Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
55
dv___________________________________Bridge
Ferðaskrifstofan lagði Verðbréfamarkaðinn
Nýlega lauk ööram undanúrslita-
leiknum í bikarkeppni Bridgesam-
bands Reykjavíkur. Þar áttust við
sveit Veröbréfamarkaðar Iðnaðar-
bankans og sveit Pólaris. Þeir síðar-
nefndu unnu með 14 impum. Hér er
skemmtilegt spil frá leiknum.
V/A-V
KG98
G986
ÁD1053
G5 ÁKD986
D10652 ' 4
1052 ÁKD43
964 K
, 107432
Á73
7
G872
í opna salnum sátu n-s Guðlaugur
R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson en
a-v Guðmundur Páll Amarson og Sím-
on Símonarsson:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1T 4 S dobl
pass pass
Suðri er vorkunn að dobla eftir þess-
ar sagnir og hann hitti á ágætt útspil
sem var hjartaás og meira hjarta.
Austur trompaði, spilaði trompáttu og
svínaði. Síöan tók hann spaðagosa, fór
heim á tígluás og tók trompin í botn.
Noröri leið ekkert vel meðan þessu fór
fram því hann átti óhægt um afköst.
Hann gætti hins vegar ekki að sér því
i flmm spila endastöðunni átti hann
eftir G-9-8 í tígli og Á-D í laufi. Aust-
ur, sem hafði aðeins gefið einn slag,
gat því unnið spiliö með því að spila
laufakóng. Hann gafst hins vegar upp
og varð einn niður. í eftirmála benti
hann á að norður hefði getað varið
spiliö með því að kasta laufadrottn-
ingu en geyma hjartakóng. Síðan gæti
hann spilað út tígulgosa þegar hann
kæmist inn á laufás og stíflað þannig
tígullitinn. Það gengur náttúrlega ekki
upp því sagnhafi fer inn á tígultíu og
spilar hjarta. Hann fær síðan tíunda
slaginn á tiguldrottningu.
En auðvitað gat norður hnekkt spil-
inu með þvi að geyma lítið lauf með
ásnum í stað drottningarinnar.
í lokaða salnum sátu n-s Sævar Þor-
bjömsson og Karl Sigurhjartarson en
a-v ÁsmUndur Pálsson og Jón Ás-
bjömsson. Hér hefði eðlilega sagn-
kerfið átt að eiga betri möguleika:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1L dobl 1S
pass 2L 4 S dobl
pass pass pass
Suöur spilaöi út laufagosa, norður
áttaði sig ekki á fjórlitnum og sagn-
hafi fékk fyrsta slaginn á laufakóng.
Þar með var spilið unnið og austur
skrifaði 790 í sinn dálk.
Verum
viðbúin
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Það er hins vegar athyglisvert að á
hvoragu borðinu reyna n-s fimm lauf,
sem standa á borðinu. Alla vega kom
það stíft til greina í lokaða salnum að
mínu áliti. Það er líka nokkuð víst að
austur hefði þá sannfærst um að suður
hefði verið að stela spaðalitnum og
hann hefði þá farið í fimm. Laufagos-
inn út í þeirri stöðu hefði áreiðanlega
ekki verið gefinn og þá hefðu fimm
spaðar örugglega tapast.
Og hefði hann ekki farið í fimm þá
held ég að hann hefði áreiðanlega
doblað, sem hefði ekki verið verra fyr-
ir n-s.
Allavega kostaði spilið Pólaris 14
impa en það kom ekki að sök því þeir
áttu stærri sjóð en Verðbréfamarkaö-
urinn.
Jessop er stærsta ljósmyndavöru-
verslunarkeðja í Bretlandi.
JESSOP
Hefur nú sett á markað myndavél
sem hentar öllum.
\ ÍW Kynningarverð
2.950
með 36 mynda litfilmu og rafhlöðum.
.
/ :
Mjög skýrar myndir.
2ja ára ábyrgð.
3 litir: svart, svart/silfrað, svart/rautt.
::
■ : ■
Hlífðartaska kr. 290.
Takmarkað magn fyrir jól.
Þetta er góð jólagjöf.
Pöntunarsími fyrir póstsendingar 91-651414 og 623535. Símapantanir
alla daga kl. 9-22. Póstversl. Príma, box 63, 222 Hafnarfjörður
di^ae
Quick
Srfaf 7
Með: sjálfvirkri
filmufærslu
(autowind)
föstum fókus
innb. flassi
#
‘ ól
36 mynda litfilmu
rafhlöðum
Umboðsaðili
fyrir
á íslandi
FOTOHUSIÐ^t
Bankastræti, sími 21556. *
Opið kl. 9-18, laugardaga 10-18.
S VISA S EUROCARD
tfss™1