Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Page 45
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. 57 Iþróttapistill Stúkan á skökkum stað Enn einu sinni var landslið okk- ar í handknattleik í sviðsljósinu í vikunni og að vanda stóðu lands- liðsmennirnir sig vel svo ekki sé meira sagt. Reyndar hefur landshö- ið verið á fleygiferð í langan tíma ef með er tahð Lottó-mótiö í Nor- egi-. Þar hafnaði Uðiö sem kunnugt er í þriðja sæti. Landsmenn alUr gera miklar kröfur til landsUðsins og það er alltaf grunnt á óánægjuröddum þegar ekki vinnast sigrar. Þeir voru margir sem ötuðu Uðið auri eftir tapið gegn Júgóslövum og Norðmönnum á Lottó-mótinu enda kröfuharður almenningur jafnan fljótur til þegar Ula gengur. Vissu- lega var tapið gegn Norðmönnum nánast óþolandi vegna þess ein- faldlega að Norðmenn áttu í hlut. Þeir hafa lengi talið sig betri í íþróttinni en íslendinga og það höf- um við skiljanlega ekki viljað viðurkenna. Ef grannt er skoðað var tapið gegn Norðmönnum ekk- ert reiðarslag eins og margir vilja meina. Þeir léku jú á heimavelli. ísland hefur sjaldan tapað gegn Noregi en Norðmenn hafa hins vegar unnið hinar Norðurlanda- þjóðirnar, Svía og Dani, svo til árlega. Frammistaða okkar gegn Norðmönnum er því betri en Dana og Svía. Verðum að líta á málið í heild Varla er það mannsbarn til sem fylgist með íþróttum hér á landi sem ekki veit að íslenska landsliðið býr sig nú af einstöku kappi fyrir ólympíuleikana. Landsliðið leikur tugi landsleikja á þessum tíma og þaö gefur augaleið að okkur tekst ekki að vinna alla þessa leiki. Mál- ið er að vinna réttu leikina og þá auðvitað þegar áð ólympíuleikun- um kemur. Við verðum að stilla gagnrýni í hóf á meðan á undirbún- ingstímanum stendur og gefa landsliðinu þann frið sem það þarf á að halda. Árangurinn gegn Júgóslöv- um var mjög góður Árangur íslenska landsliðsins í leikjunum tveimur gegn heims- meisturum Júgóslava í Laugar- dalshöllinni í vikunni var mjög góður. Liðið náði að hefna ófaranna frá Noregi og sigra í fyrri leiknum og engu munaði að okkur tækist aö ná jöfnu í síðari leiknum. Reyndar er langt síðan maður hef- ur orðið vitni að annarri eins óheppni og elti íslenska liðið í síð- ari leiknum. Þrátt fyrir mjög góðan árangur gegn Júggunum er vafa- samt að dæma liðin handknatt- leikslega séð eftir leikina. Álagið, sem var á báðum liðum, að leika sjö landsleiki á átta dögum, er mjög óvenjulegt en á örugglega eftir að koma sér vel þegar að alvörunni kemur. Stúka á vitlausum stað Þeir sem hafa átt leið um Laug- ardahnn hafa vafaUtið tekið eftir mikilU stúkubyggingu sem nú er verið að reisa við gervigrasvöUinn. Á undanfórnum árum hefur mikil gagnrýni komiö fram á margt það Umsjón Stefán Kristjánsson sem gert hefur verið í Laugardaln- um og ég held aö hin nýja stúku- bygging veröi ekki síður á milU tannanna á fólki en aðrar fram- kvæmdir á íþróttasvæðinú í Laugardal. GervigrasveUinum var ákaflega vel tekiö þegar hann leit dagsins ljós og í raun var um hreina bylt- ingu að ræða fyrir knattspymu- menn. Þeir geta nú æft aUan ársins hring án tilUts til veðurfars. Sann- leikurinn er hins vegar sá aö sárafáir alvöruleikir fara fram á velUnum og raunar ekki nema einn leikur árlega sem laðar að sér marga áhorfendur og er hér átt við úrslitaleik- Reykjavíkurmótsins. Umrædd áhorfendastúka kemur því aðeins að notum fyrir áhorf- endur á sárafáum leikjum og er svo sannarlega reist á snarvitlausum stað. Stúkuna átti auðvitað að reisa við aðalleikvanginn Það er mín skoðun og margra annarra að skynsamlegra hefði verið að reisa umrædda stúku. gegnt stúkunni sem fyrir er á