Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Blaðsíða 42
54
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
Skák
Tuttugu hafa orðið Evrópumeistarar unglinga
- Þröstur Þórhallsson teflir á mótinu í ár sem haldið verður í Amheim í Hollandi
en í upphafi nýs árs. Honum til að-
stoðar í Amheim veröur Þráinn
Vigfússon.
Núverandi Evrópumeistari ungl-
inga, Sovétmaðurinn Ivantsjúk,
ætlar að tefla aftur á mótinu í ár,
senniiega með því hugarfari að verða
tvöfaldur meistari. Landi hans, Gelf-
and, efnilegur skákmaður sem þegar
hefur getið sér gott orð, verður einn-
ig með sigurstranglegri mönnum. Af
öðrum nafntoguðum keppendum má
nefna Danann Lars Bo Hansen og
Englendinginn David Norwood sem
sigraði eftirminnilega á Njarðvíkur-
mótinu. í framhjáhlaupi er skylt að
geta þess að mishermt var í skák-
þætti á dögunum hvar lokaumferðir
mótsins í Njarövík voru tefldar. Þær
fóru fram við bestu aðstæður á Hótel
Kristínu þar sem keppendur bjuggu
einnig við afar góðan kost. Hafa skal
það sem sannara reynist.
Tuttugu Evrópumeistarar
Fjölmargir íslendingar hafa teflt á
unglingamótunum í Groningen og
því ætti að vera viö hæfi aö minnast
mótanna lítillega þegar skipt hefur
verið um skákstað. Bæjarnafnið
Groningen ætti annars ekki að
hljóma ókunnuglega í eyrum öld-
ungadeildarinnar því að þar var
haldiö mikið mót 1946. Það var fyrsta
stórmótiö eftir stríð og þar náði Bot-
vinnik fyrst aö slá í gegn.
Sigurvegararnir á unglingamótun-
um í Groningen eru nú margir
hverjir heimsþekktir skákmenn.
Árið 1963 sigraði Hollendingurinn
Þröstur Þórhallsson veröur full-
trúi íslands á Evrópumeistaramóti
unglinga í skák sem fram fer um jól-
in og áramótin' samkvæmt venju.
Mótinu hefur verið fundinn staður í
hollenska bænum Groningen allar
götur síðan 1969 en unglingamót þar
var fyrst haldið sex árum fyrr.
Undanfarin ár hafa skipuleggjend-
ur mótsins í Groningen haldið
hjartnæmar ræður við mótsslitin þar
sem þeir lýsa því yfir með þungum
ekkasogum að því miður hafi ekki
fengist fiármagn til að halda mótið
þetta árið nema meö miklum for-
tölum og það verði áreiðanlega ekki
mögulegt næst. Nú er loks komiö að
þessari sögulegu stund. Mótið í ár
verður haldið í Arnheim, öðrum hol-
lenskum bæ. Vonandi ferst móts-
stjórum skipulagning jafnvel úr
hendi þar svo að unglingunum finn-
ist eins og áður að þeir séu að tefla
á alvöruskákmóti.
Á þingi Alþjóðaskáksambandsins í
Sevilla var Þröstur viðurkenndur
sem alþjóðlegur meistari í skák.
Hann náði eins og kunnugt er lokaá-
fanga að titlinum á alþjóðamótinu í
Njarðvík á dögunum. Sá böggull fylg-
ir skammrifi að samkvæmt reglum
FIDE þarf skákmaður að hafa minnst
2350 Eló-stig til að fá formlega útnefn-
ingu. Þröst vantar enn fimm stig sem
hann á þó inni og fær um áramótin
er ný stig verða gefin út. Strangt til
tekið hlýtur hann því ekki nafnbót-
ina „alþjóðlegur meistari í skák“ fyrr
Frá Evrópumeistaramóti unglinga í Groningen árið 1969. V-Þjóðverjinn
Karl-Heinz Maeder varð óvænt Evrópumeistari. Hér er hann aö tafli við
Armenann Rafael Vaganjan sem nú er heimsþekktur stórmeistari.
