Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Blaðsíða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987,
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Hótel Paradísó
Dave Stewart
úr hljómsveitinni Euryth-
'mics, sem leikur á móti
Annie Lennox, kvæntist
nýlega einni stúlkunni úr
Bananarama, Siobhan Fa-
hey. Þau hjónakornin
eignuðust nýlega sitt fyrsta
barn, strák sem eflaust á
eftir að verða poppstjarna í
framtíðinni. Siobhan átti
barnið í vatni, sem gerist nú
æ vinsælla, og gekk fæð-
ingin að óskum. Dave hefur
þó engin áform uppi um að
hætta í hljómsveitinni Eur-
ythmics.
Sarah
Ferguson
- eiginkona Andrews prins
- ér.talin meiriháttar skap-
mikil og það er ekki vinsælt
í bresku konungsfjölskyld-
unni. Húfi vakti mikla
athygli um daginn þegar
hún bauð Karli og Díönu
prinsesu út í mat. Þjónninn,
sem afgreiddi Fergie, mis-
skildi eitthvað pöntunina
hjá henni og lét hana fá vit-
lausan rétt. Fergie missti
stjórn á skapi sínu og skip-
aði þjóninum að hverfa úr
augsýn sinni sem fyrst. Karl
og Díana sátu víst þögul
undir borðum það sem eftir
var og hugsuðu sitt.
Richard
O'Sullivan
- sem frægur er úr þáttun-
um „Me and my girl" -
hefur óvænt tilkynnt fram-
leiðendum þáttanna að
hann hyggist hætta á næst-
unni. Hann hefur alltaf sagt
að hætta beri leik þá hæst
standi, áður en vinsældir
þáttanna detta niður. Ric-
hard segist líka vilja reyna
við eitthvað nýtt í leikara-
bransanum.
Um þessar mundir er sýndur í]ör-
ugur „Kabarett" í Ársölum Hótel
Selfoss. Leikfélag Selfoss og og
hljómsveitin Karma standa aö sýn-
ingu þessari sem nefnist „Hótel
Paradísó".
Vel er vandað til á Paradísó og er
hljómsveit hússins þar þungamiðja
þegar hótelstjórinn, yfirþjónninn,
pikkalóinn og móttökudaman taka á
móti gestum hótelsins. Margt manna
gistir á Paradísó, þar á meðal Jón
nokkur Bergsson, bóndi í Suður-
Landeyjum, svo einhver sé nefndur.
Gestir Ársala skemmtu sér kon-
unglega þagar fréttaritari DV brá sér
á kabarettinn um daginn. Það vakti
sérstaka athygli að allir leikendur
leikfélagsins í sýningunni er ungt
fólk sem ekki hefur áður haldið uppi
sýningu sem þessari.
Gömlu hjónin rifja upp gamlar endurminningar Á brúðkaupsafmælinu. „Nei, sko, ennþá líf í karli... ekki sofnai'
Á hótelinu er alls konar þjónusta. Hér er Kynþóra Krafts með einum við-
skiptavini sínum, Loðmundi Langþráðs.
Munkar séra Brands sem leynast í kjallara hótelsins. Bænir þeirra vitna
um ekki allt of heilagt hugarfar.
Eg þekkti einu sinni fatlað fól
Þrír söng-
leflrir
samtímis
Andrew Lloyd Weber er ansi stór-
tækur söngleikjahöfundur og
stendur fyrir mörgum af vinsæl-
ustu söngleikjunum á Broadway.
Nú er verið að sviðsetja nýjasta
söngleik hans á Broadway, „The
Phantom of the Opera“ og er hann
þar með orðinn höfundur þriggja
söngleikja sem verið er að sýna á
Broadway um þessar mundir en
það eru áðumefndur söngleikur
Cats og Starhght Express.
Árið 1982 átti Lloyd Webber
reyndar einnig heiðurinn af þrem-
ur söngleikjum sem vom sýndir
samtímis það ár. Það vom söng-
leikirnir Evita, Joseph and the
Amazing Technicolor Dreamcoat
og Cats sem enn er sýndur á Broad-
way. Stjama hans skín því skært
um þessar mundir.
á Broadway, er kvæntur þessari konu, Söru Brightman, en hún ieikur
i nýjasta söngleik Webbers sem heitir The Phantom of the Opera.
Símamynd Reuter