aöal- leikvanginum í Laugardal. Þar átti þessi stúka að vera og þar er og verður þörf fyrir hana. Það liggur í augum uppi að nýtingin á stú- kunni á gervigrasvellinum verður ekki mikil. Allir stórleikirnir í knattspyrnunni hér heima fara fram á Laugardalsvellinum og svo gæti fariö að tvö 1. deildar lið lékju heimaleiki sína á velhnum næsta sumar. Allavega eitt. Ég er alls ekki aö deila á þá framkvæmd að reisa stúku í Laugardalnum, held- ur forgangsröð verkefnanna sem er röng að mínu mati. Vera má að stúkubygging sé á dagskránni á aðalleikvanginum en ég hef grun um að framkvæmdir við völlinn sjálfan muni hafa forgang enda er það eðUlegt. Laugardalsvöllurinn sjálfur er í slæmu ástandi og þar þarf margt að laga. EðUleg röð framkvæmda áð mínu mati heíði verið að byrja á því að gera við vöUinn, reisa síðan stúkubyggingu á móti stóru stúkunni á aðaUeik- vanginum og bygging stúku við gervigrasvöUinn hefði síðan komið þar á eftir. Þarft framtak hjá FRÍ Nýverið kom út nýtt tímarit á vegum Frjálsíþróttasambands ís- lands og nefnist það „Tímarit um frjálsar." í blaðinu, sem koma á út sex sinnum á ári hverju, verða fréttir af mótum, þjálfunargreinar og fleira sem viðkemur frjálsum íþróttum auk þess að vera málgagn FRÍ. Meðal efnis í fyrsta blaðinu sem nýkomiö er út má nefna viðtal viö ErUng Jóhannsson, íslands- methafa í 800 metra hlaupi, grein um stangastökkvarann sovéska Sergei Bubka sem á heimsmetið í greininni og ótalmargt fleira. í fréttatUkynningu frá FRÍ segir að með útkomu þessa blaös sé brotið blað í sögu FRÍ. Það eru orð að sönnu og þetta framtak FRÍ er mjög virðingarvert. Blaöiö verður selt í áskrift og verður tekið við áskrift- arbeiðnum á skrifstofu FRÍ. Östutt svar til formanns KKÍ í síðasta mánudagsblaði DV rit- aði Björn M. Björgvinsson, formað- ur Körfuknattleikssambands íslands, grein í þáttinn „Stungið niöur penna.“ Þar fjallaði Björn meðal annars um blaðaskrif varð- andi körfuknattleikinn og var ekki sáttur við afar neikvæð skrif um íþróttina. Ég get ekki stiUt mig um aö svara Bimi í örfáum orðum. Það virðist vera útbreiddur misskiln- ingur meðal manna að það sé í verkahring íþróttafréttaritara að hefla íþróttagreinar til vegs og virðingar og oftar en ekki neita menn að horfast í augu við sann- leikann. Og hann er einfaldlega sá að körfuboltinn hér á landi hefur verið á hröðu undanhaldi síöustu árin eða aUt frá því að erlendir leik- menn voru bannaðir. Ég fuUyrði að það sé ekki sök íþróttafrétta- manna hvernig komið er fyrir körfunni. Það er okkar aö segja frá staðreyndum og það hefur verið gert, aUavega í DV. Ekkert skal fullyrt um það hér hvort það er sök KKI eða félaganna hvernig málum er nú komið en þaö Uggur á borðinu að eitthvað þarf að gera til að auka ■ áhugann. Svo virðist sem menn séu nú að vakna af áralöngum dvala og meiningin sé að leyfa hér er- lenda leikmenn á ný. Þessu hljóta allir að fagna en mennirnir sváfu bara alltof lengi. En þeir eru loks vaknaðir og vonandi hafa þeir farið réttum megin framúr rúminu. Stefán Kristjánsson • Nýja stúkubyggingin við gervigrasvöllinn í Laugardal sem kostaði margar milljónir, sumir segja 18, þegar allt sé komið til alls. Hefði ekki verið skynsamlegra að reisa þessa fallegu byggingu við aðalleikvanginn i Laugardal? Viltu spara? - - Kíktu bara!! Nýkomið mikið úrval af ódýrum skóm. Odýri skómarkaðurinn Hverfisgötu 89 <r SÖFASETT Á HEILDSÖLUVERÐI 30 % ÖDÝRARI! Vönduð sófasett með vali um tau- eða leðuráklæði. Bólstrun og Tréverk hf. Síðumúla 33, sími 688599 BarbaraPucci Laugavegi 89 - sími 22453 Austurstræti 6 - sími 22450

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.