Zuidema; næsta ár deildu landi hans
Hartoch og Daninn Sloth sigrinum;
síðan Ree og Hubner; þar næst Ree
og Englendingurinn Whiteley; 1967
Rússinn Steinberg, sem lést fyrir ald-
ur fram aðeins 25 ára gamaU, og 1968
varð skákmeistari, sem allir þekkja,
efstur: Anatoly Karpov, sem þá var
aðeins 16 ára gamall.
Karpov náði því ekki að verða Evr-
ópumeistari unglinga. Árið eftir að
hann sigraði var teflt í fyrsta sinn
um titilinn. Þessir hafa orðið Evr-
ópumeistarar (í tímaröð): Karl-Heinz
Maeder, Andreas Adoijan, Zoltan
Ribli, Gyula Sax, Oleg Romanishin,
Sergei Makaritsjev, John Nunn,
Alexander Kotsjév, Mark Diesen og
Lubomir Ftacnik, Shaun Taulbut,
John Van der Wiel, Alexander
Tsjémín, Ralf Akesson, Curt Hans-
en, Jaan Ehlvest, Valery Salov,
Ferdinand Hellers, Alexander Kha-
lifman og Vassily Ivantsjúk.
í upptalningunni kennir margra
grasa. Tuttugu skákmenn hafa orðið
Evrópumeistarar og margir þeirra
eru nú heimsþekktir stórmeistarar.
Aðrir hafa ekki uppfyllt þær vonir
sem við þá voru bundnar. Eitt nafn-
anna vakti sérstaka athygli mína.
Það er Karl-Heinz Maeder sem sigr-
aði 1969 og varð fyrsti Evrópumeist-
ari unglinga. Hvaða maður er þetta
og af hverju er hann hættur að tefla?
Svarið er að finna í hollenskri bók
um Groningenmótin sem út kom í
fyrra. Þar kemur fram að Maeder
þessi, sem bersýnilega var bráðefni-
legur skákmaður á þessum tíma, dró
sig í hlé frá kapptaíli tveimur árum
seinna. í stað þess lagði hann stund
á stærðfræði og fór að tefla bréfskák.
Fyrir sex árum varö hann alþjóðleg-
ur bréfskákmeistari.
Ég get ekki stillt mig um að birta
eina bráðskemmtilega skák frá mót-
inu 1969. Skákin er reyndar ekki
Skák
Jón L. Árnason
lýsandi dæmi um taflmennsku
Maeders á mótinu því að þetta er
eina skákin sem hann tapaði. And-
stæðingur hans er lítt þekktur Finni
sem vann þessa einu skák í úrslitun-
um!
Hvítt: Turunen
Svart: Maeder
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
RfB 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. a3
Oftast er leikið 7. Bb3 en með texta-
leiknum, sem reyndar er ekki sérlega
beittur, vill hvítur halda biskupnum
til haga. Friðrik teíldi svona í frægri
skák við Fischer á áskorendamótinu
1959 og vann í 45 leikjum.
7. - Be7 8. 0-6 0-0 9. Ba2 b5 10. Del
Friðrik lék 10. f4 Bb7 11. f5!? e5 12.
Rde2 Rbd7 13. Rg3 Hc8 14. Bg5 Rb6
15. Rh5 og nú, í stað þess að fórna
skiptamun með 15. - Hxc3?!, hefði 15.
- Rc4 gefið Fischer prýðileg færi.
10. - Bb7 11.13 d5?!
Það er eðlilegt að svartur vilji refsa
andstæðingnum fyrir svo rólyndis-
lega taflmennsku. Leikurinn hefur
þó sína annmarka.
12. e5 Bc5 13. Be3 Db6 14. Hdl Rc6 15.
Df2! Rxe5
Svartur þiggur peðið og lifir 1 von-
inni því að annars fengi hann
snöggtum lakari stöðu.
16. b4 Bxd4 17. Bxd4 Dc7 18. Dg3 Rfd7
19. Hfel f6 20. f4
Ef riddarinn forðar sér fellur
kóngspeðið og svartur ætti í erfið-
leikum. Þess vegna leggur svartur
traust sitt á gagnsókn eftir c-línunni
en hún er hæpin.
20. - Hac8?! 21. fxe5 fxe5 22. Hxe5!
