Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 8
Stílhreinir krómaðir stólar með leðri, svartir gráir og brúnir LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. Laufabrauðs- gerðin er fjölskylduhátíð - DV fylgist með laufabrauðsgerð hjá hjónunum Finni Eydal og Helenu Eyjólfsdóttur og fjölskyldu þeirra á Akureyri ifþuieluir gæðifram Gylfi Kristjánsson, DV, Akmreyri: Þröngt setinn bekkurinn í eldhúsinu, f.v.: Linda Sif, Skapti Laufey Eydal og Helena Eydal. Laufabrauðsgerö er eitt af því sem fylgir jólunum og er talin ómissandi þáttur í jólaundirbúningum á mörg- um heimilum. Heimildir um upp- runa laufabrauðsgerðar eru þó mjög á reiki og ekki hægt segja til um það með neinni vissu hvort þessi siður er upprunninn erlendis eða hér á landi en það mun vera á 18. öld sem laufabrauðsgerð hófst hér á landi. Fyrst var um að ræða heldri manna munað en síðar varð laufabrauð al- Þórhallsson, þýðumatur og laufabrauðsgerð hefur aðaUega verið stunduö á Norður- og ———--------- Austurlandi. Ibúðin undirlögð „Þér er velkomið að líta inn,“ sagði Helena Eyjólfsdóttir, söngkona á Akureyri, þegar DV hringdi til henn- ar og spurðist fyrir um hvort laufa- brauðsgerð væri siður á hennar heimili og hvort shkt stæði fyrir dyr- um. Svo skemmtilega vildi til að hjá þeim Helenu og Finni Eydal, manni hennar, stóð þá einmitt fyrir dyrum að „gera laufabrauð" og leyfi til að fylgjast með var auðfengið. Þegar mig bar að garði í Skarðs- hlíðinni á Akureyri má segja að íbúðin hafi verið undirlögð. í eld- húsinu sátu tvær dætur þeirra hjóna, tengdasonur og dótturdóttir við laufabrauðsskurð, húsbóndinn hafði hreiðrað um sig í stofunni og skar út í með tilþrifum og nánast allt borð- pláss í íbúðinni var undirlagt laufa- brauði sem hafði verið skorið fagmannlega út og beið steikingar. Helena var greinilega í hlutverki stjómandans og var að gera allt klárt fyrir steikinguna sem er hennar verk við laufabrauðsgerðina fyrst og fremst. Voðalega skemmtilegt „Ég kynntist ekki þessum sið fyrr en ég flutti hingað norður,“ sagði Helena. „Mér fannst þetta strax voðalega skemmtilegt og þetta er fyrsti forsmekkurinn sem börnin fá af jólunum. Áður en ég flutti norður hafði ég heyrt minnst á laufabrauðiö en aldrei smakkað þaö. Nú er hins vegar svo komiö að ég, Sunnlending- urinn, borða manna mest af laufa- brauði og finnst voðalega gott.“ Öll „mafían“ kom saman „Ég er alinn upp við laufabrauð,“ segir Finnur Eydal hins vegar. „Laufabrauðsgerö var í hveiju húsi hér á Akureyri þegar ég var að alast upp og það má eiginlega segja að laufabrauðsgerðin hafi verið fjöl- skylduhátíð og sé það enn. Það má segja að öll Eydalsmafían hafi tekið þátt í þessu saman. Nú hin síðari ár, þegar fjölskyldur okkar eru orðnar stærri, hefur það svo lagst af en krakkarnir okkar hafa tekið þátt í þessu með okkur.“ Tilþrif hjá Lindu Sif Barnabarnið Linda Sif, sem er aö- eins fjögurra ára, er líka tekin til við laufabrauðsgerðina og það var gam- an aö fylgjast með þeirri litlu hand- fjatla laufabrauðið. Áhuginn leyndi sér ekki á andlitinu fremur en hjá hinum og sú stutta hafði náð ótrúlega góðum tökum á því sem hún var að gera. Hún virtist örlitið feimin viö manninn með myndvélina en þegar hún svaraði játandi þeirri spurningu hvort þetta væri gaman kom það, já“ beint frá hjartanu. Það skemmtilegasta er eftir Hin síðari ár tíðkast það nær ein- göngu að fólk kaupi laufabrauðskök- urnar í verslunum og þá er einungis eftir að skera þær út og steikja og auövitað það skemmtilegasta, að margra mati, að borða þær. „Það hefur verið voðalega erfitt að hnoða Zja—Jja sæta sófarl.. ____________ með áklæði í ýmsum litum Sætisáklæði er hægt að renna af og nota báðum megin SUDURLANDSBRAUT 22 S:360tl deigið og fletja það út, núna er bara það skemmtliegasta eftir," segir He- lena. Hún sagði að þau gerðu um 50 laufabrauðskökur að þessu sinni. „Það er fyrir okkur og fíölskyldu dóttur okkar, tvær litlar fiölskyldur. Þetta þykir sjálfsagt ekki mikið því ég veit um fíölskyldur þar sem gerð- ar eru fleiri hundruð kökur.“ Nöfnin skorin út Þaö er óhætt að segja að Finnur fari sínar eigin leiðir við útskurðinn í kökurnar. Hann sker út nöfn í kök- urnar fímum höndum og hver fíöl- skyldumeðlimur fær því köku með sínu nafni. „Æth þetta hafi ekki byrj- að vegna þess að mínar kökur þótt ljótar þegar ég notaði hefðbundnu aðferðina, þá var betra að finna upp eitthvað nýtt,“ segir hann. Helena skellihlær að þessum orðum og seg- ir: „Þetta er alveg rétt hjá honum.“ En hvað um þaö, nöfnin sker hann fagmannlega út í kökurnar og, eins og Helena orðaði það: „Það fær hver köku með sínu nafni á diskinn sinn á jólunum." Allir borða laufabrauð „Það borða allir laufabrauð á jól- unum,“ segir Finnur. „Laufabrauð með smjöri er alveg ómissandi með hangikjötinu. Það er heldur ekki amalegt að setjast fyrir framan sjón- varpið með laufabrauð og smjör,“ bætti hann við. Helena á svo síðasta orðið: „Mér finnst þetta voöalega skemmtilegt, allt saman, og það er nauðsynlegt að fá afskomingana með þegar maður kaupir kökurnar. Þá er hægt að gefa fólkinu að smakka þegar steikingunni er lokið." 60 mínútna klukka. ;:Cc:^-^Ts,yHiru og flýtir matseld. Verörroöaöwöstaögre'öslu. . ( (/He/ium Jt # isam)u*pm' don CanQmnoctekfó SlftMBO Eldflaugar- skot SPECTPUMHF SÍMI29166

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.