki í sólóverki Karólínu, In vultu
solis, og varla í a-moll sólósónötu
Bachs sem Hildigunnur lék þó oft-
ast fallega.
En í sónötu fyrir fiðlu og píanó í
c-moll eftir Grieg var ótalmargt
spennandi í leiknum, sömuleiðis í
Inngangi og Rondo Capriccioso Sa-
int-Seans, þó þar vantaði dálítið á
skerpuna í húmomum.
Það er enginn vafi á því að Hildi-
gunnur hefur notiö afburðaleið-
sagnar hjá kennurum sínum í
Tónlistarskólanum og að hún hef-
ur tekið tilsögninni vel. Hún hefur
líka greinilega fengið mikið af mús-
ík í vöggugjöf sem ætti að leiða
hana langt haldi hún rétt á spöðun-
um við framhaldsnám úti í heimi.,
AEra bestu kveðjur. LÞ
í gærkvöldi héldu bandarísku for-
setahjónin kvöldverð til heiöurs
Mikhail og Raisu Gorbatsjov. Allir
helstu ráðamenn Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna voru þar saman
komnir en einnig ýmsir aðrir sem
hingað til hafa ekki verið mikið við-
riðnir afvopnunarviðfæður stór-
veldanna.
Nancy og Ronald Reagan héldu í gær kvöldverðarboð til heiðurs Raisu og Mikhail Gorbatsjov. sfmamynd Reuter
Ólafur Amarson, DV, Washingtan:
Utvegsbankinn:
Jón ætlar að selja
bankann næsta vor
Loðnukvótinn
tvöfaldaður
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur ákveðið að hlutabréf
ríkisins í Útvegsbanka íslands hf.,
alls 760 milljónir króna, verði ekki
seld að sinni heldur boðin til sölu
á nýjan leik næsta vor, þegar fyrir
liggur mat á eiginfjárstöðu bank-
ans og eftir að fyrsti ársreikningur
hans hefur verið lagður fram.
„Það er mat mitt að ekki hafi
komið fram fullnægjandi tilboð í
bréfm, er samrýmist þeim forsend-
um, sem lágu til grundvallar
auglýsingunni í júní og stefnu rík-
isstjómarinnar í bankamálum. Hef
ég því ákveðið að hafna tilboði yðar
og hætta að svo stöddu viöræðum
um sölu bréfanna,“ segir Jón Sig-
urðsson í bréfi til Krisljáns
Ragnarssonar, forsvarsmanns 33ja
aðila sem buðu í bankann 17. ágúst.
„Ég leyfi mér fyrir höiid hópsins
að harma þessa afstöðu yöar um
Jeið og ég lýsi furðu minni á að þér
teljið tilboðið ekki samrýmast þeim
forsendum sem ríkisstjórnin hafi
ákveðið að leggja til grundvallar
sölunni,“ segir Kristján Ragnars-
son í svarbréfi til Jóns Sigurðsson-
ar viðskiptaráðherra. - JGH
Ákveðið hefur verið aö leyfa veiðar
á 550 þúsund lestum af loðnu til við-
bótar þeim 500 þúsund lestum sem
leyfð var veiði á í sumar.
Ákvörðun þessi kemur í kjölfar
rannsóknaleiðangurs fiskifræðinga,
sem farinn var í nóvember. Af þessu
magni fá Norðmenn að veiða 15% en
íslendingar 85%. Til viðbótar þessu
hafa svo bæði Færeyingar og Græn-
lendingar veitt 66 þúsund lestir,
þannig að samtals verður veidd 1,1
milijón lesta úr loðnustofninum.
Þetta er svipað magn og veitt hefur
veriö síðustu tvær loðnuvertíðar.
Stofninn er enn mjög sterkur því tal-
ið er að hrygningarstofninn sé nú
um 1200 þúsund lestir en fiskifræð-
ingar telja að ekki minna en 400
þúsund lestir af loðnu þurfi að
hrygna hér við land til að viðhalda
stpfninum miðað við meðalárferði.
í því sambandi má benda á að þeg-
ar loðnuveiðamar voru stöðvaðar
fyrir nokkrum árum var talið aö
hrygningarstofninn væri kominn
niður í 160 þúsund lestir. Sá hrygn-
ingarstofn skilaöi þó af sér nýliðum
sem óhætt var að veiða af um eina
milljón lesta tveimur árum síðar.
-S.dór
Tapað - Fundið
Hjól tapaðist
Svart og hvitt Winther reiöhjól tapaðist
úr Heimahverfi. Sá sem veit hvar hjóliö
er niöurkomið vinsamlegast hringi í síma
33807.
Síamskisa tapaðist
frá Hávallagötu 13 á sunnudaginn sl. Hún
er eyrnamerkt R-7104. Þeir sem hafa orð-
ið varir við kisu eða vita hvar hún er
niöurkomin vinsamlegast hringi í síma
46537 eða 25010.
Kvosarskipulag ekki samþykkt
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur neitað að
staðfesta samþykkt skipulags-
stjómar af tillöguuppdrætti af
skipulagi Kvosarinnar í miðbæ
Reykjavíkur.
Hefur hún lagt til að málið verði
tekið upp aö nýju í skipulags-
stjóm.
Félagsmálaráðherra telur skipu-
lagið ófrágengið og ábótavant í
mörgum veigamiklum atriðum auk
þess sem breytingar á skipulaginu
hafi ekki verið samþykktar í skipu-
lagsnefnd, borgarráði eða borgar-
stjórn, þó uppdrátturinn hafi
upphaflega verið samþykktur í öll-
um þessum ráðum.
-JBj