Rxe5 23. Bxe5 Df7
Svartur hefur misst tvo menn fyrir
hrók og peð og hvítur á mun betri
stöðu. Hann hefur hins vegar ekki í
hyggju að leggjast í vöm. í næstu
leikjum nær hann öflugu frum-
kvæði.
24. Re4! Hxc2
Ekki 24. - dxe4 vegna 25. Bxe6!
Dxe6 26. Dxg7 mát.
25. Bbl He2 26. RÍ6+ Kh8 27. Dh4?
Ónákvæmni. Eftir 27. Dd3! væri
taflinu sama og lokið. Þá svarar hvít-
ur 27. - gxfB með 28. Bxfí> + ! Kg8 (ef
28. - Dxf6 29. Dxh7 mát) 29. Dg3+ og
vinnur.
27. - h6 28. Rg4!
Hótar 29. Dxh6 + með máti og vald-
ar um leið 12-reitinn og biskupinn á
e5. Svartur er hins vegar ekki af baki
dottinn.
28. - Hxg2+! 29. Khl!
Ekki 29. Kxg2 Df3+ og Hdl fellur
með skák í næsta leik.
29. - Kg8
30. Dxh6?!!
Svo virðist sem þessi laglega
drottningarfóm geri út um taflið þar
eð 30. - gxh6 31. Rxh6 er mát. En
svartur á dulinn varnarmöguleika!
Hvítur átti fallega vinningsleið í
stöðunni: 30. Rxh6 + ! gxh6 31. Dxh6
Hg7 (aðrir leikir eru ekki til) 32.
Bh7 + ! Hxh7 33. Hgl+ og mátar.
30. - Hd8?
Missir af björgunarleiðinni sem
satt að segja er enginn hægðarleikur
að koma auga á. Svartur gat varist
með 30. - Hc2!! sem lokar fyrir bisk-
upslínuna og hótar um leið 31. - Df3+
með máti. Hrókurinn er friðhelgur.
Ef 31. Bxc2? þá 31. - Df3+ 32. Kgl
Dxg4+ og síðan 33. - gxh6. Ekki
gengur heldur 31. Rf6 + ? Dxf6! 32.
Dxf6 d4+! 33. Kgl Hg2+ 34. Kfl gxf6
og vinnur.
í Ijós kemur aö eftir 30. - Hc2!! verð-
ur hvítur að sætta sig við jafntefli
með 31. Kgl! Hg2 + ! 32. Khl Hc2 o.s.
frv. Sannarlega óvænt stef og
skemmtilegt. Eftir leikinn í skákinni
tapar svartur strax.
31. Dh7+ Kf8 32. Bxg7+! Ke8 33. Bg6
d4 34. Dg8+
- og svartur gafst upp.
Unglingalandskeppni
í Stavanger
Um helgina fer fram í Stavanger í
Noregi fiögurra landa keppni ungl-
inga í skák. í keppninni taka þátt
íslendingar, Norðmenn, Danir og
Svíar. Þetta er árlegur viðburður en
íslendingum hefur ekki fyrr verið
boðið að taka þátt. Hollendingar hafa
jafnan sent lið til þessarar keppni en
af því gat ekki orðið nú.
Tólf manna hópur fer til Stavan-
ger: Þröstur Þórhallsson, Andri Áss
Grétarsson, Davíð Ólafsson, Tómas
Bjömsson, Arnar Þorsteinsson,
Snorri G. Bergsson, Hannes Hlífar
Stefánsson, Þröstur Árnason, Sig-
urður Daði Sigfússon og Héðinn
Steingrímsson. Fararstjórar verða
Jón G. Briem og Ólafur H. Ólafsson.
íslendingarnir hljóta að teljast sig-
urstranglegir í keppninni, þó svo
Simen Agdestein tefli á fyrsta borði
fyrir Norðmenn og Ferdinand Hell-
ers fyrir Svía. Er enginn vafi á því
að keppnin verður góð æfing fyrir
unglinga okkar. Hitt er svo annaö
mál hvort það samrýmist metnaði
okkar á skáksviðinu að hlaupa upp
til handa og fóta og senda svo fiöl-
menna sveit til útlanda með
skömmum fyrirvara til þess eins að
verða fiórða hjól undir vagni í keppni
grannþjóðanna.
-JLÁ