Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1987, Side 37
MIÐVIKUDAGUR.9. DESEMBER 1987.
37
Börn Guðlaugs og Ingibjargar Jónsdóttur, konu hans, sem nú er látin, fögnuðu með honum á 70 ára afmæli hans sem verslunarmanns. Frá vinstri ta-
lið: Guðleif Guðlaugsdóttir verslunarstjóri, Steinunn Guðlaugsdóttir verslunarmaður, Jónas Guðlaugsson framkvæmdastjóri, ingveldur Guðlaugsdóttir
bankafulltrúi, Guðlaugur Pálsson sjálfur, Guðrún Guðlaugsdóttir einkaritari og Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri. Á myndina vantar Pál Guðlaugsson
sem búsettur er í Sviþjóð og gat ekki verið viðstaddur.
Sjötíu ára versl-
unarafmæli
Fáir geta státað af jafnlöngum
starfsferli og Guðlaugur Pálsson sem
rekið hefur verslun á Eyrarbakka í
70 ár samfleytt. Það var árið 1917 sem
hann fékk leyfi fyrir verslun á Eyrar-
bakka, en áður haföi Guðlaugur
starfað sem verslunarmaður í tvö ár.
Sjálfur er Guðlaugur 91. árs, ótrúlega
ern og starfrækir verslun sína enn.
Guðlaugur hélt afmælisfagnað að
Tannlæknahúsinu í Síðumúla í til-
efni þessa áfanga og mættu um 100
manns til þess að heiðra Guðlaug.
Kaupmannasamtökin afhentu Guð-
laugi auk þess silfurskjöld sem
viðurkenningu á verslunarafmæl-
inu.
Guðlaugur lét sig svo ekki muna
um að mæta í verslun sína klukkan
9:30 morguninn eftir til starfa eins
og venja hans er.
Davíð Oddsson borgarstjóri var meðal veislugesta og hér ræða hann og
Guðlaugur við Guido Bernhöft heildsala. Guido Bernhöft er sjálfsagt að
segja Davíð að Guðlaugur Pálsson hafi verið fyrsti viðskiptavinur hans
þegar hann opnaði heildsölu sína. DV-myndir GVA
Hafa starfað í 25 ár
Hljómsveitin Searchers spilaði syrpu af frægustu lögum sínum i Broadway um helgina og landinn var vel mað á
DV-myndir GVA
Um síðustu helgi kom
breska hljómsveitin Searc-
hers fram í Broadway og
skemmti gestum.
Hljómsveitin Searchers er
ættuð frá Liverpool og var
stofnuð árið 1962. Þeir félag-
ar komu fram á svipuðum.
tíma og Bítlarnir og spiluðu
á fyrstu árum sinum á sama
stað og þeir, eða í Cavem
klúbbnum fræga í Liverpo-
ol. Hver kannast ekki við lög
eins og Needles and Pins,
Sugar and Spies og Love
Poison Number Nine, en
þau lög eru hvað frægust
hjá hljómsveitinni Searc-
hers.
Hljómsveitin hefur starf-
að óslitið frá 1962 og hélt upp
á 25 ára afmæh sitt á árinu.
Félagamir hafa endurnýjað
nokkuð af fyrri vinsældum
sínum á síðari árum í þeirri
uppsveiflu sem tónhst sjötta
áratugarins hefur notið. Á
síöari áram hafa þeir komið
mikiö fram í Bretlandi og
Br.ndaríkjunum, en geranú
stansáíslanditilað
skemmta landanum.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
I /
Burt Reynolds
fékk nýlega tilboð upp á 75
milljónir króna um að leika í
gamanmynd aftur með Sally
Field sem áður fyrr var í tygjum
við hann. Burt sagði nei takk,
og Sally var sama sinnis því
þau slitu sambandi sínu með
miklum látum fyrir fjórum árum.
Hvorugt þeirra er á þessum fjór-
um árum búið að gleyma
ágreiningsefnunum sem leiddu
til skilnaðar þeirra.
Gitte Nielsen
er orðin vinsælli fjölmiðlamatur
heldur en kóngafólkið á Norð-
urlöndum. Þegar Gitte kom um
daginn í eins dags heimsókn
til Danmerkur til að líta á son
sinn voru hvorki fleiri né færri
en 50 Ijósmyndarar mættir til
þess að taka af henni myndir
fyrir tímarit og dagblöð. Jafnvel
helstu íþróttastjörnur Norður-
landa, svo sem Björn Borg og
Ingemar Stenmark, hafa aldrei
fengið svo mikla athygli fjöl-
miðla.
i
Díana
prinsessa er víst ekki vinsælasti
atvinnurekandinn á Bretlands-
eyjum. Henni helst í meira lagi
illa á starfsfólki sínu og hefur
hún rekið hvorki fleiri né færri
en 30 manns af nánasta starfs-
liði sínu fyrir ýmsar sakir. Hún
rak til dæmis eina barnapíu sína
fyrir að mæta í sömu veislu og
hún sjálf því Díana getur ekki
hugsað sér að skemmta sér
með starfsfólki sínu. Einn af líf-
vörðum hennar var rekinn fyrir
þær sakir einar að hún vildi
ráða annan gamlan kunningja
í starfið fyrir hann.